Morgunblaðið - 29.09.2016, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 29.09.2016, Qupperneq 70
70 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 ✝ Hilmar Sím-onarson fædd- ist í Neskaupstað 24. ágúst 1937 í gamla Lúðvíkshús- inu. Hann lést 15. september 2016. Hann var sonur hjónanna Símonar Eyjólfssonar múr- ara og Sigríðar Tómasdóttur hús- móður. Hilmar var yngstur systkina sinna, en þau eru Tómas, f. 1934, Ingibjörg, f. 1935, og Helga, f. 1936, sem lést 29.11. 1989. Árið 1961 kvæntist Hilmar lífsförunaut sínum, Pálínu Helgu Kristjönu Thorvalds- dóttur Imsland, f. 24.8. 1943. Pálína er dóttir hjónanna Guð- rúnar Þorsteinsdóttur verka- konu og Thorvalds Imsland tré- smiðs. Pálína og Hilmar hófu búskap í Hlíð á Eskifirði hjá for- eldrum Pálínu en fluttu á Norð- fjörð 1965 þar sem þau byggðu sér hús og eignuðust sex börn; Thorvald Imsland, f. 1962, Guð- rúnu Sigríði, f. 1964, Helgu Eygló, f. 1965, Hildi, f. 1968, Stefán, f. 1970, sem lést í fæð- Hilmar tók sveinspróf í málaraiðn 1964 og meistara- réttindin fékk hann ári síðar. Það sama ár stofnaði hann málningarþjónustufyrirtæki sem hann rak um árabil. Útsjón- arsemi þurfti til að reka fyrir- tækið og var verkefna leitað um alla Suðurfirðina, frá Norðfirði til Hafnar í Hornafirði. Hilmar og Pálína fluttu suður til Reykjavíkur árið 1986 þar sem hann bjó til dauðadags. Hann starfaði víða fyrstu árin í Reykjavík en lengst af sem mál- ari og viðhaldsmaður hjá Hjálp- ræðishernum. Hilmar var félagi í Lions, var gjaldkeri Alþýðubandalagsins í Neskaupstað, var félagi í Iðn- aðarmannafélagi Norðfjarðar og var lengi brennustjóri ára- mótabrennunnar í Neskaupstað. Kirkjan og trú áttu stóran sess í lífi Hilmars. Hann var til fjölda ára meðhjálpari í Norðfjarðar- kirkju og söng í kirkjukórnum. Hann fann trú sinni farveg og gerðist hermaður í Hjálpræð- ishernum ásamt Pálínu konu sinni. Þegar Hilmar hætti störf- um vegna aldurs var hann áfram virkur í félagsstarfi. Lengi var hann starfsmaður á elliheimilinu Grund sem með- hjálpari og söng í Grundar- kórnum. Útför Hilmars fór fram í Breiðholtskirkju 23. september 2016. ingu, og Lars Jó- hann Imsland, f. 1972. Thorvald er mál- ari, í sambúð með Joannu Kur- piewsku hagfræð- ingi, á soninn Vikt- or Steinar með Drífu Garð- arsdóttur. Guðrún Sigríður er starfs- maður hjá Fjarða- veitingum, gift Hauki Guðjóns- syni vélvirkja, þeirra börn eru Pálmar Ingi og Dagný Alda. Helga Eygló er kennari, gift Hreini Óskarssyni, bifvélavirkja og kennara, þeirra börn eru Helga Ósk, Heiðdís Rut, Hilmar Þór og Hafey Lilja. Hildur er bankastarfsmaður, í sambúð með Inga Þór Oddssyni verk- stjóra, þeirra börn eru Unnur Líf og Pálína Líf. Lars er skóla- stjóri og málarameistari, kvænt- ur Ósk Guðmundsdóttur hjúkr- unarfræðingi, þeirra börn eru Bjartur Snær, Ásthildur Rós og Sóley Lind. Barnabarnabörn Hilmars eru Bjartey Perla og Glódís Perla, börn Unnar Lífar og Trausta Hjaltasonar. Tíminn er fljótur að líða. Það var í mars síðastliðnum sem ég fylgdi