Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 78
VIÐTAL
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Á Norrænum músíkdögum verður
hægt að heyra og sjá tónverk á barmi
konseptlistar, pæla í stöðu kvenna
innan samtímatónlistar, heyra verk
eftir eina tónskáld Grænlendinga og
læra um sögu
hljóðfæris sem á
sér enga sögu.
Tónlistarhá-
tíðin Norrænir
músíkdagar hefst
í Hörpu í dag,
fimmtudag, og
stendur til og með
laugardeginum 1.
október. Hún er
ein elsta tónlist-
arhátíð í heimi og halda Norður-
landaþjóðirnar hana til skiptis. Þá
koma fram hljómsveitir og einleik-
arar sem eru leiðandi í flutningi sam-
tímatónlistar og flutt verk eftir tón-
skáld sem kalla má frumkvöðla í
norrænni samtímatónlist.
Fyndin tónlist
Guðný Þóra Guðmundsdóttir er
listrænn stjórnandi hátíðarinnar í ár
og segir hún að margt áhugavert
verði á dagskránni, allt frá hljóðlist í
fundarherbergjum Hörpu til tónleika
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld
kl. 19.30. Á hátíðinni gefst gestum og
gangandi kostur á að kynna sér
helstu strauma og stefnur samtíma-
tónlistar og taka þátt í margs konar
umræðum.
„Helst ber að nefna opnunar-
tónleika hátíðarinnar, tónleika Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands, sem mun
leika verk eftir mörg stærstu nöfn
innan samtímatónlistar í heiminum í
dag. Öll þessi tónskáld eru margverð-
launuð og við Íslendingar eigum
glæsilegan fulltrúa í þessum hópi,
hana Önnu Þorvaldsdóttur. Auk
hennar verður flutt verk eftir Juliana
Hodkinson sem nýverið hlaut Carl
Nielsen-verðlaunin. Sjálf hlakka ég
mikið til að heyra fiðlukonsert Finn-
ans Esa-Pekka Salonen, sem er
mögnuð tónsmíð. Lokatónleikar há-
tíðarinnar verða haldnir í Silfurbergi
og verða þeir með örlítið tilrauna-
kenndu sniði, en mikill fjöldi verka er
á efnisskránni. Við höfum myndað
nýja samnorræna sveit með stuðningi
norrænu menningarsjóðanna sem
samanstendur af íslenska tónlist-
arhópnum Adapter, Scenatet frá
Danmörku og Curious Chamber Pla-
yers frá Svíþjóð auk þess sem Nordic
Affect kemur fram í samstarfi við
myndlistarmanninn Sigurð Guð-
jónsson. Saman leika þau meðal ann-
ars verkið Black Box Music eftir Sim-
on Steen-Andersen. Verkið hlaut
Norrænu tónskáldaverðlaunin fyrir
tveimur árum, sem kom ekki á óvart
því tónskáldið nær þar á snilldar-
legan hátt að sameina það sjónræna
og hið hljóðræna. Við erum mjög stolt
að kynna þetta frábæra og á köflum
bráðfyndna verk fyrir íslenskum
hlustendum,“ segir Guðný Þóra og
spáir því um leið að salurinn muni á
köflum skella upp úr á meðan verkið
er flutt.
Á lokatónleikunum verða frumflutt
fjögur verk, m.a. eitt eftir Bergrúnu
Snæbjörnsdóttur. „Verk Bergrúnar
er einmitt gott dæmi um tónverk sem
byggist bæði á tónmáli og sjónrænni
upplifun. Samtímatónlist er að taka
örum breytingum samhliða þeim
miklu tæknibreytingum sem hafa
orðið í samfélagi okkar á síðustu ár-
um. Við þessar breytingar vakna
margar spurningar, þar á meðal um
hvernig sé best að varðveita tækni-
lega flókin verk.
Í vinnustofu sem ber nafnið Lif-
andi gagnagrunnur verður rætt um
hvaða nýju leiðir eru fyrir hendi í
varðveislu á samtímatónlist því við
erum ekki bara með nótur á blaði
lengur heldur eru verkin mun fjöl-
þættari; oft bætast við hljóð-
upptökubrot og alls konar aukadót
sem fylgir hverju verki,“ útskýrir
Guðný Þóra.
Sameining á marga vegu
Á hátíðinni verður fleira rætt því
undirþema hennar er „integration“
eða sameining. „Við erum að hugsa
sameininguna í fjölþættum skilningi.
Í fyrsta skipti í 128 ára sögu hátíð-
arinnar er jafnt hlutfall kven- og karl-
tónskálda. Við erum mjög stolt af
þessu og finnst við hafa náð vissu tak-
marki sem skiptir máli fyrir framtíð-
ina. Okkur langar að byggja upp fyr-
irmyndir fyrir komandi kynslóðir
tónlistarfólks, aðalskilaboðin eru að
verk eftir konur eru flutt og þau eiga
erindi. Öllu vali fylgir ábyrgð og það
var vissulega útgangspunktur okkar
að veita kventónskáldum sérstaka at-
hygli. Það var síðan óvænt ánægja að
finna öll þessi frábæru verk eftir kon-
ur og þegar upp var staðið var hlut-
fallið jafnt“ segir Guðný Þóra ánægð.
