Morgunblaðið - 29.09.2016, Side 72
72 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Antík
Antíkhúsgögn og munir í úrvali.
Skoðið heimasíðuna.
Erum á Facebook.
Opið frá kl. 10 til 18 virka daga.
Þórunnartúni 6,
sími 553 0755 – antiksalan.is
Hljóðfæri
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum og lánum út á: gull,
demanta, vönduð úr og málverk!
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu
núna og fáðu tilboð þér að kost-
naðar-lausu! www.kaupumgull.is
Opið mán.– fös. 11–16.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 782 8800
Bókhald
NP Þjónusta
Tek að mér bókhald, endurútreikning
og vsk.
Hafið samband í síma: 861-6164.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Sundbolir • Tankini
Bikini • Strandfatnaður
Undirföt • Náttföt
Sloppar • Undirkjólar
Inniskór • Aðhaldsföt
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Mjódd s. 774-7377
10.5
00.
-
11.9
00.
-
11.9
00.
-
11.9
00.
-
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn
og tek að mér ýmis
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Til leigu
Til leigu nýlegt 285 - 1.000 fm
atvinnuhúsnæði í Reykjavík
285 fm bil með allt að 9 m lofthæð,
stórar innkeyrsludyr, góð malbikuð
lóð, og greið aðkoma.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir í s. 661 7000
Smáauglýsingar
Erlendur Stein-
ar bróðir minn er
dáinn eftir heils
árs ójafna baráttu
við krabbamein. Hann var
þriðji í röð okkar fimm systkina
og fæddist í Hveragerði. Fjöl-
skyldan fluttist 1937 til Reykja-
víkur. Hann var nefndur í höf-
uðið á móðurafa okkar, Erlendi
Kristjánssyni, og ömmu, Stein-
unni Ólafsdóttur Thorlacius frá
Dufansdal í Arnarfirði. Afi Er-
lendur smíðaði báta, en forfeð-
ur hans höfðu verið smiðir í
fleiri ættliði. Erlendur erfði
ríkulega þessa hagleikshæfi-
leika.
Erlendur nam vélsmíði og
lauk síðan prófi frá rafmagns-
deild Vélskóla Íslands 1961.
Hann hélt til frekara náms til
Danmerkur og varð vélfræðing-
ur og starfaði þar 1965-1975 er
hann flutti heim og starfaði
lengst af sem vélfræðingur.
Erlendur var hógvær í allri
framgöngu, félagslyndur og
jafnan ljúfur í fasi, jafnvel
glettinn, en fastur fyrir ef hon-
um mislíkaði.
Á uppvaxtarárum nutum við
systkinin góðs í margvíslegu
starfi KFUM og K. Erlendur
hélt alla tíð tryggð við félagið
og var virkur í starfi þess bæði
hér og í Danmörku. Hann var
virkur í félagi Íslendinga í
Kaupmannahöfn og aðstoðaði
við guðsþjónustur. Hann var
stofnfélagi Rótarýklúbbsins
Reykjavík-Breiðholt og valdist
til forystu í Félagi eldri borg-
ara. Erlendur hafði mörg
áhugamál.
Á námsárum tók hann þátt í
starfi Iðnnemasambandsins.
Erlendur Steinar
Búason
✝ ErlendurSteinar Búason
fæddist 11. mars
1937. Hann lést 19.
september 2016.
Útförin fór fram
26. september
2016.
Áhugamál voru
einkum frímerkja-
söfnun, bókband,
saga, garðrækt,
útivist. Hann var
áhugamaður um
bækur og eignaðist
safn góðra bóka og
tímarita, margra
óinnbundinna.
Hann lærði bók-
band og batt fag-
urlega í skinn og
smíðaði sjálfur þau tæki, sem
hann þurfti. Aðrir nutu jafn-
framt kunnáttu hans og vand-
virkni.
Erlendur naut þeirrar gæfu
að eignast lífsförunaut 1972,
sem deildi með honum sömu
lífsskoðun og verðmætamati í
lífinu, Hólmfríði Pétursdóttur,
húsmæðrakennara og skóla-
stjóra Húsmæðraskólans að
Löngumýri í Skagafirði. Þau
eignuðust hús í Reykjavík með
fögru útsýni yfir borgina og
bjuggu sér og þremur dætrum
sínum fagurt heimili. Þar höf-
um við systkinin og börnin okk-
ar notið gestrisni þeirra hjóna
og margra ánægjustunda. Er-
lendur var ræktarsamur við
okkur systkinin og hjálpsamur
alla tíð. Við minnumst af hlý-
hug heimsókna hans til okkar í
Ólafsfjörð og til Uppsala í Sví-
þjóð. Þá er að minnast góðra
stunda við laufabrauðsskurð
þegar þau hjónin söfnuðu sam-
an stórfjölskyldunni til sín fyrir
jólin.
Þau hjónin hafa notið mikils
barnaláns og áður en yfir lauk
nutu þau ríkulega samvistanna
við fjölskyldur dætra sinna,
tengdasyni og barnabörnin
fimm. Dæturnar hafa lagt
stund á verkfræði og listsköp-
un.
