Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 49
FRÉTTIR 49Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
58 ára gamall kaþólskur öldunga-
deildarmaður frá Virginíu, Tim Kaine,
er varaforsetaefni Demókrataflokks-
ins. Hann er talinn nokkuð öruggur
kostur sem gæti tryggt meira fylgi
meðal hvítra kjósenda í lægri tekju-
þrepum. Kaine er lögfræðingur og
kenndi við lagadeild háskólans í
Richmond í Virginíuríki. Hann var
borgarstjóri í Richmond, síðar rík-
isstjóri Virginíu og þótti standa sig
vel á erfiðum tímum þegar skotárás
sem gætnum, orðheldnum og afar
íhaldssömum. Hann hefur í gegnum
stjórnmálaferil sinn talað gegn nei-
kvæðri kosningabaráttu og er, líkt og
Kain, lögfræðingur. Hann sat í full-
trúadeild Bandaríkjaþings og var
þáttastjórnandi bæði í útvarpi og
sjónvarpi þar sem hann boðaði íhalds-
söm viðhorf til ýmissa þátta lífsins og
hefur lýst sjálfum sér sem „kristnum
verndara íhaldssamra lífsgilda sem
helst megi finna í smábæjum í Mið-
ríkjum Bandaríkjanna“. Pence hefur
talað gegn ýmsum mannréttindum
samkynhneigðra, m.a. að þeir fái að
sinna herþjónustu og hjónaböndum
þeirra.
Þeir Kaine og Price munu eigast við
í sjónvarpskappræðum 4. október.
var gerð í Tækniháskólanum í Virg-
iníu árið 2007. Í kjölfarið varð hann
talsmaður þeirra sem vildu herða
byssulöggjöfina í Bandaríkjunum.
Hann var sagður koma til greina sem
varaforsetaefni Baracks Obama árið
2008 og er skoðanabróðir Clinton í
flestum málum.
Varaforsetaefni Repúblikana-
flokksins er Mike Pence, 57 ára rík-
isstjóri Indianaríkis. Pence hefur ver-
ið lýst af bandarískum fjölmiðlum
Tveir lögfræðingar og ríkis-
stjórar, annar 57 ára, hinn 58
TIM KAINE OG MIKE PENCE ERU VARAFORSETAEFNI
Öruggur kostur? Tim Kaine er
varaforsetaefni Demókrata.
Hafnar neikvæðni Mike Pence er
varaforsetaefni Repúblikana.
Þau Trump og Clinton eru síður
en svo þau einu sem sækjast
eftir forsetaembættinu í Banda-
ríkjunum, því alls sækjast 468
frambjóðendur eftir því að kom-
ast í Hvíta húsið. Átta bjóða sig
fram fram fyrir hönd stjórn-
málaflokka á landsvísu. Það eru
Gary Johnson frambjóðandi
Frjálslyndisflokksins, Jill Stein,
frambjóðandi Græningja, Darr-
ell Castle fyrir Stjórnar-
skrárflokkinn, Ecan McMullin
fyrir Sjálfstæða flokkinn, Gloria
LaRiva er í framboði fyrir flokk
sósíalista og frelsissinna, Rocky
de la Fuenta er frambjóðandi
Umbótaflokksins, Emidio Solty-
sik er í framboði fyrir Sósíal-
istaflokkinn og Alyson Kennedy
fyrir sósíalíska Verkamanna-
flokkinn. Auk þeirra er 21 óháð-
ur frambjóðandi og 437 óskráð-
ir frambjóðendur eru í fram-
boði. Nöfn þeirra í síðasttalda
hópnum birtast ekki á kjörseðl-
inum en í 43 af 52 ríkjum
Bandaríkjanna getur kjósandi
skrifað nafn frambjóðanda í þar
til gerða línu. Stefnumál fram-
bjóðenda þessum hópi eru
býsna fjölbreytt, lögleiðing
kannabisefna er vinsælt bar-
áttumál og þá segjast nokkrir
frambjóðendur einfaldlega
bjóða sig fram í von um athygli
og fjárhagslegan ávinning.
468 bjóða
sig fram
til forseta
MARGIR ERU UM HITUNA
Hvíta húsið 468 frambjóð-
endur vilja setjast þar að.
AFP
Bandaríkin Þar verða forseta-
kosningar 8. nóvember