Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
T E X T I 15.9 - 8.1.2017
Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur
VALTÝR PÉTURSSON 24.9 - 12.2.2017
Sunnudagsleiðsögn með safnstjóra, 2. október kl. 14.
LJÓSMÁLUN – LJÓSMYNDIN OG MÁLVERKIÐ Í SAMTÍMANUM 7.5 - 9.10.2016
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Leiðsögn á ensku alla föstudaga kl. 12.10
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9. - 28.05. 2017
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
KAFFISTOFA heimabakaðar kökur
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 7.5.2017
Haustsýning í Safni Ásgríms Jónssonar,
opnar sunnudaginn 2. október kl. 14.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sunnudaginn 2. október:
Ókeypis inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Portrett Kaldals í Myndasal
Kaldal í tíma og rúmi á Vegg
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
Norðrið í norðrinu á 3. hæð
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Sunnudaginn 2. október: 2 fyrir 1 í Safnahúsið
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Sýningin opin þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Stillan sem snýr aftur
... og aftur ... og aftur
Breytingar Jóhann Jóhannsson tekst á við fallvaltleika tilverunnar á Orphée.
erfiðar ákvarðanir,“ sagði Jóhann í
nýlegu viðtal við Factmag. „Platan
varð að einhvers konar dagbók um
þetta ferli allt.“ Kannski er heil-
andi, seiðandi áferð plötunnar á
vissan hátt leið til að semja sig út
úr óvissutímum. Platan hefst á lag-
inu/verkinu „Flight from the City“
og einkennist það af endurteknu
stefi sem rís og fellur, aftur og aft-
ur. Það er eitthvað angurvært við
þetta, harmrænt, hvernig lagið
byrjar, rís og dettur niður ... aftur
og aftur og aftur. Viðlíka aðferðum
er beitt út plötuna. Endurtekin
stef, með tilbrigðum, minimalismi
sem hrífur mann með.
Ein af ástæðunum fyrir vel-
gengni Jóhanns er að hann er með
fæturna í tveimur heimum og skilur
þá báða (og heimarnir eru reyndar
fleiri í hans tilfelli) og fyrir pist-
ilhöfund, sem hefur fylgst með ferli
Jóhanns í meira en kvartöld, er
eitthvað gleðilegt við það að sjá
merki hins virta Deutsche
Grammophon á plötunni. Bak-
grunnur Jóhanns er rokk/popp en í
dag vinnur hann á sviði samtíma-
tónlistar og reynir á þanþol hinnar
gamalgrónu skiptingar á milli dæg-
urtónlistar og sígildrar/skrifaðrar
tónlistar (skipting sem lifir enn
góðu lífi, sama hvað póstmódernist-
arnir segja).
Hér heyrum við því í minimal-
istum eins og Pärt og Górecki en
einnig í kvikmyndatónskáldum eins
og Zbigniew Preisner, Ennio
Morricone og Bernard Herrman.
Gleymum þá ekki framsæknum
rokkurum eins og Cale og Eno og
hinu naumhyggjulega súrkálsrokki
frá Þýskalandi; Can, NEU! og það
allt. Jóhann þekkir þetta allt saman
inn og út – og kvikmyndasöguna
einnig – og þessi vitneskja og inn-
sýn hefur gert honum kleift að
tálga út eigin hljóðheim sem hann
er að keyra inn í bæði kvikmynda-
tónlistarverkefnin sín (Sicario er
mjög gott dæmi þar um) og þessa
plötu hér.
Ég ræddi við Jóhann árið 2008,
árið sem Fordlandia kom út. Við-
talið birtist í Morgunblaðinu og
mér finnst við hæfi að enda þessi
skrif með þessum hugleiðingum
hans úr því:
„Ég reyni að búa til plötur sem
bjóða upp á reynslu sem gefur
hlustandanum eitthvað, eitthvað
meira en ef hann dveldi bara við
eitt og eitt lag að handahófi. Ritú-
allinn við það að setjast niður og
hlusta á tónlist er dáldið að hverfa,
við notum tónlist alltaf meira og
meira sem veggfóður ... Óskastaðan
er sú að fólk gefi sér tíma og ein-
beiti sér í þann klukkutíma eða svo
sem tónlistin á plötunni varir og
gefi henni sömu athygli og bíómynd
eða bók.“
»Ein af ástæðunumfyrir velgengni Jó-
hanns er að hann er með
fæturna í tveimur heim-
um, og skilur þá báða
(og heimarnir eru
reyndar fleiri í hans til-
felli)
Ný plata Jóhanns Jóhannssonar, Orphée, er naumhyggjulegt djásn sem
undirstrikar rækilega sterka stöðu hans í samtímatónlist. Hér er rýnt í
verkið sem og stöðu Jóhanns sem tónlistarmanns.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég fór út að hlaupa um helgina, í
kringum Miklatúnið (sem ég mun
aldrei kalla Klambratún) með nýj-
ustu plötu Jóhanns Jóhannssonar í
eyrunum. Veðrið var fallegt, það
rigndi meira að segja, og með þessa
dásemdartónlist í eyrunum varð
hlaupið óneitanlega epískt. Ég fór
hring eftir
hring, í góðum
takti (framan
af a.m.k.!) al-
veg eins og
platan. Ég
labbaði ein-
beittur –
„hreinsaður“ – frá hlaupinu.
Orphée er fyrsta sólóplata Jó-
hanns í átta ár eða síðan temaverk-
ið Fordlandia kom út á vegum 4AD
árið 2008. Þá erum við að tala um
verk, sem tengist ekki nema sjálfu
sér, rennur ekki samhliða kvik-
mynd, sjónvarpi eða öðrum miðli. Á
millibilsárunum hefur Jóhann verið
alveg afskaplega iðinn, unnið að
margvíslegum verkefnum og ásókn
í hann sem kvikmyndatónskáld hef-
ur farið vaxandi, sem skýrir m.a.