þér til læknis og þú fékkst tíðindin um að þú værir með ólæknandi krabbamein. Læknir- inn vildi ekki gefa þér neinn ákveðinn tíma en við skildum báð- ir að hann var ekki langur. Þau voru þung sporin út og við keyrðum heim til mömmu og fór- um yfir stöðuna með henni. Þú varst ákveðinn í að sigrast á þessu því þú varst ekki tilbúinn að deyja strax. Þú vildir lifa lengur, fá að vera lengur með okkur og upplifa áfanga í lífi barna og barnabarna þinna. Sjúkdómurinn sem þú fékkst var miskunnarlaus og fljót- lega fór að halla undan fæti. Lífsgæðin fóru fljótt að skerð- ast en þú sýndir hversu sterkur þú varst allt fram á síðustu stundu. Fjölskyldan stóð þétt saman í veikindum þínum og á margan hátt erum við orðin nánari eftir þetta ferli sem tók ekki nema hálft ár. Ég fann að það er gott að vera hluti af stórum systkinahópi og arfleifð þín og mömmu er mikil og góð. Er ég lít til baka er mér margt minnisstætt. Þú vildir ávallt það besta fyrir mig og lengi vel vildir þú að ég yrði prestur. Þér fannst það hljóma svo tign- arlega „séra Lars Jóhann Ims- land“. Þú varst mjög umburðar- lyndur sem faðir og þó ég reyndi á þolrifin þá var aldrei staldrað lengi við málin. Árin sem við bjuggum fyrir austan eru mér kær og við systkinin verðum ávallt Norðfirðingar í hjarta okkar. Ákvörðun þín að flytja suður var samt mikið gæfuspor hvað mig varðar því í næstu götu leyndist verðandi eiginkona mín, sem fljót- lega kom inn á heimili okkar á Vík- urbakka. Þú varst alltaf duglegur að biðja fyrir okkur Ósk sem og allri stórfjölskyldunni og lengdist bænalistinn eftir því sem fleiri makar, barnabörn og barnabarna- börn bættust við. Við höfum öll notið þessarar blessunar og fyrir það er ég þakklátur. Þú komst ávallt færandi hendi þegar þú komst í heimsókn til okkar Óskar. Að sama skapi vildir þú einnig að við færum ekki tóm- hent frá ykkur mömmu þegar við komum með krakkana í heimsókn til ykkar. Þannig varst þú bara og við vorum vön því. Það er margt sem breytist við fráfall þitt. Eftir standa minningar um góðan föður sem ég finn að ég líkist á margan máta. Þinn sonur, Lars Jóhann. Með þessum fáu orðum vil ég minnast pabba míns. Ég hóf ung- ur störf hjá pabba með þeim Hreini og Dóra, en þeir störfuðu hjá honum til fjölda ára við máln- ingarfyrirtæki hans í Neskaup- stað. Á þeim tíma var mikil upp- bygging fyrir austan. Pabbi var með marga menn í vinnu á þessum árum, allt að 11 manns um tíma, þó oftast hafi þeir verið um 6 til 8. Árin fyrir austan voru hlý og góð. Mikill gestagangur var á sumrin. Tómas, bróðir pabba, kom alltaf á sumrin og var alltaf beðið með eftirvæntingu eftir honum. Hann hafði þann sið að fara í eina góða gönguferð í þessum heimsóknum og er ein slík mér mjög minnisstæð. Tommi fékk Þorberg, mág sinn, til að sigla með okkur til Dalatanga þar sem við fengum góðar móttökur hjá Er- lendi og konu hans, skoðuðum vit- ann og gróðurhúsið sem var sem vin í eyðimörkinni á þessum stað. Síðan var gengið frá Dalatanga og inn í þorp. Á Höfðabrekku hjá