Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016
✝ IngibjörgMaría Krist-
jánsdóttir fæddist á
Ísafirði 21. febrúar
1939. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Grund 15.
september 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Kristján G.
Valdimarsson, sjó-
maður frá Ísafirði,
f. 2. júní 1912, d. 16.
júlí 1974, og Ingibjörg Anna
Sigríður Jónsdóttir, húsmóðir
frá Ísafirði, f. 30. júlí 1909, d. 28.
febrúar 1969. Ingibjörg giftist
gift Hauki Magnússyni, þeirra
dóttir er Natalía Yun, f. 2006. 2.
Halldór, f. 24. maí 1966. Sonur
Halldórs af fyrra sambandi er
Einar, f. 1987. Sambýliskona
hans er Elva Björt Stefáns-
dóttir. Dóttir þeirra er Heið-
björt Júlía, f. 2014. Eiginkona
Halldórs er Brynhildur Eyjólfs-
dóttir. Börn þeirra eru Snorri, f.
1991, sambýliskona hans er
Madeleine Brask og Rannveig
María, f. 2000. 3. Guðrún Jóna, f.
23. október 1974. Sonur Guð-
rúnar af fyrra sambandi er
Viktor Orri Jakobsson, f. 2002.
Sambýlismaður Guðrúnar er Jó-
hann Svavar Þorgeirsson og
eiga þau soninn Mikael Kára, f.
2009. Synir Jóhanns af fyrra
sambandi eru Magnús Blöndal,
f. 2004, og Andrés Þór, f. 2006.
Útför Ingibjargar fór fram í
kyrrþey.
Halldóri Þorgríms-
syni, bifvélavirkja
frá Presthólum í N-
Þingeyjarsýslu 20.
október 1961. For-
eldrar Halldórs
voru Þorgrímur
Ármannsson, bóndi
á Presthólum, f. 13.
apríl 1898, d. 30.
janúar 1978, og
Guðrún Guðmunds-
dóttir, húsfreyja á
Presthólum, f. 16. febrúar 1905,
d. 24. desember 1989. Ingibjörg
og Halldór áttu þrjú börn. 1.
Anna Kristín, f. 18. janúar 1963,
Elsku besta mamma mín, það
er erfitt að kveðja þig því það er
svo margt sem ég þarf að segja
þér. Símtalið kom og ég trúði ekki
því sem ég heyrði. Þú varst farin
… farin til Guðs. Síðustu daga
þína dvaldir þú á hvíldarheimilinu
Grund og áttir að vera í nokkrar
vikur. Ég veit þér leið vel þar því
þegar ég kom í heimsókn glaðnaði
yfir þér og þú tilkynntir öllum að
litla barnið þitt væri komið til þín.
Það var svo bjart yfir þér og stutt
í brosið.
Ég er þér svo ótrúlega þakklát
fyrir margt og þá helst trú þína á
mér og styrk þínum er þú leið-
beindir mér í gegnum árin. Alltaf
gat ég vitað að þú stæðir með mér
í hverju sem lífið leiddi mig að.
Segðir mér að allt myndi ganga
vel og ég gæti gert allt sem mig
langaði til. Trú þín á okkur börn-
unum þínum var óendanleg og er
óhætt að segja að við fundum vel
fyrir styrk þínum.
Minningarnar sem skjótast á
ógnarhraða upp núna eru ótal-
margar, við fórum í svo margar
ferðir saman til útlanda. Ferðuð-
umst til margra ólíkra landa og
skemmtum okkur ávallt vel.
Kaffihúsaferðir og búðaráp voru
eitthvað sem við báðar elskuðum
svo ekki áttum við í erfiðleikum
með að skella okkur í búðaráp og
finna okkur dásemdarstað til að fá
okkur kaffi á eftir.
Við heyrðumst daglega í síma
þá daga sem við hittumst ekki. Þú
vildir alltaf fylgjast með og at-
huga hvort strákunum þínum,
barnabörnunum, liði ekki vel.
Hvort allt gengi vel og hvort ein-
hvern vantaði eitthvað. Því engan
mátti skorta neitt og jafnt var
hugsað um alla.
Þegar Viktor, eldri sonur minn,
fæddist og ég var ung og einstæð,
kom ekkert annað til greina en að
standa saman. Þú gerðir herbergi
fyrir hann heima hjá ykkur pabba
svo hann ætti alltaf annað heimili
þar líka og gæti komið og gist
helgi og helgi. Þessar minningar
eru ómetanlegar og ljúfar. Svo ég
tali ekki um matarboðin, jólin, af-
mælin og aðrar stórhátíðir. Alltaf
var nóg af mat, skrauti og glamúr.
Fyrstu jólin sem ég hélt eftir að
ég eignaðist mína eigin fjölskyldu
komstu alltaf til mín á aðfangadag
og hjálpaðir mér að elda. Því ég
vildi að maturinn yrði alveg eins
og þú gerðir hann alltaf. Þetta var
einkennandi fyrir þig; að hjálpa
okkur þar til þú gast sleppt hend-
inni af okkur og við gátum bjarg-
að okkur sjálf. Ég er ekki tilbúin í
að þú farir en ég veit ég þarf að
sleppa hendinni þinni því veikind-
in voru orðin það alvarleg og ég
veit að þér líður svo miklu betur
núna.