þessa bið eftir frístandandi verki.
Ég ætla ekki að eyða löngum tíma í
að ræða afrek hans á því sviðinu,
þau eru nokkuð kunn nú, en tónlist
hans við The Theory of Everything
og Sicario hefur vakið helsta at-
hygli á honum sem slíkum og nú
síðast sú frétt að hann sé að vinna
að tónlistinni við framhaldið af
Blade Runner.
Síðasta verk af sólótaginu,
Fordlandia, hafði sem umfjöllunar-
efni bæ sem Henry Ford lét byggja
í Brasilíu á þriðja áratug síðustu
aldar til að tryggja gúmmívinnslu
fyrir fyrirtæki sín í Bandaríkj-
unum. Samfélags- og/eða atvinnu-
lífstilraun sem mistókst en vakti og
er enn að vekja vangaveltur um
mannlegt eðli, efniviður sem Jó-
hann nýtti sér í tónsköpunina. Orp-
hée er lausbundnara en temaverk
engu að síður, hinar fjölmörgu sög-
ur af skáldinu og tónlistarmann-
inum Orfeusi voru Jóhanni inn-
blástur þar sem hann fjallar um
breytingar af margvíslegum toga,
hvort heldur sem um er að ræða
flutninga á milli heimshluta (Jó-
hann fluttist frá Kaupmannahöfn til
Berlínar á samningstíma verksins)
eða breytingar á samskiptum og
vinasamböndum. „Það er erfitt að
breyta lífi sínu og þú þarft að taka
Decomposition eða Sundrun er yfir-
skrift ljósmyndasýningar Kristinu
Petrošiute sem opnuð verður í Gall-
ery Ramskram á Njálsgötu 49 í dag,
laugardag, kl. 18.
Á sýningunni má finna ljós-
myndir sem teknar eru á EYE kvik-
myndastofnuninni í Amsterdam.
Þar komst Kristina í kynni við kvik-
myndafilmur frá fyrri hluta 20. ald-
ar sem átti að henda vegna
skemmda, en filmur frá þessum
tíma eru einstaklega viðkvæmar. Á
sýningunni tekst Kristinu með
myndum sínum að fanga samspil
mismunandi umhverfis – lifandi
umhverfis og skjalfests umhverfis.
Kristina er pólsk en hefur verið
búsett á Íslandi um árabil og sinnt
þar persónulegum verkum ásamt
auglýsingum. Hún hefur tekið þátt í
samsýningum víða, meðal annars í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Þjóð-
minjasafninu, Listasafni Reykjavík-
ur, Kjarvalsstöðum og víða erlend-
is, svo sem í Bandaríkjunum,
Bretlandi, Litháen og Sviss. Hún
hefur einnig sinnt kennslu við Ljós-
myndaskólann.
Sýningin verður opin á fimmtu-
dögum og föstudögum milli kl. 16
og 19 og á laugardögum og sunnu-
dögum milli kl. 13 og 19, og stendur
yfir til 9. október.
Ljósmynd/Kristina Petrošiute
Filma Kvikmyndafilmur frá fyrri hluta 20. aldar öðlast nýtt líf.
Kvikmyndafilmur öðlast
nýtt líf á ljósmyndasýningu
Strokkvartettinn Siggi kemur fram
á fyrstu tónleikum Kammersveitar
Reykjavíkur á þessu starfsári, sem
verða í Kaldalóni í Hörpu í dag kl.
12. Tónleikarnir eru hluti af tónlist-
arhátíðinni Norrænir músíkdagar
sem nú eru haldnir í Reykjavík.
Kvartettinn skipa fiðluleikararnir
Una Sveinbjarnardóttir og Helga
Þóra Björgvinsdóttir, víóluleik-
arinn Þórunn Ósk Marinósdóttir og
sellóleikarinn Sigurður Bjarki
Gunnarsson. Öll hafa þau verið
meðlimir í Kammersveit Reykjavík-
ur til margra ára.
„Við munum flytja fimm verk
sem eru hvert öðru skemmtilegra,“
segir Una. Öll verkin eiga það sam-
eiginlegt að vera af norrænum upp-
runa. Á meðal verka eru strengja-
kvartettar eftir hina finnsku Lauri
Mäntysaari, hina norsku Tine Surel
Lange og Rei Munakata sem fædd-
ur er í Japan en er nú búsettur í
Svíþjóð. Kvartettinn leikur einnig
Stillshot eftir Daníel Bjarnason. Að
lokum frumflytur kvartettinn verk-
ið Panama Papers eftir víóluleikara
hópsins, Þórunni Ósk. Verkið er
samið í samvinnu við Hlyn Hallsson
myndlistarmann og auk þess mun
Sigtryggur Baldursson spila með á
slagverk. Una segir verkið eiga af-
ar vel við málefni líðandi stundar.
„Þetta er agalega norrænt og í
verkinu má greina þau hughrif sem
komu upp hjá Þórunni þegar þetta
mál kom upp í vor. Hún er til dæmis
orðin algjör sérfræðingur í tónlist
Panama sem okkur hefur fundist
alveg gríðarlega gaman að kynn-
ast.“
Strokkvartettinn Siggi verður
með tónleikaröð í Hörpu og Mengi í
vetur og mun frumflytja sjö ný verk
á starfsárinu, sem hafa verið samin
sérstaklega fyrir kvartettinn.
erla@mbl.is
Frumflytja Panamaskjölin
Strokkvartettinn Siggi á Norrænum músíkdögum