Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 38

Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 38
SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fyrsta skóflustunga var tekin í gær að 360 fermetra byggingu sem mun rísa við Bruggsmiðjuna á Árskógs- sandi í Eyjafirði, sem framleiðir bjór undir merkjum Kalda. Þar hyggst fyrirtækið starfrækja bjór- böð og veitingahús sem stefnt er að því að vígja næsta vor. Um nýjung er að ræða hér á landi og telur Agnes Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri Bruggsmiðjunnar, að mögulega séu þetta fyrstu bjórböð á Norðurlöndum. Hún hafi þó ekki fengið það skjalfest. „Við viljum með þessu auka fram- boð á afþreyingu hér á svæðinu,“ segir Agnes, en Bruggsmiðjan fær orðið árlega um 12 þúsund ferða- menn í heimsókn sem vilja skoða brugghúsið og smakka á framleiðsl- unni. Hafa sífellt fleiri ferðaskrif- stofur verið að skipuleggja heim- sóknir í brugghúsið og til fleiri framleiðenda við Tröllaskagann. Tékknesk fyrirmynd Byggingin verður í tveimur ein- ingum, annars vegar bjórheilsu- lindin sjálf, þar sem verða sjö tveggja manna bjórkör, sturtur og nuddstofur, og hins vegar veitinga- hús sem tekur um 70 manns í sæti. Einnig verða útipottar með bjór- blöndu, til að geta tekið á móti stærri hópum ferðamanna. Bjórböðin eru að tékkneskri fyrirmynd en Agnes segir þau einn- ig vinsæl í löndum eins og Slóvakíu og Þýskalandi. Körin koma þannig sérsmíðuð frá Þýskalandi. Mælt er með því að liggja í yl- volgu bjórbaði í um 25 mínútur og fara síðan í aðrar 25-30 mínútur í nudd eða aðra slökun. Ætlast er til að bíða með sturtu í um fjóra tíma til að hámarka virknina og gefst gestum þá m.a. færi á að matast í millitíðinni. Að sögn Agnesar þykir bjórinn heilnæmur fyrir húðina og þá eink- um gerið. Körin verða fyllt með bjór, saltvatni og geri, sem búið er að nota í bjórframleiðslunni. „Ég hef prófað þessi böð sjálf og finn alltaf mikinn mun á húðinni á eftir,“ segir hún. Tíu ár frá fyrsta Kaldanum Vonir standa til að byggingin verði fokheld fyrir jól og starfsemin hefjist í mars, apríl eða maí. Heilsu- lindin mun skapa nokkur ný störf, en rekstrarstjóri verður tengdadótt- ir Agnesar, Ragnheiður Ýr Guð- jónsdóttir. Hún og maðurinn henn- ar, Sigurður Bragi Ólafsson, bruggmeistari Kalda, hafa flutt sig um set frá Akureyri til Árskógs- sands vegna aukinna umsvifa fyrir- tækisins. Áður keyrðu þau alltaf á milli til daglegra starfa í brugghús- inu, sem orðið er eitt hið stærsta á landinu og fagnaði nýverið 10 ára afmæli sínu. Agnes og maður hennar, Ólafur Þröstur Ólafsson, stofnuðu Brugg- smiðjuna í desember 2005 en fyrsta framleiðslan kom á markað haustið 2006. Síðan þá hafa hjónin smátt og smátt aukið uppbyggingu fyrirtæk- isins ásamt fjölskyldu sinni. Ester Líf, dóttir Agnesar og Ólafs, og móðurafi hennar, Sigurður Tryggvi Konráðsson, tóku fyrstu skóflustunguna, en Ester átti ein- mitt afmæli í gær og saman mynda þau Sigurður gott teymi. Byrjað að reisa bjórböð Kalda  Fyrsta skóflustunga tekin á Árskógssandi í gær  Þörf á aukinni afþreyingu fyrir ferðamenn  Veitingahús, slökun og sjö kör full af bjór  Bruggsmiðjan fær til sín 12 þúsund ferðamenn á ári Ljósmynd/Gunnar Konráðsson Athöfn Ester Líf Ólafsdóttir og Sigurður Tryggvi Konráðsson tóku skóflustunguna. Teikning/Bruggsmiðjan Bjórspa Svona munu bjórheilsulindin og veitingahúsið líta út við Bruggsmiðjuna á Árskógssandi, þar sem Kaldi er framleiddur. Í heilsulindinni verða sjö bjórkör, slökunarherbergi og sturtur. 38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 www.fr.isSylvía G. Walthersdóttir Löggiltur fasteignasali Salvör Davíðsdóttir Nemi til löggildingar fasteignasala Brynjólfur Þorkellsson Sölufulltrúi FRÍTT VERÐMAT ENGAR SKULDBINDINGAR HRINGDU NÚNA 820 8081 sylvia@fr.is Sjöfn Ólafsdóttir Skrifstofa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.