Morgunblaðið - 29.09.2016, Side 82
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Þeir sitja saman, hlið við hlið,
gömlu góðu vinirnir þegar blaða-
mann ber að garði á veitingastað í
höfuðborginni. Kjarninn sem
myndar okkar ástsælu hljómsveit
Mannakorn. Þetta eru tónlistar-
mennirnir Pálmi Gunnarsson og
Magnús Eiríksson. Mannakorn og
Ellen Kristjánsdóttir halda stór-
tónleika í Eldborgarsal Hörpu
laugardaginn 1. október nk. ásamt
strengja– og blásturssveit. Þar
munu þau reiða fram öll bestu lög
Mannakorna með einstökum blæ.
Notalegt andrúmsloft er á veit-
ingastaðnum og það fer vel á með
félögunum, sem eru orðnir spennt-
ir fyrir tónleikunum. „Hingað er
mjög gott að koma, skemmtilegur
matseðill með mikið af fiski og að-
eins spiluð íslenskt tónlist,“ segir
Pálmi og Magnús tekur undir. Við
pöntum okkur fisk dagsins, gellur
og fiskibollur, á meðan Elly syngur
fyrir okkur fagra tóna. Íslenskara
gerist það varla.
Í ár fagnar Mannakorn 40 ára
hljómsveitarafmæli, en Pálmi og
Magnús hafa verið samferða frá
því að fyrsta plata þeirra kom út
árið 1976. Mannakorn eiga stóran
aðdá-
endahóp þar sem kynslóðirnar
mætast, sem hlýtur að vera
ánægjulegt fyrir félagana. „Ég
tók eftir því þegar við héldum
fyrir nokkrum árum tónleika í
Háskólabíó að það voru ekki bara
ellismellir í salnum, heldur allir
aldurshópar, alveg niður í 8, 9 ára
krakka sem voru mætt með pabba
og mömmu, ömmu og afa, það
fannst mér ánægjulegt.“
Saknar bílskúrsfílíngsins
Hljómfögur og blússkotin
dægurlög Mannakorna eru að mati
margra klassískt eyrnakonfekt og
töluvert frábrugðin nýrri tónlist í
dag. „Það eru sannarlega nýir
tímar í tónlist. Krakkarnir í dag
eru gjarnan að búa til tónlist í tölv-
unni. Þegar við vorum að byrja
voru menn að mæta og spila saman
og hver og einn kom með sitt inn-
legg,“ segir Magnús.
„Og þá var allt látið standa.
og lítið hægt að laga,“ segir
Pálmi, enda tími gamla skólans.
„Ég sakna hans pínulítið, bíl-
skúrsfílíngsins þegar menn eru að
spila saman,“ segir Magnús ein-
lægur. „Ef þú ert bara einn í tölv-
unni verður þetta svo einsleitt sem
þú ert að gera. Það höfðar ekki al-
veg til mín. Líkt og í rappinu, þá
geturðu bara tekið einhverja lúppu,
jafnvel eftir Ragga Bjarna, snúið
henni aftur á bak og rappað ofan
á.“
„Já, ég heyrði meira að segja
Jón Stefánsson frá Möðrudal í
góðri lúppu um daginn. Kallinn
syngur þrjár áttundir og það var
sett svona rapplúppa undir. Ég bíð
bara eftir að það verði gert þegar
við erum dauðir,“ segir Pálmi.
„Það er byrjað á því núna
strax!“ svarar Magnús. „Það er bú-
ið að taka Þorparann og tölvuvæða
hann alveg í bak og fyrir. Hermi-
gervill gerði eitthvert dansnúmer
úr laginu sem var spilað á diskó-
tekunum.“
„Þorparinn gekk reyndar í
endurnýjun lífdaga á danshúsum
Reykjavíkurborgar,“ segir Pálmi.
