Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 54

Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ígær hleyptimbl.is afstokkunum nýjum vef um sjáv- arútvegsmál. Vefurinn stendur á traustum grunni, hann byggist annars vegar á vefnum sax.is og hins vegar á mbl.is og Morgunblaðinu. Sax.is, sem Árvakur, útgefandi Morg- unblaðsins og mbl.is, hefur fest kaup á, hefur í átta ár þjónað sjávarútveginum sem mikilvæg upplýsingaveita um flest sem greininni viðkemur. Morgunblaðið og mbl.is hafa alla tíð sinnt vandlega umfjöll- un um sjávarútveg, en með ólíkum hætti þó í gegnum tíð- ina. Áður fyrr var gefið út viku- legt sérblað um sjávarútveg auk þess sem fréttir sem hon- um tengdust voru birtar á fréttasíðum blaðsins. Nú fer umfjöllun um sjávarútveginn bæði fram á fréttasíðum blaðs- ins og með sérstakri umfjöllun í Viðskiptamogganum, auk til- fallandi sérblaða um málefni greinarinnar. Sjávarútvegur hefur einnig verið til umfjöll- unar á fréttasíðum og á við- skiptahluta mbl.is en með til- komu nýja vefsins, sem fengið hefur nafnið 200 mílur, verður þessi umfjöllun aukin til muna og þjónustan við þá sem að greininni koma og áhuga hafa á henni þar með. Sjávarútvegur er vitaskuld aðeins ein af mörgum atvinnu- greinum landsmanna sem Morgunblaðið og mbl.is sinnir með yfirgripsmikilli umfjöllun, en það er við hæfi að þessi at- vinnugrein sé sú fyrsta sem fær sér- stakan undirvef á mbl.is, enda um undirstöðu- atvinnuveg þjóðar- innar að ræða og þá grein sem átt hefur ríkastan þátt í að lyfta landinu úr örbirgð í bjarg- álnir og loks til þeirrar velmeg- unar sem Íslendingar búa við í dag. Nafnið 200 mílur er viðeig- andi þar sem útfærsla land- helginnar var meiriháttar skref í þá átt að tryggja af- komu þjóðarinnar. Annað skref sem nefna má á þeirri löngu og farsælu braut er upptaka fiskveiðistjórnarkerfisins sem verið hefur við lýði í um þrjá áratugi og hefur verið forsenda þeirrar hagkvæmni sem náðst hefur í íslenskum sjávarútvegi og vakið hefur athygli og þótt til eftirbreytni víða um heim. Íslendingar eru lánsamir að búa í landi þar sem ríkir al- menn velsæld og þar sem sam- anburður við önnur ríki er að flestu leyti hagfelldur. Þetta hefur þó ekki komið af sjálfu sér heldur byggist á öflugu at- vinnulífi og þeim skilningi sem ríkt hefur á því að búa þurfi öll- um greinum atvinnulífsins sem allra best skilyrði til að þær geti vaxið og dafnað. Með út- gáfu 200 mílna á mbl.is standa vonir til að áhugi og þekking á þeirri mikilvægu undirstöðu ís- lensks atvinnulífs sem sjávar- útvegur er fari vaxandi og að með því megi stuðla að enn frekari vexti greinarinnar og velsæld landsmanna. Nýr vefur mbl.is um sjávarútveg var opnaður í gær} 200 mílur Í fréttum „RÚV“í gær sagði m.a.: „Umboðs- maður Alþingis hefur beint þeim tilmælum til innan- ríkisráðuneytisins og fangelsismálastofnunar að þau taki kvörtun fanga á Litla Hrauni til endurskoðunar. Fanginn kvartaði undan því að fangavörður í fangelsinu hefði sagt að hann væri „asni“.“ Nú hefur ekki verið kannað hvort einhver hafi áður kallað mann „asna“ á Íslandi, en eng- in fyrirmynd úr dýraríkinu er hér til staðar. Hefði fangi verið kallaður „fálki“ hefði kerfið varla eytt milljónum í málið (þegar horft er til tímakaups embættismanna). Nema fangi væri samfylkingarmaður og því djúpt særður yfir að vera líkt við merki íhaldsins. Eftir rækilega yfirlegu fjöl- margra stofnana ákvað innan- ríkisráðuneytið að hafast ekki að. En þá komst málið í réttar hendur. Umboðs- maður Alþingis sökkti sér niður í það og skilaði yfirgrips- miklu áliti. (Í ljósi þess sést hversu ósanngjarnt er að óska eftir því að Umboðsmaður kíki á nokkur hundruð millj- arða stjórnsýsluklúður.) Í áliti Umboðsmannsins kemur m.a. fram að fanginn hafi orðið þunglyndur við að hafa verið kallaður „asni“. Von- andi hafa Bandaríkjamenn ekki gengið svona langt í Guantanamo. Í niðurstöðu síns langa og vandaða álits ákvað Umboðs- maður Alþingis að „beina þeim tilmælum til innanríkisráðu- neytisins og fangelsismála- stofnunar að þau taki kvörtun fanga á Litla Hrauni til endur- skoðunar“. Innanríkisráðu- neytið samþykkti það! Íslandi er því borgið og hringferð allra þessara stofnana getur hafist á ný. Verður bók Einars Kára, „Þetta eru asnar Guðjón,“ bönnuð á Hrauninu?