Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016 Eigum flestar stærðir af vetrar- og nagladekkjum. Bjóðum upp á umfelgun og heilsárs- og vetrardekk (ónegld og negld) frá Infinity á frábæru verði. Opið alla daga frá kl. 8–17, lau. kl. 10-14 • Sími 562 1351 Reykjavík, 421 1251 Keflavík • Gsm 861 2319 Gæðadekk á frábæru verði Opnum í dag Dekkja- og bílaverkstæði Funahöfða 6, beint ámóti AB varahlutum Gerðu bílinn tilbúinn fyrir veturinnmeð nýjum Infinity vetrardekkjum Endilega kíktu við Heitt á könnunni Ónegld vetrardekk frá 9.990 kr./stk Negld vetrardekk frá 11.900 kr./stk Heilsársdekk frá 9.990 kr./stk Burðardekk frá 18.900 kr./stk Frí umfelgun ef keypt eru 4 dekk. ÚR BÆJARLÍFINU Sigurður Ægisson Siglufjörður Hinn 27. ágúst árið 1946 var fyrstu fólksflutningabifreiðinni ekið yfir Siglufjarðarskarð og er oftast miðað við að vegurinn hafi verið tek- inn í notkun þann dag. Hann er því nýorðinn 70 ára. Reglulegar áætl- unarferðir yfir Skarðið hófust strax daginn eftir. Í blaðafréttum kom fram að bifreiðarstjórinn, Baldvin Kristinsson, hefði þurft aðstoð við að komast yfir 600 metra kafla sem ekki var fullfrágenginn. Bifreiðin, K 71, kom til Siglufjarðar um klukkan fjögur síðdegis þennan dag. Þar með var einangrun Siglufjarðar rofin, en unnið hafði verið að vegagerðinni í tólf sumur. Strákavegurinn leysti svo Skarðsveginn af hólmi árið 1967.    Í ágústmánuði jókst umferð um Héðinsfjarðargöng um 4% mið- að við sama mánuð í fyrra. Hefur umferðin því aukist um tæp 12% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Stefnir í metumferð um Héðinsfjarðargöngin nú í ár og að heildarökutækjafjöldi verði 250-260 þúsund. Meðalumferð á dag stefnir því í um 710 ökutæki á sólarhring. Þegar ráðist var í gerð Héðinsfjarðarganga áætlaði Vega- gerðin að 350 bílar myndu fara um þau á dag.    Hafin er skráning menningar- erfða í Fjallabyggð. Hún er liður í samstarfsverkefni milli tveggja stofnana í Noregi og ÞjóðListar ehf. á Íslandi og styrkt af Norsk- íslenska samstarfssjóðnum. UNESCO, menningarstofnun Sam- einuðu þjóðanna, hefur lengi hvatt til slíkrar skráningar í heiminum öll- um.    Smástrákar er félagsskapur ungliða í Björgunarsveitinni Strákum á Siglufirði og starfa í því 24 unglingar á aldrinum 13-15 ára ásamt sjö umsjónarmönnum. Á vikulegum æfingum er farið yfir það sem viðkemur björgunarsveitastarf- inu, s.s. fjallamennsku, klifur, ís- klifur, rötun, skyndihjálp og fleira. Magnús Magnússon og Ragnar Hansson leiða þetta ungliðastarf og hafa gert undanfarin ár og eiga stór- an þátt í því að það er jafn öflugt og gott og raun ber vitni.    Nýr viðlegukantur Hafnar- bryggjunnar á Siglufirði var form- lega vígður í gær, 30. september. Innanríkisráðherra, Ólöf Nordal, klippti á borða og opnaði mann- virkið formlega til notkunar. Fram- kvæmdir hófust í febrúar 2016 við fyllingu og niðurrekstur á stálþili, sem er 227 metra langt. Annar við- legukanturinn er 155 metra langur og hinn um 60 metrar. Þá var inn- siglingin að Siglufjarðarhöfn og einnig hluti hafnarinnar dýpkað nið- ur í níu metra. Eftir er að steypa þekju á höfnina en það verður gert næsta vor eftir að fyllingin hefur sigið. Gamli viðlegukanturinn var orðinn sundurryðgaður og ónýtur og því var þessi framkvæmd löngu tímabær. Endurbætt og stækkuð Hafnarbryggjan mun mæta þörfum útgerða í heimabyggð ásamt skipum annarra útgerða. Einnig er hægt að taka á móti stærri skemmtiferða- og flutningaskipum. Heildarkostnaður við þessa miklu framkvæmd er ríf- lega 550 m.kr. Hafnarbótasjóður styrkir byggingarhluta verkefnisins um 75% og dýpkunarhluta um 60% þannig að hlutur Fjallabyggðar er um 150 m.kr. og Hafnarbótasjóðs um 400 m.kr. Hafnarbryggjan var upp- haflega vígð í byrjun nóvember 1928. Norðurhliðin var þá 70 metra löng, austurhlið 80 metrar og suður- hlið 45 metrar. Fyrsta skipið sem fékk að leggjast að henni var Brúar- foss. Dettifossslagurinn svonefndi var einmitt háður á téðri bryggju 13. maí 1934. Hún var endurbyggð á ár- unum 1957 til 1964 og svo núna aftur.    Unglingamót Tennis- og bad- mintonfélags Siglufjarðar, A-mót, er haldið í dag og á morgun, 1. og 2. október. Mótið er hluti af Dominos- unglingamótaröð BSÍ. Keppendur eru um 100 talsins frá alls sjö fé- lögum. