Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Tuttugu ár eru liðin frá því að ferða-
máladeild var sett á laggirnar í Há-
skólanum á Hólum. Síðan þá hafa 424
nemendur út-
skrifast í ferða-
málafræðum og
viðburðastjórnun.
Fyrstu tíu árin
var ein námsleið í
boði, eða eins árs
diplómanám í
ferðamálafræði,
en árið 2007 var
farið að bjóða upp
á þriggja ára nám
til BA-gráðu í
ferðamálafræðum. Ári síðar var bætt
við námi til diplómagráðu í viðburða-
stjórnun.
Þannig hafa þrjár námsleiðir verið
í boði undanfarin ár en innan Háskól-
ans á Hólum er núna verið að þróa
nýtt nám sem áætlað er að hefjist
haustið 2017. Um er að ræða BA-nám
í gestamóttöku og stjórnun (e. hospit-
ality management).
Laufey Haraldsdóttir, deildarstjóri
ferðamáladeildar, segir í samtali við
Morgunblaðið að um nýjung sé að
ræða hér á landi. Boðið sé upp á nám í
hótel- og veitingastjórnun í opna há-
skólanum í HR, í samstarfi við César
Ritz-skólann í Sviss, en fyrirhugað
nám við ferðamáladeildina á Hólum
muni taka á gestamóttöku og stjórn-
un á breiðari grundvelli.
Alls eru nú um 140 nemendur í
ferðamáladeildinni á Hólum og allir í
fjarnámi.
„Við bjóðum upp á svokallað bland-
að nám, bæði stað- og fjarnám, en í
hverju námskeiði eru 1-2 daga lotur á
Hólum fyrir fjarnema. Við leggjum
mikla áherslu á að nemendur mæti í
loturnar til að hitta samnemendur og
kennara, og til að fá kennslu og vinna
að verkefnum sem erfitt er að sinna í
gegnum tölvu. Þetta á meðal annars
við um útivistarverkefni, verklegar
æfingar og hópverkefni ýmiskonar,“
segir Laufey. Sambærilegt fyrir-
komulag verður á hinu nýja námi í
gestamóttöku og stjórnun. Háskólinn
á Hólum hefur einnig verið með rann-
sóknartengt meistaranám í ferða-
málafræði en fyrstu nemendurnir úr
því námi voru útskrifaðir árið 2014.
Að sögn Laufeyjar er áhersla lögð
á náttúru og menningu í því BA-námi
í ferðamálafræði sem boðið er upp á í
dag, en í nýrri námsleið verður
áherslan á stjórnun og móttöku
gesta, hvort sem það er á hóteli, veit-
ingahúsi, í hópferðum eða annars
staðar þar sem verið er að taka á móti
ferðamönnum.
„Við erum enn að þróa þetta en
ferðaþjónustan hefur verið að kalla
eftir svona námi hér á landi,“ segir
Laufey og bendir á niðurstöður verk-
efnis sem Stjórnstöð ferðamála stóð
fyrir á dögunum, þar sem greindar
voru þarfir fyrir úrbætur sem styðja
við hæfni, gæði, fagmennsku og
þekkingu í ferðaþjónustu. Þar hafi
m.a. komið í ljós mikil þörf á góðri
menntun fyrir stjórnendur og að það
hafi verið greint sem forgangsverk-
efni. „Þetta kemur heim og saman við
það sem við finnum í okkar starfi.
Námið sem við erum að þróa í gesta-
móttöku og stjórnun svarar þannig
ákveðinni þörf greinarinnar.“
Að sögn Laufeyjar hefur Háskól-
inn á Hólum átt gott samstarf við at-
vinnugreinina í gegnum tíðina, enda
sé samtal þar á milli afar mikilvægt.
„Aðsóknin í námið hjá okkur hefur
verið nokkuð stöðug undanfarin ár.
Þegar við byrjuðum árið 1996 voru
sex nemendur í staðnámi hérna á
Hólum en síðan þróaðist þetta yfir í
blandað nám, bæði stað- og fjarnám,
en núna erum við í fyrsta sinn með
alla nemendur í fjarnámi.“
Samtal við ferðaþjónustuna
Eins og kemur fram hér neðar á
síðunni verður ráðstefna haldin á
Grand Hótel í Reykjavík á mánudag,
í tilefni 20 ára afmælis deildarinnar.
„Við ætlum að líta yfir farinn veg
en fyrst og fremst að líta til fram-
tíðar. Þarna koma saman bæði
fulltrúar stjórnvalda og ferðaþjónust-
unnar, ásamt sérfræðingum í þessum
fræðum. Við höfum alltaf lagt mikla
áherslu á samstarf við ferðaþjón-
ustuna. Hluti af náminu hjá okkur er
hagnýtur. Nemendur fara í verklegt
nám, bæði í diplómanámi og til BA-
gráðu, og við sjáum fyrir okkur sam-
bærilegt fyrirkomulag í hinu nýja
námi í gestamóttöku og stjórnun,“
segir Laufey að endingu.
