Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 71
MINNINGAR 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Þreyttur eftir langan dag lagði Palli tengdapabbi upp í ferðalagið mikla inn í ljósið, ferðalagið sem við förum öll ein- hvern tímann hvort sem við erum tilbúin eða ekki. Palli var tilbúinn og beið rólegur og æðrulaus eftir að röðin kæmi að honum. Eins og hann var vanur hafði hann gengið frá öllum sínum málum, sáttur við Guð og menn og skilur ekki eftir neina lausa enda. Ég kynntist Palla fyrst sum- arið 1971 þegar við vorum að draga okkur saman ég og Guðrún dóttir hans. Ég man alltaf þegar ég tók í hönd hans í fyrsta sinn. Höndin var svo stór, hlý og þétt að ég man að ég hugsaði að eitt- hvað hlyti að hafa komið fyrir hann fyrst höndin væri svona bólgin. Svo var þó ekki heldur var höndin stór og þétt eins og skap- gerð Palla var. Hann var ekki margmáll og kannski hefur það verið þess vegna sem maður hlustaði alltaf á það sem hann hafði að segja. Aldrei, á þessum Páll Sigurðsson ✝ Páll Sigurðs-son f. 10. apríl 1928. Hann lést 16. september 2016. Útför hans fór fram 24. september 2016. 45 árum sem ég þekkti hann, heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni. Hann var sjálfstæð- ur og framkvæmdi hlutina á sinn hátt eftir að hafa íhugað möguleikana í hverri stöðu fyrir sig. Afburðatalnag- löggur og hafði gaman af að fást við tölur og útreikninga og var þess vegna oft valinn til að gegna trún- aðarstörfum í sínu samfélagi. Palli var vinafastur og trygg- ur. Eini félaginn sem ég veit til að hann hafi slitið samskipti við var Bakkus sem var félagi hans í all- mörg ár. Þegar Palli var búinn að fá nóg af þeim félagsskap sleit hann sambandinu einn góðan veðurdag og síðan hafa þeir ekki hist aftur. Palli hafði unun af söng og söng bassa í kirkjukór Sauðár- krókskirkju í áratugi. Hann spil- að listavel á harmonikku með stóru puttunum sínum, jafnvel á takkaborðið, þó að ég skildi aldr- ei hvernig hann komst hjá að ýta þar á tvo takka í einu. Að lokum vil ég þakka Palla fyrir vegferðina með honum og fyrir allt sem ég hef lært af ró- semi hans og yfirvegun. Ólafur Bernódusson. Elsku afi. Mikið var erfitt að fá fréttirnar af því að þú hefðir fengið hvíldina en á einhvern hátt líka léttir. Það átti ekki vel við þig að geta ekki verið eitthvað aðeins að brasa eða hafa smá verkefni fyrir stafni og kemur orðið harðjaxl upp í hug- ann þegar ég hugsa til þín, elsku Palli afi. Þú varst aldrei verk- efnalaus og varst iðulega búinn með hálft dagsverk þegar ég komst á fætur á Hólmagrundinni en alltaf mættirðu til að smyrja ofan í mig hrökkbrauð með hvítlaukssmurosti og smjöri. Það skipti þig ekki máli hvort mig langaði í tvær eða tíu hrökk- brauðssamlokur, þú hafðir alltaf tíma til að sitja með mér og spjalla um allt á milli himins og jarðar og smyrja þangað til ég varð södd. Það skipti þig heldur ekki máli klukkan hvað ég kom heim á kvöldin, hvenær dags mig langaði í hrökkbrauð eða að ég væri orðin tólf ára og gæti vel smurt ofan í mig sjálf, alltaf nenntirðu að smyrja ofan í mig. Þessa sérmeðferð fékk ég hugs- anlega því ég er yngsta barna- barnið og fékk ég að njóta góðs af því á fleiri en eina vegu. Klink- boxið í bílnum var okkar leyni- verkefni, þangað fór allt klinkið þitt og beið mín þegar ég kom næst í heimsókn, þá var það talið og keyrt í Skagfirðingabúð til að kaupa dót. Þvílíkur gleðidagur fyrir klinkboxið þegar hundrað krónurnar breyttust úr bréfpen- ing í mynt, það breytti því þó ekki að allt klinkið skyldi ofan í boxið. Takk, elsku afi, fyrir að vera með þetta stóra hjarta og hafa endalausan áhuga á barnabörn- um og langafabörnum. Þú varst með allt á hreinu, fylgdist með strákunum í öllum þeirra tóm- stundum og hafðir alltaf áhuga á því sem við vorum að gera. Af- mæliskortin sem þú skrifaðir svo fallega eru minningar sem við munum alltaf eiga því að ekki klikkuðuð þið amma á einum af- mælisdegi hjá okkur strákunum og alltaf voru kortin komin nokkrum dögum fyrir afmælis- daginn. Þú varst ömmu svo góð- ur, hugsaðir vel um hana og varst hennar eigin uppþvottavél þang- að til þið fluttuð í blokkina sem sýnir hversu einstakur