Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Ísland vermir nú fimmta sætið á lista
yfir þau ríki þar sem landsframleiðsla
er mest á hvern íbúa, mælt í banda-
ríkjadölum. Þetta kemur fram í nýjum
tölum sem fjármálafyrirtækið Gamma
hefur tekið saman úr opinberum gögn-
um. Er það gjörbreyting á stöðu lands-
ins á fáum árum. Árið 2009 vermdi
landið sæti númer 14 samkvæmt sömu
tölum. Gísli
Hauksson, for-
stjóri Gamma,
segir að staða Ís-
lands sé ekki síst
áhugaverð þegar
litið er til þeirra
ríkja sem verma
sætin fyrir ofan
það á listanum.
Það eru Noregur,
Katar, Sviss og
Lúxemborg.
„Löndin þar eru ekki að öllu leyti
samanburðarhæf. Þá er einnig hægt
að nefna að í Lúxemborg og Katar
vinna miklu fleiri en búa þar og það
veldur því að þjóðarframleiðsla mæld á
hvern íbúa verður mun hærri en ef að-
eins væri litið til þess hóps sem í raun
byggir landið.“
Gísli segir að á síðustu árum hafi
orðið fordæmalaus viðsnúningur á
hagkerfinu og að ekki sé viðlíka dæmi
að finna meðal OECD-ríkjanna.
„Kaupmáttur Íslendinga í banda-
ríkjadölum hefur ekki verið hærri síð-
an 2007 en munurinn á stöðunni nú og
þá er sá að skuldir heimilanna og rík-
isins eru mun lægri.“
Gengi krónunnar rangt skráð
Ein birtingarmynd hinnar breyttu
stöðu er stöðug styrking íslensku
krónunnar. Gísli segir að á síðustu ár-
um hafi gengið í raun verið rangt skráð
vegna viðamikilla inngripa Seðlabanka
Íslands á gjaldeyrismarkaði.
„Seðlabankinn hefur verið að
safna í gjaldeyrisvaraforða sinn og
er kominn með gríðarlegan forða
sem nemur um 30% af vergri lands-
framleiðslu. Hann hefur að undan-
förnu verið að draga úr kaupum á
gjaldeyri og það leiðir til þess að
krónan hefur styrkst meira. Það er
fordæmalaust miðað við fyrri hag-
sveiflur að krónan sé að styrkjast á
þessum tíma og að viðskiptajöfnuð-
urinn sé jákvæður. Það er margt
sem bendir til þess að gengi krón-
unnar hafi verið rangt skráð á síð-
ustu árum og sé nú að taka út
ákveðna leiðréttingu í kjölfar þess
að Seðlabankinn hefur verið að
byggja upp forðann með svo afger-
andi hætti.“
Hann segir að gríðarleg umsvif
ferðaþjónustunnar ráði langmestu
um breytta stöðu krónunnar. Hins
vegar geti Seðlabankinn með
ákveðnum aðgerðum unnið gegn því
að hún styrkist um of.
„Hér eru mjög háir vextir í al-
þjóðlegu samhengi. Hagvöxtur hér
er sem stendur úr takti við stöðu
mála í Evrópu og Bandaríkjunum.
Flestir gera ráð fyrir 4 til 5 prósenta
hagvexti á næstu árum og það er
uppskrift að sterkara gengi. Mitt
mat er það að Seðlabankinn geti
hins vegar gert sitt með því að
lækka vexti. Það gæti slegið á frek-
ari styrkingu.“
Geta lækkað skuldir enn frekar
Gísli telur allar aðstæður með þeim
hætti að hægt sé að viðhalda þrótt-
miklu efnahagslífi hér á landi en að
fara verði varlega svo góðum árangri
verði ekki glutrað niður.
„Það má ekki stórauka ríkisútgjöld
og það verður að spara fjármuni til
mögru áranna. Ríkissjóður er hins
vegar á réttri braut með fjármálaáætl-
un sem felur í sér mikla skuldalækkun.
Ef rétt er haldið á málum tel ég að
hægt sé að gera ríkissjóð skuldlausan
á næstu fimm árum. Hið opinbera seg-
ist ætla að taka skuldahlutfallið niður
fyrir 30% af vergri landsframleiðslu á
þessum tíma en ég tel að það sé hægt
að gera mun betur.“
Gengi krónunnar hefur
ekki verið rétt skráð
Ísland komið í 5. sæti yfir mestu þjóðarframleiðslu á hvern íbúa í heiminum
Landsframleiðsla 2016
Landsframleiðsla á hvern íbúa á nafnvirði árið 2016 í þúsundum Bandaríkjadala
Fra
kk
lan
d
Ás
tra
lía
Ho
lla
nd
Ba
nd
arí
kin
Be
lgí
a
Írl
an
d
Au
stu
rrí
ki
Ísl
an
d
Þý
sk
ala
nd
Da
nm
örk
Br
etl
an
d
No
reg
ur
Sv
iss
Fin
nla
nd
Sin
ga
pú
r
Sv
íþj
óð
Ka
tar
Lú
xe
mb
org
100
80
60
40
20
0Gísli
Hauksson
● Gífurlegar sveiflur urði í gengi breska
pundsins í fyrrinótt þegar það féll um
6% á móti bandaríkjadal á einungis
tveimur mínútum. Þetta gerðist
skömmu eftir að gjaldeyrismarkaðir
voru opnaðir að morgni föstudags í As-
íu.
