Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 86

Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 86
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK86 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Sá sem ekki hreyfir sig finn-ur ekki fyrir hlekkjum sín-um,“ er haft eftir RósuLuxemburg. Marijana býr í þröngri kytru ásamt foreldrum sínum og bróður. Návígið er slíkt að einkalíf er útilokað og hún getur ekki einu sinni verið út af fyrir sig á nóttunni. Á daginn starfar hún sem tæknimaður á rannsóknarstofu á sjúkrahúsi þar sem hún og vinnu- félagar lifa í stöðugum ótta við að vera sagt upp vinnunni. Hún er orðin 24 ára og spólar í sama farinu. Þegar faðir hennar fær hjartaáfall breytast hins vegar valdahlutföllin í fjölskyldunni og Marijana fer að láta reyna á viðj- arnar, sem hafa haldið henni. Ekki glápa á diskinn minn er frumraun króatíska leikstjórans Hönu Jusic. Myndin gerist í Sibe- nik, fallegum bæ á Dalmatíuströnd Króatíu. Fegurð Sibenik er þó í aukahlutverki hjá Jusic og ekki dregur hún upp upplífgandi mynd af króatísku samfélagi. Frásögnin dettur niður á köflum, en margt er þó afbragðsvel gert, sérstaklega þegar dregið er fram hvernig Mari- jana getur ekkert gert án þess að andað sé ofan í hálsmálið á henni, án þess að glápt sé á diskinn henn- ar. Á heimilinu er faðirinn alvaldur og móðirin, í steinrunninni með- virkni sinni, ýtir undir yfirgang hans. Þegar hann skammar hana þegir hún þunnu hljóði og segir ekki orð þegar hann hirtir börnin þeirra. Sonurinn er einfeldningur og auðnuleysingi, sem hvergi segist fá vinnu, en allt bendir til að geri lítið til að bera sig eftir björginni. Eftir hjartaáfallið er faðirinn áfram á heimilinu. Nú er hann hins vegar lamaður og hreyfingarlaus og kemur ekki upp orði. Það þarf að mata hann og skipta á honum. Ma- rijana fær það hlutverk ásamt því að vera fyrirvinna heimilisins. Fyrir það uppsker hún einkum ónot og skammir. Umkomuleysi patríarkans er al- gert og nær niðurlæging hans há- marki þegar einfeldningurinn sonur hans kemur með strákana í hverf- inu til að skoða hann. Leikkonan Mia Petricevic ber myndina uppi með frammistöðu sinni í hlutverki Marijönu. Áhorf- andinn fær þó ekki mikla innsýn í hvað fyrir henni vakir og verður að geta sér til um hvað býr að baki gerðum hennar þegar hún varfærn- islega reynir að brjóta af sér hlekk- ina. Hún beitir brögðum til að koma höggi á samstarfskonu sína og þeg- ar það hefur tilætluð áhrif er engin leið að sjá hvort það kætir hana eða kallar fram samviskubit. Hún fer á karlafar með sama óræða svipinn og þegar hún meðhöndlar þvagsýni á rannsóknarstofunni. Hún á lítið sameiginlegt með fjöl- skyldunni og vinkona, sem hún endurnýjar kynni við, er á allt ann- arri bylgjulengd. Hún fer með henni í samkvæmi, en þegar vin- konurnar byrja að kyrja nýjasta slagarann er hún utangátta. Ótrúverðugast er að kona komin vel á þrítugsaldur skuli vera jafn uppburðarlítil og persóna Marijönu, hvort heldur sem er inni á heim- ilinu eða utan þess. Þá er erfitt að sjá hvers hún leitar í skyndikynn- um með þremur mönnum, sem verða á vegi hennar. Aldrei fer þó á milli mála að und- ir yfirborðinu er ólga og áhorfand- inn bíður eftir að hún brjótist fram. Í upphafi myndar og lok sést Mari- jana í sundi þar sem hún sökkvir sér í kaf. Í kringum hana sjást lík- amar sundlaugargesta í móðu og hún er ein með sjálfri sér. Með sama hætti stingur Marijana sér inn í sjálfa sig í lífinu og er ein þótt hún sé aldrei ein og áhorfandinn bíður eftir að hún komi upp á yf- irborðið. Að hún fari að njóta lífsins í stað þess að láta sér nægja að af- bera það. Hættu að glápa Mia Petricevic í hlutverki sínu í króatísku myndinni Hættu að glápa á diskinn minn, eftir Hönu Junic sem frumsýnd er á RIFF í kvöld. Í dróma á Dalmatíuströnd RIFF Hættu að glápa á diskinn minn bbbmn Leikstjóri: Hana Jusic. Leikarar: Mia Petricevic, Niksa Butijer, Arijana Culina, Zlatko Buric og Karla Brbic. Króatíska. Króatía og Danmörk, 2016. 