Hrefnu beið okkar matur og kaffi og að lokinni veislumáltíð var siglt með okkur yfir fjörðinn þar sem við héldum yfir fjallið til Norð- fjarðar. Þessi ferð með pabba og Tomma var einstök og mér sér- stakalega minnisstæð. Árið 1986, þegar fjölskyldan flutti suður til Reykjavíkur, hófum við báðir störf hjá Ólafi Jónssyni málarameistara, en pabbi stopp- aði stutt þar og hóf störf sem mál- ari og viðhaldsmaður hjá Hjálp- ræðishernum og skildu þá leiðir okkar hvað dagvinnuna varðar. En við vorum góðir og nánir fé- lagar og eftir að suður var komið höfðum við þá hefð að fara í sund á laugardagsmorgnum. Eftir sundferðina var farið í búð og verslað og haldið til Hillu systur þar sem þjóðmálin voru rædd og kaffi drukkið. Síðan var haldið í bílaumboðin og bílar skoð- aðir enda hafði pabbi brennandi áhuga á bílum og skipti mjög reglulega um bíla. Þessar stundir eru mér líka kærar. Ég er þakklátur að hafa átt þig sem föður, í hjarta mér ertu ljós í jarðneskri vegferð minni. Þinn sonur, Thorvald Imsland. Elsku Hilmar afi, eða afi safi eins og við kölluðum þig þegar þú heyrðir ekki til. Við viljum þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Það var alltaf gam- an að koma til ykkar ömmu í Safa- mýrina og fá cocoa puffs, ís og nammi. Þú lagðir þig fram við að finna til góðgæti handa okkur. Fórst inn í alla skápa og athugaðir hvort ekki leyndist eitthvað þar handa okkur. Stundum fannstu til skrítna hluti líkt og 10 pör af sokk- um og við gátum ekki annað en tekið þau með okkur heim. Við fengum ekki val um annað. Þú ert okkur fyrirmynd sem við munum horfa til þegar við eld- umst. Þú varst góður við alla og það var ógleymanlegt að heyra þig syngja Liljuna sem var lagið þitt. Þið amma eruð búin að vera gift í yfir 50 ár og voruð fullkomið dæmi um gott hjónaband. Við eigum eft- ir að sakna þín mikið. Sakna þess að sjá þig sitja við gluggann í stof- unni í Safamýrinni og heyra þig, Todda og pabba hlæja saman. Sakna þess að fá þig ekki lengur í heimsókn til okkar þar sem við borðuðum saman lambakjöt sem var uppáhaldsmaturinn þinn. Guð passi þig og verndi, elsku afi okkar. Þín afabörn, Bjartur Snær, Ásthildur Rós og Sóley Lind. Hann er ekki hér, hann er far- inn, hann fór í gær, sagði hjúkr- unarfræðingurinn á Landspítal- anum þegar ég ætlaði að heimsækja vin minn, Hilmar Sím- onarson, f. 1937. Hann lést daginn áður. 15. september, eftir löng og erfið veikindi. Þetta var undarleg tilfinning þrátt fyrir að við þessu væri viðbúið. Ég kynntist Hilmari fyrir nokkrum árum þegar ég sótti samkomur hjá Hjálpræðishernum í Reykjavík, en Hilmar var her- maður þar. Fljótlega tók ég eftir þjónustu hans á samkomum. Hann leiddi oft stundirnar með bæn og í lokin, þegar boðið var til fyrirbænar, gekk Hilmar oft fram til þeirra sem krupu fyrir altarinu og lagði hönd sína á öxl þeirra og bað með þeim. Þessi þjónusta Hilmars var einkennandi fyrir starf hans á Her. Ég átti eftir að kynnast honum nánar. Í mörg ár var ég leiðsögumaður í Ísrael og fór reglulega