Morgunblaðið - 29.09.2016, Side 88
88
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Unga fólkið í Rússlandi eriðið við að gagnrýna sam-félagið heimafyrir, ogkvikmyndir eru sannar-
lega góður vettvangur til þess, því ef
þær eru vel heppnaðar þá fara þær
um víða veröld og ná fjölmörgum
augum og eyrum fólks. Ivan I. Tvar-
dovsky er bráðungur rússneskur
leikstjóri kvikmyndarinnar Dýra-
fræði (Zoology) sem gestum RIFF
gefst nú kostur á að sjá. Þessi ungi
leikstjóri fer heldur betur vel af stað,
þessi önnur kvikmynd hans hefur
hlotið virt verðlaun á Karlovy Vary,
rétt eins og fyrri mynd hans Correc-
tions Class. Í myndinni Dýrafræði
segir af miðaldra konu, Natöshu,
heldur bágstaddri, sem lifir
tilbreytingarlausu lífi og lítt inni-
haldsríku, samfélagsstaða hennar er
ekki hátt skrifuð, hún býr með aldr-
aðri móður sinni og starfar í dýra-
garði. Og heiti myndarinnar er ekki
tilviljun, því í þessari mynd er velt
upp stöðu okkar mannfólksins í heimi
dýranna, og stöðu dýranna í heimi
mannfólksins. Geta dýrin sýnt meiri
hlýju en mannfólkið? Getum við
mannfólkið verið miklu grimmari en
dýrin? Því vissulega eru vinnufélagar
Natöshu ekkert annað en skepnur,
slík er framkoma þeirra við þessa
minnimáttar manneskju. Og svo er
það halinn, sem vex á Natöshu, gerir
hann hana að dýri? Halinn opnar
henni nýjar víddir, hún öðlast hug-
rekki til að gera ýmislegt sem hún
hefur ekki þorað, rennir sér á álbökk-
um, drekkur kampavín, litar á sér
hárið, dansar villt á diskóteki, styttir
pilsin sín, lendir í ástarævintýri. Eða
er það allt ímyndun? Er þetta bara í
hausnum á henni, til að lifa af ömur-
legar aðstæður sem hún er föst í?
Hún kemst sannarlega að því að sam-
félagið hefur ekki umburðarlyndi
gagnvart þessu sérkenni hennar,
nautnalegum halanum. Allt um lykj-
andi guðsótti, fordómar og ótti við hið
ókunna og það sem er öðruvísi, sem
og skortur á umburðarlyndi, stendur
í veginum fyrir því að hún fái að
blómstra í sinni sérstöðu. Hún er læst
inn í sínu fábrotna lífi og viðhorfum
annarra, kannski rétt eins dýrin í
búrunum í dýragarðinum þar sem
hún vinnur.
Hinum unga leikstjóra Tvardovsky
tekst að segja sögu Natöshu á sérlega
skemmtilegan hátt, myndin er í aðra
röndina fyndin þó hún sé líka mjög
átakanleg, þetta er skondið nútíma
ævintýri með alvarlegum undirtón.
Kvikmyndin Dýrafræði er ekki að-
eins ádeila á lífið í Rússlandi, heldur
heiminn allan, og okkur mannfólkið.
Þetta er hljóðlát mynd sem er
þrungin af tilfinningum, hún er alger-
lega hversdagsleg en um leið annars
heims. Og hún er skemmtileg, manni
leiðist ekki eitt augnablik. Leikurinn
er fyrsta flokks, átakalaus og tilgerð-
arlaus, en mjög áhrifamikill, sér-
staklega hjá Nataliu Pavlenkova sem
fer með aðalhlutverkið, enda hefur
hún áður unnið með leikstjóranum,
hún lék líka aðalhlutverkið í fyrri
mynd hans, og þau ná víst ein-
staklega vel saman í kvikmyndavinn-
unni. Þau lesa huga hvort annars og
hann leyfir henni oft að spinna í sen-
unum.
Það verður gaman að fygljast með
Ivan I. Tvardovsky í framtíðinni, en
nú er hann að vinna að heimildar-
mynd um rússnesku lögregluna. Það
verður eitthvað.
Unaðslegur hali
vex á konu
RIFF
Dýrafræði bbbbn
Leikstjóri: Ivan I. Tvardovsky. Leikarar:
Natalia Pavlenkova, Dmitri Groshev,
Irina Chipizhenko, Maria Tokareva.
Rússneska. Rússland, Frakkland og
Þýskaland, 2016. 87 mín.
Flokkur: Vitranir
KRISTÍN HEIÐA
KRISTINSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Bíó Paradís: Í dag fim. 29. sept kl.
