Morgunblaðið - 29.09.2016, Side 48

Morgunblaðið - 29.09.2016, Side 48
SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Í dag eru 39 dagar til 8. nóvember, þegar Bandaríkjamenn ganga til for- setakosninga þar sem valið stendur fyrst og fremst á milli þeirra Hillary Rodham Clinton, frambjóðanda Demókrataflokksins og Donalds Trump, frambjóðanda Repúblikana- flokksins. Þau mættust í fyrstu sjón- varpskappræðunum af þrennum að- faranótt þriðjudagsins, flestir fjölmiðlar vestanhafs telja Clinton hafa staðið sig betur og þær skoðana- kannanir sem gerðar hafa verið síðan þá sýna að hún hefur forskot. Til dæmis reiknaði bandaríska dagblaðið The New York Post út meðaltal nýj- ustu skoðanakannana í gær og nið- urstaðan var að Clinton er með 45% fylgi og Trump með 42%. Á grund- velli þessa telur blaðið 70% líkur á að Clinton verði kosin. Næstu sjónvarpskappræður for- setaframbjóðendanna verða 9. októ- ber og þær þriðju og síðustu verða 19. október. Utan- og innanríkismál En hvað er það sem helst er tekist á um? Fyrir það fyrsta virðast banda- rísku forsetakosningarnar snúast álíka mikið um utanríkis- og innanrík- ismál. Meðal helstu mála sem hafa verið í brennidepli í kosningabarátt- unni eru samtökin sem kenna sig við íslamska ríkið, staða mála í Írak, jafn- rétti kynjanna, tölvuöryggismál, fóst- ureyðingar, rétturinn til að eiga og bera skotvopn, loftslagsbreytingar, innflytjendamál, kjarnavopn, fríversl- unarsamningar, atvinnumál, heil- brigðismál, samskipti ólíkra kynþátta – fátt virðist frambjóðendunum óvið- komandi. Þau málefni sem helst brenna á bandarískum kjósendum eru þó efna- hagsmál og hryðjuverkaógnin, sam- kvæmt könnun sem Pew rannsókn- arstofnunin bandaríska gerði fyrir nokkru meðal skráðra kjósenda í Bandaríkjunum. Þar sögðu 84% svar- enda að efnahagsmálin væru það mál- efni sem helst réði því hvernig þeir myndu kjósa þann 8. nóvember og 80% sögðu að hryðjuverkaógnin skipti þá miklu máli í þessu sambandi. Önnur málefni sem skiptu kjósendur mestu máli samkvæmt könnuninni eru utanríkisstefna Bandaríkjanna, heilbrigðiskerfið, byssueign og inn- flytjendamál. Könnun sem Gallup gerði fyrr í vikunni sýnir áþekka nið- urstöðu; að efnahagsmálin skipta kjósendur mestu máli. Af því að hún er ekki Trump Í síðustu viku kannaði Pew rann- sóknarstofnunin hvers vegna kjós- endur hafa ákveðið að styðja annað- hvort Clinton eða Trump. Hægt var að velja á milli nokkurra möguleika og sá sem flestir merktu við var: Vegna þess að hún/hann er ekki Trump/Clin- ton. Samkvæmt þessu er helsta ástæða kjósenda fyrir því að velja annan hvorn frambjóðandann hvað hann er ekki, en ekki hvað hann er. Aðrar ástæður sem stuðningsmenn Clinton gáfu fyrir að kjósa hana voru að hún hefði reynslu, stefna hennar og persónuleiki. Ástæður þeirra sem styðja Trump voru m.a. að hann væri nýr í stjórnmálum og því líklegri til að boða breytingar. Þegar spurt var um hvað ylli stuðningsmönnum helst áhyggjum í fari frambjóðendanna nefndu þeir sem styðja Trump skap- ferli hans og hversu óútreiknanlegur hann væri. Stuðningsmenn Clinton nefndu að hún hefði ekki alltaf komið hreint fram og að fortíð hennar gæti staðið henni fyrir þrifum. Þegar spurt var um hversu þungt vægi reynsla eða reynsluleysi frambjóðendanna hefði sögðu 79% stuðningsmanna Clinton að það væri ein aðalástæðan fyrir því að þeir ætluðu að kjósa hana og 47% stuðningsmanna Trump sögðu að reynsluleysi hans væri aðalástæðan fyrir stuðningi við hann. Málin eru mörg og margvísleg  39 dagar eru til bandarísku forsetakosninganna  Reynsla Clinton heillar suma en aðrir telja reynsluleysi Trumps honum til tekna  Efnahagsmálin skipta bandaríska kjósendur mestu máli AFP Frambjóðendur Vel fór á með þeim Hillary Clinton og Donald Trump áður en kappræður þeirra hófust á mánu- dagskvöldið. Þær voru haldnar í Hofstra háskólanum í Hempstead í New York. Kannanir sýna að mjótt er á munum. 48 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Hamraborg 10 – Sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18, laugardaga 11-14 Kynnum nýju margskiptu glerin frá Essilor Fáðu aukapar í kaupbæti Verið velkomin í sjónmælingu Traust og góð þjónusta í 20 ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.