Við ferðamáladeildina starfa átta
akademískir starfsmenn, auk þess
sem sérfræðingar hafa verið fengnir í
stundakennslu á stök námskeið.
Nýtt nám í móttöku og stjórnun
Ferðamáladeild Háskólans á Hólum 20 ára Býður upp á þrjár námsleiðir og sú fjórða í pípunum
140 nemendur og allir í fjarnámi Ferðaþjónustan kallar eftir meira námsframboði hér á landi
Ljósmynd/Pálína Ósk Hraundal
Hólar Nemendur í ferðamálafræðum við Háskólann á Hólum læra úti við í góða veðrinu, við gamla bæinn á Hólum.
Laufey
Haraldsdóttir
Í tilefni 20 ára afmælis ferða-
máladeildar Háskólans á Hólum er
boðað til ráðstefnu á Grand Hótel
nk. mánudag kl. 13, þar sem um-
fjöllunarefnið er menntun á há-
skólastigi í ferðamálafræði og
gestamóttöku. Ráðstefnunni er ætl-
að að vera innlegg í þá umræðu
sem nú stendur yfir um menntun í
ferðamálum. Aðgangur er ókeypis
en skráning fer fram á holar.is.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
ráðherra ferðamála, og Ólöf Ýrr
Atladóttir ferðamálastjóri munu
ávarpa ráðstefnuna ásamt Erlu
Björk Örnólfsdóttur, rektor Há-
skólans á Hólum, og Laufeyju Har-
aldsdóttur, deildarstjóra ferða-
máladeildar.
Reidar J. Mykletun, prófessor
við Universitetet í Stavanger í Nor-
egi, og Þórir Erlingsson, kennari
við Ferðamáladeild Kennesaw
State University í Bandaríkjunum,
munu fjalla um nám í gesta-
móttöku í Noregi og Bandaríkj-
unum og fulltrúar frá ferðaþjón-
ustunni, þau Erna Dís Ingólfsdóttir
frá Íslandshótelum, Jónas Guð-
mundsson frá Safe Travel, Ágúst
Elvar Bjarnason frá Arctic Advent-
ures og Ingibjörg Ólafsdóttir, hót-
elstjóri Radisson Blu – Hótel Saga,
munu ávarpa ráðstefnuna.
Ráðstefnunni mun ljúka á pall-
borðsumræðum þar sem Illugi
Gunnarsson menntamálaráðherra,
Óskar Jósefsson frá Stjórnstöð
ferðamála, Gunnar Jóhannesson
frá Ferðamáladeild HÍ, Ingibjörg
Sigurðardóttir frá Ferðamáladeild
Háskólans á Hólum, María Guð-
mundsdóttir frá SAF og Baldur
Sæmundsson frá Menntaskólanum
í Kópavogi munu ræða stöðu há-
skólamenntunar í ferðaþjónustu á
Íslandi og næstu skref. Stjórnandi
pallborðsins verður Guðrún Þóra
Gunnarsdóttir frá Rannsóknar-
miðstöð ferðamála. Fundarstjóri
verður Helga Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri SAF.
Ræða menntun
framtíðarleiðtoga
Ráðstefna fyrir ferðaþjónustuna
Morgunblaðið/Eggert
Ferðaþjónusta Ferðamenn þarfnast þjónustu og leiðsagnar og aukin þörf
hefur skapast fyrir menntun starfsfólks í öllum stöðum ferðaþjónustunnar.
OFFENTLIGT UDBUD
af aftaler om behandlingsforløb
for afhængige i Grønland
Grønlands Selvstyre v/Departementet for Sundhed udbyder hermed 9 aftaler
(delaftaler) om behandlingsforløb for afhængige i Grønland.
Udbudsformen er offentligt udbud. Tilbudsfristen er mandag 21. november
2016, kl. 09.00, vestgrønlandsk tid. Der kan afgives tilbud på en eller flere
delaftaler.
Samtlige behandlingsforløb skal kunne omfatte klienter med afhængighed af:
• Alkohol
• Hash
• Alkohol og hash (blandingsmisbrug)
• Spil (ludomani)
Delaftalerne har en varighed på 2 år med ikrafttræden 1. april 2017 og med op-
tion på forlængelse 1 år ad gangen i alt 2 gange. Den maksimale varighed af
delaftalerne er således 4 år.
Aftalerne vil blive tildelt i henhold til kriteriet “bedste forhold mellem pris og kva-
litet”. Underkriterier samt deres indbyrdes vægtning fremgår af udbudsmateria-
let. Desuden fremgår nærmere krav og vilkår vedrørende tilbudsafgivelsen
samt yderligere oplysninger om den udbudte ydelse.
Læs hele udbudsbekendtgørelsen her:
www.businessingreenland.gl/da/Udbud/Aktuelle-udbud
Atornerluinermik Iliuuseqarasuartarnermillu Paasisimasaqarfik
Videnscenter for Misbrug og Tidlig Indsats