Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is AUDI A6 2.0 TDI S-LINE nýskr. 08/2014, ekinn 16 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, S-line innan og utan.VERÐ AÐEINS 6.990.000 Raðnr. 254356 M.BENZ G 350 CDI BLUETEC nýskr. 9/2014, ekinn 39 Þ.km, dísel, sjálfskiptur (7 gíra). Mjög vel búinn aukahlutum og lítur út sem nýr! Verð 21.900.000 kr. Raðnr. 254866 M.BENZ C 220d AVANTGARDE nýskr. 09/2015, ekinn 8 þkm, 170 hö diesel, sjálfskiptur (7 gíra). VERÐ AÐEINS 6.990.000 kr. Raðnr.255217 M.BENZ E 200 BLUETEC AVANTGARDE nýskr. 03/2015, ekinn 19 Þ.km, dísel, sjálfskiptur (7 gíra). Verð 6.690.000 kr. TILBOÐ AÐEINS 5.999.000 kr. stgr. Raðnr. 255421 RENAULT MASTER DCI100 L2H2 nýskr. 2013, 4 stk. eknir 44-54 Þ.km, dísel, 6 gíra. Verð frá 2.999.000 kr.+ vsk. Raðnr. 255424 Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Enn virðist allt í járnum með það hvor þeirra Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar, formanns Framsóknar- flokksins, og Sigurðar Inga Jóhanns- sonar, varaformanns Framsóknar- flokksins og forsætisráðherra, verður kjörinn formaður flokksins á flokks- þingi Framsóknarflokksins á morgun og deilur milli fylkinga hafa bara harðnað undanfarna daga. Af samtölum við framsóknarfólk út um land allt í vikunni, svo og þing- menn flokksins og fyrrverandi áhrifa- menn í Framsóknarflokknum, er ekki hægt að draga aðra ályktun en þá, að líklega verði mjótt á munum í for- mannskjörinu, og framsóknarfólk veðjar ýmist á Sigmund Davíð eða Sigurð Inga. Flokksþingið stendur í dag og á morgun í Háskólabíó. Líkt og fram hefur komið hér í Morgunblaðinu, eiga um 1.000 framsóknarmenn rétt til setu á flokksþinginu, sem verður sett kl. 9.30 í dag. Kl. 11 flytur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson yfirlitsræðu sína sem formaður flokksins og í kjölfar ræðu hans verða almennar umræður. Kl. 16 hefjast nefndastörf og verð- ur unnið í málefnahópum fram á kvöld, samkvæmt dagskrá á heima- síðu Framsóknarflokksins. Líkt og að framan segir verður for- mannskjör kl. 11.30 í fyrramálið og síðan verða varaformaður, ritari, laganefnd og siðanefnd kosin. Þingslit eru áætluð kl. 17.30. Mikill stuðningur við Lilju Flestir þeir sem rætt hefur verið við virðast því fylgjandi að Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra verði kjörin varaformaður flokksins, og þá er slík afstaða ekki bundin við það hvort framsóknarmenn styðja Sig- mund Davíð eða Sigurð Inga til for- manns. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að sækjast eftir varafor- mennsku í flokknum, verði Sigurður Ingi kjörinn formaður. Lilja Dögg sagði í samtali við Morgunblaðið að hún væri ekki búin að gera upp hug sinn til þess hvort hún býður sig fram í varaformanns- sætið. „Það eru miklar líkur á því að ég bjóði mig fram í varaformanninn. Ég hef verið að leita eftir stuðningi þessa dagana, en á eftir að taka end- anlega ákvörðun,“ sagði Lilja Dögg. Viðmælendur úr röðum framsókn- armanna í vikunni hafa verið ófúsir að tjá sig um hverjar séu líkurnar á nið- urstöðu í formannskjörinu og virðast enn vera þeirrar skoðunar að kjörið geti farið á hvorn veginn sem er. Vildu að menn slíðruðu sverðin Miðað við yfirlýsingar um og eftir síðustu helgi, sérstaklega frá þeim Gunnari Braga Sveinssyni og Vigdísi Hauksdóttur, sem bæði styðja Sig- mund Davíð, töldu ákveðnir viðmæl- endur að þess hefði verið farið á leit við stuðningsmenn beggja að dregið yrði úr gífuryrðum og árásum, svo líkur á því að flokkurinn gæti gengið samstiga inn í kosningabaráttuna, að loknu flokksþingi, myndu aukast. Slíkt þagnarbindindi var þó ekki lengi við lýði, því Karl Garðarsson alþingis- maður gagnrýndi framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokks- ins, harðlega í Facebook-færslu í fyrradag, líkt og greint var frá í Morgunblaðinu í gær, og fékk miklar ákúrur fyrir á síðu sinni frá stuðn- ingsmönnum formannsins, þar sem Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, formað- ur Framsóknarfélags Reykjavíkur, var sýnu harðastur. Báðar fylkingar í smölun Fullyrt