Morgunblaðið - 29.09.2016, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
fótboltabuxur
verð frá 5.990,-
allt fyrir boltaiðkunnina
Hummel I Sundaborg 1 I Sími 553 0700 I dansport@dansport.is I facebook: hummel Island
Fæst í öllum helstu sportvöruverslunum
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Í sumar mátti heyra undarlegan
sönglanda hljóma úr turni Siglu-
fjarðarkirkju og berast yfir miðbæ-
inn tvisvar á dag enda vakti það
furðu heimafólks jafnt sem ferða-
manna. Það upplýstist um síðir að
um „listrænan gjörning“ var að
ræða, ætlaðan gestum Þjóðlagahá-
tíðar í júlíbyrjun. Gústaf Daníelsson
kvað þar gegnum hátalarakerfi
gamla stemmu um ellina; þegar fátt
annað væri eftir en yndið af því að
yrkja vísur.
Rök þeirra sem stóðu að gjörn-
ingnum voru þau að hvar ætti þessi
gamla tónlistarhefð betur við en í bæ
sr. Bjarna Þorsteinssonar, þess
mikla þjóðlagasafnara – og frá kirkj-
unni sem var reist í hans tíð og hann
þjónaði í fyrstur presta?
En hvernig kom þessi hugmynd
til? Tíðindamaður hafði uppi á þeim
tveimur sem stóðu fyrir gjörn-
ingnum, Örlygi Kristfinnssyni
myndasmið og Gunnari Smára
Helgasyni hljóðmeistara. Örlygur
verður fyrst til svara:
„Jú, forsagan er þannig að undan-
farin ár hefur Kvæðamannafélagið
Ríma í Fjallabyggð starfað af mikl-
um krafti undir leiðsögn Rúnu Ingi-
mundardóttur tónlistarkonu. Einn
félaganna er Gústi Dan, eins og við
köllum hann, eigandi Egils sjávaraf-
urða, og hann hefur lagt það í vana
sinn þegar hann tekur þátt í mat-
vælakynningum á erlendri grundu
að kveða íslenskar stemmur fyrir
viðskiptavini sína – og er þess jafnan
beðið með eftirvæntingu að smakka
reykta og grafna laxinn hans við
rammíslenskan rímnasöng – þegar
menn treysta viðskiptasamningana.
Eins og bænakall múslíma
Á einni slíkri matvælaráðstefnu í
Kaupmannahöfn í vor kvaddi Gústi
sér hljóðs í virðulegu kvöldverðar-
boði og fór með eina forna stemmu
um ellina og yrkingar. Í veislulok
þakkaði Júlíus Hafstein sendiherra
fyrir sönginn og óskaði þess að hann
hefði Gústa með í ferðum sínum um
heiminn. Einnig vék danskur maður
sér að Gústa og spurði hvort hann
hefði heyrt rétt, að það hefði verið ís-
lenskt þjóðlag sem hann söng, þetta
hefði nefnilega hljómað eins og
bænakall múslíma?
Eftir heimkomu sagði Gústi frá
þessu atviki og einhvern tíma á góðri
stundu þegar sagan var rifjuð upp
fæddist hugmyndin og ég stakk upp
á að við fengjum Gunnar Smára,
hljóðmann Íslands, eins og hann hef-
ur oft verið nefndur, til liðs við okkur
og við útvörpuðum laginu yfir bæinn
á Þjóðlagahátíðinni. Þetta væri gert
á laun og sem nokkurskonar hrekkur
og ætti að koma Gunnsteini Ólafs-
syni á óvart og öðrum þeim sem
stóðu fyrir hátíðinni.
Skemmst er frá því að segja að
hugmyndin varð að veruleika og
mæltist gjörningurinn svo vel fyrir
meðal margra bæjarbúa að ákveðið
var að leyfa honum að lifa út sum-
arið, með góðfúslegu leyfi þeirra sem
málefnum Siglufjarðarkirkju ráða.
Við skiptum reyndar um stef eftir
einhvern tíma, sjö mismunandi lög
voru þá kveðin af sex félögum
Kvæðamannafélagsins Rímu í
Fjallabyggð – þremur Siglfirðingum,
tveimur Ólafsfirðingum og einum
Akureyringi – eitt lag hvern dag,
klukkan 15.15 og 18.15, fram til 15.
september.“ Gunnar Smári tekur
undir þetta: „Þegar Örlygur nefndi
hugmyndina við mig sagði ég um-
svifalaust „Já, þetta gerum við“, án
þess að vera búinn að hugsa til enda
tæknilega lausn á verkefninu. Við
hljóðrituðum flutninginn og eftir ör-
litla umhugsun ákvað ég að nota ör-
tölvu (Raspberry Pi) sem spilara og
fékk svo lánaðan nokkuð öflugan há-
talara hjá formanni karlakórsins í
Fjallabyggð, Ægi Bergs. Síðan
þurfti að koma nettengingu í turninn
til að sjá til þess að allt gerðist á ná-
kvæmlega réttum tímum og það var
gert með þráðlausum netbúnaði frá
útvarpi Trölla sem er staðsett nokkr-
um húsum frá turninum. Ég hafði
mjög gaman af því að fá að vera hluti
af þessum gjörningi og vona að þetta
megi verða fastur liður í blómlegu
menningarlífi okkar hér á Siglufirði.“
Kveðið úr
kirkjuturni
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Turn Siglufjarðarkirkju og gjörningsfólkið Aftari röð f. vinstri: Örlygur
Kristfinnsson, Sigurður Hlöðversson, Gústaf Daníelsson og Þorgeir Gunn-
arsson. Fremri röð f. vinstri: Margrét Ásgeirsd. og Svanfríður Halldórsd.
Eins og hér kemur fram lýstu
margir Siglfirðingar ánægju
sinni með þetta framtak Gunn-
ars Smára og Rímufélaga. En
alltaf má gera ráð fyrir mismun-
andi sjónarmiðum eins og geng-
ur. Álit nokkurra kom fram í
Facebókarfærslu Brynju Bald-
ursdóttur hönnuðar sem hún
deildi með vinum sínum 22.
ágúst. Þar skrifaði hún: „Hrós
dagsins fær Kvæðamanna-
félagið Ríma fyrir kveðskapinn
sem ómar frá kirkjuturninum
tvisvar á dag. Það fer um mig
sælutilfinning í hvert sinn sem
ég heyri þessa dásemd. Vona að
þetta sé komið til að vera og
fastur liður í lífinu á Sigló. Takk
fyrir mig.“
Kristín Sigurjónsdóttir bætti
við: „Sammála þér Brynja. Ríma
lyftir sannarlega upp bæjar-
bragnum með þessum ramm-
íslensku tónum!“
Ennfremur skrifaði Helgi
Svavar Helgason tónlistar-
maður: „Þetta er svo mikil snilld,
ein sterkasta listupplifun þessa
árs að mínu mati. Meiriháttar.“
Lyfti bæjar-
bragnum
VAKTI SÆLUTILFINNINGU