Morgunblaðið - 29.09.2016, Side 77
DÆGRADVÖL 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Útsölustaðir: Apótek og Heilsuverslanir um allt land.
Háralitir fyrir konur sem velja náttúrulegan háralit
og hárið glansar af heilbrigði
• Inniheldur ekki Paraben, algengasta innihaldsefni
sem veldur ofnæmisáhrifum í háralitun
• Hylur grá hár 100%
• 24 náttúrulegir háralitir
• Hárlýsingarlitur (strípuefni) plasthetta og hárpinni innifalin
• Náttúrulegar jurtir sem gefa hárinu gljáa og mýkt
• Varanlegur háralitir sem helst fallegur í 3 mánuði
• Ofnæmisprófaður
• Íslenskar leiðbeiningar
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú vinnur ástir með því að skyggja á
samkeppnina, ekki með afbrýði. Ekki láta það
ergja þig. Svona er lífið hjá hinni sívaxandi og
síbatnandi manneskju.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú bregst harkalega við þegar þú heyrir
skoðun annarra. Viðurkenndu hvað þú virki-
lega vilt og fólkið sem getur veitt þér það
birtist skyndilega.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú verður að brjóta odd af oflæti
þínu og leita eftir samstöðu annarra við verk-
efni þitt. Kannski leggur þú of mikla áherslu á
að þóknast öðrum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Valmöguleikar þínir eru miklir, djúpir
og háir. Dagurinn er upplagður til þess að ná
sambandi við aðra, hvort sem um er að ræða
yfirborðshjal eða samræður um fréttir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Allir vilja vera rómaðir fyrir eitthvað.
Haltu bara þínu striki eins og það sé ekki til.
Láttu fréttir ekki hrekja þig út af sporinu,
heldur notfærðu þér það jákvæða við þær.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert áhugasamur um dulræn fyr-
irbrigði. Yfirmaður þinn kann að vera í stríðs-
skapi og þá er ekki gott að gefa honum til-
efni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er auðvelt að fá letikast á verstu
mögulegu stundu. Sígandi lukka er best og
því eru allar sviptingar til lítils, þegar upp er
staðið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það skiptir engu máli hverrar
trúar þú ert, þú trúir einhverju. Mundu að vin-
átta snýst bæði um það að gefa og þiggja. Að
lokum muntu ná til hans og þið munuð tengj-
ast.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú munt að öllum líkindum eiga
mikilvægar samræður við foreldra þína í dag.
Farðu þó varlega í allar skyndiákvarðanir því
þér hættir til fljótfærni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að melta þá hluti sem nú
valda þér hugarangri. Notaðu hugkvæmnina
sem lykil að hamingjunni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Samræður við samstarfsmenn
eru árangursríkar í dag. Reynið að líta hlutina
jákvæðum augum en gæta þess jafnframt að
færast ekki of mikið í fang.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Athafnir á ólíkum sviðum lífsins gleðja
nautið. En gengurðu fyrir adrenalíni í stað
náttúrulegrar orku? Athugaðu ástand þitt.
Fjölskyldumeðlimur leggur þér lið í dag.
Pétur Stefánsson yrkir á Leir:Hann var fjörugur, Finnur frá Bakka,
er fékk‘ann sér vínið að smakka,
með Önnu og Siggu
og Ástu og Viggu
hann eignaðist tuttugu krakka.
Páll Imsland heilsaði í fögrum
haustroða garða og engja, sagðist
kannast við hann Finn á Bakka, en
vissi reyndar ekki hvaða Bakka, –
„en það er náttúrlega aukaatriði“:
Já, hann Finnur á Bakka er frækinn
og ferlegá í dömurnar krækinn.
Ef andartak gefst
það ei fyrir vefst.
Svo upp undir kjólana sækinn!
Sigurlín Hermannsdóttir þekkir
til reiðmanna og -kvenna:
Hin háfætta Hervör frá Krossi
heillaði knapann á Fossi
með tagl bæði og topp
en truntulegt hopp
og andlitsfall eins og á hrossi.
Og það gerir Fía á Sandi líka:
Hjá Benjamín blómstraði auður,
þeim bjána, því graðfolinn Rauður
öll verðlaunin vann
sem er vont fyrir hann.
Hann fannst bak við fjárhúsin dauður.
En Björn Ingólfsson er á báðum
áttum:
Ég er auðvitað endemis sauður
og er ekki viss hvor er dauður
utan við hús.
