Morgunblaðið - 29.09.2016, Page 6

Morgunblaðið - 29.09.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fulltrúar Ríkisskattstjóra stöðvuðu sl. þriðjudag með aðstoð lögreglu starfsemi fyrirtækis í byggingar- starfsemi bæði á Suðurnesjum og í Reykjavík. Voru starfsstöðvar fyrir- tækisins innsiglaðar og á fjórða tug starfsmanna sendir heim þar sem fyrirtækið hefur ekki staðið skil á virðisaukaskatti né skilað stað- greiðslu af launum starfsfólks. Vangoldin gjöld, bæði vegna stað- greiðslu og virðisaukaskatts sem ekki hefur verið skilað, nema á annað hundrað milljónum króna. Um er að ræða undirverktaka í byggingarstarfsemi á framkvæmda- svæðinu við Bláa lónið samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Fyrir- tækið, sem er bæði í eigu Íslendinga og útlendinga, hafði ekki orðið við ítrekuðum tilmælum um úrbætur og var því gripið til þess ráðs að loka fyrirtækinu. Innsigla gáma og vinnuskúra „Þetta var ein stærsta aðgerð sem við höfum farið í á þessu sviði,“ segir Sigurður Jensson, yfirmaður eftir- litssviðs Ríkisskattstjóra. .„Við höld- um úti vettvangseftirliti á hverjum degi þar sem við förum á starfsstöðv- ar og skoðum staðgreiðsluskil og þar fram eftir götunum,“ segir hann. Ef í ljós kemur að fyrirtæki hefur ekki staðið skil á sköttum og gjöldum eru því veitt skrifleg tilmæli og leiðbein- ingar um úrbætur. Sinni það ekki ítrekuðum tilmælum er gripið til þess neyðarúrræðis að loka og vísa öllum starfsmönnum út af starfsstöð eins og gert var í aðgerðunum sl. þriðjudag að sögn Sigurðar. Alls var ríflega 30 starfsmönnum vísað af viðkomandi starfsstöðvum, allt að 20 starfsmönnum í Reykjavík og 12 starfsmönnum suður með sjó að sögn hans. ,,Tæki og verkfæri voru sett inn í vinnuskúra og gáma sem voru síðan innsiglaðir og hið sama var gert við bifreiðar,“ segir hann. Alls komu sex fulltrúar Ríkis- skattstjóra og þrír til fjórir lögreglu- menn að þessum aðgerðum. ,,Þetta gengur þannig fyrir sig að við mæt- um á staðinn ásamt lögreglunni. Í þessu tilviki er um að ræða undir- verktaka á svæðinu og starfsmenn- irnir eru leitaðir uppi og rætt við að- ila á svæðinu. Síðan er aðstaðan þeirra fundin og hún innsigluð. Því næst er þessum starfsmönnum ein- faldlega vísað út og verkkaupanum gerð grein fyrir því að óheimilt sé að eiga frekari viðskipti við þessa aðila þar til úrbætur hafa verið gerðar,“ segir Sigurður. Neyðarúrræði til að knýja fram skil opinberra gjalda „Við grípum til þessara aðgerða í þeim tilgangi að knýja fram skil hjá þessum aðilum sem hafa skirrst við að verða við tilmælum. Það hefur verið umtalsverður aðdragandi að þessum aðgerðum, sem eru neyðar- úrræði ef menn fara ekki eftir regl- unum,“ segir hann. Um er að ræða árangur af daglegu vettvangseftirliti Ríkisskattstjóra til að kanna ástandið hjá fyrirtækjum. Sigurður segir fremur sjaldgæft að loka þurfi fyrirtækjum því flestir taki leiðbeiningum vel og komi hlut- unum í lag. En í mörgum tilfellum geti þó þurft að grípa til harðari að- gerða til að stemma stigu við hátt- semi af þessu tagi. „En það er ákveðinn veikleiki í kerfinu okkar vegna þess að það er ekkert sem kemur í veg fyrir að þessir aðilar geti komið jafnvel strax í dag og stofna nýtt félag og haldið sinni starfsemi áfram. Það er í raun alveg galið að þurfa að horfa upp á það. Okkur vantar sem fyrst sterkari löggjöf sem tekur á svona tilvikum til að fyrirbyggja að sömu mennirnir haldi áfram svona brotastarfsemi undir nýjum formerkjum,“ segir Sigurður. Lokað og öll starfsemi stöðvuð  Starfsmenn Ríkisskattstjóra og lögregla lokuðu fyrirtæki á Suðurnesjum og í Reykjavík sem ekki stóð skil á opinberum gjöldum  Yfir 30 starfsmenn sendir heim  Hafði ekki skilað yfir 100 milljónum Breytingarnar á kjararáði, sem boð- aðar eru í frumvarpi fjármálaráð- herra sem nú er til meðferðar í efna- hags- og viðskiptanefnd, eru umdeildar. Verði það lögfest verður mikil fækkun í hópi þeirra sem kjara- ráð ákveður laun og starfskjör hjá. Nefndinni hafa nú borist hátt 20 umsagnir og koma þar fram skiptar skoðanir. Ýmsir sem færa