105 mín. Flokkur: Vitranir. KARL BLÖNDAL KVIKMYNDIR Bíó Paradís: Fim. 29. sept. , kl. 21.30, mán. 3. okt., kl. 19.30, mið. 5. okt., kl. 18.00. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja- vík (RIFF) verður sett í 13. sinn í Háskólabíói í kvöld. Í kjölfar setn- ingarinnar verður opnunarmynd há- tíðarinnar, Sundáhrifin eftir Sól- veigu Anspach heitna, sýnd að viðstöddum aðstandendum mynd- arinnar, þar á meðal Skúla Malm- quist framleiðanda myndarinnar, höfundi tónlistar í myndinni, Martin Wheeler, og dóttur Sólveigar, Clöru Lemaire Anspach. Myndin fjallar um mann sem verður ástfanginn af sundkennara og skráir sig því á sundnámskeið þrátt fyrir að vera syndur. Meðal annarra mynda á hátíðinni í ár eru Stríðssýningin eftir Andreas Dalsgaard og Obaidah Zytoon, sem hlaut verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrir skömmu, og Herra alheimur eftir Tizza Covi og Rainer Frimmel, sem var tilnefnd á kvik- myndahátíðinni í Locarno fyrr á árinu. Lokamynd hátíðarinnar er Eldur á sjó eftir Gianfranco Rosi, sem er handhafi Gullbjarnarins á kvikmyndahátíðinni í Berlín í ár. Keppa um Gullna lundann Ellefu leikstjórar sýna fyrstu eða aðra kvikmynd sína í fullri lengd í flokknum Vitranir og keppa um aðal- verðlaun hátíðarinnar, Gullna lund- ann. Margar þeirra koma beint af kvikmyndahátíðum, m.a. frá San Sebastian, Toronto og Feneyjum, s.s. Guðleysi eftir Ralitza Petrova, sem hlaut Gullna hlébarðann í Loc- arno fyrr á árinu, og Dýrafræði eftir Ivan I. Tverdovsky, sem hlaut verð- laun í Karlovy Vary, Hættu að glápa á diskinn minn eftir Hana Jusic, Kyrralíf eftir Maud Alpi, Risinn eftir Johannes Nyholm, Wùlu eftir Da- ouda Coulibaly, Persónuleg mál eftir Maha Haj, sem var valin í Un Certain Regard-flokkinn í Cannes fyrr á árinu, Skuggavera eftir Felipe Guerrero, Veraldarvana stúlkan eftir Marco Danieli, Garður eftir Sofia Exarchou og Allt hið fagra eftir Aasne Vaa Greibrokk. Aðal- dómnefnd hátíðarinnar skipa Grímur Hákonarson, Yrsa Sigurðardóttir og Jonas Lindberg, listrænn stjórnandi kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg. Níu nýjar myndir verða sýndar í flokknum Ísland í brennidepli, bæði leiknar myndir og heimildarmyndir, þar á meðal Baskavígin sem kemur beint af kvikmyndahátíðinni í San Sebastian og Glæpasaga á Vest- fjörðum með Franka Potente í aðal- hlutverki, sem er heimsfrumsýnd á hátíðinni. Íslenska heimildarmyndin InnSæi – The Sea Within mun keppa í flokknum Önnur framtíð, sem inni- heldur kvikmyndir sem varpa ljósi á umhverfis- og mannúðarmál. Darren Aronofsky, Deepa Mehta og Chloë Sevigny eru heiðursgestir RIFF í ár. Úrval verka þeirra verður sýnt á hátíðinni; Svarti svanurinn, Sálumessa draums og Bardagakapp- inn eftir Aronofsky, Góðu strákarnir, Miðnæturbörnin og Birtingarmynd ofbeldis eftir Mehta. Frumraun Chloë Sevigny í leikstjórastólnum, stuttmyndin Kitty, verður sýnd í flokki erlendra stuttmynda og verða í fyrsta sinn veitt verðlaun í þeim flokki á RIFF. RIFF sett í 13. sinn í kvöld  Sundáhrifin er opnunarmyndin Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Leikstjóri Sólveig Anspach. Nafn írska lýðveldissinnans Bobby Sands komst í heimsfréttirnar árið 1981 þegar hann fór í hungurverkfall til að krefjast aukinna réttinda handa föngum, sem dæmdir höfðu verið fyr- ir þátttöku í baráttunni fyrir sjálf- stæði Norður-Írlands frá Bretum. Í heimildarmyndinni Bobby Sands: 66 dagar er sögu hans gerð skil og fjallað um þau áhrif, sem barátta hans hafði á söguna. Robert Gerard Sands fæddist 1954 og ólst upp í Belfast á tímum átaka milli þjóðernissinna og sambands- sinna, katólikka og mótmælenda. Hinir fyrrnefndu vildu losna undan breskum yfirráðum, en hinir síðar- nefndu halda sambandinu við bresku krúnuna. Sands tilheyrði fyrrnefnda hópnum og 1972 þegar hann var 18 ára gekk hann til liðs við lýðveldis- hreyfinguna. Áður en árið var á enda hafði hann verið handtekinn fyrir að hafa skotvopn í fórum sínum og sat inni í þrjú ár. Hann hóf að vinna að nýju fyrir málstaðinn um leið og hon- um var sleppt úr fangelsinu. 