Minning þín lifir, elsku
mamma, styrkur þinn, hlýja, gjaf-
mildi og stöðuleiki. Ég mun alltaf
elska þig.
Þín dóttir,
Guðrún (Gunna).
Ástkær tengdamóðir mín er
fallin frá. Ég man þegar dóttir þín
tilkynnti mér að matarboð væri á
næsta leiti hjá foreldrum hennar í
Skriðustekknum. Við vorum ekki
búin að vera lengi saman, ég og
dóttir þín, þannig að ég stressað-
ist allur upp. Ég held að það eigi
við um alla karlmenn þegar þeir
hitta tengdaforeldra sína í fyrsta
sinn. Ég vissi ekkert hverju ég
ætti von á. Mynduð þið Bubbi
dæma mig? Var ég nógu góður
fyrir fjölskylduna? Myndi ég
verða mér til skammar? Ég tók
minn tíma í minni innri íhugun og
gíraði mig upp. Stressaður inn að
beini og með öran hjartslátt beit
ég á jaxlinn og mætti. Allt þetta
stress hvarf samstundis og ég
gekk inn og þú kynntir þig fyrir
mér. Andrúmsloftið var strax
notalegt og mér leið vel og var vel-
kominn. Þannig var það í gegnum
öll okkar kynni. Við náðum vel
saman og gátum spjallað um
margt. Mér þótti alltaf vænt um
það að þegar hún dóttir þín var að
hneykslast á mér fyrir einhverja
vitleysuna þá sagðir þú svo oft:
„Hann Jói minn? Nei nei, vertu nú
ekki að láta svona. Hann Jói minn
er svo yndislegur.“ Mér fannst ég
þekkja þig mjög vel þrátt fyrir að
hafa eingöngu þekkt þig þín síð-
ustu átta ár í þessu lífi. Við gátum
hlegið og spjallað og vorum sam-
mála um flest allt sem við töluðum
um. Ekki skemmdi fyrir hvað
maturinn sem þú eldaðir var alltaf
góður. Ég vissi alltaf að ég myndi
borða á mig gat þegar þú bauðst
okkur í mat. Allt í einu var svikinn
héri orðinn uppáhaldsmaturinn
minn því þú gerðir þennan rétt að
einhverju stórkostlegu.
Þú tókst drengjunum mínum
mjög vel. Tveir drengir sem gátu
breytt venjulegum heimilum í
eitthvað sem líktist rústum úr
seinni heimsstyrjöldinni. „Hvað
er þetta, þetta eru börn,“ sagðir
þú sallaróleg. Alltaf var fólkið þitt
velkomið og það hugsaðir þú mjög
vel um. Eftir að ég og dóttir þín
eignuðumst svo hann Mikael
Kára varstu alltaf til taks. Ef við
báðum um pössun, hvort sem það
var yfir nótt eða helgi, var það
aldrei vandamál. Allt þitt fólk var
velkomið.
Ég man ekki eftir þér öðruvísi
en glaðlegri og brosandi. Þú varst
ákveðin og með sterkar skoðanir
og mikla réttlætiskennd.
Þegar þú veiktist af þessum
erfiða sjúkdómi vissi ég að það
myndi verða mikil breyting. Ég
var þó þakklátur fyrir að hafa
fengið að kynnast þér áður en
sjúkdómurinn gerði vart við sig.
Fá að kynnast tengdamóður
minni sem þeirri persónu sem hún
var.
Það var kannski svoldið dæmi-
gert fyrir ákveðni þína hvað mað-
ur sá sjaldan á þér að þú værir
með Alzheimer. Einhvern veginn
náðir þú að fela það og bera þig
vel.
Þín er sárt saknað en ég veit að
þú ert á góðum stað í dag. Megi
Guð blessa þig.
Jóhann Svavar Bl.
Þorgeirsson.
Hún mamma mín hefur öðlast
hvíldina löngu. Hún fór í hvíldar-
innlögn og ætlaði að vera í fjórar
vikur en eftir 10 daga kom símtal
frá hjúkrunarfólkinu, Ingibjörg
er látin og beðið er eftir lækni til
að staðfesta. Þetta var gífurlegt
áfall, þrátt fyrir að hún hafi verið
hálflasin síðustu ár m.a. með Alz-
heimer, sem var farið að taka sinn
toll.
Upp rifjast minningarnar,
minningar sem ná yfir hálfa öld og
yfir marga staði. Ég man fyrstu
árin á Húsavík, móðinsblöðin sem
alltaf voru við höndina. Vinnuvett-
lingana sem hún saumaði lengi vel
og ég sat við hliðina á henni með
sleif og sneri við puttunum á
hönskunum þannig að þeir væru á
réttunni. Ég man líka þegar við
fluttum til Reykjavíkur og vorum
til að byrja með bara þrjú í kotinu
því pabbi varð eftir við Laxár-
virkjun til að klára það sem þurfti
að klára þar. Við systkinin og
mamma tókum strætó nr. 3 upp á
Hlemm og löbbuðum síðan niður
Laugaveginn og létum okkur
dreyma um allt sem þar var hægt
var að kaupa, því á þeim tíma voru
allar helstu verslanir bæjarins á
Laugaveginum.
