Morgunblaðið - 29.09.2016, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 29.09.2016, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 VIÐTAL Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Tímamót verða í íslenskri björguna- rsögu á morgun, en þá lætur Ben- óný Ásgrímsson þyrluflugstjóri af störfum hjá Landhelgisgæslunni. Benóný hefur staðið vaktina svo að segja óslitið frá 1978, eða í 38 ár. Hann verður 65 ára á morgun og samkvæmt reglum má hann því ekki starfa lengur sem atvinnu- flugmaður. Hann mun því fljúga sitt síðasta þyrluflug á morgun. Benóný er fyrir löngu orðinn goð- sögn. Enginn hefur starfað lengur við björgunarflug hér á landi og jafnvel í öllum heiminum. Og án efa hefur enginn bjargað jafn mörgum mannslífum. „Ég hef oft verið spurður að því hve mörgum mannslífum ég hef bjargað en ég hef alltaf svarað á sama veg: Ég hef ekki hugmynd um það,“ segir Benóný í samtali við Morgunblaðið. „Það skiptir mig ekki neinu máli persónulega hve mörgum ég hef bjargað í gegnum árin. Því hefur verið haldið fram að þetta séu ein- hver hundruð en ég bara veit það ekki. Það sem er svo gefandi og hvetjandi er allt þakklætið sem maður hefur fengið. Stundum hefur mér þótt þetta óverðskuldað því þetta er jú bara vinnan manns. En það er ekki hægt að lýsa því með orðum hve mikils virði það er fyrir okkur sem störfum á þessum vett- vangi að fá þakkir fyrir störf okkar.“ Því var fagnað í síðasta mánuði að Benóný átti 50 ára starfsafmæli hjá Landhelgisgæslu Íslands. Í frétt á heimasíðu stofnunarinnar þann dag sagði: „Benóný á að baki hreint stórkostlegan feril sem þyrluflug- stjóri og er að öðrum ólöstuðum reynslumesti flugstjóri landsins í leitar- og björgunarflugi og þótt víð- ar væri leitað.“ Byrjaði á sjónum 14 ára En hvenær byrjaði ferillinn? „Ég byrjaði á sjónum 14 ára gam- all á gamla Ægi, en hann var smíð- aður 1929. Þetta var í ágúst 1966 og ég þurfti að fá undanþágu því ekki mátti munstra á skipið yngri menn en 15 ára. Þetta var mjög eftir- minnileg ferð. Þröstur Sigtryggsson var þá þegar orðinn skipherra og við vorum í síldarleit úti af Norðaust- urlandi. Þannig byrjaði ég hjá Gæsl- unni. Ég var viðvaningur eins og það var kallað og svo skemmtilega vill til að þetta er eini ráðningar- samningurinn sem Gæslan hefur gert við mig.“ Benóný vann sig upp hjá Gæsl- unni; varð háseti, bátsmaður, stýri- maður og kafari. Hann fór síðan í Stýrimannskólann í Reykjavík, lauk farmannaprófi árið 1972 og útskrif- aðist frá varðskipadeild sama skóla árið 1974. Hann var stýrimaður á varðskipunum í báðum þorskastríð- unum á áttunda áratug síðustu ald- ar, aðallega á nýja Ægi hjá Þresti skipherra. Hvenær tók svo flugið við? „Það æxlaðist þannig að Pétur Sigurðsson forstjóri kom að máli við okkur þrjá stýrimenn, mig, Boga Agnarsson og Hermann Sigurðsson, og spurði hvort við vildum ekki læra flug. Hann hafði hug á því að kaupa þyrlu til þess að hafa um borð í varðskipunum. Við fórum allir þrír í flugnám. Ég lærði fyrst á venjulega flugvél og síðan á þyrluna.“ Benóný varð lausráðinn flug- maður hjá Landhelgisgæslunni árið 1978, en þá hafði hann verið 12 ár á sjó. „Þegar ég byrjaði átti Gæslan tvær litlar þyrlur af gerðinni Bell og Hughes. Við notuðum þær aðallega til að sinna vitunum og svo í marg- víslega þjónustu við landsmenn. Í þá daga voru engir vélsleðar og fjórhjól til snúninga. Við unnum mikið fyrir Orkustofnun við flutninga og fórum á Hveravelli og fleiri afskekta staði.