Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 31
FRÉTTIR 31Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í
verði í sjö verslunum frá því í júní
2016 þar til nú í september en í fjór-
um verslunum hefur vörukarfan
lækkað í verði.
Samkvæmt upplýsingum frá ASÍ
hækkaði vörukarfan mest um 2%
hjá Iceland, 1,4% hjá Kjarval, 0,9%
hjá Víði, 0,6% hjá Nettó, 0,4% hjá
Bónus og um 0,2% hjá Krónunni og
Samkaupum-Strax. Mesta lækkun-
in á tímabilinu var 1% hjá Hag-
kaupum og 10/11, 0,7% hjá Sam-
kaupum-Úrval og 0,3% hjá
Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.
Mestu verðbreytingarnar hafa
orðið í vöruflokknum kjötvörur og
á grænmeti og ávöxtum. Hafa kjöt-
vörur lækkað í verði hjá 6 versl-
unum af 11, mest um 4,5% hjá Bón-
us og um 2,4-3% hjá Krónunni.
Grænmeti og ávextir hafa hins
vegar hækkað í verði hjá 6 verslun-
um af 11, mest um 9,3% hjá Bónus,
um 8,9% hjá Krónunni og um 7,8%
hjá Víði.
Grænmeti
og ávextir
hækka
Vörukarfan hækk-
aði mest hjá Iceland
Grænmeti Verð á grænmeti og
ávöxtum hefur hækkað.
Um þessar mundir eru liðin 80 ár
frá stofnun Raftækjaverksmiðj-
unnar hf. í Hafnarfirði eða Rafha.
Ætlar fyrirtækið að bjóða öllum að
fagna þessum tímamótum um
næstu helgi og allan októbermán-
uð. Verður kaffi og meðlæti í boði
ásamt tilboðum og óvæntum
glaðningi fyrir fyrstu viðskiptavin-
ina.
Fram kemur í tilkynningu frá
Rafha, að hugmyndin að stofnun
fyrirtækisins kviknaði þegar unnið
var að smíði Sogsvirkjunar. Heim-
ilin voru að rafvæðast og það vant-
aði rafmagnstæki. Að tillögu Emils
Jónssonar, þingmanns Hafnfirð-
inga, samþykkti Alþingi árið 1936
að verja 50 þúsund krónum úr rík-
issjóði til stofnunar raftækjaverk-
smiðju. Það varð úr og Rafha var
formlega stofnað 29. október 1936,
en íslenska ríkið fór með þriðj-
ungshlut á móti 22 einstaklingum.
Um skeið framleiddi Rafha elda-
vélar og fjölda annarra tegunda
raftækja. Hráefni til framleiðsl-
unnar voru í fyrstu keypt frá
Norðurlöndum og Þýskalandi, en
eftir að stríðið braust út stefndi í
að framleiðslu yrði hætt þar sem
öll aðföng skorti. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, Axel Krist-
jánsson, hélt því vestur um haf og
aflaði hráefna til framleiðslunnar í
Bandaríkjunum.
Framleiðslu raftækjanna var
hætt árið 1990 en verslun Rafha er
enn starfandi. Hún er nú á Suður-
landsbraut 16 í Reykjavík og eru
þar seld heimilistæki og eldhús-
innréttingar.
Afmælishátíð Rafha
Rafha-tæki Eldavélar, ísskápar og þvottavélar sem Rafha framleiddi.
80 ár frá stofnun Raftækjaverksmiðjunnar í Hafnarfirði
Laugardaginn 1.
október heldur
Siðmennt mál-
þing um tjáning-
arfrelsið.
Málþingið
verður haldið á
Hótel KEA á Ak-
ureyri frá kl. 11-
13.
Þrír frummæl-
endur munu
flytja stutt erindi en síðan verður
boðið upp á pallborðsumræður og
tekið á móti spurningum fundar-
gesta. Frummælendur verða Jóhann
Björnsson, heimspekingur og for-
maður Siðmenntar,
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, pró-
fessor í sálfræði við Háskólann á
Akureyri og Sigurður Kristinsson,
prófessor í heimspeki við HA. Sig-
rún Stefánsdóttir, forseti hug- og fé-
lagsvísindasviðs HA, er ráð-
stefnustjóri.
Siðmennt með
málþing um
tjáningarfrelsi
Sigrún
Stefánsdóttir