Morgunblaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Af frásögn listamannsins má strax
skynja ákafa og lífsþorsta. Tístandi
hlátur fylgir nánast hverju orði í ís-
lenskunni, sem borin er fram með
frönskuskotnum hreim rétt eins og
hér tali kynnir í Eurovision.
Frakkland er heimavöllur þessa
góða Íslendings sem í áratugi hef-
ur búið og starfað í París og átt þar
ævintýralegan feril. Hann hefur
með myndum sínum mótað veröld
án hliðstæðna og sýnt okkur veröld
í deiglu. Þverstæður á eirðarlausri
öld. Heimslist í hnotskurn. Við er-
um stödd í 15. hverfi Parísar og
þegar bankað er á dyr kemur lista-
maðurinn í gættina. Brosir. „Góðan
daginn og velkominn,“ segir Guð-
mundur Guðmundsson, best þekkt-
ur sem Erró.
Sýningar í Belgíu
og Frakklandi
Heimsmaðurinn tekur á móti
blaðamanni af íslenskri gestrisni
eins og þarna fari íslenskur bóndi.
Erró sækir enn næringu til róta
sinna, sem liggja í kyrrlátu sveita-
samfélagi æsku hans austur á
Kirkjubæjarklaustri.
Nú í október eru á Brussel-
svæðinu í Belgíu tvær Errósýn-
ingar og verður önnur þeirra opn-
uð í dag. Tvær sýningar verða svo í
Frakklandi á næsta ári og nú vik-
unni var Erró að finna til verk á
aðra þeirra. Einnig eru í París
starfrækt tvö gallerí þar sem verk
Errós eru í öndvegi og aukinheldur
eiga flest virtustu söfn í Frakk-
landi verk eftir hann. Má þar með-
al annars nefna nútímalistasafnið í
Centre Pompidou í París sem er
ríkislistasafn Frakka. Við þetta má
svo bæta að þessa dagana er að
koma út litrík listaverkabók með
fjölda mynda Errós sem hann hef-
ur unnið á síðustu árum. Titillinn
er einfaldur, Erro 2012 – 2015, og
upplagið er 2.000 eintök. Fimmtíu
bækur fóru til Íslands en megnið af
upplaginu er fyrir franska mark-
aðinn.
„Mér leiðist ef ég vinn ekki og er
hér á vinnustofunni tíu til tólf tíma
á dag,“ segir Erró, sem er orðinn
84 ára. Starfsþrekið er með öllu
óskert og þá munar auðvitað um að
hafa þrekhjól á vinnustofunni til að
halda sér í formi. Tveir kílómetrar
á dag. En annars er málað eins og
enginn sé morgundagurinn.
En lífið er meira en vinnan. „Hér
er mikið af alls konar sýningum og
ég fer á opnanir margra þeirra. Þá
fer um í París fjöldinn allur af
skemmtilegu fólki sem ég fer með
út að borða og tala við. Þetta er
fólk frá til dæmis Ítalíu, Spáni og
Bandaríkjunum,“ segir Erró, sem
hélt einmitt sýningu í New York
fyrr á þessu ári. Í fyrra var svo í
nútímalistasafninu í Lyon mikil
yfirlitssýning á verkum Errós. Þá
var mikil Errósýning í Reykjavík á
síðasta ári. Annars er allur heimur-
inn undir í starfi og lífi listamanns-
ins, sem yfir sumartímann dvelst á
Spáni og í Taílandi í skammdeg-
ismyrkrinu í febrúar. Samt er Ís-
land alltaf nærri.
Síbreytileg birta
„Frakkar þekkja Ísland en vilja
vita meira. Leigubílstjórinn sem ég
kom með í morgun vildi vita allt um
landið sem svo margir hér í Frakk-
landi heimsæktu. Af hverju fólk
lifði, hvernig veðrið væri og fleira,“
segir Erró í lok heimsóknar, sem
er stutt en skemmtileg.
Við kveðjumst á vinnustofunni
þar sem við stöndum undir þak-
gluggunum. Ljósið streymir inn.
Erró er alltaf í birtunni og hún er
síbreytileg og skapar til alls konar
myndir sem eru hver annarri ólík.
Það eru myndir Errós líka; kúnst-
verk úr kynjaveröld.
Ljósið streymir í fimmtánda hverfi
Fjórar sýningar og litrík listaverkabók er nýkomin út Heimslistin í hnotskurn Vinnudagurinn
er 12 tímar og málað eins og enginn sé morgundagurinn Innlit á vinnustofunni hjá Erró í París
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
París „Frakkar þekkja Ísland en vilja vita meira. Leigubílstjórinn sem ég kom með í morgun vildi vita allt um land-
ið,“ segir Erró. Ræturnar í íslensku sveitasamfélagi eru sterkar þó listamaðurinn hafi búið í áratugi í Frakklandi.
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
Nocturne kampagne 1000
Millistíf eða stíf dýnameð tvöfaldri fjöðrun. Bonell
gormar/pokagormar. 180 x 200 cm. 225.700 kr.
Nú 146.700 kr. Sparaðu 79.900 kr.
180 x 200 cm.
Nú146.700
SPARAÐU
35%
AF
NOCTURNE
KAMPAGNE
AFMÆLISHÁTÍÐ
FJÖLDI TILBOÐA Í VERSLUN
TIL 9. OKTÓBER
Mikið fjölmenni kom saman í flugskýli Landhelgisgæsl-
unnar í gær til að taka á móti Benóný Ásgrímssyni
þyrluflugstjóra þegar hann lauk síðasta flugi sínu fyrir
Gæsluna.
Stjúpdóttir Benónýs kom sérstaklega frá Bandaríkj-
unum til að fljúga þetta síðasta flug með honum en hún
er einnig flugmaður.
Á myndinni þar sem Benóný kyssir þyrluna sést dótt-
ir hans hlæjandi inni í stjórnklefanum.
Að sögn Benónýs vissi hann ekki af því hvað væri í
vændum. „Allt þetta hefur gjörsamlega komið mér úr
jafnvægi,“ sagði Benóný í samtali við mbl.is.
Þyrluflugmaður kveður Landhelgisgæsluna eftir áratuga þjónustu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ást Benóný Ásgrímsson kvaddi þyrluna með kossi sem hann hefur flogið svo oft.
Dyggum þjóni sýnd
virðing síðasta daginn
Hjálp í neyð Enginn hefur starfað lengur við björg-
unarflug hér á landi en Benóný Ásgrímsson.
„Við erum að heyra hljóðið í okkar
fólki, meta stöðuna og hvað fólk vill
gera. Það er alveg ljóst að næsta
skref er ekki verkfall heldur að setj-
ast niður með sveitarfélögunum,“
segir Ólafur Loftsson, formaður Fé-
lag grunnskólakennara, en grunn-
skólakennarar hafa í tvígang fellt
kjarasamninga að undanförnu.
Ólafur fer nú ásamt fleirum um
landið í skólaheimsóknir til að eiga
samtal við sitt fólk en niðurstaða
þeirra heimsókna verði svo kynnt
sveitarfélögunum og kannað hvort
ekki sé hægt að
ná samkomulagi
á þeim grunni.
„Við setjumst
niður þegar við
höfum betri
mynd af þessu og
látum á eitthvað
gott reyna,“ segir
Ólafur en ekki
hafi enn reynt á
þeirra endanlegu
kröfu í málinu. „Við erum ekki alveg
komin á þann stað.“ laufey@mbl.is
Ekki á leið í verkfall
Formaður Félags grunnskólakenn-
ara ræðir við kennara um land allt
Ólafur
Loftsson