þú varst. Þú varst gull af manni og ég á eft- ir að sakna þín. Guðríður Sveinsdóttir. Kæri vinur, mér varð litið á mynd- ina af þér sem birtist með til- kynningunni um andlát þitt og útför. Í myndinni sá ég á ein- um stað allt sem þú stóðst fyr- ir: Glaðværð, heiðarleika, væntumþykju og síðast en ekki síst einstaka hjálpsemi sem einkenndi öll samskipti þín við samstarfsmenn þína og er augljós öllum þeim sem þig þekktu með dassi af stríðni sem enginn okkar slapp við. Fas þitt ber þess vitni að þú varst mikill vinur vina þinna og alltaf reiðubúinn að aðstoða og beina á réttar brautir vær- um við komin af leið. Ekki að alltaf hafi verið lognmolla í kringum þig eða skapleysi, það duldist engum ef þér mis- líkuðu hlutirnir. Alltaf varstu tilbúinn ef eitthvað átti að gera sér til skemmtunar enda gleðimaður mikill í bestu merkingu þess orðs. Ekki duldist heldur neinum hve mikils þú mast fjölskylduna þína og ófá eru samtölin þar sem hún Inga þín og börnin, Siggi, Elín, Kári, Bjarki og Bjartur, ásamt barnabörnun- um höfðu komið við sögu. Tækjaóður varstu og ófáar tölvurnar og tækin sem þú taldir bráðnauðsynlegt að eignast þótt ekki væru allir alltaf á sömu blaðsíðunni hvað það varðaði. Aldrei bar skugga á sam- Þorleifur Stefán Guðmundsson ✝ Þorleifur Stef-án Guðmunds- son fæddist 1. febr- úar 1957. Hann lést 1. september 2016. Þorleifur var jarðsunginn 15. september 2016. starf okkar og mikið finnst mér ég vera ríkari að hafa átt þig fyrir vin. Ein minning af mörgum er ferðin okkar til Liverpool þar sem þú tókst mig með í fyrstu pílagríms- för mína á Anfield hvar þú hafðir komið margoft áð- ur og líklega áttum við okkar einlægasta samtal þegar við fengum ekki leigubíl/ eða vild- um ekki taka bíl og röltum við frá vellinum niður í bæ og átt- um hátt í tveggja klukkutíma samtal um sameiginleg áhuga- mál, vinnuna, vinina og ekki síst fjölskyldur okkar. Flestum sem þig þekktu ber saman um að þú hafir verið einn heiðarlegasti maður sem þeir hafi kynnst og drengur góður, mikið erum við sem unnum með þér því sammála. Elsku Inga, Siggi, Elín, Kári, Bjarki, Bjartur og fjöl- skyldur, ykkar missir er mikill en minningin um einstakan dreng mun lifa. Þín verður sárt saknað, elsku vinur, en víst er að við hittumst aftur þegar sá tími kemur og þangað til færi ég þér kveðju okkar Liverpool- manna, „YNWA“. Þórarinn M. Friðgeirsson. Það er eitthvað öfugsnúið við það að Leifi frændi sé dá- inn. Hann sem var alltaf svo lif- andi. Takk fyrir allar góðar stundir. Helgi og Martha Eiríks. ✝ Walter Borgarfæddist á Borg í Miklaholtshreppi 12. ágúst 1943. Hann lést á Sjúkra- húsi Suðurnesja 20. september 2016. Walter var sonur Óskar Ásgríms- dóttur, f. 12.11. 1921, d. 1.2. 1999, og Walters Herman Steve Wall frá NC, Bandaríkjunum, f. 15.10. 1922, d. 28.7. 2009. Ásmundur Böðv- arsson, f. 11.5. 1920, d. 27.12. 1999, gekk Walter í föður stað. Walter kvæntist Ásu Jónu Þorsteinsdóttur, f. 13.2. 1944, d. 20.1. 1999, hinn 26.11. 1966. Ása var dóttir hjónanna Þorsteins Nikulássonar, f. 3.10. 1909, d. 22.12. 1990, og Eiríku Sigurjónu Jónsdóttur, f. 18.8. 1908, d. 22.10. 1990. Börn Ásu og Walters eru: 1) Þorsteinn Ásmundur, öryrki, Keflavík, f. 13.2. 1966. Börn Þor- steins og fyrrverandi sambýlis- konu, Sigríðar Þorleifsdóttur, starfsmanns Isavia, f. 13.2. 1964 eru: Ása Sigurjóna, f. 17.12. 1992, dóttir Ásu er Ísabella Lilja f. 5.7. 2015, Bjarki Már, f. 25.1. 1994, Margrét Hulda, f. 3.11. 1999, Berglind Rún, f. 21.2. 2002. 2) Anna Borg, f. 4.9. 1968, býr á sambýli í Hólabergi 76, Reykjavík. 3) Ósk Wall, félags- ráðgjafi, Esbjerg, Danmörku, f. 23.1. 1970. Eiginmaður hennar er Óskar Snorrason húsa- smiður, f. 15.4. 1966. Börn þeirra eru: Snorri Borgar, f. 29.6. 1987, Elín Dögg, f. 2.8. 1992, sambýlismaður Thomas Boll- erup Jensen, f. 24.7. 1988, og Al- exander Steve, f. 25.8. 2006. 4) Eiríkur, starfsmaður Hertz, Keflavík, f. 11.10. 1972, sam- býliskona Svava V. Ólafsdóttir, f. 30.8. 1968, öryrki. 5) Ásgrímur Stefán Waltersson, tónlistarmað- ur og sölumaður hjá Honda, Mel- bourne, Ástralíu, f. 23.11. 