„Við erum líka að velta fyrir okkur
hugmyndum um norðrið. Þetta eru
norrænir músíkdagar á þeim tímum
þegar maður myndi frekar óska þess
að þjóðir væru umburðarlyndari og
opnari fyrir utanaðkomandi áhrifum.
Við kynnum því til sögunnar mörg
tónskáld sem hafa einhvers konar
tengsl við Norðurlöndin, ekki bara
þjóðernið sjálft. Með þeim hætti ein-
skorðum við okkar ekki við norðrið
sem tæmandi einingu heldur eitthvað
sem hægt er að opna á mismunandi
vegu.
Norrænu þjóðirnar til vesturs;
Færeyjar, Grænland og Ísland, verða
einnig í sviðljósinu. „Það er ekki tón-
skáldafélag á Grænlandi eða í Fær-
eyjum og tónlistarfólk þaðan þarf yf-
irleitt að sækja menntun til Íslands
eða Danmerkur. Við hinar norrænu
þjóðirnar verðum að vera meðvitaðar
um að það er okkar að stuðla að auk-
inni þátttöku þeirra í norrænu sam-
starfi. Það er líka hálfsorglegt að
bera saman það fjármagn sem veitt
er í grunnstoðir og nýsköpun á sviði
tónlistar hér á Íslandi miðað við hin
Norðurlandaríkin. Við höfum fundið
allverulega fyrir því við skipulagn-
ingu hátíðarinnar. Ef ekki verður ein-
hver breyting á fjárframlögum spyr
maður sig hvort Ísland geti í framtíð-
inni haldið áfram að taka þátt í svona
samstarfi. Það væri mikil synd ef Ís-
land þyrfti að segja sig úr þessu elsta
samstarfsverkefni milli Norður-
landaríkjanna, sérstaklega núna þeg-
ar við erum komin með glæsilegasta
tónlistarhúsið.“
Margar skemmtilegar
breytingar
„Sambandið tónskáld og flytjandi
er mjög áhugavert. Á síðustu árum
hafa tónskáld byrjað í auknum mæli
að flytja verkin sín sjálf, þá er ekki
lengur tengiliður á milli tónskáldsins
og áheyrenda, rétt eins og var á tím-
um Liszts og Paganinis sem spiluðu
einmitt sjálfir verkin sín. Við erum
því nú að upplifa einhvers konar aft-
urhvarf til fyrri tíma þótt tónefnið
sem flutt er sé gríðarlega ólíkt því
sem var fyrir rúmum 100 árum. Hver
veit nema þessar hreyfingar verði til
þess að færa nútímatónlist nær hin-
um almenna tónlistarneytanda.“
Berglind María Tómasdóttir er ein
af þeim sem eru bæði meðal tón-
skálda og flytjenda á hátíðinni.
„Hún flytur verk eftir sjálfa sig og
spilar líka á hljóðfæri sem hún bjó
sjálf til úr gömlum rokk og kallar það
lokk. Það mætti kalla þetta tilbúna
hefð. Það er ekki beint mikil saga
sem tengist hljóðfæratónlist á Íslandi
svo að Berglind María býr til nýtt
gamalt hljóðfæri og hún mun spila
konsert eftir Guðmund Stein Gunn-
arson á lokkinn með Caput. Síðan
verður hún líka með fyrirlestur um
hljóðfærið þar sem hún fær þjóðfræð-
ing og fleiri sérfræðinga til að tala um
sögu þessa hljóðfæris, sem í raun var
ekki til fyrr en hún fann það upp.
„Ég vona að fólk komi í Hörpu,“
segir Guðný Þóra að lokum. „Það
verður eitthvað spennandi að gerast
alla dagana. Þetta verður í raun eins
og tónlistarsýning sem sýnir hvað er
á seyði í dag. Við verðum úti um allt í
Hörpu, notum fundarrými, æfinga-
rými og jafnvel bílakjallarann sem
viðburða- og sýningarrými. Aðgang-
ur er ókeypis á allt nema tónleika
Sinfóníunnar og við vonum því að fólk
líti við og fái nasaþef af öllu því
skemmtilega sem er að gerast í heimi
samtímatónlistarinnar.“
„Skemmtilegt að sjá
hvert tónlistin er að fara“
Norrænir músíkdagar hefjast í dag og standa til 1. október Ein elsta tónlistarhátíð í heimi
Ljósmynd/Lars Bjarnö
Gjörningur „Screen to screen, skin to skin“ eftir brasilísk-danska tónskáldið Marcela Lucatelli. Verkið gefur sterk femínísk skilaboð og afneitar hlutgerv-
ingu kvenlíkamans. Marcela Lucatelli verður með nýjan gjörning við opnun Norrænna Músíkdaga í dag, fimmtudag, í Flóa Hörpu.
Guðný Þóra
Guðmundsdóttir
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016