Morgunblaðið - 29.09.2016, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
MENNING í vetur
Helstu kostir kerranna eru:
• 7 blaða blaðfjaðrir tryggja góða fjöðrun.
• Stórar legur í hjólnáum og 6,50 x 16“ dekk.
• Plast á fjaðraendum dregur úr hávaða.
• Hraðlæsing á afturhlera.
• Öryggislæsing á dráttarkúlu.
• Hluti framhlera opnanlegur sem auðveldar
upprekstur gripa á kerruna.
• Heilsoðinn botnplata við hliðar einfaldar þrif
og eykur styrk kerrana.
Kr.1.390.000
Einnig sturtukerrur,
flatvagnar og vélakerrur!
+
vs
k
Kr. 1.723.600 með vsk.
Gripakerrur
Höfum hafið innflutning á vönduðum breskum
gripakerrum frá framleiðandanum Indespension.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Ve
rð
og
bú
na
ðu
rb
irt
ur
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.
„Haustið hefur farið mjög vel af
stað hjá okkur,“ segir Gunnar
þegar við tökum tal saman um
veturinn fram undan. „Meðal
stykkja sem hafa gengið frábær-
lega vel eru Stripp, sem fékk
bæði mjög fínar viðtökur og
dóma, og svo barnasýningin
Fjaðrafok. Við buðum þar upp á
fjórar sýningar sem seldist alger-
lega upp á, án þess að við gætum
boðið upp á aukasýningar því sýn-
ingin var í samstarfi við írskan
fjöllistahóp sem var búinn að
bóka sig í viðamikinn túr um Ír-
land og því engin leið að bæta við
að svo stöddu. En vonir standa til
þess að við getum bætt við sýn-
ingum við tækifæri því hún féll í
alveg svakalega góðan jarðveg.“
Svo er það Sóley Rós, sem hef-
ur að sögn Gunnars algerlega
sprungið út síðustu vikurnar.
„Það kemur okkur í sjálfu sér
ekkert á óvart enda er þetta
hreint ótrúlega sterk og flott sýn-
ing. Sóley Rós er einfaldlega með
svo sterkum mennskum tón, fullt
af trega en samt ekki þrúgandi
sorglegt, og snertir áhorfendur
djúpt um leið og verkið er drep-
fyndið. Einstaklega falleg saga af
íslenskri hvunndagshetju.“
Barnaverk og
heimildarleikhús
Gunnar segir Tjarnarbíó í óða-
önn að bæta við sýningum enda
anni hann og samstarfsfólk varla
eftirspurninni – sem er að hans
sögn indælt „lúxusvandamál“. En
eins og starfsfólks framsækinna
leikhúsa er háttur horfir Gunnar
fram á veginn og þar er ýmislegt
sem gefur menningarþyrstum til-
efni til eftirvæntingar á næstu
mánuðum.
„Það er nóg af hlutum fram
undan. Nú taka við spennandi
frumsýningar, hver af annarri, og
þannig helst það í allan vetur,“
segir Gunnar. „Þetta er bara rétt
að rúlla af stað.“
Fyrst nefnir Gunnar að vegna
gríðarlegra vinsælda verði efnt til
fleiri sýninga á barnasýningu árs-
ins á Grímunni 2016, sem nefnist
Vera og vatnið. Verkið er sýnt af
Bíbí og Blaka, sem er fyrsti ís-
lenski danshópurinn sem vinnur
dansverk sérstaklega fyrir börn.
„Það verður í það minnsta ein
sýning og svo skoðum við fram-
haldið ef sýningin springur aftur
út,“ segir Gunnar. „Í kjölfarið
frumsýnum við svo Suss!!! eftir
leikhópinn RaTaTam, en þar er á
ferðinni verk sem hverfist um
heimilisofbeldi, byggt á ótalmörg-
um viðtölum sem leikhópurinn,
undir stjórn Charlotte Bøving,
hefur tekið við fólk sem þekkir til
af eigin raun, þolendur, gerendur
og aðstandendur. Það mætti kalla
þetta heimildarleikhús, en það er
form sem er að ryðja sér ræki-
lega til rúms hin seinni misseri.
