Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 75
ÍSLENDINGAR 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
dóttur Wright 1983, riddarakross
hinnar íslensku fálkaorðu 1985, var
kjörinn meðlimur í Konunglegu
sænsku verkfræðivísindaakademí-
unni, Ingenjörs Vetenskaps Aka-
demien (IVA), í Stokkhólmi 1987, var
veitt heiðursmerki Verkfræðinga-
félags Íslands 1987, stórriddarakross
hinnar íslensku fálkaorðu 1991, fékk
viðurkenningu Menningarsjóðs
VISA fyrir störf á sviði vísinda og
fræða 1997, var kosinn Fellow of the
International Academy of Cardiovas-
cular Sciences, FIACS, 2002, kosinn
Fellow of the International Society
for Heart Research 2004, aldarviður-
kenning Verkfræðingafélags Íslands
2012: „Þeir plægðu akurinn.“
Afmælisritið „Vísindin heilla“ var
gefið út á 75 ára afmæli Sigmundar
en ritstjóri þess var Guðmundur G.
Haraldsson.
Fjölskylda
Sigmundur kvæntist 18.4. 1954
Margréti Þorvaldsdóttur, f. 1.2. 1934,
fyrrv. blaðamanni á Morgunblaðinu,
en foreldrar hennar voru Þorvaldur
Ellert Ásmundsson, útgerðarmaður
á Akranesi, og k.h., Aðalbjörg
Bjarnadóttir húsfreyja.
Börn Sigmundar og Margrétar:
Snorri, f. 24.10.1954, matvælafræð-
ingur, fyrri kona hans var Una Björk
Gunnarsdóttir og eiga þau eina dótt-
ur, Írisi, en seinni kona er Sara
Jewett og eiga þau tvö börn, Jessicu
og Eric; Logi, f. 22.1. 1962, safnvörð-
ur; Hekla, f. 9.11. 1969, d. 17.1 .2013,
dr. í ónæmisfræði og dósent við
læknadeild HÍ; Ægir Guðbjarni Sig-
mundsson, f. 19.3. 1972 lögmaður,
kvæntur Önnu Lindu Bjarnadóttur
lögmanni og eru synir þeirra Viktor
Aron og Alex Tristan.
Systkini Sigmundar: Sveinn, f.
14.9. 1922, d. 4.9. 2008, verkamaður á
Akranesi; Jónína, f. 25.8. 1923, d.
14.12. 1924; Guðrún f. 13.8.1924, d.
15.12.1924; Fjóla, f. 28.12.1925, hús-
freyja á Akranesi; Vigdís, f. 20.1.
1927, húsfreyja á Akranesi, Lilja, f.
27.7. 1928, d. 31.8. 2003, húsfreyja í
Reykjavík; Erna, f. 11.7.1930, nú lát-
in, húsfreyja í Reykjavík; Svein-
björn, f. 8.6.1939. d. 19.2. 2009, úti-
bússtjóri Landsbankans í Kópavogi;
Sturla, f. 10.9.1940, nú látinn, bóndi í
Fossatúni í Bæjarsveit; Hannesína
Rut, f. 16.4. 1944, verslunarmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Sigmundar voru Guð-
bjarni Sigmundsson, f. 2.4. 1897, d.
24.1. 1990, verkamaður á Akranesi,
og k.h., Guðný Magnúsdóttir, f.
27.10. 1902, d. 18.11. 1984, húsfreyja.
Úr frændgarði Sigmundar Guðbjarnasonar
Sigmundur
Guðbjarnason
Guðrún Einarsdóttir
húsfr. í Fellsaxlarkoti
Gísli Eggertsson
b. í Fellsaxlarkoti, systursonur
Guðmundar, langafa Þorvaldar
Skúlasonar listmálara
Elísabet Gísladóttir
húsfr. á Iðunnarstöðum
Magnús Gunnlaugsson
b. á Iðunnarstöðum í
Lundarreykjadal
Guðný Magnúsdóttir
húsfr. á Akranesi
Rannveig Árnadóttir
húsfr. í Krosskoti
Gunnlaugur Jónsson
b. í Krosskoti, bróður-
sonur Þorsteins, langafa
Þorsteins frá Hamri
Halldór
Jónsson
b. á Uppkoti
á Akranesi
Guðrún
Halldórsdóttir
Lyngdal
húsfr. í Rvík
Stefán
Sigurður
Elíasson
Lyngdal
kaupm.
