Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016
www.fr.is
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDU NÚNA
820 8081
sylvia@fr.is
Sylvía G. Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
Salvör Davíðsdóttir
Nemi til lögg.fasteignasala
Brynjólfur Þorkellsson
Sölufulltrúi
Sjöfn Ólafsdóttir
Skrifstofa
Upplýsingadeild borgarstjóra erþekkt fyrir að vera mikil að
vöxtum en það þýðir ekki að hún sé
ofvaxin. Þvert á móti skilar hún
borgarstjóra miklu og er í þeim
skilningi afar hagkvæm eining og
skilvirk.
Nú má auðvitaðdeila um
hverju upplýs-
ingadeild borg-
arstjóra skilar öðr-
um borgarbúum,
þessum sem greiða
útsvarið, en það er
aukaatriði og óþarfi
að hengja sig í slík smáatriði.
Eitt nýlegt dæmi um árangurþessarar deildar mátti lesa í
Fréttablaðinu á dögunum, en þar
var greint frá vikulangri ferð borg-
arstjóra og föruneytis til þriggja
borga í tveimur heimsálfum til að
skoða lestir.
Ferðin hafði vakið athygli fyrirað vera allt of löng og dýr og að
auki alveg óþörf, enda öllum ljóst að
ekkert vit er í að koma upp lest-
arkerfi í Reykjavík. Til að mæta
slíkri gagnrýni tókst upplýs-
ingadeildinni að koma inn fimm
dálka frétt efst á blaðsíðu fjögur í
Fréttablaðinu með fyrirsögninni:
Borgarstjóri gisti á tveggja stjörnu
hóteli í Danmörku.
Þessi „frétt“ gekk svo að mestuleyti út á að ferðinni væri „ekki
stillt upp sem lúxusferð heldur er
hagkvæmnin látin ráða för,“ og sér-
stök útskýring fylgdi með um hve
hagkvæmt hefði verið að fara í
langa ferð.
Enginn skyldi vanmeta kosti þessfyrir kjörinn fulltrúa að hafa
slíka upplýsingadeild. Að ekki sé tal-
að um að hafa slíkt „frétta“blað til
að hjálpa við upplýsingagjöfina.
Dagur B.
Eggertsson
Upplýsingadeildin
og „frétta“blaðið
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 7.10., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 12 skýjað
Nuuk 3 heiðskírt
Þórshöfn 9 léttskýjað
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 léttskýjað
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 10 heiðskírt
Lúxemborg 12 alskýjað
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 13 skýjað
Glasgow 13 skýjað
London 14 rigning
París 17 skýjað
Amsterdam 15 heiðskírt
Hamborg 13 rigning
Berlín 12 skýjað
Vín 8 léttskýjað
Moskva 10 rigning
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 25 heiðskírt
Barcelona 22 heiðskírt
Mallorca 25 heiðskírt
Róm 16 léttskýjað
Aþena 23 léttskýjað
Winnipeg 3 rigning
Montreal 19 heiðskírt
New York 19 heiðskírt
Chicago 19 skýjað
Orlando 24 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:59 18:32
ÍSAFJÖRÐUR 8:08 18:33
SIGLUFJÖRÐUR 7:52 18:16
DJÚPIVOGUR 7:30 18:00
Hátíðarguðsþjónusta verður í
Siglufjarðarkirkju sunnudaginn 9.
október kl. 14:00. Þar predikar sr.
Vigfús Þór Árnason, fyrrverandi
sóknarprestur, en hann á 40 ára
vígsluafmæli um þessar mundir.
Einnig verður minnst 155, ártíðar
séra Bjarna Þorsteinssonar tón-
skálds. Kirkjukórinn mun flytja há-
tíðarsöngva sr. Bjarna. Eftir mess-
una á sunnudag verður
kaffisamsæti á vegum Systrafélags
Siglufjarðarkirkju og sókn-
arnefndar, þar sem Siglufjað-
arkirkju verður gefin mynd eftir
hinn kunna siglfirska listamann
Ragnar Pál.
Hátíðarguðsþjón-
usta á Siglufirði
Tveir þingmenn, sem báðir eru að
hætta á þingi, hafa lagt fram breyt-
ingatillögur við fjögurra ára sam-
gönguáætlun 2015-2018. Þingmenn-
irnir vilja að settir verði peningar í
rannsóknir á mögulegum jarðgöng-
um.
Kristján L. Möller leggur til að 10
milljónir verða lagðar í rannsóknir
og frumhönnun á jarðgöngum milli
Siglufjarðar og Fljóta. Flokkssystir
Krisjáns í Samfylkingunni, Ólína
Kjerúlf Þorvarðardóttir, leggur til
að 10 milljónir verði lagðar í rann-
sóknir á mögulegum jarðgöngum
milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar.
Þau leggja bæði til að 5 milljónir falli
á árið 2017 og aðrar 5 milljónir á
2018.
Alþingi á eftir að afgreiða sam-
gönguáætlunina fyrir þinglok.
sisi@mbl.is
Vilja að ný
jarðgöng verði
undirbúin
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jarðgöng Nú er verið að bora ein
göng, Vaðlaheiðargöngin.