með hópa héðan. Í einni slíkri ferð var Hilm- ar með og þar átti ég eftir að kynnast honum betur. Öll ferðin gaf honum meiri trúarstyrk, boð- skapur Biblíunnar varð nú að lif- andi reynslu sem hann gat ekki gleymt. Staðir eins og Jerúsalem, Betlehem og Olíufjallið fengu nýja mynd í huga hans og trú. Ég man þegar við héldum kvöldmáltíð í Grafargarðinum, bað ég Hilmar að lesa í Nýja testamentinu um dauða og upprisu Jesú og fara með bæn. Þetta var ógleymanleg stund sem Hilmar átti mjög oft eftir að minnast, bæði í vitnisburðum og bænum sínum. Oft rifjaði Hilmar einnig upp þá stund þegar ég skírði hann ásamt öðrum í ánni Jórdan. Margt annað væri hægt að rifja upp í lífi hans. Í langan tíma var hann til hjálp- ar við morgunguðsþjónustur á vistheimilinu Grund. Hilmar var söngelskur og hafði fallega rödd. Einn sálm hélt Hilm- ar mikið upp á, það var söngurinn um „Liljuna í dalnum“. Hilmar átti mörg hamingjurík ár með konu sinni, Pálínu, og börnum þeirra. Ég get ekki gleymt þeim stundum sem ég kom á spítalann nokkrum dögum áður en hann yfirgaf þetta líf, fjölskylda hans skiptist á að vera hjá honum allan sólarhringinn. Fyrir mig var þetta mikil blessun að sjá þennan hóp vera hjá honum, þennan erf- iða tíma. Hilmar sýndi með lífi sínu kærleika og fórnfýsi til allra sem áttu erfitt. Hilmar var sannur hermaður Krists. Ég þakka þá blessun sem hann var mér og veit ég að við eigum eftir að hittast aftur í hinni Nýju- Jerúsalem. Og þó að í vindinum visni, á völlum og engjum hvert blóm. Og haustvindar blási um heiðar, með hörðum og deyðandi róm. Og veturinn komi með kulda og klaka og hríðar og snjó. Hún lifir í hug mér sú lilja og líf hennar veitir mér fró. Þessi lilja er mín lifandi trú, þessi lilja er mín lifandi trú. Hún er ljós mitt og von mín og yndi, þessi lilja er mín lifandi trú. (Þorsteinn Gíslason) Guð blessi minningu um Hilm- ar, hermann Krists. Ólafur Jóhannsson. Hilmar, kórfélagi okkar á Grund og faðir eins af uppáhalds- samstarfsmönnum mínum þar, er látinn. Aðrir munu hér greina frá þeim geðþekka manni en ég vil láta hér nægja að birta ljóð eftir mig í minningu hans. Enda var hann orðinn þakklátur áskrifandi að ljóðabókum mínum og sögum á síðari árum. Nýlega sá ég á Ómega að hann hafði verið að láta baða sig í ánni Jórdan, í fótspor Krists. En ég orti ljóð um þetta er heitir: Um hvítar dúfur; 2005; en þar segir svo: Það er erfitt að rökræða við suma: T.d.: Heldur þú að dúfan hvíta Hafi verið merkisberi Guðs? Bara af því hún lenti á hausnum Á einhverjum Jesú í ánni Jórdan? Og kom mönnum til að hlæja? Með sína bleiku, skrítnu fætur? Og kannski með dúnfjaðrir Fljúgandi út um allt? Og hvað ef hún hefði verpt eggi Fullkomlega hvítu í hárið hans, Væri hún ennþá svona guðdómleg? Eða ef hún drypi heitu, rauðu blóði Á fötin hans, hvað þá? Veistu ekki að dúfur hafa líka sína Drifhvítu, fínlegu beinagrind? Hann svaraði: Ég hefði hlegið Ef ég hefði verið þar hjá, En það hefði ekki endilega þýtt Að ég tryði á Himnafeðgana! Tryggvi V. Líndal. Hilmar