í Rvík
Svala S.
Thorlacius
hrl.
Stefanía Sif
Thorlacius
lögmaður
Guðrún
Jóhannsdóttir
húsfr. á
Skálpastöðum
Vigdís Jónsdóttir
húsfr. í Ívarshúsum
Sigmundur
Guðbjarnason
útvegsb. og form.
í Ívarshúsum á Akranesi
Guðbjarni Sigmundsson
verkam. á Akranesi
Sigríður Halldórsdóttir
húsfr. á Litlu-Grund
Guðbjarni Bjarnason
b. á Litlu-Grund á
Akranesi, bróðursonur
Guðmundar, afa Nínu
Sæmundsdóttur
myndhöggvara
Jón Bjarnason
b. á Skálpast. í Lundar-
reykjadal, frá Vatnshorni
í Skorradal
Kristín
Bjarnadóttir
ljósm. á
Esjubergi
Ingibjörg
Bjarnadóttir
Johnson
kaupkona
í Rvík
Sigríður
Þorláksdóttir
húsfr. í Rvík
Ingibjörg
Einarsdóttir
leikkona í Rvík
Einar
Laxness
sagnfr. og
framkv.stj.
í Rvík
Oddur
Bjarnason
b. á
Brennistöðum
Ingibjörg
Oddsdóttir
húsfr.
Oddur
Bjarnason
skósmiður í Rvík
Anna
Oddsdóttir
húsfr. í Rvík
Flosi
Ólafsson
leikari og
leikstjóri
Magnús fæddist í Vest-mannaeyjum 30.9. 1922.Foreldrar hans voru
Magnús Helgason gjaldkeri og k.h.,
Magnína Jóna Sveinsdóttir.
Magnús var af Bergsætt, en
Herdís, amma hans, var systir
Margrétar, ömmu Ellerts B.
Schram. Þær Margrét og Herdís
voru dætur Magnúsar á Litlalandi
Magnússonar á Hrauni, bróður
Jórunnar, langömmu Steindórs, afa
Geirs Haarde.
Fyrri kona Magnúsar var Guð-
björg Guðlaugsdóttir veitingakona
en þau skildu. Seinni kona hans var
Filippía Marta Guðrún Björnsdóttir
sem lést 1989, talsímakona. Meðal
barna Magnúsar og Mörtu er Páll,
sem nú leiðir lista sjálfstæðismanna
í Suðurkjördæmi.
Magnús lauk prófi frá Loft-
skeytaskólanum 1946, símvirkja-
prófi með radíótækni sem sérgrein
1948 og stundaði framhaldsnám við
skóla Pósts og síma.
Magnús var sjómaður 1937-42,
m.a. á norsku fragtskipi á fyrstu
árum stríðsins. Hann var bifreiðar-
stjóri, loftskeytamaður á togara og
síðar loftskeytamaður í afleys-
ingum, starfaði í radíótæknideild
Pósts og síma 1946-56, var þar
verkstjóri og síðan yfirverkstjóri
1953-56 og stöðvarstjóri Pósts og
síma í Vestmannaeyjum.
Magnús var bæjarfulltrúi í Vest-
mannaeyjum 1962-82 og bæj-
arstjóri þar 1966-75, var alþm. Suð-
urlands fyrir Alþýðuflokkinn
1978-83, var skipaður félags-, heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
í síðara ráðuneyti Ólafs Jóhann-
essonar, og sinnti þeim ráðuneytum
auk samgönguráðuneytis til 1980.
Magnús var formaður
Byggingarsamvinnufélags síma-
manna 1954-56, sat í yfirskatta-
nefnd Vestmannaeyja, í stjórn
Sparisjóðs Vestmannaeyja 1957-78,
í framkvæmdastjórn Brunabóta-
félags Íslands frá 1966 og var
stjórnarformaður þar 1980. Hann
var kjörinn varaformaður Alþýðu-
flokksins árið 1980 og gegndi því
embætti til 1984.
Magnús lést 22.8. 2006.
Merkir Íslendingar
Magnús H.