hefur verið að stuðnings- menn þeirra Sigmundar Davíðs og Sigurðar Inga hafi verið iðnir við kol- ann í úthringingum í liðinni viku, með það fyrir augum að hvetja þá sem eiga seturétt á flokksþinginu til að mæta og ekki síður að hvetja fulltrúa til þess að „styðja sinn mann“. „Smölun stuðningsmanna Sig- mundar Davíðs hefur verið mun ágengari og harðari en hjá stuðnings- mönnum Sigurðar Inga. Það veit ég af samtölum mínum við mjög marga framsóknarmenn,“ sagði þingmaður Framsóknarflokksins í gær. Sigurður Ingi Jóhannsson skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í fyrra- dag, þar sem hann sagði m.a.: „Traust milli almennings og kjörinna fulltrúa er grunnforsenda farsællar stjórnunar. Þegar traustið hverfur eða laskast, eykst tortryggnin, aukin tortryggni leiðir til aukins óróa. Ég er þakklátur fyrir það traust sem nýlegar kannanir gefa til kynna að ég njóti í samfélaginu, bæði hjá flokksmönnum og almenningi. Hag- vaxtarskeiðið sem við lifum núna, er eitt það lengsta í sögu landsins. Höld- um áfram á þeirri braut. Ég óska okkur öllum góðs flokksþings og hvet alla fulltrúa til að mæta og hafa áhrif. Samstaðan mun skila okkur best fram veginn, hér eftir sem hingað til.“ Af samtölum við framsóknarmenn um allt land má ætla að mjótt verði á munum í formannskjöri milli þeirra Sigmundar Davíðs og Sigurðar Inga. Augljóslega hafa margir úr grasrót- inni miklar áhyggjur af því hvað verð- ur um þennan tæplega hundrað ára flokk (stofnaður 16. desember 1916), gangi menn sárir og vígamóðir af flokksþinginu síðdegis á morgun. Svartsýni og bjartsýni Gamall flokkshestur, sem hefur verið framsóknarmaður allt sitt líf, lýsti þessu kannski ágætlega þegar hann sagði: „Ég óttast að þetta verði flokksþing hinna löngu hnífa, og það muni taka flokkinn langan tíma að vinna sig út úr þessum persónulegu átökum. Ég er mjög svartsýnn á gengi okkar í kosningabaráttunni og kosningunum, því flokkur sem ekki gengur sameinaður og sterkur til kosninga á ekki skilið að vinna góða sigra. Þetta er enn sorglegra fyrir þær sakir að málefnalega höfum við svo sterka stöðu.“ Ekki eru þó allir jafn svartsýnir á framhaldið og ofangreindur viðmæl- andi. „Það má einfaldlega ekki gerast að við göngum af þinginu síðdegis á sunnudag sem tvær andstæðar fylk- ingar. Ágreiningurinn snýst að engu leyti um málefni, heldur um val á milli manna. Við kjósum milli manna á lýð- ræðislegan hátt og sá sem verður undir og stuðningsmenn hans verða bara að taka niðurstöðunni af karl- mennsku og hugsa svo á ný um hag flokksins,“ sagði framsóknarkona. Allt enn í járnum í Framsókn  Jafnvel flokkshestar í áratugi tala um flokksþing „hinna löngu hnífa“  Flokkurinn gæti klofnað í tvær fylkingar  Bjartsýnni framsóknarmenn segja flokkinn verða að vera samstiga að loknu þingi Morgunblaðið/Kristinn Stóðu saman Nýir ráðherrar Framsóknarflokksins í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar stóðu þétt saman vorið 2013. Spurningin er hvort eftir flokksþingið nú um helgina verði til tvær andstæðar fylkingar þeirra Sigmundar Davíðs og Sigurðar Inga í Framsóknarflokknum og hann verði klofinn. Flokksstjórn Framsóknarflokksins kom saman til fundar kl. 13 í gær, til þess að ganga frá endanlegri dag- skrá flokksþingsins. Einungis drög að dagskrá hafa verið á heimasíðu flokksins undanfarna daga og fram hefur komið krafa um að forsætis- ráðherra og varaformaður flokksins fái ræðutíma í dagskrá þingsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er formaður framkvæmdastjórn- arinnar. Niðurstaða liðlega klukku- tíma fundar framkvæmdastjórnar- innar varð sú, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, að báðir formannsframbjóðendurnir fái ræðutíma fyrir formannskjörið í fyrramálið og að lokinni ræðu for- mannsins, kl. 12 í dag, flytji for- sætisráðherra yfirlitsræðu sína og fái til þess 15 mínútur. Aðrir ráð- herrar flokksins fá svo 10 mínútur hver til þess að flytja ræðu. Deilur um dagskrá þingsins FLOKKSÞING FRAMSÓKNARFLOKKSINS Í DAG OG Á MORGUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.