Símonarson Okkur langar til að minnast Ingi- bjargar Gunnars- dóttur, Imbu, föðursystur okkar. Þær þrjár systur föður okkar, Imba, Ásta og Erla, voru miklir skörungar hver á sinn hátt og að mörgu leyti fór sú elsta þeirra, hún Imba, ásamt manninum sín- um, Mósesi, þar fremst í flokki. Margar minningar eigum við um það sem stórfjölskyldan gerði saman á okkar yngri árum. Við nutum þess að fara í ýms- ar ferðir með foreldrum okkar og stórfjölskyldunni, systkinum föður okkar, þar sem Imba og Móses voru að sjálfsögðu með í för. Farið var um Suðurland, gist á Edduhótelinu á Laugarvatni og hverasvæðið við Geysi skoðað Ingibjörg Gunnarsdóttir ✝ IngibjörgGunnarsdóttir fæddist 8. mars 1927. Hún lést 19. september 2016. Útför Ingibjarg- ar fór fram 26. september 2016. þar sem Strokkur gaus af miklum krafti. Eftirminni- leg er stórrigningin þegar grillað var við Hjálparfoss og rigndi svo mikið að aldrei þurfti að bæta í glösin því þau fylltust jafnóð- um af rigningar- vatninu. Nokkrum sinnum var farið í sameiginlega reisu norður í Skagafjörð þar sem gaman var að vera með þeim Vallholtssystkinum, Imbu, Ástu, Erlu, Ásgeiri, Sigurði föður okk- ar og bóndanum Gunna í Vall- holti á æskuslóðum þeirra. Unn- ið var í heyskap sem þar var enn að hluta með gamla laginu, hlöðnum bólstrum og hey- blæstri. Skemmtilegt var fyrir okkur systkinin, sem ólumst upp á Urð- arstekk 8, að vita af Imbu og Mósesi í næstu götu, Fremr- istekk 9, þar sem við vorum allt- af velkomin. Erindin gátu verið margs konar. Stundum var kannski bara ætlunin að fá rús- ínu eða súkkulaðibita upp í munninn. En það var líka farið í merkilegri tilgangi þegar við bræðurnir þóttumst vera upp- finningamenn og fengum box undan bökunarefnum til að gera efnafræðitilraunir með. Á margan hátt hélt Imba stór- fjölskyldunni saman og árleg voru til dæmis jólaboðin hjá henni sem voru miklar stórveisl- ur. Þar sá hún ásamt Mósesi um allan undirbúning og var hún svo eins konar veislustjóri í hverri veislunni á fætur annarri. Þá hélt Imba ræður og fór með heilu kvæðabálkana blaðalaust. Möndlugjafir voru til siðs og ein- hvern veginn tókst Imbu alltaf að sjá til þess að það okkar systkinanna sem hafði mátuleg- an þroska hverju sinni fékk möndlugjöfina. Imba og Móses voru einnig miklir heimsborgarar og eftir ferðir víða um heim var gjarnan boðað til myndasýningar á Fremristekk 9. Á margan hátt voru þau systkinin úr Vallholti samheldin fjölskylda og minnumst við til dæmis þess þegar allir sem hamri gátu valdið tóku þátt í að endurnýja þakið á húsinu hennar Imbu í Fremristekk. Flatt þakið fékk nýtt og fallegt ris sem var sett upp undir stjórn smiðsins og bróður Ingibjargar, hans Ás- geirs. Við systkinin samhryggjumst innilega eftirlifandi systkinum Imbu og sérstaklega einkadótt- urinni, henni Ragnheiði, og fjöl- skyldu hennar þeim Matta, Katrínu, Kára og Susanne. Gunnar, Einar Ragnar og Ragnhildur Hrönn. Talið er merkið þróttar þrátt það að vera sonur en landið hefur löngum átt líka sterkar