Þetta er eldfimt efni sem allir
þekkja á einhvern hátt, óhöndl-
anlegt og erfitt viðfangs, og í
nafni verksins liggur þöggunin og
feimnin sem liggur yfir þessum
málaflokki. Vonandi verður til
umræða í kjölfarið um þessi við-
kvæmu mál.“
Suss!!! verður frumsýnt í októ-
ber.
Barneignir og
Ævisaga einhvers
Það er heldur léttara yfir verk-
inu Who’s the Daddy? sem leik-
hópurinn Pörupiltar sýnir í
Tjarnarbíói í nóvember. Pörupilt-
ar eru í reynd þrjár leikkonur –
Sólveig Guðmundsdóttir, Alexía
Björg Jóhannesdóttir og María
Pálsdóttir – sem bregða sér í
karlkyns gervi og tefla fram verki
sem er einhvers konar blanda af
uppistandi og leikhúsi. „Þarna er
aðeins verið að gera grín að okk-
ur karlmönnunum og undirtitill
verksins er á þá leið að hér sé
komin „sýning fyrir allar konur
sem vilja skilja karlmenn eða
vilja skilja við karlmenn“. Gunnar
hlær við. „Heimurinn verður
flóknari þegar barn kemur í spilið
og verkið fjallar um það hvernig
þær, sem karlmenn, takast á við
það.“
Leikhópurinn Kriðpleir mætir
einnig til leiks í nóvember með
nýtt stykki og segir Gunnar mikla
spennu ríkjandi fyrir því, enda fái
þeir Friðgeir Einarsson, Árni Vil-
hjálmsson og Ragnar Ísleifur
Bragason sem leikhópinn skipa
nánast alltaf Grímutilnefningar
þegar þeir stíga á svið.
„Þeir hafa verið að leika sér
með fyrirlestrarformið þótt efnið
sé alltaf mismunandi. Húmorinn
er á þá leið að lagt er upp með af-
skaplega háleit markmið en ekki
endilega niðurstöður sem ríma við
það. Ég er mikill aðdáandi þeirra
og þessi svokallaði „stoneface“-
húmor, þar sem þeir eru mjög al-
varlegir og íbyggnir á svip að
fjalla um alvarleg málefni án þess
að neitt af viti komi út úr því,
finnst mér alger snilld. Verkið
heitir Ævisaga Einhvers og þeir
eru að vinna með þessa íslensku
ævisagnahefð, búnir að kynna sér
efnið ofan í kjölinn og ég get eig-
inlega ekki beðið eftir afrakstr-
inum. Sýningar Kriðpleirs hingað
til eru með því fyndnara sem ég
hef séð,“ segir Gunnar að end-
ingu.
Þar með er Gunnar rokinn í
skyldustörfin enda nóg fram und-
an. Leikár Tjarnarbíós í heild
sinni má svo skoða á tjarnarbio.is
jonagnar@mbl.is
Tilfinningaskalinn í Tjarnarbíói
„Ég er í þeirri skemmtilegu stöðu að vera markaðsstjóri í leikhúsi þar sem ekkert nema spennandi sýningar,“
segir Gunnar Hansson hjá Tjarnarbíói Leikárið fer vel af stað og fullt af alls konar fram undan
Morgunblaðið/Ófeigur
Fjölbreytni Það er óhætt að segja að efnisskrá Tjarnarbíós sé með fjölbreyttu
sniði í vetur, og sviðsverkin spanna nokkurn veginn allan tilfinningaskalann.
Vinsældir „Haustið hefur farið mjög vel af
stað hjá okkur,“ segir Gunnar Hansson,
leikari og markaðsstjóri Tjarnarbíós.