“ Benóný var lausráðinn fyrstu tvö árin og síðan kemur Sikorsky- þyrlan TF-RÁN til landsins árið 1980 og þá fær hann fastráðningu sem flugmaður. Sú vél fórst í Jökulfjörðum í nóvember árið 1983 og með henni allir sem voru um borð. „Þessi at- burður hafði alveg gríðarleg áhrif á mig,“ segir Benóný. „Þá var staðan orðin þannig á Ís- landi að þyrlusagan var alveg skelfi- leg. Margar þyrlur höfðu farist og með þeim margir frábærir menn. Eftir að Ránin fórst kom meira að segja fram þingsályktunartillaga á Alþingi um að Íslendingar ættu að hætta þyrlurekstri og láta ameríska varnarlið um björgunarstörfin. En sem betur fer varð það ekki niður- staðan og eftir talsverða baráttu var ákveðið að Landhelgisgæslan keypti TF-SIF árið 1984, sem var frönsk þyrla af gerðinni Dolphin. Eftir það hefur þyrlureksturinn gengið miklu betur hjá okkur,“ segir Benóný. „Fyrir þrýsting sjómanna fáum við svo Super Puma þyrluna árið 1995, sem var virkilega mikil bylting fyrir okkur. Þegar varnarliðið var hér var það alltaf með fimm þyrlur og þær voru útbunar með afísingarbúnaði, nætursjónaukum, sjálfstýringu og öðrum búnaði sem við höfðum ekki á Sif. Þessa tækni fengum við að stórum hluta þegar Super Puma þyrlan kom.“ Erfiðast að þurfa að gefast upp Hvert var erfiðasta björgunar- flugið sem þú hefur farið á ferl- inum? „Ég er oft spurður þessarar spurningar og þá er stundum vísað til þess þegar við björguðum skip- verjunum á Dísarfelli í mars 1997. Þá þurftum við að taka margar ákvarðanir sem voru við mörk hins ómögulega. En aldrei var vélinni eða áhöfn hennar stefnt í hættu. En erfiðustu flugin sem ég hef farið í eru þau þegar ég og áhöfnin höfum orðið að gefast upp vegna þess að veðrið var orðið svo vont að við urð- um snúa til baka. Það þarf engan kjark til að halda áfram og fara að- eins yfir mörk hins ómögulega, það þarf bara örlítið dómgreindarleysi. Það þarf gríðarlegan kjark til að ákveða að gefast upp og segja, ég get ekki haldið áfram í þessa tví- sýnu. Þessi staða kom sem betur fer ekki oft upp en eitt atvik er mér sér- staklega minnisstætt. Þá vorum við á minni þyrlunni okkar og vorum búnir að brjótast á slysstað í þrjá klukkutíma í mjög slæmu veðri. Bátur hafði strandað og það var komið myrkur þegar við komum á strandstað. Við vorum komnir svo nálægt að við sáum skipbrotsmenn- ina í brotunum haldandi sér í mastr- ið og annað. Það voru kannski tvær mínútur eftir fyrir okkur að bátnum, við reyndum tvisvar en urðum að gefast upp. Þetta er erfiðustu flugin.“ Benóný hefur ekki bara flogið á þyrlum. Hann hefur einnig flogið flugvél Landhelgisgæslunnar og svo var hann flugmaður hjá Atlanta árin 1997-2000. Flaug um allan heim, m.a. í pílagrímaflugi. „En ég hef alltaf kunnað best við mig á þyrl- unum, mér hefur liðið best úti á Hala og á Reykjaneshrygg.“ En hvernig er þér innanbrjósts nú þegar þessi kaflaskil verða? „Þegar ég lít yfir farinn veg er ég mjög ánægður með feril minn sem þyrluflugmaður og tel að ég hafi verið afskaplega farsæll. Sér- staklega vil ég þakka það góðu fólki sem ég hef unnið með allan minn tíma hjá Gæslunni. Þar hefur verið margt fagfólk sem hefur verið já- kvætt og stutt hvert annað. Og svo hefur maður fengið reynsluna hægt og bítandi.“ Benóný ætlar ekki að setjast í helgan stein þótt hann sé að hætta hjá Gæslunni. Hann hefur ráðið sig í hlutastarf hjá flugdeild Samgöngu- stofu „til að fylgjast með þyrlufólk- inu,“ eins og hann orðar það. Hefur staðið vaktina frá 1978  Benóný Ásgrímsson þyrluflugstjóri lætur af störfum á morgun  Hefur enga hugmynd um það hve mörgum mannslífum hann hefur bjargað  Á að baki stórkostlegan feril, segir Gæslan Morgunblaðið/Ófeigur Síðasta vaktin Benóný hóf í gær síðustu þyrluvaktina. Vaktinni lýkur á morgun þegar hann fer í síðasta flugið. Á Ægi Ungir stýrimenn, Hálfdán Henrysson og Benóný Ásgrímsson. Æviatriði » Benóný Ásgrímsson er fæddur í Reykjavík 30. september 1951. » Foreldrar hans voru Ólöf Helga Benónýsdóttir, kaup- kona og húsmóðir, og Ásgrím- ur Ásgeirsson, stýrimaður og skipherra hjá hjá Landhelg- isgæslunni. Þau eru bæði látin. » Eiginkona Benónýs er Krist- ín Ingibjörg Gunnarsdóttir. Hann á þrú börn, Benóný f. 1973, Oliver Helga f. 1979 og Stefaníu Ástrós f. 1992. 
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.