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Í haustbúningi Siglufjörður er kominn í haustbúning eins og sést á þessari mynd, sem tekin var í gær. Metumferð í Héð- insfjarðargöngum Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is „Mér fannst mikilvægt að fá umræðu um mann- réttindamál og samtal við Alþingi. Innanríkis- ráðuneytið ber ábyrgð á málaflokknum en mann- réttindamál snerta öll stjórnvöld á einn eða annan hátt og í raun alla í samfélag- inu. Alþingi gegnir auðvitað mikilvægu hlutverki á þessu sviði. Það vantaði að mínu mati grundvöll til að tala út frá og þess vegna hafði ég frumkvæði að því að gera þessa skýrslu um mannréttindamál,“ segir Ólöf Nordal innanríkisráð- herra um skýrslu um mann- réttindamál sem ráðuneyti hennar lagði fram á Alþingi í vikunni. „Við megum ekki gleyma skyldum okkar í mannréttindamálum. Í alþjóðlegum samanburði erum við framarlega í mannréttindamálum og til okkar eru gerðar ríkar kröfur. Okkur ber skylda til að skila skýrslu um þessi mál til Sameinuðu þjóðanna og munum þurfa að sitja fyrir svörum hvað það varðar hjá SÞ í nóvember.“ Þjóðir sitja fyrir svörum Þurfið þið að sitja fyrir svörum hjá SÞ út af mannréttindamálum, er það út af einhverju sérstöku? „Nei, það er það ekki. Það er reglulega farið í gegnum það ferli að þjóðir sitji fyrir svörum varð- andi mannréttindamál í sínu landi. Síðast sátum við Íslendingar fyrir svörum um mannréttindamál árið 2011.“ En svona að formsatriðum, það að skýrsla sé lögð fram á Alþingi varðandi mannréttindamál, hvað þýðir það? Hvað gerist svo? „Formlega séð þá getur Alþingi ákveðið að gera ekkert með skýrsluna. En svo getur það líka tekið hana til umræðu og umræðan leitt til lagasetn- ingar. Tilgangur okkar með skýrslunni er að upp- lýsa Alþingi. Ég hafði frumkvæði að því að gera þessa skýrslu. Öll mannréttindamál eru undir í henni. Við þurfum að koma með tillögur að því sem hægt væri að gera betur. Það hefur sjaldan verið mikilvægara að standa vörð um réttindi ein- staklinga en einmitt nú. Umræða um þær áskor- anir sem við stöndum frammi fyrir hjálpar. Mér finnst þurfa að vera meira af þessu að leggja svona skýrslur fyrir þingið.“ Mannréttindateymi Af mörgu áhugaverðu í skýrslunni eru helstu niðurstöður að það eigi að koma á mannréttindateymi stjórnarráðsins, að skýrslugjöf til alþjóðastofnana vegna mannrétt- indamála verði samræmd og heyri undir mannréttindateymi stjórnarráðsins og að fyr- irsvar Íslands fyrir Mannréttindadómstól Evrópu verði fært til ríkislögmanns. Er einhver af þessum tillögum til komin vegna einhvers klúðurs sem hefur komið upp á? „Nei, það er ekki þannig. En þetta eru tillögur til að láta hlutina ganga betur fyrir sig. Við teljum betra að málin séu á einni hendi því að í dag eru mörg ráðuneyti með þetta á sinni könnu. Tillögurnar eru allar til hagræðingar og einnig hugsaðar til umræðu á Alþingi. Því það þarf að tala um mannréttindamál.“ Ísland mun sitja fyrir svörum um mannréttindamál hjá SÞ  Innanríkisráðherra skilaði skýrslu um mannréttindamál til Alþingis í vikunni Ólöf Nordal Karlmanni voru dæmdar 550.000 krónur í miskabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna gæslu- varðhaldsvistar í 36 daga þar sem sakamál á hendur honum var fellt niður. Maðurinn sem bjó erlendis var sakaður um kynferðisbrot. Eftir honum var lýst á Schengen- svæðinu og hann síðan framseldur til landsins vegna þessa. Honum var haldið í fangelsi í 36 daga og síðan í framhaldinu var hann settur í farbann á Íslandi í 28 daga. Haldið of lengi í fangelsinu Héraðsdómur féllst á það með ríkinu að fullt tilefni hefði verið til þess að handtaka manninn og halda í gæsluvarðhaldi en taldi aftur á móti að honum hefði verið haldið í óhæfilega langan tíma. Ríkið hefði ekki gefið haldbærar skýringar á því hvað hefði valdið töfinni. Maðurinn stefndi ríkinu í apríl í fyrra og krafðist þess að það myndi greiða honum fimm milljónir í bæt- ur. Miskabætur til manns sem var haldið of lengi Tilkynnt var um 47 innbrot í ágúst og hafa Lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu ekki borist jafn fáar til- kynningar í einum mánuði frá því að samræmdar skráningar brota hófust hjá lögreglu árið 1999. Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir ágúst- mánuð 2016 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upp- lýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mán- uðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil á síðustu þremur árum. Mun færri kynferðisbrot Í ágúst voru skráðar 626 tilkynn- ingar um hegningarlagabrot á höf- uðborgarsvæð- inu, sem er fækkun á milli mánaða. Lög- reglunni bár- ust 282 til- kynningar um þjófnaði sem gerir um 45 prósent allra tilkynntra hegningarlagabrota í ágúst. Eru það aðeins færri tilkynningar en bárust síðustu þrjá mánuði á und- an. Tilkynntum kynferðisbrotum fækkaði töluvert á milli mánaða. Tilkynnt var um sex kynferðisbrot sem áttu sér stað í ágústmánuði, sem eru um fimm sinnum færri brot en í júlí. Aldrei jafn fá innbrot í borginni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.