konur. (Ólína Andrésdóttir) Ingibjörg Gunnarsdóttir var ein af þessum sterku konum. Skagfirsk mær sem hleypti heimdraganum til höfuðborgar- innar, bjó þar og starfaði en var alltaf sami Skagfirðingurinn. Ár- ið 1968 var um margt einstakt ár, í mars hóf Ingibjörg störf á skrifstofu félagsins. Eitt af mín- um betri verkum, sagði Ingi- björg Ólafsdóttir við mig, þegar ég benti Maríu Pétursdóttur á að ráða nöfnu mína á skrifstofuna. Félagið var til húsa að Þingholts- stræti 20 og í byrjun var rýmið ekki meira en að í peningaskápn- um var jafnframt kaffiaðstaðan. Ingibjörg var hamphleypa til allra verka og áður en varði var hún orðin hluti af félaginu. Þann- ig var staðan þegar ég gerðist formaður árið 1982. Að vísu var búið að kaupa hinn helminginn af hæðinni og kaffistofan var kom- in. Við tóku skemmtileg og við- burðarík ár. Ingibjörg stjórnaði á skrifstofunni með miklum skörungskap, Sigríður ekkert nema ljúfmennskan og við hinar bara nokkuð góðar líka. Allur vandi var leystur, hvort heldur það var að sinna börnum for- manns sem birtust fyrirvara- laust og þurftu að kaupa sér efni til að sauma með ömmu sinni heima og fara síðan í á skólaball- ið. Nú eða svara hjúkrunarfræð- ingum. Ingibjörg bæði vissi og kunni allt, enda sat hún flestum stundum í símanum að svara fyr- ir kjaramál eða hvað eina sem upp á kom. Bókhaldið var oft gert eftir kl. 17 en aldrei sá ég reikning yfir það. Tala nú ekki um þegar tónleikar voru hjá Sin- fóníunni. Móses kom með eitt- hvað að borða og lagði sig oft í hægindastól meðan Ingibjörg sat í bókfærslunni þar til farið var á tónleikana. Þegar ákveðið var að kaupa hæðina að Suður- landsbraut 22 fékk stjórnin Mós- es til að vera sinn fulltrúa hjá teiknistofunni sem hannaði hæð- ina. Að mörgu var að hyggja, t.d að járnabinda aukalega til að hægt yrði að hafa fjölda manns þarna á fundum. Þau hjón voru vakin og sofin yfir framkvæmd- unum og fyrir þetta voru síðan Móses gefnar hjólbörur sem hann vantaði í garðinn sinn. Höfðingjar voru þau heim að sækja og bæði þar og á góðum stundum hjá félaginu var Ingi- björg alltaf beðin um að sækja í sinn ljóðabrunn, og hann var djúpur. Hvort heldur var Skag- firðingurinn Stephan G. Steph- ansson „Láttu hug þinn aldrei eldast eða hjartað. Vinur aftan- sólar sértu, sonur morgunroðans vertu.“, Einar Benediktsson „Í morgunljómann er lagt af stað. Allt logar af dýrð, svo vítt sem er séð.“ eða Jónas Hallgrímsson „Fanna skautar faldi háum, fjall- ið allra hæða val.“ Allt flutt með eldmóði. Alþjóðaþing hjúkrunar- fræðinga var haldið árið 1985 í Ísrael, héðan fór tíu manna hóp- ur. Þau hjón voru sjálfkjörnir far- arstjórar, höfðu verið í landinu áður. Ferðin var ógleymanleg enda byrjaði hún vel. Móses kraup á hné og kyssti jörðina þegar hann kom út úr flugvélinni og sagði „Loksins er ég kominn heim.“ Ingibjörg mín, ég þakka þér fyrir samfylgdina og samstarfið sem aldrei bar skugga á. Gakktu á guðsvegum. Sigþrúður Ingimundardóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.