Morgunblaðið - 29.09.2016, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
„Sýningarárið fer frábærlega vel af
stað og það sem er kannski óvenju-
legt er hversu mörg verk við höfum
þegar frumsýnt, strax í byrjun leik-
árs,“ segir Atli Þór Albertsson,
markaðsstjóri Þjóðleikhússins.
„Mikil eftirvænting ríkti fyrir frum-
sýningu Djöflaeyjunnar, sem Þjóð-
leikhúsið hefur lagt mikinn metnað
í. Þetta er söngleikur, framleiddur í
samstarfi við Baltasar Kormák, sem
allir helstu leikarar hússins koma
að og sýna þar á sér nýjar og
óvæntar hliðar. Sýningin hefur
fengið frábærar viðtökur og það er
alveg ljóst að leikhúsgestir hafa
sterkar taugar til þessarar sögu.
Við erum mjög stolt af því að hafa
búið til nýjan, íslenskan söngleik og
tónlist Memfismafíunnar rataði
strax á topplista útvarpsstöðva.
Það hefur verið nóg að gera hjá
leikurum og starfsfólki hússins.
Þarsíðustu helgi frumsýndum við til
dæmis tvö verk á sama degi – Ís-
lenska fílinn og Mann að nafni Ove.
Íslenski fíllinn er frábært verk fyrir
yngstu kynslóðina og hefur fengið
fullt hús stiga hjá gagnrýnendum.
Þetta er brúðuleikrit sem hinn
þýsk-íslenski leikhúsmaður Bernd
Ogrodnik galdrar fram og sagan er
hjartnæm með fallegan boðskap.
Sýningin er tilvalin leið fyrir unga
áhorfendur til að kynnast leikhús-
inu og gefa ímyndunaraflinu lausan
tauminn. Hvað gerir fíll á Íslandi?
Hvernig er honum tekið af for-
ystuhrútum og öðrum íslenskum
dýrum? Þetta eru spurningar sem
nauðsynlegt er að velta fyrir sér.“
Konan Jagó
Atli bætir við. „Ég verð að minn-
ast á Sigga Sigurjóns sem nú fagnar
40 ára leikafmæli. Hann stendur
einn á sviðinu í Maður sem heitir
Ove, sem er sannkallað kassastykki.
Bókin varð alþjóðleg metsölubók og
kvikmyndin sló í gegn, en við erum
fyrsta þjóðin sem sýnir einleikinn
eftir að hann sló öll met í heima-
landinu Svíþjóð. Þetta er þrælfynd-
in en á sama tíma falleg saga sem
snertir strengi sálarinnar og kitlar
hláturtaugarnar. Maður heyrir
áhorfendur bæði hlæja og gráta,
þannig á leikhús auðvitað að vera.“
Samstarfssýningin Stertabenda
var frumsýnd í Kúlunni fyrir viku
og á morgun, föstudaginn 30. sept-
ember, verður frumsýnt á Stóra
sviðinu verkið Horft frá brúnni eftir
Arthur Miller. „Þetta er auðvitað
klassískt verk og leikstjórinn, Stef-
an Metz, er alþjóðleg stjarna í leik-
húsheiminum, Hilmir Snær, Harpa
Arnardóttir, Lára Jóhanna Jóns-
dóttir og fleiri bera þessa sýningu
uppi, sem er sett upp í svokölluðum
„film noir“ stíl og er sannkallað leik-
húskonfekt.“
Jólasýning Þjóðleikhússins er
Óþelló í leikstjórn Gísla Arnar
Garðarssonar. „Þetta er í annað
sinn sem Vesturport tekst á við
Shakespeare, en hin geysivinsæla
sýning Rómeó og Júlía úr þeirra
smiðju sló öll met,“ útskýrir Atli.
„Gísli Örn fer ekki troðnar slóðar,
frekar en fyrri daginn, því í upp-
færslu hans er Jagó kona, í fyrsta
sinn svo vitað sé, hlutverkið er í
höndum Nínu Daggar Filipp-
usdóttur. Aldís Amah Hamilton, ný-
útskrifuð leikkona, tekst á við
Desdemónu og Ingvar E. Sigurðs-
son leikur Óþelló. Shakespeare
sjálfur sendi mér skilaboð í gegnum
landsþekktan miðil á dögunum,
skilaboðin voru skýr, hann er
spenntur.“
Hús Guðmundar
Atli er spurður út í aðrar leiksýn-
ingar vetrarins, sniðnar fyrir
yngstu áhorfendurna. „Börnin í
landinu erfa leikhúsið og þeim vilj-
um við sinna. Við sendum sýn-
inguna Lofthræddi örninn Örvar í
hringferð um landið og bjóðum
börnum á hana. Hún verður frum-
sýnd í Vestmannaeyjum 6. október
næstkomandi og fer svo á flakk um
landið. Á sama tíma tökum við á
móti tæplega fimm þúsund leik-
skólabörnum á nokkrum dögum og
bjóðum þeim upp á sýningu hér í
Þjóðleikhúsinu.
