Morgunblaðið - 29.09.2016, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Taktu
bílinn með
til Færeyja og Danmerkur 2016
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
MENNING í vetur
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Leikárið fer vel af stað hjá Borg-
arleikhúsinu og fjöldi spennandi
verka á dagskrá í haust. Kristín Ey-
steinsdóttir leikhússtjóri segir að
undanfarin ár hafi aðsóknin verið
með besta móti. „Leikárið 2013-14
var það aðsóknarmesta í sögu leik-
félgsins og í fyrra vorum við mjög
nálægt því að slá nýtt met með 210
þúsund gesti.“
Góða aðsókn má skrifa bæði á
vandað verkefnaval og mikinn
áhuga á leiklist og menningu úti í
samfélaginu. Segir Kristín að eftir
hrunið margumtalaða hafi leik-
húsgestum tekið að fjölga og skýr-
ingin mögulega sú að í leikhúsinu
gefst ágætis tækifæri til að líta inn á
við. „Við leggjum líka alltaf ríka
áherslu á að bjóða upp á verk sem
endurspegla samtímann á einhvern
hátt. Í raun þarf leikhúsið að vera
örlítið á undan áhorfendunum, og
vera nægilega framsækið til að fara
framúr væntingum gestanna bæði
hvað varðar gæði og innihald verk-
anna.“
Á dagskrá Borgarleikhússins í
haust er meðal annars söngleik-
urinn Mamma Mía sem frumsýndur
var á síðasta leikári og vakti mikla
lukku. „Við höfum sjaldan upplifað
aðra eins stemmingu enda hittir
þessi sýning áhorfendur í hjartastað
og mun Mamma Mía halda áfram
fram yfir áramót,“ segir Kristín.
„Hjá leikhúsinu er mikil áhersla
lögð á frumsköpun og islenska leik-
ritun og í haust frumsýnum við nýj-
an fjölskyldusöngleik sem byggist á
barnabókinni vinsælu Bláa hnett-
inum eftir Andra Snæ Magnason.
Bergur Þór Ingólfsson samdi leik-
gerðina og Kristjana Stefánsdóttir
semur tónlist.
Mikilvæg skilaboð
Kristín bindur miklar vonir við
Bláa hnöttinn. „Sýningin er ein-
staklega falleg enda er þarna um
mikilvæga sögu að ræða sem á er-
indi við okkur öll. Dansatriðin eru
hreint ótrúleg. Það er Chantelle Ca-
rey sem vann með okkur í Billy El-
liot sem semur dansana en alls
koma fram 22 börn í verkinu og
bæði dansa og syngja.“
Og talandi um gleði, þá er von á
nýrri sýningu leikkvennanna Hall-
dóru Geirharðsdóttur og Ólafar
Hrannar snemma í október. „Þær
mæta á svæðið með sín alter-egó, þá
félaga Hannes og Smára í sam-
nefndri sýningu sem Jón Páll Eyj-
ólfsson leikstýrir.“
Þeir sem eru hrifnari af skandin-
avískum átakaverkum ættu að bóka
miða á leikritið Brot úr hjónabandi.
„Þetta er verk úr smiðju Ingmars
Bergman og leika hjónin Unnur Ösp
Stefánsdóttir og Björn Thors par
sem er komið í erfiða stöðu í sam-
bandinu,“ segir Kristín.
Margir bíða spenntir eftir jóla-
frumsýningu Borgarleikhússins. Í
ár er það Salka Valka sem fer á fjal-
irnar í desember og leikstýrir Yana
Ross einvalaliði íslenskra leikara í
þessari stóru sýningu. „Yana leik-
stýrði Mávinum í fyrra og vakti sú
sýning verðskuldaða athygli langt
út fyrir landsteina. Hefur Mávurinn
ferðast á tvær leiklistarhátíðir, í
Finnlandi og Póllandi og fyrirhugað
er að fara með verkið til Kína í vor.
Unnið er á áhugaverðan hátt með
þetta klassíska íslenska verk og
Salka Valka skoðuð bæði í fortíð og
nútíð.“
Missa sig yfir Njálu
Njála, sigurvegari síðustu Grí-
muhátíðar snýr svo aftur. „Áhorf-
endur misstu sig algjörlega yfir
þessari sýningu í fyrra. Er magnað
að fylgjast með hvað þessi saga rist-
ir djúpt í þjóðarsálinni og höfðar
sterkt til allra aldurshópa.“
Af öðrum verkum haustsins má
nefna Extravaganza eftir Sölku
Guðmundsdóttur þar sem kastljós-
inu er meðal annars beint að ferða-
þjónustunni og breytingum á ís-
lensku samfélagi. Þá var verkið
Sending eftir Bjarna Jónsson frum-
sýnt í september en þar er umfjöll-
unarefnið hjón í íslensku sjávarplási
í kringum árið 1980. „Þau hafa verið
að glíma við barnleysi og taka til sín
fósturbarn. Sending tæpir meðal
annars á bjargarleysi barna og þeim
vandamálum sem komið hafa upp á
yfirborðið i tengslum við vistheim-
ilin.“
Dans og gleði
í bland við
skandinavísk
átakaverk
Fjölskyldusöngleikurinn um Bláa hnöttinn
ætti að hitta í mark hjá mörgum Salka
Valka verður frumsýnd í desember og bæði
Njála og Mamma Mía snúa aftur í vetur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litir Stór hópur barna tekur þátt í söngleiknum Bláa hnettinum.
Spegill „Við leggjum alltaf
ríka áherslu á að bjóða upp á
verk sem endurspegla sam-
tímann á einhvern hátt,“ segir
Kristín Eysteinsdóttir.