20.30, fim. 6. okt. kl. 19.45,
fös. 7. okt. kl 20.00
Hali Natasha er harla ánægð með halann sinn og öðlast aukið sjálfstraust.
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Bridget Jones siglir inn í fimmtugsaldurinn í
glænýjum kafla, nú orðin einhleyp, á fullu í
ræktinni og vinnur sem framleiðandi hjá sjón-
varpsstöð.
Laugarásbíó 17.20, 20.00
Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.40
Smárabíó 16.45, 17.15, 19.30, 20.00, 22.10, 22.40
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.40, 20.00, 22.20
Bridget Jones’s Baby 12
Þegar Finnur hjartaskurðlæknir
áttar sig á að dóttir hans er
komin í neyslu og kynnir þekktan
dópsala fyrir fjölskyldunni sem
nýja kærastann, koma fram
brestir í einkalífinu.
IMDb 9,1/10
Laugarásbíó 18.00, 21.00,
22.30
Smárabíó 17.45, 19.00, 20.10, 22.00, 22.40
Háskólabíó 18.10, 21.10
Borgarbíó Akureyri 17.40, 20.00
Eiðurinn 12
Myndin fjallar um atburðina árið 2010 á olíuborballi BP olíu-
fyrirtækisins á Mexíkóflóa, og það sem gerðist á síðustu 48
tímunum áður en sprenging varð um borð með þeim afleið-
ingum að 11 manns létu lífið.
Metacritic 66/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.20
Deepwater Horizon 12
Sully 12
Flugvél, með Sullenberger
við stýrið, missti afl, eftir að
hafa fengið fugla í hreyflana,
árið 2009. Án hreyfla og á
fullri ferð niður, þá náði Sul-
lenberger með ótrúlegum
hætti að framkvæma neyð-
arlendingu á Hudson ánni
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 75/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Egilshöll 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Kringlunni 18.50,
21.00
Sambíóin Akureyri 20.00
Skiptrace 12
Rannsóknarlögreglumaður
frá Hong Kong vinnur með
bandarískum fjárhættuspil-
ara í baráttu við alræmdan
kínverskan glæpamann.
Metacritic 50/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 22.20
The Shallows 16
Metacritic 59/100
IMDb 6,7/10
Háskólabíó 21.10
War dogs 16
Saga tveggja ungra manna
sem fengu samning um til
að vopnvæða bandamenn
Bandaríkjana í Afghanistan.
Metacritic 57/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Don’t Breathe 16
Rocky er ung kona sem þráir
betra líf fyrir sig og systur
sína. Hún samþykkir að taka
þátt í innbroti með kærast-
anum sínum.
Metacritic 71/100
IMDb 7,7/10
Smárabíó 20.10, 22.20
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 22.20
Mechanic:
Resurrection 16
Metacritic 38/100
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sausage Party 16
Pylsa heldur af stað í ferða-
lag að kanna sannleikann á
bak við tilurð sína.
Metacritic 66/100
IMDb 6,8/10
Háskólabíó 18.10
Suicide Squad 12
Suicide Squad er falið að
leysa hættulegustu verk-
efnin hverju sinni.
Metacritic 40/100
IMDb 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.20
Storkar
Storkar komu. Núna afhenda
þeir pakka fyrir alþjóðlega
netfirsann Corner-
stone.com.
Metacritic 55/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 18.00,
20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 17.50
Sambíóin Akureyri 18.00
Kubo og Strengirnir
Tveir Sögusviðið er lítið þorp í
Japan til forna. Ungi pilt-
urinn Kubo kallar óvart fram
drungalegan anda með
hefndarþorsta. Andi þessi
tilheyrir fortíð Kubos og áð-
ur en langt um líður þarf
hann að berjast við guði og
skrímsli sem ráðast á þorp-
ið, en allt með aðstoð töfra-
hljóðfæri hans.
Metacritic 84/100
IMDb 8,4/10
Smárabíó 15.30
Leynilíf Gæludýra Hundurinn Max hefur lítið til
að kvarta undan. Hann lifir
góðu dekurlífi með eigand-
anum sínum Katie, í fínni
íbúð. Tilveran tekur hins
vegar snögga beygju þegar
eigandi Max mætir heim
með sóðalegan flækings-
hund að nafni Duke. Max er
ekki vitund ánægður með
þessa breytingu en þeir
Duke munu þurfa að leggja
deilur sínar til hliðar þegar
lævísa kanínan Snowball
kemur til þess að gera þeim
lífið leitt.
Metacritic 61/100
IMDb 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 18.00
Smárabíó 15.30, 16.40
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS
Verð
2.250.000 kr.
án vsk.
1.815.000 kr.
Til á lager
Sportman® Touring 570 EPS