Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016 FLÍSFÓÐRAÐIR barnakuldaskór sem hrinda frá sér vatni. Stærðir 27,5-35 VERÐ 9.995 Daður Pírata við aðild að Evrópu-sambandinu er athyglisvert. Flokkurinn segir í stefnu sinni að það sé „ekki hlutverk stjórnmála- flokka að vera með eða á móti aðild eða aðildarviðræðum að Evrópu- sambandinu“.    Þessari sér-kennilegu „stefnu“ er meðal annars fylgt eftir með yfirlýsingu um að skilyrði Pírata fyrir inngöngu Íslands í ESB sé „undanþága frá upptöku á gagna- geymslutilskip- uninni“ og „reglugerð um fullnustu óáskor- aðra krafna“.    Þar fyrir utan segjast Píratarekki vilja að Ísland gerist aðili að ESB „án þess að aðildarsamning- urinn fari í þjóðaratkvæðagreiðslu“.    En þó að Píratar lýsi því ekki yfirberum orðum að þeir vilji ganga í ESB bendir öll framganga talsmanna þeirra til þess.    Í fyrradag fór Birgitta Jónsdóttirtil dæmis krókaleiðir með spurn- ingu til Lilju Alfreðsdóttur utanrík- isráðherra til að reyna að gera það tortryggilegt að núverandi ríkis- stjórn hefði hætt við aðildar- viðræður vinstri stjórnarinnar. Lilja benti réttilega á að stjórnar- flokkarnir hefðu ekki haft þá stefnu að halda aðildarviðræðunum áfram og vildu ekki ganga í ESB þannig að þetta hefði ekki átt að koma á óvart.    Nú kann að vera að það rugli Pí-rata að VG sagðist fyrir kosn- ingar eindregið á móti aðild en sótti samt um. En ætli málflutningur Pí- rata ráðist ekki líka af því að þeir vilja í raun inn í ESB þó að þeir þori ekki að játa þá óvinsælu skoðun? Birgitta Jónsdóttir Píratar fela stuðn- ing sinn við aðild STAKSTEINAR Lilja Alfreðsdóttir Veður víða um heim 30.9., kl. 18.00 Reykjavík 7 skýjað Bolungarvík 5 skýjað Akureyri 6 súld Nuuk 1 rigning Þórshöfn 9 skýjað Ósló 14 léttskýjað Kaupmannahöfn 8 rigning Stokkhólmur 14 heiðskírt Helsinki 12 léttskýjað Lúxemborg 15 rigning Brussel 17 léttskýjað Dublin 11 skýjað Glasgow 10 skýjað London 18 léttskýjað París 16 alskýjað Amsterdam 17 heiðskírt Hamborg 17 heiðskírt Berlín 17 alskýjað Vín 23 léttskýjað Moskva 21 rigning Algarve 27 heiðskírt Madríd 25 heiðskírt Barcelona 23 heiðskírt Mallorca 26 rigning Róm 24 rigning Aþena 22 heiðskírt Winnipeg 12 heiðskírt Montreal 15 skýjað New York 15 rigning Chicago 16 rigning Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 1. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:39 18:57 ÍSAFJÖRÐUR 7:46 18:59 SIGLUFJÖRÐUR 7:29 18:42 DJÚPIVOGUR 7:09 18:26 Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhann- esson og Eliza Reid, halda í opin- bera heimsókn til Vesturbyggðar á mánudag en heim- sóknin varir í tvo daga. Þetta segir í tilkynningu frá skrifstofu forseta. Þau hefja leika í fundarsal bæjarskrifstofu Vestur- byggðar á Patreksfirði og leggja svo leið sína í fyrirtæki og stofnanir á svæðinu. Að kvöldi mánudagsins verður svo haldin fjölskylduhátíð í Félagsheimilinu á Patreksfirði en þar eru allir velkomnir. Guðni og Eliza halda svo á þriðju- deginum meðal annars í hið nýja Surtarbrandssafn á Brjánslæk þar sem Hákon Ásgeirsson landvörður tekur á móti þeim. Því næst kynna Jó- hann Pétur Ágústsson bóndi og Hall- dóra Ragnarsdóttir á Brjánslæk for- setahjónum búskap sinn á Brjánslæk en opinberri heimsókn þeirra lýkur á Vaðli á Barðaströnd þar sem tekið verður hús á þeim Hákoni Jónssyni og Þórunni Eggertsdóttur. Forsetinn til Vestur- byggðar  Heimsækja fyrir- tæki og stofnanir Guðni Th. Jóhannesson Samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði í 4. bekk í gær og fyrradag gengu vel fyrir sig og án teljandi vandamála, að sögn Gylfa Jóns Gylfasonar, sviðsstjóra mats- sviðs hjá Menntamálastofnun. Á Facebook-síðu stofnunarinnar, innleiðing rafrænna prófa, kemur fram að vandamálin hafi aldrei verið færri en í gær. Þar er áréttað að komi tæknileg vandamál í veg fyrir að nemendur geti sýnt færni sína sé tekið tillit til þess við yfirferð. Nem- endur njóti ætíð vafans og verði kennarar varir við þennan vanda eru þeir beðnir um að senda upplýsingar þar að lútandi á irp@mms.is. „Starfsfólk Menntamálastofnunar er með broddstafinn í kverkunum af ánægju yfir því hvernig til tókst,“ segir á síðunni. Samræmdu prófin hafa ekki verið rafræn áður. Gylfi Jón segir að fram- kvæmd þeirra hafi gengið mikið bet- ur en í íslenskuprófi 7. bekkjar í lið- inni viku, en þá gat hópur nemenda ekki notað broddstafi í ritunarhluta íslenskuprófsins. Þjálfunaráhrifin hafi verið augljós. Í því sambandi vísar hann til þess að fyrsta klukku- tímann í stærðfræðiprófinu í gær hafi ekki komið upp nein vandamál. Vandinn í sambandi við brodd- stafina var ekki leystur fyrir ís- lenskuprófið í fyrradag, en hann stafaði af uppfærslu á svokölluðum veflás. Gylfi Jón segir að til staðar hafi verið lausn sem hafi falið í sér aðra uppfærslu á veflásnum, en ekki hafi verið tekin sú áhætta að sú upp- færsla myndi valda öðrum vanda og hugsanlega stærri. Þetta verði hins vegar lagað fyrir prófin í 9. bekk í vor. steinthor@mbl.is „Með broddstafinn í kverkunum“  Framkvæmd samræmdu, rafrænu könnunarprófanna stóðst prófið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.