Erlendur var gæfumaður. Þó
þekkti hann mótlæti, m.a. þeg-
ar hann rúmlega fertugur
greindist með illkynja æxli í
fæti. Árangursrík skurð- og
geislameðferð gaf honum þó
lengra líf. Hinn illvígi sjúkdóm-
ur gerði aftur ótímabært vart
við sig fyrir rúmu ári. Erlendur
átti athvarf í samfélaginu við
Jesúm Krist, sem sagði við
lærisveina sína: „Ég lifi og þér
munið lifa.“ Erlends er sárt
saknað. Ég, fjölskylda mín og
Þórðar bróður þökkum honum
samfylgdina. Megi guð gefa
okkur öllum huggun í sorginni.
Kristján Búason.
Kveðja frá Éljagangs-
mönnum
Við Erlendur kynntumst í
KFUM. Þar voru nokkrir ungir
menn sem höfðu keypt skíða-
skála á Hellisheiði sem þeir
nefndu Éljagang. Við urðum fé-
lagar í þessum hópi, sem taldi
24 félagsmenn. Það var regla
að hittast einu sinni í mánuði
yfir vetrarmánuðina. Erlendur
var einn af þeim sem aldrei
létu sig vanta á þessar sam-
verustundir. Hin síðari ár höf-
um við reynt að hittast tvisvar
á ári, enda er meðalaldur fé-
lagsmanna orðinn yfir 80 ár og
aðeins eru 11 félagar eftir. Þeg-
ar við hittumst síðastliðið vor
hafði Erlendur orð á því að
hann vænti þess að geta tekið á
móti okkur í haust, en raunin
er orðin önnur, en sá siður
hafði verið ríkjandi hjá okkur
að hittast á heimilum hver ann-
ars. Þrátt fyrir að hafa lamast
að hluta, eftir geislameðferð,
lét hann sig ekki vanta.
Hann var bjartsýnn á að ná
fullri heilsu að nýju. Raunin
varð önnur, þar sem aðgerðin
hafði ekki tekist sem skyldi.
Erlendur var einstaklega trú-
fastur félagi og góður vinur.
Hann hafði mörg áhugamál, en
aðal-tómstundaiðja Erlendar
var bókband. Persónulega naut
ég góðs af kunnáttu hans þegar
hann endurvann gamla bók sem
ég á. Við Éljagangsmenn sökn-
um Erlendar úr okkar hópi og
bíðjum Hólmfríði, börnum
þeirra og fjölskyldum blessun-
ar Guðs.
Einnig biðjum við Guð að
blessa bræður hans sem nú sjá
á eftir kærum bróður.
Narfi.
Leiðir okkar
Ottós lágu fyrst
saman í Kaup-
mannahöfn haustið
1958, en þar vorum við báðir við
nám, ég í byggingarverkfræði og
hann í stærðfræðilegri líkinda-
fræði og tölfræði. Með okkur
hófst strax góður kunningsskap-
ur og lentum við m.a. saman í
stjórn Félags íslenzkra stúdenta
í Kaupmannahöfn, hann sem for-
maður. Þá bjuggum við tvo vetur
hlið við hlið á sama gangi á Stud-
entergården við Tagensvej.
Ottó var úrræðagóður maður.
Eitt sinn vorum við í kjallaran-
um hjá Jóni Helgasyni prófessor
í Vanløse, en hjá honum átti
stúdentafélagið athvarf, að frí-
merkja dreifibréf til fé-
lagsmanna. Urðum við uppi-
skroppa með frímerki og mörg
bréf eftir. Ottó tók þá til þess
ráðs að klippa niður hvíta ramm-
ann utan um frímerkjaarkirnar í
hæfilega búta og skrifaði tilhlýði-
lega upphæð í aurum á pappírinn
og upphafsstafi félagsins, FISK,
undir. Gaf þannig út frímerki
sjálfur í nafni félagsins. Allt
komst þetta til skila, og danska
póstinum hefur eflaust þótt
frumkvæði hans gott. Já, það var
Ottó J. Björnsson
✝ Ottó J. Björns-son fæddist.
27. ágúst 1934.
Hann lést 10.
september 2016.
Ottó var jarð-
sunginn 20.
september 2016.
oft glatt á hjalla á
þessum árum. Síðan
liðu mörg ár, en við
hittumst svo aftur á
Íslandi veturinn
1968 er við lentum
saman í því verkefni
að gera tölfræðilega
úttekt á umferðar-
slysum fyrir Hægri
nefnd áður en
umferðarbreytingin
frá vinstri til hægri
átti sér stað. Aftur skildi leiðir,
en mörgum árum síðar vorum
við allt í einu orðnir samstarfs-
menn hjá Háskóla Íslands með
skrifstofur á efsta gangi í bygg-
ingunni VR II. Eftir það hitt-
umst við reglulega á kaffistof-
unni og rifjuðum upp gamla og
góða daga í Kaupmannahöfn.
Þegar ég skrifaði bók mína,
Stochastic Proceses and Random
Vibration, sem kom út hjá Wiley
& Sons 1997, hjálpaði Ottó mér
að skrifa fyrsta kaflann um al-
menna líkindafræði og sá til þess
að hann væri í lagi. Ræddum við
þá um stærðfræðinginn Andrey
Kolmogorov, einn af helztu frum-
kvöðlum nútíma líkindafræði og
tölfræði, en Ottó sagðist hafa hitt
hann um borð í rússneska olíu-
leitarskipinu Akademik Kurtsa-
tov, sem kom til Reykjavíkur
einhvern tímann snemma á átt-
unda áratugnum. Þótti mér mik-
ið til koma. Þannig var Ottó.
Blessuð sé minning hans og ég
færi aðstandendum hans innileg-
ar samúðarkveðjur.
Júlíus Sólnes.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn.
Minningargreinar