„Ég vissi ekkert um það. Svo frétti
ég það bara, svona sveitamaður
austur á Firði, að þetta væri eitt af
vinsælustu lögum borgarinnar. Ég
sagði bara: „What?““ segir Pálmi
og skellir upp úr. „En það kom
skemmtilega á óvart.“
Bara helvíti heppnir
Pálmi býr norður á Akureyri og
kom til höfuðborgarinnar á þriðju-
dag vegna tónleikanna. „Ég var að
keyra að norðan til Reykjavíkur í
gær og ákvað að hlusta á pró-
grammið sem við erum að æfa fyr-
ir tónleikana og lét það rúlla í
hausnum á mér á þessari fimm,
sex klukkutíma keyrslu. Ég við-
urkenni að ég hlusta ekki mikið á
sjálfan mig en þarna fannst mér
gaman að taka þennan pakka og
hlusta á það sem við höfum verið
að bauka í gegnum tíðina. Merki-
legt hvað margt af þessu er gott,“
segir Pálmi og hlær. „Já, við höf-
um bara verið helvíti heppnir,“
bætir Magnús við. Þeir hlæja en
það er nú ansi margt til í þessu hjá
Pálma, enda plöturnar orðnar 11
og slagararnir orðnir ótalmargir
sem við flest þekkjum og kunnum
textana hans Magga utan að. Eftir
gott spjall og góðan mat er komið
að kveðjustund en hver veit nema
við hittumst kannski einhvers stað-
ar, einhvern tímann aftur.
Vinátta Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson hafa starfað óslitið saman í 40 ár. Á laugardaginn flytja þeir helstu perlur Mannakorna fyrir tónleikagesti.
Þorparinn á skemmtistöðunum
Mannakorn heldur stórtónleika í Hörpu laugardaginn 1. október 40 ár síðan sveitin söng sig inn
í hjörtu landsmanna Plöturnar orðnar 11 og slagararnir gríðarmargir sem flestir þekkja
Sannleikskorn
» Pálmi og Magnús hafa
myndað Mannakorn frá upp-
hafi en nokkrir spilarar hafa
komið og farið.
» Orðið mannakorn kemur úr
biblíunni og þýðir brauð af
himnum ofan eða orð guðs.
» Hljómsveitin á ógrynni af sí-
gildum dægurperlum sem spil-
aðar verða á laugardaginn.
One is On nefnist sýning
Unnar Andreu Einarsdóttur
sem opnuð verður í Skaft-
felli í kvöld kl. 20.
„Verk Unnar Andreu
fjalla á mismunandi hátt um
hverfandi dýpri tengsl milli
manna á tímum vaxandi
narsissisma eða sjálfsdýrk-
unar. Verkin minna okkur á
að narsissismi er form af
persónuleikaröskun, sem
felst meðal annars í yfirdrif-
inni sjálfsupphafningu.
Þessi hegðun er orðin við-
urkennd nú á dögum meðal
öfgahópa en einnig hjá okk-
ur einstaklingum sem not-
um netheiminn til þess að
skapa og stjórna ímynd af
okkur sjálfum. Verkin fjalla
um hvernig hin nýja leið
mannsins til að réttlæta til-
vist sína sé að „ganga í aug-
un á öðrum“. Þannig séum
við ekki að tengjast hvert
öðru á raunverulegan hátt,
heldur í gegnum fyrirfram
hannaða ímynd af okkur
sjálfum. Sýningin í heild
sinni endurspeglar tilhneigingu okkar til að framkalla hina fullkomnu
ímynd af okkur sjálfum,“ segir í tilkynningu frá sýningarhaldara.
Sýningin hefur verið skipulögð í samstarfi við HAH-Editions sem er sýn-
ingar- og útgáfufyrirtæki í Berlín, með áherslu á að styðja undir unga og
upprennandi listamenn, í formi einkasýninga og útgáfu. One is On verður
opin laugardaginn 1. október milli kl. 12 og 14.
Listakonan Unnur Andrea Einarsdóttir.
Unnur Andrea opnar
sýningu í Skaftfelli
Morgunblaðið/Eggert