Morgunblaðið - 29.09.2016, Page 8

Morgunblaðið - 29.09.2016, Page 8
Morgunblaðið/Eggert Litlar sem engar líkur eru taldir á því að frumvarp Sigurðar Inga Jó- hannssonar forsætisráðherra um breytingar á stjórnarskránni verði afgreitt á yfirstandandi þingi. Ef það verður niðurstaðan verða eng- ar breytingar gerðar á stjórnar- skránni að þessu sinni en breyt- ingar á stjórnarskránni þurfa að hljóta samþykki á tveimur löggjaf- arþingum til að öðlast gildi. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið aflaði sér í gær virðist ekki hafa verið neinn þrýstingur á að klára málið, hvorki af hálfu stjórnarmeirihlut- ans á þingi né minnihlutans. Frumvarpinu var dreift á Al- þingi 25. ágúst síðastliðinn. Því var vísað til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis eftir 1. umræðu sem fram fór 1. sept- ember. Fram kemur á vef Alþingis að nefndin hafi sent út umsagnar- beiðnir til 43 stofnana og félaga- samtaka. Heimtur virðast hafa verið dræmar því í gær höfðu að- eins borist sex umsagnir, þar af ein frá einstaklingi. „Þingið er að klárast og því er- um við einfaldlega að falla á tíma,“ sagði Ögmundur Jónasson, formaður stjórnskipunar- og eft- irlitsnefndar, í gær. sisi@mbl.is Stjórnar- skrárbreyt- ingar í salt?  Fáir sendu inn umsagnir til þingsins 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Í tillögu til þingsályktunar umsamgönguáætlun til ársins 2026 er eðli máls samkvæmt gert ráð fyrir Reykjavíkurflugvelli og að hann „geti áfram þjónað innan- landsflugi á full- nægjandi hátt“.    Þar segir einn-ig að við- ræðum verði haldið áfram við Reykjavíkurborg með þetta að markmiði, en sem kunnugt er hafa borgaryfirvöld gert allt sem í þeirra valdi stendur til að flæma flugvöllinn úr borginni og hefur þegar tekist að ná fram lokun neyðarbrautar vallarins, jafn ótrú- legt og það nú er.    Framundan eru kosningar til Al-þingis og þess vegna er nauð- synlegt að allir flokkar tali skýrt um afstöðu sína til flugvallarins í Vatnsmýrinni.    Sumir þeirra munu forðast þetta,því að þeir vita að afstaða þeirra er á skjön við afstöðu kjós- enda. Þess vegna munu þeir reyna að gefa ekki upp afstöðu sína eða tala með óskýrum hætti.    Samfylkingarflokkarnir meðborgarstjórann og aðra borg- arfulltrúa meirihlutans innan sinna raða munu án efa ganga lengst í feluleiknum.    Ekki síðar en á næsta kjör-tímabili þarf Alþingi að taka af skarið um að flugvöllur verði til framtíðar í Vatnsmýrinni til að tengja saman höfuðborg landsins og dreifðar byggðir.    Ennfremur þarf að tryggja aðvöllurinn verði með fulla virkni, ekki vængstýfður. Það er líka kosið um flugvöllinn STAKSTEINAR Veður víða um heim 28.9., kl. 18.00 Reykjavík 9 léttskýjað Bolungarvík 7 léttskýjað Akureyri 9 skýjað Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 8 alskýjað Ósló 18 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 alskýjað Stokkhólmur 15 rigning Helsinki 11 rigning Lúxemborg 20 heiðskírt Brussel 18 heiðskírt Dublin 21 alskýjað Glasgow 17 rigning London 21 léttskýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 20 skýjað Hamborg 20 léttskýjað Berlín 19 skýjað Vín 19 léttskýjað Moskva 12 skýjað Algarve 25 heiðskírt Madríd 24 léttskýjað Barcelona 24 heiðskírt Mallorca 26 skýjað Róm 23 rigning Aþena 21 heiðskírt Winnipeg 11 heiðskírt Montreal 10 heiðskírt New York 19 heiðskírt Chicago 13 skýjað Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 29. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:33 19:04 ÍSAFJÖRÐUR 7:39 19:07 SIGLUFJÖRÐUR 7:22 18:50 DJÚPIVOGUR 7:03 18:33

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.