Hvor á þennan „blues“,
Benjamín bóndi eða Rauður?
Og bætti við: „Lesendur athugi
að þetta er skáldskapur.Hann á sér
litla fyrirmynd í raunveruleik-
anum. Það er ekki verið að ganga í
ágæt störf þingfréttamanna.“
Miklum sögum fer af for-
ystumönnum Framsóknarflokksins.
„Vigdís talar um hnífasett,“ segir
Gústi Mar og:.
Í Framsókn logar leifturstríð
og linnir ekki skakinu.
Simbi hefur haft um hríð
hnífasett í bakinu.
Ingólfur Ómar kannast við það:
Hvarvetna má heyra last,
hart að Simma gengið.
Hefur í bakið heldur fast
hnífasettin fengið
Og Gústi Mar aftur:
Slitið traust og slóðin fennt
– hann sleppir ekki takinu.
Það er ekki heiglum hent
með hnífa svona í bakinu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Finni á Bakka, truntus
og hnífasettum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gera allt saman
EKKI GLEYMDIRÐU AF
HVERJU ÞÚ LABBAÐIR
INN Í HERBERGIÐ?
ÉG HEF ÁHYGGJUR AF
VATNSBIRGÐUNUM!
„ÞETTA HEITIR
GANGI ÞÉR BETUR NÆST“
“ÉG SAGÐI ÞÉR Í SÍMANUM AÐ HÚN
VÆRI MJÖG HÁRPRÚГ
ÉG VAR AÐ TALA UM
FISKABÚRIÐ MITT,
HEIMA.
ÉG GLEYMDI AF HVERJU ÉG
FÓR FRAM ÚR Í MORGUN
VIÐ HÖFUM
GENGIÐ Í
MARGA DAGA…
NEI!
ER ÞAÐ? VIÐ
ERUM MEÐ
HELLING AF
VATNI.
Víkverji er þeirrar hyggju að þóttsjónvarpstækni hafi fleygt fram,
sjónvörp séu orðinn stærri, myndin
skýrari og hljóðið magnaðra en í ár-
daga sjónvarpsins hafi kvikmynda-
húsin enn vinninginn. Það er alveg
sérstök tilfinning þegar ljósin fjara
út í salnum og hvíta tjaldið lifnar við.
x x x
Víkverji kemst sjaldnar í bíó enhann vildi og verður að viður-
kenna að stundum gæti hann óskað
sér að úrvalið í kvikmyndahúsunum
væri fjölbreyttara. Hann þarf hins
vegar ekki að kvarta undan því
næstu daga. Í kvöld verður sett
Kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF,
með pomp og prakt. Opnunarmynd-
in í kvöld verður Sundáhrifin eftir
Sólveigu Anspach og síðan verður
hægt að velja myndir um allt milli
himins og jarðar. Víkverji fyllist ekki
oft valkvíða, en varð fljótt ljóst þegar
hann renndi í gegn um dagskrá há-
tíðarinnar að hann vildi sjá meira en
hann mögulega kæmist yfir.
x x x
Á Víkverji að fara að sjá nýjustumynd Danans Thomasar Vinter-
bergs, kvikmyndina Wulu um undir-
heima Malí eða Dýrafræði um dýra-
garðsstarfsmanninn, sem skyndi-
lega vex á hali? Á hann að fara á
Glæpasögu á Vestfjörðum eða heim-
ildarmyndina um Baskamorðin?
Hvað með myndina Ransacked
(mætti þýða Gripdeildirnar) um hver
hafi unnið og hver tapað þegar bank-
arnir hrundu og vogunarsjóðirnir
fóru á kreik?
x x x
Kvikmyndahátíðin fer stöðugt vax-andi og er það vel. Gestir hátíð-
arinnar eru með þeim fyrstu til að
sjá margar af þeim myndum, sem
þar eru sýndar. Oft hefur það gerst
að Víkverji hefur lesið um for-
vitnilegar myndir í erlendum fjöl-
miðlum og komist að því síðar að
löngu var búið að sýna þær á RIFF.
Myndirnar komu sem sagt hingað
áður en ágæti þeirra var farið að
spyrjast út fyrir alvöru og er það til
marks um þann sess, sem hátíðin
hefur skapað sér undir forustu
Hrannar Marinósdóttur.
víkverji@mbl.is
Víkverji
En ávöxtur andans er: kærleiki, gleði,
friður, langlyndi, gæska, góðvild, trú-
mennska, hógværð og sjálfsagi.
(Gal. 5:22)