Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Pizzastaður sem nýtur mjög mikillar velgengni og býður upp á
fjölgun staða undir sama nafni. Kontakt telur að eigandi geti hugsað
sér að gera það í samvinnu við meðfjárfesta.
• Vinsælt hótel á einstökum stað í nálægð við höfuðborgarsvæðið.
Velta eins og um hótel í höfuðborginni sé að ræða.
• Bakarí með nokkra útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu. Gefur ýmsa
möguleika til þróunar.
• Vefverslun sem hefur starfað um nokkurra ára skeið. Mánaðarleg
velta 4 til 5 mkr., hagkvæm lagerstærð og góð framlegð. Öll vara
send með Íslandspósti.
• Stöndug heildsöluverslun með sérhæfðar vörur fyrir byggingar-
iðnaðinn í mjög góðu og stóru eigin húsnæði á besta stað í borginni.
Velta 300 mkr. og afkoma góð.
• Öflugt og vel tækjum búið fyrirtæki sem sér um ræstingu
atvinnuhúsnæðis.
• Bílaleiga með á annað hundrað bíla og fína aðstöðu. Sala mikil í
gegn um eigin vefsíðu. Góð EBITDA.
• Matvöruverslun á Austurlandi. Löng og góð rekstrarsaga.
• Skemmtigarður fyrir barnaafmæli og veislur. Góð skemmtileg og
fjölbreytt tæki fyrir krakka á öllum aldri. Löng rekstrarsaga.
• Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika
fyrir áhugasaman, nýjan eiganda.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Dómarar í Hæstarétti höfðu í nógu
að snúast í sumarhléi réttarins.
Á tímabilinu 15. júní til 20. júlí
bárust réttinum 12 kærur vegna
forsetakosninganna sem fram fóru
25. júní síðastliðinn. Þrjár kærur
bárust réttinum í aðdraganda kosn-
inganna og níu kærur í kjölfar
þeirra. Í öllum tilfellunum var kröf-
um kærenda um ógildingu kosning-
anna hafnað eða málum vísað frá
Hæstarétti.
Á bilinu 5-9 dómarar fjölluðu um
hverja og eina kæru. Þrír dóm-
aranna stóðu að ákvörðun í öllum
kærumálunum 12, þau Markús
Sigurbjörnsson, Benedikt Bogason
og Ingveldur Einarsdóttir.
Kæruefnin voru af ýmsum toga.
Sú fyrsta fjallaði um meinta ólög-
mæta utankjörfundarkosningu, sá
næsti vildi boða til nýrra kosninga
og einn kærandi taldi að kjör-
stjórnir hefðu tekið sér vald sem
þær hefðu ekki haft.
Kröfu um frestun hafnað eftir
að kosningar höfðu farið fram
Hinn 8. júlí tekur rétturinn fyrir
þrjár kærur þar sem þess er krafist
að forsetakosningum „25. júní 2016
verði frestað eða þær úrskurðað[ar]
ógildar“ en þá voru kosningarnar
afstaðnar fyrir nokkru.
Í einni kæru er ítarlega greint frá
röksemdum kæranda, en þær sneru
flestar að annmörkum, sem hann
taldi hafa verið á kjörseðlum sem
kjósendur fengu í hendur við at-
kvæðagreiðslu á kjörfundi. Vísar
kærandi í þessu sambandi til þess
að á kjörseðlum hafi ekki komið
fram orðið „forsetaefni“ eins og
skylt hafi verið og aðeins hafi verið
„notað orðið frambjóðendur á kjör-
seðlinum“. Kærendur voru eftir-
taldir: Ástþór Magnússon, Sverrir
Ólafsson, Páll Siggeirsson, Bjarni
V. Bergmann, Þórólfur Júlían Dags-
son, Björn Leví Gunnarsson, Baldur
Ágústsson, Magnús Ingiberg Jóns-
son, Arngrímur Pálsson, Páll Sigur-
geirsson, BjörnVernharðsson fyrir
hönd framboðs Sturlu Jónssonar,
Halldór Sigurþórsson, Jóhannes
Þór Hilmarsson, Haukur Haralds-
son, Kristinn Jónsson og Guð-
mundur Rafn Geirdal Bragason.
Þeir sem vilja kynna sé kærurnar
geta farið inn á vef Hæstaréttar.
Undir flipanum „Ákvarðanir“ má
lesa endurrit úr gerðabók Hæsta-
réttar við kjör forseta Íslands.
Tólf kærur vegna
forsetakosninganna
Hæstiréttur hafnaði öllum kröfum um ógildingu
Morgunblaðið/Eggert
Hæstiréttur Dómarar réttarins höfðu í nógu að snúast í sumarhléi.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Fyrir okkur landeigendum vakir
fyrst og fremst að ná stjórn á
ástandinu svo við getum skilað land-
inu til afkomenda okkar í góðu
standi. Við berum ábyrgð á að gest-
ir svæðisins séu ekki í hættu og þeir
þurfa að fá ákveðna þjónustu,“ segir
Benedikt Bragason, framkvæmda-
stjóri Loðmundar, sem er landeig-
endafélag Ytri-Sólheima í Mýrdals-
hreppi. Félagið hefur hafið
framkvæmdir við að bæta aðstöðu
fyrir ferðafólk við Sólheimajökul.
