Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 58

Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 58
Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is Moules Frites Bière Bláskel með frönskum og bjór 3490,- alla fimmtudaga MENNINGí vetur Veisla í hverri viku  Það stendur mikið til hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands sem er með fjölbreytt úrval á efnisskrá vetrarins að vanda  Sígild tónverk, tónlist fyrir börnin og uppistand með Sinfóníunni er meðal þess sem ratar á svið Eldborgar Töfrandi „Tónlist er svo sterkt afl og falleg tónlist hrífur fólk auðveldlega með. Svona upplifun erum við að bjóða upp á í allan vetur hér í Hörpu.“ Morgunblaðið/Ómar Heimavöllurinn Það er ekki amalegt að eiga heimili í Eldborgarsal Hörpu en það er einmitt tilfellið hjá Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Hljómsveitin býður að vanda upp á fjölbreytta skemmtun fyrir alla fjölskylduna í vetur. töfrastundir með Sinfóníu- hljómsveitinni.“ Nýr aðalhljómsveitarstjóri Það er auðheyrt að Arna Kristín kann vel við sig í starfi og kannski ekki að undra þegar haft er í huga að starf hennar frá degi til dags hverfist um Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem í flestra augum telst til þjóðargersema, fyrir utan að umgjörðin er Eldborg, einn magnaðasti tónleikasalur Evr- ópu og þótt víðar væri leitað – ef marka má þá ótalmörgu erlendu tón- listarmenn og stjórnendur sem stigið hafa þar á svið og leyst galdur sinn úr læðingi. Og það er nóg af töfrum á efnisskránni fram undan. „Þetta er auðvitað bara veisla í hverri viku og munar ekki minnst um að við kynntum nýlega til sögunnar nýjan aðalhljómsveitarstjóra, Yan Pascal Tortelier. Við væntum mikils af samstarfinu við hann enda er hann afskaplega virtur og alveg frábær tónlistarmaður. Hann kemur hingað reglulega yfir allt starfsárið í vetur og meira en óhætt er að mæla með öllum tónleikum sem hann mun stjórna, bæði í Gulri, Rauðri og Grænni tón- leikaröð.“ Arna Kristín bendir einnig í fram- haldi af þessu á að von er á Víkingi Heiðari í nóvember, en þá mun hann leika einleik í Eldborgarsalnum ásamt Sinfóníuhljómsveitinni, og ein- mitt undir stjórn Tortelier. „Víkingur er náttúrulega ein af skærustu stjörn- um okkar og mikil tilhlökkun er fyrir þeim viðburði. Þá er Daníel Bjarna- son staðarlistamaður okkar, bæði sem tónskáld og hljómsveitarstjóri, og margt spennandi á efnisskránni í vetur sem hann kemur að, til dæmis tónleikar Bedroom Community, sem verða á Airwaves í nóvember.“ Af uppistandi og öðrum viðburðum Þegar Arna Kristín nefnir svo við- burð þar sem fram koma Ari Eldjárn, einn okkar vinsælustu uppistandara, og Sinfóníuhljómsveitin verður blaða- maður að grípa fram í fyrir henni og biðja um nánari útlistun. Hvernig fara Sinfóníutónleikar og uppistand við tilheyrandi hlátrasköllum saman? Arna Kristín kímir við og útskýrir svo. „Þetta fléttast snilldarvel saman, ekki síst af því að Ari er svo músík- alskur,“ segir hún ásamt því að upp- lýsa að hún hafi kennt Ara á flautu hér í eina tíð. „Hann var með okkur á Menningarnótt í fyrra og það sló ger- samlega í gegn, troðfullur salur og frábærar undirtektir. Þá sáum við að við yrðum að gera meira á sömu nótum. Þetta gengur þannig fyrir sig að hann kynnir þekkt bíóstef og tón- verk sem koma fram í kvikmyndum og setur það svo í spaugilegt sam- hengi af sinni alkunnu snilld. Hann gerir stólpagrín að okkur í Sinfóní- unni í leiðinni en það er allt í góðu,“ bætir Arna við og hlær. Fantasía Disneys og fleira Að endingu minnir Arna aftur á viðburði sem verða á laugardögum í vetur á vegum Sinfóníunnar og eru hugsaðir fyrir alla fjölskylduna. „Þar er fyrst að nefna Fantasíu Disneys. Það verða svokallaðir bíó- tónleikar sem við höfum lengi látið okkur dreyma um að setja upp enda alger klassík upp úr mynd frá árinu 1940. Þetta verða þrennir tónleikar, 6., 7. og 8. október.“ Af öðru efni fyrir fjölskylduna nefnir Arna Kristín verk sem nefnist „Skrímslið litla systir mín“ þar sem Trúðurinn Barbara er kynnir og Eivör Pálsdóttir syngur einsöng. Þá mæta Múmínálfarnir ást- sælu til leiks á næsta ári þegar Sin- fóníuhljómsveitin flytur „Múmínálfa í söngvaferð“ ásamt þeim Agli Ólafs- syni og Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur. „Það er því að vanda af nógu að taka og við hlökkum til að eiga töfrandi stundir með gestum okkar í Eldborg í vetur.“ jonagnar@mbl.is stórvirki mannsandans og því fylgja undrun, gleði og andköf. Þú ert að upplifa snilld. Það sem er aftur á móti sérstakt við tónlist er að hún talar beint inn í tilfinningarnar, fer rakleið- is inn í sálarlífið. Tónlist er svo sterkt afl og falleg tónlist hrífur fólk auð- veldlega með. Svona upplifun erum við að bjóða upp á í allan vetur hér í Hörpu, nánar tiltekið í Eldborgar- salnum, og fólk kemur til að upplifa menntanna á borð við sinfóníur Beethovens nr. 3 og 7 og svo 8. sinfón- íu Bruckner,“ segir Arna um veturinn fram undan. „Það er alltaf jafn gaman að bera þessa snilld á borð fyrir tón- leikagesti því verk frá þeim tíma þeg- ar sinfónísk tónlist náði sínum há- punkti hefur áhrif á áheyrendur ekki ósvipað því þegar fólk gengur inn í Sixtínsku kapelluna eða les Sjálfstætt fólk eftir Laxness; þú ert að upplifa „Við erum eins og venjulega með okk- ar veglegu áskriftarraðir, Gulu, Rauðu og Grænu tónleikaröðina, og svo erum við með Litla tónsprotann sem eru tónleikar hugsaðir fyrir alla fjölskylduna,“ segir Arna Kristín Ein- arsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfón- íuhljómsveitar Íslands. „Á áskriftar- röðunum erum við aftur á móti að miklu leyti að flytja mörg af hinum stóru, klassísku verkum tónbók- Þjónustuauglýsingar Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.