Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 8. O K T Ó B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  236. tölublað  104. árgangur  BOFF KONKERZ HANNAÐI GALDRASTAFI FRUMFLUTNINGUR TÓNLEIKAR 46HÚÐFLÚR 12 Frír ís fyrir krakka! í október Nánar ábls 13 Morgunblaðið/Þórður Perlan Fékk viðurkenningu sem besti veit- ingastaðurinn á snúningsgólfi.  Veitingahúsið Perlan, sem rekið hefur hágæða veitingahús og bar á efstu hæð Perlunnar auk kaffiteríu á 4. hæð í rúmlega aldarfjórðung, hættir starfsemi í byrjun nýs árs. Í staðinn koma verslanir með útivist- arfatnað og minjagripi og kaffihús. Í veitingahúsinu Perlunni hafa starfað að jafnaði um 100 manns í 60-70 stöðugildum. Í september síð- astliðnum var 35 starfsmönnum sagt upp sem voru með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Öðru starfsfólki verður sagt upp eftir því sem á líður og uppsagnarfrestir krefjast. »15 Uppsagnir í Perlunni vegna lokunar um næstu áramót Kristján H. Johannessen Jón Þórisson Ákveðið var á fundi ríkisstjórnar í gær að leggja til að lágmarksbætur einstæðra eldri borgara verði 300 þúsund krónur á mánuði frá 1. jan- úar 2018, en það er háð því að þeir hafi ekki aðrar tekjur sem hafa áhrif á fjárhæð bótanna. Hins vegar muni bæturnar hækka strax í 280 þúsund krónur um næstu áramót. Þá verður framfærsluviðmið ör- yrkja einnig 300 þúsund krónur á mánuði frá sama tíma, að því er fram kemur í tilkynningu sem rík- isstjórnin sendi frá sér. Sömuleiðis kemur þar fram að frí- tekjumark verði sett á allar tekjur eldri borgara og gildir þá einu hvort um lífeyrissjóðs-, atvinnu- eða fjár- magnstekjur er að ræða. Frítekju- markið, sem undanþegið er við út- reikning bóta, verði 25 þúsund krónur. Einnig er gert ráð fyrir að hækkun lífeyristökualdurs verði hraðað um 12 ár. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist vonast til þess að tillögurnar fái „góðan hljóm- grunn í þinginu“ og hægt verði að afgreiða þær á skömmum tíma. Ellen Calmon, formaður Öryrkja- bandalags Íslands, segist hafa glaðst mjög er hún fyrst frétti af hækkun lágmarksbóta. „En svo varð ég hins vegar mjög leið þegar ég frétti að þessi hækkun ætti öll að eiga sér stað í gegnum svokallaða sérstaka framfærsluuppbót. Það er einungis hluti örorkulífeyrisþega sem fær hana,“ segir Ellen og held- ur áfram: „Ef hækkunin fer öll þar í gegn þá mun ríkisstjórnin einungis viðhalda skerðingunni „króna á móti krónu“ og það er afar atvinnuletjandi.“ Hámarkið sett í hálfa milljón Ríkisstjórnin samþykkti einnig á fundi sínum í gær tillögur sem fela í sér hækkun hámarksgreiðslu í fæð- ingarorlofi úr 370 þúsund krónum á mánuði í 500 þúsund krónur. Fæð- ingarstyrkur og lágmarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka einnig. Gildistaka breytinganna miðast við 15. október næstkomandi. Tryggja hærri lágmarksbætur  Ríkisstjórnin leggur til breytingar sem bæta kjör aldraðra og öryrkja  For- maður ÖBÍ segir ekki alla öryrkja njóta góðs af  Fæðingarorlof hækkar einnig MKjör aldraðra og öryrkja bætt »4 Margir af fremstu listamönnum norðurslóða kynna nú menningu sína og listir í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í Reykjavík. Í gær var þar sett ráðstefnan Hringborð norðurslóða þar sem m.a. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, flytur ávarp, en fyrirlesarar eru yfir 400 víða að úr heiminum. Meðal þeirra listamanna sem koma fram eru Zarina Olox Kopyrina, sem þekkt er fyrir töfrandi rödd og sterka sviðsframkomu, og hljóðfæraleikarinn Spiridon Shishigin, en hann leikur á munngígju. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins sótti Hörpu heim í gær hitti hann fyrir þjóðlagasöngkonuna Anisiia Fedorova frá Jakútíu og sést hún til vinstri á meðfylgj- andi mynd í afar þjóðlegum klæðum. Listamenn norðurslóða kynna sig Morgunblaðið/Eggert Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa iðar af lífi á Hringborði norðurslóða  Ísland er nú í fimmta sæti yfir þær þjóðir heims þar sem lands- framleiðsla á mann er hæst. Gísli Hauksson, forstjóri Gamma, segir stöðuna öfunds- verða en að halda verði rétt á málum til að glutra ekki niður þeim árangri sem náðst hefur. Telur hann að greiða megi upp allar skuldir ríkissjóðs á næstu fimm árum. »22 Landsframleiðsla á mann óvíða hærri Gísli Hauksson „Miðað við þær upplýsingar sem við höfum um sölu á bókum Halldórs Kiljans Laxness er Arnaldur búinn að slá met hans en bækur Halldórs eru hingað til taldar hafa selst í um 10 milljónum eintaka,“ segir Hólmfríður Úa Matthíasdóttir, útgefandi For- lagsins. Miðað við alla sölu á öllum bók- um Arnaldar Indriðasonar eru þær sölutölur komnar vel yfir 12 milljónir eintaka á heimsvísu en bókin Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness er þó enn sú staka bók eftir Íslending sem hefur selst í flestum eintökum erlendis. Hólmfríður segir að í raun sé það þó svo að aldrei verði hægt að segja með hundrað prósent vissu að ís- lenskir rithöfundar hafi skákað Nób- elsverðlaunaskáldinu því á þeim tíma sem Halldór Laxness hóf sinn rithöfundarferil, og langt fram eftir honum, voru samantektir á sölutöl- um ekki fullnægjandi. „Fyrsta bók Halldórs Kiljans Laxness í erlendri útgáfu kom út fyrir 82 árum og á þeim tíma voru auðvitað engar tölvur og því ekki jafnauðvelt að halda utan um og nálgast upplýsingar. En þetta er engu að síður það sem við höldum og segjum eftir bestu vit- und; að Arnaldur sé búinn að selja tveimur milljónum eintaka fleiri bækur en Halldór Kiljan Laxness. Sá fyrirvari sem við setjum á þetta er að einhvern tímann gæti eitthvað dúkkað upp sem við vitum ekki í dag varðandi sölu á bókum Halldórs, þótt ég eigi ekki von á því.“ Nánar er fjallað um málið í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Selt meira en Nóbels- skáldið  Arnaldur Ind- riðason að slá met Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.