Ekki er enn ljóst hvað olli þessu mikla
falli. Sumir gjaldeyrismiðlarar telja lík-
legt að í kjölfar ummæla Francois Hol-
lande um hörku í samningaviðræðum
vegna útgöngu Breta úr ESB hafi sjálf-
virk viðskipti sem byggjast á lestri
fréttaskeyta farið af stað. Gengið rétti
sig hratt við aftur en var þó undir lok
viðskiptadags í London í gær enn 1,8%
undir því stigi sem það var á fyrir fyrr-
greint gengisfall.
Pundið hrundi um 6% á
tveimur mínútum
8. október 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 114.13 114.67 114.4
Sterlingspund 140.99 141.67 141.33
Kanadadalur 85.8 86.3 86.05
Dönsk króna 17.068 17.168 17.118
Norsk króna 14.095 14.179 14.137
Sænsk króna 13.172 13.25 13.211
Svissn. franki 116.16 116.8 116.48
Japanskt jen 1.0992 1.1056 1.1024
SDR 158.14 159.08 158.61
Evra 127.01 127.73 127.37
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 158.794
Hrávöruverð
Gull 1255.0 ($/únsa)
Ál 1667.5 ($/tonn) LME
Hráolía 51.22 ($/fatið) Brent
Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson
olafur@mbl.is
Bandaríska eignastýringarfyrirtækið
Pt Capital Advisors undirritaði í gær
samning um kaup á öllu hlutafé fjar-
skiptafyrirtækisins Nova. Samkvæmt
traustum heimildum Morgunblaðsins
nam kaupverðið um 16 milljörðum
króna.
Til samanburðar má geta þess að
markaðsvirði Símans var um 30,5
milljarðar króna í Kauphöll Íslands í
gær og markaðsvirði Vodafone um
13,5 milljarðar króna.
Novator er stærsti hluthafinn í
Nova með um 93,7% hlut. Aðrir hlut-
hafar, sem einkum eru stjórnendur
hjá félaginu, seldu einnig sinn 6,3%
hlut. Söluvirði þess hlutar má því
áætla liðlega 1,1 milljarð króna.
Er langtímafjárfesting
Pt Capital Advisors er með höf-
uðstöðvar í Anchorage í Alaska og er
þetta fyrsta fjárfesting félagsins hér
á landi. Í samtali við Morgunblaðið
segir Hugh Short, forstjóri Pt Capital
Advisors, að kaupin séu hugsuð sem
langtímafjárfesting. „Við erum með
reynslu innan okkar teymis af rekstri
fjarskiptafyrirtækja í Alaska og á
norðurslóðum og við komum með þá
reynslu inn í félagið. Við ætlum að
styðja vel við stjórnendur og stefnu
fyrirtækisins, þróa félagið inn á nýjar
brautir og leggja áherslu á að við-
skiptavinir Nova verði áfram ánægð-
ustu viðskiptavinir í fjarskiptaþjón-
ustu á Íslandi,“ segir Short.
Stefna félagsins er að fjárfesta á
svæðum í kringum heimsskautsbaug,
þeirra á meðal Alaska, Norður-Kan-
ada, Grænlandi og Íslandi. Á heima-
síðu Pt Captial Advisors kemur fram
að áætluð þörf fyrir fjárfestingar á
heimskautasvæðinu næsta áratuginn
sé um 100 milljarðar bandaríkjadala.
Mest af þeirri fjárfestingarþörf liggur
á sviði þróunar náttúruauðlinda, þjón-
ustustarfsemi og í innviðafjárfesting-
um. „Við erum að skoða fleiri fjárfest-
ingartækifæri á Íslandi og þessum
slóðum,“ segir Short.
Með hlutaféð úr landi
Í frétt á vb.is er haft eftir Björgólfi
Thor Björgólfssyni, aðaleiganda
Novator, að hann hafi í hyggju að taka
söluandvirði Novators úr landi. Kvika
banki leiddi söluferlið af hálfu selj-
anda en Íslensk verðbréf veittu Pt
Capital Advisors ráðgjöf í tengslum
við kaupin.
Nova selt bandarískum fjár-
festum fyrir 16 milljarða
Pt Capital Advisors frá Alaska hyggur á frekari fjárfestingar hérlendis
Undirritun Björgólfur Thor, Liv
Bergþórsdóttir og Hugh S. Short.
● WOW air flutti
um 1,17 milljónir
farþega á fyrstu
níu mánuðum árs-
ins, sem er 117%
fjölgun farþega
miðað við sama
tímabili í fyrra. Í
septembermánuði
voru farþegarnir
tæplega 193 þús-
und sem er 165%
aukning á milli ára. Sætanýting í mán-
uðinum var 88% og var hún örlítið betri
en í september í fyrra, þrátt fyrir tæp-
lega 170% aukningu í sætaframboði.
Hlutdeild WOW í heildarfjölda far-
þega um Keflavíkurflugvöll var 27% í
september, en það er 12 prósentustig-
um hærri hlutdeild en í sama mánuði í
fyrra. Félagið hóf áætlunarflug til San
Francisco og Los Angeles í sumar og
mun í nóvember bæta daglegum flug-
um til New York við leiðarkerfið. Í vor
bætist við flug til Miami og verður flog-
ið þangað allan ársins hring.
Aukin hlutdeild WOW
um Keflavíkurflugvöll
WOW Þegar um 1,2
milljónir farþega í ár.
STUTT