Ef ég ætti að velja eitt barna- og
fjölskyldustykki úr leikárinu, sem
ég er hvað spenntastur fyrir, þá
væri það Fjarskaland. Þetta er
nýtt, íslenskt barnaleikrit eftir
Guðjón Davíð Karlsson, sjálfan
Góa. Selma Björnsdóttir leikstýrir
og þetta verður risastórt og æv-
intýralegt sjónarspil á Stóra svið-
inu, með nýrri frumsamdri tón-
list.“
Kristbjörg Kjeld snýr aftur í
Þjóðleikhúsið í vetur og fer með
hlutverk í Húsinu eftir eiginmann
hennar heitinn, Guðmund Steins-
son. „Þetta er frumuppfærsla á
þessu verki sem verður frumsýnt í
mars; Benedikt Erlingsson leik-
stýrir en þau Guðjón Davíð Karls-
son og Vigdís Hrefna Pálsdóttir
fara með aðalhlutverk,“ segir Atli.
„Tímaþjófurinn eftir Steinunni
Sigurðardóttur er svo klárlega
spennandi kostur fyrir marga en
bókin er auðvitað stórkostleg,
frumsýningin er líka í mars. “
Hitler á svið
Atli nefnir loks sýninguna Aftur
á kreik, í leikstjórn Þorleifs Arnar
Arnarssonar, sem tekin verður til
sýninga í apríl. „Þessi frábæra
sýning byggist á samnefndri met-
sölubók eftir Timur Vermes. Adolf
Hitler vaknaði í Berlín árið 2011
og sló í gegn. Hann er nú kominn
til Íslands og hyggur á landvinn-
inga. Hér er á ferðinni einstakt
tækifæri til að hitta einn umdeild-
asta leiðtoga mannkynssögunnar,
upplifun sem enginn má missa af.
Ég hvet annars alla til að kynna
sér sýningar Þjóðleikhússins í vet-
ur á heimasíðu okkar. Þetta er
sannarlega litríkt leikár þar sem
við bjóðum upp á mjög fjölbreytta
og spennandi dagskrá og ég full-
yrði að allir geti fundið sýningar
við sitt hæfi, líka Addi, Palli og
Bergþóra.“ beggo@mbl.is
Hvað gerir fíll á Íslandi?
Morgunblaðið/Ómar
Jólasýningin „Gísli Örn Garðarsson fer ekki troðnar slóðar, frekar en fyrri
daginn, því í uppfærslu hans á Óþelló er Jagó kona, í fyrsta sinn svo vitað
sé,“ segir Atli Þór Albertsson, markaðsstjóri Þjóðleikhússins.
Djöflaeyjan Söngleikur framleiddur í samstarfi við Baltasar
Kormák, sem lék einmitt í kvikmyndagerð sögunnar 1996.
Brúðuleikhús Íslenski fíllinn, hjartnæm saga
með fallegan boðskap í Þjóðleikhúsinu.
Söngleikurinn Djöflaeyjan, harmleik-
urinn Óþelló, Húsið, Tímaþjófurinn, Horft
frá brúnni og Íslenski fíllinn, hjartnæmt
brúðuleikrit fyrir börn á öllum aldri, eru á
meðal fjölbreyttra og spennandi leiksýn-
inga Þjóðleikhússins í vetur Þar ættu
allir að finna eitthvað við sitt hæfi
Gott úrval af svefnsófum 2ja og 3ja sæta með eða án tungu.
Opið virka daga 10 – 18
laugardaga 11 - 15
Strandgötu 24 – 220 Hafnarfjörður
Sími 565 4100 - www.nyform.is
Teg. Feniks stillanlegur höfuðpúði Teg. Amigo
Teg. Cubo Teg. Como
Teg. Pluto
Kveðjusamkoma
Síðasta Hjálpræðisherssamkoman
í Kirkjustræti 2 fimmtudaginn 29. sept kl 20
KK og Margrét Eir
syngja og spila
Allir hjartanlega velkomnir
MENNING í vetur