1982, sambýliskona Renee Pedretti, rekstrarstjóri JurAvon Park Equestrian Centre. Walter starfaði í mörg ár hjá bandaríska hernum á Keflavík- urflugvelli. Síðustu tvo áratugi starfaði hann við þungavinnu- vélar og sem viðgerðamaður hjá H. Péturssyni í Garði. Frá 2002 var Walter öryrki. Útför Walters fer fram frá Út- skálakirkju í dag, 30. september 2016, og hefst athöfnin klukkan 14. Eftir erfiða mánuði er komið að leikslokum og er viss léttir að kvölum þínum sé lokið. Elsku pabbi, það var komið að svefn- inum langa og munt þú nú sam- einast móður okkar sem lést fyrir 17 árum síðan. Lífið hefur ekki alltaf verið þér auðvelt og mannleg samskipti hafa ekki alltaf verið þín sterkasta hlið – þó svo að þú hafir verið ljúf- menni í samskiptum. Áhugamál þín í sambandi við tónlistina, harmonikkan og orgelið, hafa fylgt þér alla tíð og fátt hefur notis jafnmikils áhuga hjá þér og tónlistin. Tónlistina gafstu áfram til barna þinna og hafa mörg þeirra notið góðs af því og gera enn þann dag í dag. Lífið er stundum skrýtið, og oft merkilegt hvernig hlutirnir þróast. Sama dag og við komum til Íslands í sumar þá veikist þú alvarlega. Það er okkur ómet- anlegt að hafa getað eytt stund- um með þér á sjúkrahúsinu þó svo óáttun hafi verið farin að hrjá þig. Nú andar suðrið sæla vindum þýðum; á sjónum allar bárur smáar rísa og flykkjast heim að fögru landi ísa, að fósturjarðar minnar strönd og hlíð- um. Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum um hæð og sund í drottins ást og friði; kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði; blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríð- um. (Jónas Hallgrímsson) Elsku pabbi, ég er viss um að þú hafir það gott í sumarland- inu. Ég er ekki í vafa um, að þú tekur nokkra slagara fyrir aðra gesti þar. Faðmlag og kærleikur frá fjölskyldunni þinni í Danmörku. Ósk Wall. Walter Borgar Hjartkær systir okkar og frænka, GUÐRÚN FINNBOGADÓTTIR sjúkraliði, Ránarbraut 15a, Vík í Mýrdal, lést að dvalarheimilinu Hjallatúni laugardaginn 17. september. Jarðsungið verður frá Reyniskirkju í Mýrdal laugardaginn 1. október klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, . Þorgerður Finnbogadóttir Einar Reynir Finnbogason Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar JÓHÖNNU G. GUÐMUNDSDÓTTUR frá Þórarinsstöðum. Fyrir hönd vandamanna, . Steinunn Þorsteinsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN HAUKUR JÓHANNSSON, Fífumóa 6, Selfossi, lést fimmtudaginn 22. september á Landspítalanum, Fossvogi. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 4. október klukkan 12.30. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarfélag Árborgar. . Ragnheiður Zóphóníasdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Guðjón Haukur Stefánsson, Margrét Stefánsdóttir, Gylfi Guðmundsson, Jóhann Ingvi Stefánsson, Elín Kristbjörg Guðbrandsd., Soffía Stefánsdóttir, Reynir Guðjónsson, barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir, mágur og vinur, JÓN S. MÖLLER verkfræðingur, Ljósalandi 6, lést á líknardeild LSH Kópavogi 22. sept- ember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 3. október klukkan 13. . Helga Hauksdóttir, Sigurður Möller, Ásta Kristín Gunnarsdóttir, Jón Trausti Möller, Haukur Möller, Hrafnhildur Jónsdóttir, Valfríður Möller, Jón Karl Ólafsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐMUNDUR Ó. GUÐMUNDSSON, Stillholti 9, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi 24. september 2016. Útför fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 5. október klukkan 13. . Sigurður Guðmundsson Ólöf Helga Halldórsdóttir Lidia Andreeva Birgir Guðmundsson Ragnheiður Hafsteinsdóttir Jón Þór Guðmundsson Ástríður Jónasdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Þökkum vináttu og samúð við fráfall og útför bróður míns, JÓNS PÁLSSONAR KRISTINSSONAR trésmiðs, Langholtsvegi 147. . Anna S. Kristinsdóttir Fredriksen og fjölskylda. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa ATLA HELGASONAR, prentara og knattspyrnuþjálfara. . Björg Helga Atladóttir, Jón Ægir Pétursson, Auður Atladóttir, Helgi Þórðarson, Hildur Atladóttir, Jón Hrafn Björnsson, Þorkell Atlason, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.