á undan úr- skurðarvaldi kjararáðs gagnrýna frumvarpið en einnig er lýst stuðningi við það í umsögnum m.a. BHM. Ásta Þórarinsdóttir, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, segist í umsögn styðja þá ráðagerð frum- varpsins að forstöðumenn stofnana verði teknir undan ákvörðunarvaldi Kjararáðs um launakjör, ekki síst að því er varðar þær stofnanir sem hafa stjórn sem ber ábyrgð á rekstri og ár- angri forstöðumanna. Miklu máli skipti að sjálfstæði FME sé tryggt, eins og ítrekað hafi komið fram þegar gerðar hafa verið úttektir á eftirlitinu, m.a af hálfu Alþjóðagjald- eyrissjóðsins. „Hins vegar verður að gera athuga- semd við það að svo virðist sem mið- stýringin við ákvörðun launa og ann- arra kjara eigi með frumvarpinu að flytjast nánast óbreytt frá Kjararáði til sérstakrar skrifstofu í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og að lítið sem ekkert samningsfrelsi verði til staðar eftir breytingamar. Verður að telja þetta óheppilegt fyrirkomulag, eink- um að því er varðar þær stofnanir sem lúta sérstakri stjórn,“ segir hún. Sá hinn sami og fer með fjárveit- ingarvaldið gagnvart HÍ Í umsögn Guðmundar R. Jónsson- ar, framkvæmdastjóra Háskóla Ís- lands, og Þórðar Kristinssonar, sviðs- stjóra kennslusviðs HÍ, er eindregið hvatt til þess að kjararáði verði áfram falið að ákvarða laun og starfskjör rektors HÍ. „Vegna eðlis starfs háskólarektors, sem æðsta yfírmanns og ábyrgðar- aðila sjálfstæðrar stofnunar, er þann- ig mikilvægt að tryggja að laun hans og starfskjör ráðist ekki með samn- ingum á hefðbundinn hátt þar sem samningsaðilinn er sá sami og fer með fjárveitingarvald gagnvart skólanum. Í ljósi þeirra fjármuna sem um ræðir er mikilvægt að skil séu þarna á milli,“ segir í umsögn þeirra. Sigríður Logadóttir, aðallögfræð- ingur Seðlabanka Íslands, og Jón Þ. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri al- þjóðasamskipta og skrifstofu banka- stjóra, benda á í umsögn að skv. frum- varpinu falli ekki lengur undir verkefni bankaráðs að ákveða rétt seðlabankastjóra og aðstoðarseðla- bankastjóra til biðlauna og eftirlauna o.fl. Ekki sé ljóst hvort breytingarnar hafi afturvirk áhrif í för með sér og leggja þau til að tekið verði fram að þrátt fyrir gildistöku laganna skuli ákvarðanir bankaráðs um rétt núver- andi aðstoðarseðlabankastjóra og seðlabankastjóra til biðlauna og eft- irlauna og ákvarðanir um önnur rétt- indi sem varða fjárhagslega hags- muni seðlabankastjóra halda gildi sínu. omfr@mbl.is Boðaðar breytingar á kjararáði eru umdeildar  FME varar við að lítið samningsfrelsi verði til staðar Þjóðskrá Íslands hefur opnað að- gang að rafrænni kjörskrá sem þýðir að kjósendur geta með ein- földum hætti kannað hvar þeir eru á kjörskrá í komandi þing- kosningum. Þegar slegin er inn kennitala á skra.is kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Yfirleitt birtast einnig upplýs- ingar um kjörstað og kjördeild. Þetta kemur fram í frétt á vefn- um kosning.is. Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir áttu skráð lögheimili fimm vikum fyr- ir kjördag, 24. september síð- astliðinn. Flutn- ingur lögheim- ilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá. Kosning utan kjörfundar hófst hjá sýslumönn- um um land allt hinn 21. sept- ember síðastliðinn. sisi@mbl.is Kjósendur geta nú kannað hjá Þjóðskrá hvar þeir eru á kjörskrá í kosningunum Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hóf í gær opin- berlega söfnunarverkefni Hjartaheilla við hátíðlega at- höfn á Bessastöðum. Hjartaheill stendur fyrir lands- söfnun dagana 28. september til og með 8. október næstkomandi. Landsmenn eru hvattir til þess að kaupa Hjartanæluna og styðja þannig við margþætta starf- semi samtakanna, svo sem forvarnir og ókeypis mæl- ingar á blóðgildum sem hafa sýnt sig að geta bjargað mannslífum. Á myndinni með forsetanum eru Sigrún Eðvalds- dóttir, Sveinn Guðmundsson og Guðrún Bergmann Franzdóttir. Ljósmynd/Árni Rúnarsson Söfnun fyrir Hjartaheill hófst í gær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.