} Gæta ber hófs, asni er hófdýr E itt og annað í stjórnmálaumræðu er ekki hægt að ræða án þess að umræðan fari út í tóma steypu. Eitt af því sem svo gott sem vonlaust er að reyna að ræða af einhverri yfirvegun er sala tóbaks og tóbaks- notkun mannsins. Nú ætla ég ekki að æra óstöðugan með því að fjalla um reykingar heldur einungis reyk- laust tóbak. Þróun mála í þeim málaflokki er yfirgengileg en sjálfsagt er mörgum ekki kunnugt um það enda ekki það sem efst er á dagskrá hjá fólki yfirleitt. Margt annað mikil- vægara má auðvitað ræða og skoða. Reyklaust tóbak rataði þó inn í sali Alþingis árið 1996, ekki einungis vegna þess að nokkrir þingmenn neyttu þess, heldur til að banna slíkt, jaaaa að hluta til. Þá eins og nú voru þeir enn til sem telja að boð og bönn skili einhverju. Ekki þarf að efast um að hugurinn að baki sé góður og allt það. Snillingunum á Austurvelli tókst þá að banna innflutn- ing og sölu á því sem kallað var munntóbak og fínkorna neftóbak. Bann á munntóbaki var tilskipun til aðildar- landa EES frá hinu háæruverðuga Evrópusambandi en ekki fínkorna neftóbakið. Þá hafði fengist hér á eyjunni gæða munntóbak frá norræna velferðarríkinu Svíþjóð, og er kallað General. Svíar fengu undanþágu frá hinu háæruverðuga ESB og framleiða, og nota, munntóbakið í stórum stíl í anda norrænnar velferðar. Generalið er fínt og ef lyktin fer í mann má einnig fá sér Ettan, sem er aldeilis ljómandi. Á þessum tíma sem hér um ræðir var einnig hægt að gæða sér á aldeilis fínu erlendu neftóbaki sem kallað er snuff. Á tyllidögum var ekki slæmt að fá sér 99, Presi- dent eða Löwen-Prise, allt eftir því í hvernig stuði menn voru. 99 er svolítið fínna en hinar tvær tegundirnar og bragðið öðruvísi. Lö- wen-Prise er til dæmis með meira lakkrís- bragði og er grófara. Íslenskir alþingismenn sáu hins vegar til þess að maður getur ein- ungis gætt sér á slíku erlendis, þar sem varan er að sjálfsögðu víða leyfileg. Þingheimur bannaði hins vegar ekki allt reyklaust tóbak af mikilli prinsippástæðu, eða vegna heilags stríðs gegn þeim vágesti sem tóbak vissulega getur verið sé hófs ekki gætt. Alls ekki. Þingheimurinn bannaði auð- vitað ekki ríkisframleiðsuna á neftóbaki. Mér hefur aldrei þótt íslenska tóbakið gott og manni var skapi næst að byrja að reykja eftir þennan fíflagang þingmanna, sem ég hef þó aldrei gert. Niðurstaðan er sú að neysla munntóbaks og neftóbaks hefur stóraukist á Íslandi. Sú breyting hefur orðið að margir (sérstaklega ungir karlar) troða íslenska neftóbakinu í vörina á sér. Ég veit ekki annað en íslenska tóbakið hafi ávallt verið hugsað sem neftóbak en ekki munntóbak. Samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu, sem DV greindi frá í fyrra, er nikótínið í íslenska tóbakinu 115% meira en í General. Þar kom einnig fram að ríkið upplýsti ekki embættið um innihald tóbaksins. kris@mbl.is Kristján Jónsson Pistill Stórsigur reyklausa ríkistóbaksins STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ídag er einn mánuður í þing-kosningar, því kosið verður29. október nk. Alþingi siturenn og ekki er búist við að störfum þess ljúki fyrr en í næstu viku og því ekki fyrr en eftir