Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 44
44 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016 Sveinbjörg Hallgrímsdóttir er 59 ára í dag og ætlar að njótadagsins heima við þar sem hún er nýflutt og er enn að koma sérfyrir. „Ég var að flytja inn í Eyjafjarðarsveit, næstum beint á móti Akur- eyri, og er bara enn að taka upp úr kössum,“ segir Sveinbjörg. „Ég er mikið fyrir náttúruna og nýt þess að sjá haustlitina færast yfir hér í firðinum. Ég er einnig dugleg að fara út að ganga með hundinn og umhverfið hér er dásamlegt til þess.“ Sveinbjörg er myndlistarkennari að mennt og hönnuður fyrirtækis- ins og hönnunarhússins Vorhus living. Hún hefur undanfarin ár hann- að hönnunarvörur fyrir falleg heimili undir eigin nafni en nú er ætl- unin að bæta við fleiri hönnuðum hjá fyrirtækinu. „Við erum með mynsturhönnun á ýmiss konar efni, t.d. postulín og stál og markmið okkar var að fyrirtækið yrði samkeppnishæft bæði innanlands og erlendis og að vandað yrði til verka bæði í efnisvali og framleiðslu.“ Vorhus living mun frumsýna nýjar vörur á Ráðhúsmarkaðinum í Ráðhúsi Reykjavíkur í byrjun nóvember og er því undirbúningur und- ir sýninguna og svo jólin í fullum gangi. Það er því mikið að gera hjá henni um þessar mundir. Sveinbjörg er í sambúð með Davíð Valssyni sölumanni og börn hennar eru Fjóla Karlsdóttir og Hallgrímur Örn Karlsson og einnig á hún fjögur barnabörn. Afmælisbarnið Sveinbjörg fyrir framan fyrirtækið sitt sl. vetur. Nýflutt yfir fjörðinn Sveinbjörg Hallgrímsdóttir er 59 ára í dag J ón Ásgeir Eyjólfsson fædd- ist í Reykjavík 1.10. 1946 og ólst þar upp, lengst af í Vesturbænum. Hann var í sveit á sumrin, fyrst á Hólmlátum á Skógarströnd, á Hnappavöllum í Öræfum, á Stein- dyrum í Svarfaðardal og loks á Hamri í Þverárhlíð í Borgarfirði: „Ýmis atvik höguðu því svo að ég var nú bara eitt sumar á hverjum stað. En mér líkaði afskaplega vel á öllum þessum sveitabæjum, þreifst vel og stálpaðist, við útiveru og sveitastörf hjá yndislegu fólki. Í Öræfunum var t.d. ekkert rafmagn, allt slegið með orfi og ljá og heyið hirt á hestum upp á gamla mátann.“ Jón Ásgeir var í Melaskólanum, Hagaskólanum, stundaði nám við Verslunarskóla Íslands og lauk það- an stúdentsprófi 1968 og lauk prófi í tannlækningum frá HÍ 1978. Jón Ásgeir kenndi í Iðnskólanum í Reykjavík og sinnti sumarstörfum á háskólaárunum á Slökkvistöðinni í Reykjavík: „Þar var ég við sjúkra- flutninga og slökkvistörf. Maður lenti stundum í átakanlegum aðstæðum en á þessum árum var engin áfallahjálp komin til sögunnar. En starfið var samt mikill reynsluskóli. Eftir stúdentsprófin var ég á togaranum Víkingi í heilan vetur. Þá lentum við í miklu ævintýri er við björguðum þýskum skuttogara sem hafði fengið trollið í skrúfuna og var fastur í ís við Grænland. Víð náðum að koma vírstroffum í hann, náðum að losa hann og drógum hann til Reykjavíkur. Fyrir vikið fengum við björgunarlaun og ég keypti minn fyrsta bíl fyrir minn skerf.“ Jón Ásgeir Eyjólfsson tannlæknir – 70 ára Fjölskyldugolfmót Jón Ásgeir og Margrét, sonur þeirra og barnabörnin og systir Margrétar og fjölskylda hennar. Golfið líf hans og yndi Hjónin Hér eru þau Jón Ásgeir og Margrét að slaka á í Vík í Mýrdal. Hafnarfjörður Ísa- bella Rán Sigmars- dóttir fæddist 21. maí 2016 kl. 17.10. Hún vó 3.690 g og var 52 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Dagbjört Silja Bjarnadóttir og Sig- mar Þór Oddsson. Nýir borgarar María Ó. Þormar, Kolfinna B. Snorradóttir og Ellen Steinþórsdóttir héldu tom- bólu fyrir utan Melabúðina. Þær söfnuðu 6.109 kr. sem þær gáfu Rauða kross- inum á Íslandi. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. TWIN LIGHT gardínum Betri birtustjórnun með Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. 40 ára Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.