1976 var Sands handtekinn á ný. Nú var hann dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir aðild að sprengjutilræði og skotbardaga í kjölfarið. Í fangelsinu fór hann að berjast fyrir umbótum og var iðulega settur í einangrun. Hann og félagar hans í fangelsinu vildu láta meðhöndla sig sem stríðsfanga. Bresk stjórnvöld litu á þá sem glæpamenn og meðhöndl- uðu þá sem slíka. 1. mars 1981 fór Sands í hungur- verkfall og fylgdu níu aðrir fangar í kjölfarið. Ein meginkrafan var að þeir fengju að klæðast sínum eigin fötum í fangelsinu. Heimildarmynd Brendans Byrnes hefst á degi eitt í hungurverkfallinu og áhorfandinn fær að fylgjast með hvernig Sands hrakar smátt og smátt eftir því sem á líður allt þar til yfir lýkur og hann deyr 66 dögum síðar. Um leið er flakkað í tíma, allt aftur til þess þegar Sands var lítill strákur í fótbolta, og atburðarásin sett í póli- tískt samhengi. Hryðjuverk Írska lýðveldishersins voru daglegt brauð á þessum tíma og sambandssinnar svöruðu í sömu mynt. Bresk stjórnvöld gengu einnig fram af hörku. Byrne reynir að gæta sanngirni í myndinni og forðast hlutdrægni. Sagnfræðingar, ævisöguhöfundar, blaðamenn og samferðamenn eru kallaðir til að varpa ljósi á atburðina og gæða þá lífi og lit, allt frá pólitík- inni til þess hvernig það fer með lík- amann að vera án matar dögum og vikum saman. Dregið er fram að Sands hafi frá upphafi verið tilbúinn að svelta sig í hel og vitað að svo gæti farið. Hann og félagar hans hafi þó vanmetið ósveigjanleika breskra stjórnvalda. Um leið er því til skila haldið að ákvörðunin um að meðhöndla fanga úr röðum lýðveldissinna sem glæpa- menn var tekin í tíð stjórnar Verka- mannaflokksins. Íhaldsstjórn Marg- aretar Thatcher hafði því hlotið það fyrirkomulag, sem Sands vildi mót- mæla, í arf. Hvað sem því leið voru hendur hennar bundnar og það hvarflaði ekki að henni að láta undan þrýstingnum. Hungurverkfallið vakti litla athygli í upphafi og var lítt sinnt í fjölmiðlum, en þegar á leið jókst hún og almenn- ingur tók við sér. Það var ekki síst vegna þess að meðan á því stóð fór hann í framboð til þings á Norður- Írlandi og bar sigur úr býtum. Nú var staðan gerbreytt og þetta reyndu lýðveldissinnar að nýta sér með því að vekja athygli á málinu í Bandaríkjunum þar sem írsk ítök hafa löngum verið mikil í stjórn- málum. Bresk stjórnvöld reyndu vita- skuld að koma í veg fyrir afskipti Bandaríkjamanna og í myndinni bregður Ted Kennedy og Ronald Reagan fyrir, en það er kannski ekki jafn augljóst að þau skyldu eiga sér stuðning stjórnvalda í Dyflinni. „Ég er pólitískur fangi,“ er haft eftir Bobby Sands í myndinni. Þar er dregið fram að aðferðir hans hafi ver- ið í anda Gandhis fremur en Írska lýðveldishersins. Mörgum kann að finnast krafan um að fá að klæðast eigin fötum full léttvægt tilefni til að svelta sig í hel. Í myndinni er rakið að það eigi sér fordæmi í írskri sögu að fara í hungurverkfall til að mótmæla misrétti. Aðgerðir Sands hafi því átt sér hljómgrunn meðal Íra. Niðurstaða myndarinnar er að bar- átta Sands hafi markað tímamót og verið mikilvægur áfangi í átt að því samkomulagi, sem undirritað var í Belfast á föstudaginn langa 1998 um stöðu Norður-Írlands. Hann hafi sýnt fram á að í baráttu skipti meira máli að vera sjálfur tilbúinn að þola þján- ingar en að kalla þjáningar yfir aðra. Með hungurverkfallinu hafi hann því grafið undan hugmyndafræðinni á bak við og stuðningnum við blóðugar aðferðir Írska lýðveldishersins. Heimildarmyndin um Bobby Sands er yfirveguð og vel heppnuð og um leið grípandi frásögn frá erfiðum átakatímum. „Ég er pólitískur fangi“ Þáttaskil Niðurstaða heimildarmyndarinnar um Bobby Sands er að hungurverkfall hans hafi verið vendipunktur í átökunum á Norður-Írlandi. RIFF Bobby Sands: 66 dagar bbbbn Leikstjóri: Brendan Byrne. Enska. Bret- land og Írland, 2016. 105 mínútur. Flokkur: Heimildarmyndir. KARL BLÖNDAL KVIKMYNDIR Norræna húsið: Fim. 29. sept., kl. 19.00 Bíó paradís: Mán. 3. okt., kl. 15.30, sun. 9. okt., kl. 21.45.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.