Sólheimajökull er skriðjökull sem
gengur sunnan úr Mýrdalsjökli.
Hann er vinsæll áfangastaður ferða-
fólks og margir fara í skipulegar
göngur á jökulinn.
Framkvæmdirnar sem landeig-
endur hafa undirbúið í tvö ár og eru
nú hafnar snúast um að stækka bíla-
stæðin við jökulinn og leggja á þau
bundið slitlag. Jafnframt verður
byggt salernishús og aðstaða fyrir
starfsfólk Loðmundar og útbúnir
göngustígar. Bílastæðin eiga að
rúma 160 fólksbíla og 20 rútur.
Þá verða útbúnar lóðir fyrir fimm
þjónustuhús fyrir fyrirtæki sem
standa fyrir gönguferðum. Benedikt
rekur eitt þeirra, Arcanum, og mun
byggja hús fyrir það. Fyrir er á
staðnum kaffihús.
Benedikt telur að kostnaður við
þessa framkvæmd verði ekki undir
200 milljónum kr. Áformað er að
greiða niður stofnkostnaðinn með
innheimtu bílastæðagjalds og hefur
verið samið við Bergrisa hugbúnað
ehf. um uppsetningu á sjálfvirkum
búnaði til að halda utan um inn-
heimtuna. Búnaður frá Bergrisa er
á Þingvöllum og í undirbúningi er
að setja hann upp víðar á Suður-
landi.
Ellefu einstaklingar eiga land í
Ytri-Sólheimum. Benedikt er orðinn
stærsti einstaki eigandinn. Hann
segir að mjög góð samstaða sé með-
al landeiganda um uppbyggingunna.
Elín Einarsdóttir, oddviti Mýrdals-
hrepps, er formaður Loðmundar.
Bætt aðstaða
við Sólheimajökul
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Skóflustunga Einar Freyr Elínarson, Benedikt Bragason og Guðlaugur
Magnússon frá Bergrisa við upphaf framkvæmda við jökulinn.
MýrdalsjökullEyjafjalla-
jökull
Tekjurnar
af bílastæðum Stjórn Borgunarhefur ákveðið að
allir starfsmenn
fyrirtækisins fái
greidda launa-
uppbót sem nem-
ur 900.000 krón-
um á hvern
starfsmann.
Þetta kemur
fram í tilkynn-
ingu frá fyrir-
tækinu. Þar segir ennfremur að
Borgun vilji með þessu að starfs-
menn njóti þess vaxtar og viðgangs
sem orðið hefur í rekstri fyrirtæk-
isins síðustu misseri, sem er ekki
síst mikilli og góðri vinnu starfs-
fólks að þakka.
Fram kemur að mikið álag hafi
verið á starfsmönnum Borgunar
um nokkurt skeið, enda hafi fyrir-
tækið aukið verulega viðskipti sín á
erlendum mörkuðum síðustu mán-
uði sem hafi skilað sér með marg-
víslegum hætti inn í rekstur fyrir-
tækisins. Telur stjórn Borgunar
ánægjulegt að starfsfólk fyrirtækis-
ins njóti þess með áðurnefndri
launauppbót, að því er fram kemur
í tilkynningu.
Tæpa millj-
ón í viðbót
Haukur
Oddsson
Karlmaður var í gær dæmdur í 18
mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
kynferðisbrot gagnvart 14 ára
stúlku. Hann var sakfelldur fyrir að
hafa haft samræði og önnur kynferð-
ismök við hana þrisvar, þótt hann
vissi um aldur barnsins.
Héraðsdómur Reykjaness felldi
dóminn yfir manninum.
Maðurinn var 28 ára þegar brotin
voru framin og var hann einnig
dæmdur til að greiða stúlkunni
800.000 krónur í miskabætur en
samkvæmt vottorði sálfræðings hafa
brotin valdið stúlkunni verulegri sál-
rænni vanlíðan, grafið undan sjálfs-
mynd hennar og sjálfstrausti. Þá
glími hún við alvarlegan kvíða og eigi
töluvert langt í land með að byggja
upp heilbrigða sjálfsmynd.
Játning mannsins liggur fyrir
Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa
haft kynmök við stúlkuna í fimm
skipti. Héraðsdómur sýknaði hann
hins vegar af því að hafa haft sam-
ræði og önnur kynferðismök við
stúlkuna í tvö skipti, enda var ekki
talið að manninum hefði í þau skipti
verið kunnugt um aldur hennar.
Héraðsdómur segir að aldursmunur
á manninum og stúlkunni hafi verið
umtalsverður og breyti engu þótt
stúlkan hafi í einhverjum tilvikum
átt frumkvæði að samskiptum þeirra
á Skype.
Upphaf málsins má rekja til þess
að stúlkan leitaði til félagsráðgjafa
hjá barnaverndarnefnd 12. júní 2013
og greindi frá vanlíðan vegna sam-
skipta sem hún hefði átt á spjallsíðu.
Í dómnum segir enn fremur að
nokkur óútskýrð töf hafi orðið á
rannsókn málsins en atburðirnir sem
ákært var út af áttu sér stað árið
2013. Þess vegna var ákveðið að
dæma manninn í skilorðsbundið
fangelsi.
18 mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir kynferðisbrot