það, sem hin raunverulega kosningabar- átta fer fyrir alvöru af stað, þótt vit- anlega sé hún hafin. Erfitt er að henda reiður á því hvert fylgi stjórnmálaflokkanna er um þessar mundir, því skoðana- kannanir sýna afar mismunandi fylgi við einstaka flokka og virðist vera mikil hreyfing á fylginu. Á mánudagskvöld gerðu Fréttablaðið og Stöð 2 skoðana- könnun þar sem spurt var um fylgi flokkanna. Í þeirri könnun mældist Sjálf- stæðisflokkurinn langstærstur með 34,6 prósenta fylgi. Píratar voru með tæp 20 prósent og Vinstri græn og Framsókn með tæp 13 prósent. Aðeins rétt rúmur helmingur aðspurðra tók afstöðu í skoðana- könnuninni, eða 51,5%. Yrðu niðurstöður í þingkosn- ingunum í líkingu við nýjustu skoð- anakönnun Fréttablaðsins, héldi þingmeirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, þar sem Sjálf- stæðisflokkurinn fengi 24 þingmenn og Framsóknarflokkurinn 9, samtals 33 þingmenn í stað þeirra 38 sem stjórnarmeirihlutinn hefur nú. Pír- atar fengju 13 þingmenn kjörna, Vinstri græn 8, og Viðreisn, sem mælist með ríflega sjö prósenta fylgi, fengi 5. Samfylkingin fengi 4 þingmenn með tæplega sex prósenta fylgi. Aðrar niðurstöður í könnuninni voru að Björt framtíð mældist með 3,6 prósenta fylgi, Íslenska þjóðfylk- ingin með 1,5 prósent en aðrir flokk- ar mældust undir eins prósents fylgi. Skoðanakönnun MMR sem var framkvæmd 20. til 26. september og gerð opinber í fyrradag sýnir allt aðrar niðurstöður en könnun Frétta- blaðsins. Helstu niðurstöður hennar eru að Píratar mældust stærstir með 21,6% fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 20,6% fylgi. Viðreisn mældist með 12,3% fylgi, sem er 3,5 prósentustigum meira en í könnun sem lauk 29. ágúst og hæsta mæling flokksins hingað til. Framsókn mældist með 12,2% fylgi, Vinstri-græn með 11,5% fylgi og Samfylkingin með 9,3% fylgi. Björt framtíð mældist með 4,9% fylgi, Íslenska þjóðfylkingin mældist með 2,3% fylgi og Dögun með 2,1%. Önnur framboð mældust undir einu prósenti. 985 einstaklingar, 18 ára og eldri svöruðu könnun MMR. Hver skýringin er á svo ólíkum niðurstöðum í tveimur skoðanakönn- unum, sem gerðar eru á svipuðum tíma liggur ekki ljóst fyrir. Á það er þó bent að þær séu framkvæmdar með ólíkum aðferðum. MMR könn- unin er netkönnun sem gerð var á sjö dögum. Það sem geti skekkt nið- urstöðuna, sé m.a. það að eldra fólk er ólíklegra til þess að taka þátt í netkönnunum en yngra fólk. Þannig sé margt eldra fólk í stuðningsliði Sjálfstæðisflokksins og það geti verið ein skýring þess að flokkurinn fékk einungis 20,6% fylgi hjá MMR. Könnun Fréttablaðsins var framkvæmd með sím- hringingum sl. mánudags- kvöld og það sem gæti dregið úr áreiðanleika þeirrar könnunar er hversu lágt svarhlut- fallið var, eða 51,5%. Fylgi flokkanna er á fljúgandi siglingu Morgunblaðið/Golli Í forystu Þessir stjórnmálaforingjar og aðrir geta líklega farið að ein- beita sér í næstu viku að kosningabaráttu, sem verður væntanlega snörp. Grétar Þór Eyþórsson, prófess- or í stjórnmálafræði við Há- skólann á Akureyri, segist nokkuð viss um að fleiri séu óákveðnir nú, mánuði fyrir kosningar, en alla jafna. „Kosningabaráttan er varla byrjuð. Leikritið í kringum Framsókn er ennþá í gangi og Píratar hafa verið áberandi í tiltölulega neikvæðri umræðu,“ sagði Grétar Þór. Hann kveðst telja að eigin- leg kosningabarátta hefjist í næstu viku. Þessi staða þurfi ekkert endilega að koma á óvart, miðað við það sem á undan er gengið. „Fólk er bara ekki búið að melta stöðuna og mun ákveða sig mjög seint, að mínu mati. Þetta er bara ólgandi pottur þessa dagana,“ sagði Grétar Þór. Ákveða sig mjög seint PRÓFESSOR Í STJÓRNMÁLAFRÆÐI Grétar Þór Eyþórsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.