Magnússon
90 ára
Helgi Angantýsson
Ólafur Þórir Guðjónsson
85 ára
Sigmundur Guðbjarnason
80 ára
Matthildur Gestsdóttir
Óli Ágústsson
75 ára
Birte Jansen
Elín Magnúsdóttir
Friðrik Árnason
Jarþrúður Lilja
Daníelsdóttir
Vilborg Elma Geirsdóttir
70 ára
Björn Magnússon
Garðar Guðmundsson
Jón Vignir Karlsson
Kristján Grímsson
Sigvaldi Ingimarsson
Sigþrúður
Ingimundardóttir
60 ára
Anna Margrét
Steingrímsdóttir
Anne Marie Sigurdsson
Eiríkur Stefán Eiríksson
Freyja Elín Bergþórsdóttir
Jóna Gísley E. Stefánsdóttir
Jón Brynjólfur Ólafsson
Karin Sædís Ágústsdóttir
Magnea Guðmundsdóttir
Þrándur Óðinn Baldursson
50 ára
Björk Svanfríður
Guðjónsdóttir
Elín Deborah
Guðmundsdóttir
Feldís Lilja Óskarsdóttir
Gunnar Þór Gunnarsson
Ingibjörg Steinþórsdóttir
Jónas Þór Jónasson
Kristmann H. Haraldsson
Maria dos Santos Alves
Ólafur Loftsson
Piotr Andrzej Makurat
Sesselja Ingimundardóttir
Sigurður Jensson
Sigurjóna Ástvaldsdóttir
Slobodan Milisic
Vildís Bergþórsdóttir
Vivi Vindbjerg
Kjær-Madsen
Þórður Sveinsson
40 ára
Borghildur
Guðmundsdóttir
Bualai Chomdee
Dorota Michalina Kolka
Guðmundur Jóhannesson
Hrund Finnbogadóttir
Jón Ólafur Kjartansson
Kristján Viðar
Valdemarsson
Nína Kristbjörg Hjaltadóttir
Príor Örn N. Einarsson
Róbert Agnar Guðnason
Sandra Lieu Bui
Sigurlína Bjarnadóttir
Sindri Traustason
Valdimar Þór Halldórsson
30 ára
Aldís Ingvadóttir
Atli Freyr Rúnarsson
Brynja Björk Arnardóttir
Eiríkur Ólafsson
Elva Rut Sigmarsdóttir
Guðríður Lilla
Sigurðardóttir
Guðrún Inga Kristjánsdóttir
Hafþór Ægir Vilhjálmsson
Jón Gunnar Eiríksson
Saskia Richter
Steinn Alex Jónsson
Til hamingju með daginn
30 ára Guðríður ólst upp
í Mosfellsbæ, býr þar, lauk
MSc-próf í verkfræði frá
HR og er sérfræðingur við
Seðlabanka Íslands.
Maki: Lárus Jóhann-
esson, f. 1978, sérfræð-
ingur við Seðlabanka Ís-
lands.
Sonur: Viktor Snær, f.
2015.
Foreldrar: Steinunn Þór-
unn Ólafsdóttir, f. 1955,
og Sigurður Geirsson, f.
1955.
Guðríður Lilla
Sigurðardóttir
Hrein samviska í 25 ár
Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is
B
ra
n
d
e
n
b
u
rg
|s
ía
30 ára Guðrún býr í
Reykjavík og starfar við
heimaþjónustu Reykjavík-
urborgar.
Dóttir: Halldóra Sóley, f.
2013.
Systur: Anna Sigríður, f.
1976; Thelma, f. 1978;
Kristjana, f. 1988; Mar-
grét Sóley, f. 1996, og
Inga Dóra, f. 1998.
Foreldrar: Kristján Ein-
arsson, f. 1955, d. 2014,
og Ingibjörg H. Kristjáns-
dóttir, f. 1961.
Guðrún Inga
Kristjánsdóttir
30 ára Elva Rut ólst upp í
Grindavík, býr þar, lauk
stúdentsprófi frá FB og
vinnur hjá bílaleigunni
Sixt.
Maki: Theodór Ingi Þrast-
arson, f. 1986, bílasmiður
og bílamálari.
Börn: Viktoría Mörk, f.
2013, og Örvar Ingi, f.
2015.
Foreldrar: Sigmar Eð-
varðsson, f. 1961, og
Linda Oddsdóttir, f. 1961.
Þau búa í Grindavík.
Elva Rut
Sigmarsdóttir