Mamma mín var stolt kona og
ég man eftir því þegar ég fékk
gefins föt frá vinkonu og mamma
hélt nú ekki að við þyrftum á
þessu að halda. Nú skyldum við
finna einhvern sem vantaði allt og
gefa þeim fötin. Það var með eft-
irsjá að ég lét pokann fara því mig
langaði í buxur keyptar í búð sem
þar var. Mamma saumaði nefni-
lega fyrstu árin allt á okkur systk-
inin.
Ég man líka árin sem mamma
vann á Álafossi, alltaf á nætur-
vöktum. Hún svaf á meðan við
eldri systkinin vorum í skólanum
og við skiptumst á að sækja litlu
systur á leikskólann en hún var
þar eftir hádegi. Hún var oft
þreytt og mér fannst ósanngjarnt
að ég þyrfti alltaf að dröslast með
litlu systur hvert sem ég fór.
Seinna fór hún að vinna á Land-
spítalanum og þá varð frítíminn
rýmri. Þegar barnabörnin fóru að
koma í heiminn kom í ljós að
mamma mín átti flottustu barna-
börnin sem fæðst höfðu. Ófá
skiptin kom ég til þeirra pabba og
þá var mamma á röltinu með Ein-
ar og seinna Snorra eftir götunni.
Að skoða laufblöð, steina og sæl-
gætisbréf sem tveggja ára börn
hafa gaman að því að skoða í
gönguferðum.
Hún eignaðist sex barnabörn
og öll voru þau sérstök í hennar
huga. Í minni erfiðu vegferð við að
eignast barn er mér minnisstætt
að við grétum saman þegar ekk-
ert gekk og grétum enn meira
þegar í ljós kom að dóttirin lang-
þráða var í Kína. Hún taldi mig
einstaklega heppna að hafa eign-
ast þessa dóttur, þetta var barnið
sem mér var ætlað og að hún gæti
ekki verið líkari mér þótt hún
hefði verið líffræðilega mín.
Ég er þakklát fyrir að hafa átt
mömmu mína svona lengi, sár yfir
því hversu skyndilega hún fór en
um leið þakklát yfir því að hún
þurfti ekki að þjást lengur. Hún
kvaddi hljóðlega án þess að vera
með læti, enda þoldi hún ekki að
fólk væri með hávaða og óhemju-
gang fyrir framan aðra. Vildi ekki
láta neitt hafa fyrir sér og fór því á
sinn hátt. Hvíl í friði.
Anna Kristín Halldórsdóttir.
Elsku Inga amma, við vorum
svo heppnir að eiga þig sem
ömmu. Þú varst alltaf svo góð við
okkur, alltaf að lauma að okkur
góðgæti og gjöfum. Það var svo
gott að koma í heimsókn og fá al-
vöru ömmu- og afamat, hlýju og
knús.
Nú ertu orðin engill á himnum
og við söknum þín mikið.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson)
Viktor Orri og Mikael Kári.
Ingibjörg María
Kristjánsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Magnús Blöndal Jóhannsson
og Andrés Þór Jóhannsson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar
og amma,
ELÍN KÁRADÓTTIR,
Sóltúni 1, Garði,
lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur 22. september.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey.
.
Hilmar B. Jónsson,
Jón Kári Hilmarsson, Gyða Björk Hilmarsdóttir
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug viða
andlát og útför,
SIGURLÍNU EIRÍKSDÓTTUR,
Smáragrund,
Sleitustöðum, Skagafirði.
Bestu þakkir fær starfsfólk Dvalar-
heimilisins á Sauðárkróki, sr. Halla Rut og allir sem sáu um
söng og tónlist við útförina.
Hver minning er dýrmæt perla.
.
Þorvaldur G. Óskarsson,
Eyrún Ósk Þorvaldsdóttir, Rúnar Páll Björnsson,
Edda Björk Þorvaldsdóttir, Finnur Jón Nikulásson,
barnabörn og barnabarnabörn.
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
KYNNINGAR
VERÐ
Verið
velkomin
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför mannsins míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
VILHELMS HEIÐARS LÚÐVÍKSSONAR
lyfsala.
Guð geymi minningu hans.
.
Kristjana J. Richter,
Vilhelmsbörn, tengdabörn,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HJALTI SIGFÚSSON,
Árskógum 6, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 30.
september. Útförin fer fram fimmtudaginn
13. október klukkan 13 frá Seljakirkju. Þeir sem vilja minnast
hans láti líknarfélög njóta þess. Sérstakar þakkir til starfsfólks
Skógarbæjar fyrir góða umönnun og virðingu.
.
Anna Magnea Jónsdóttir,
Hrund Hjaltadóttir, Guðmundur H. Gunnarsson,
Hulda Hjaltadóttir, Ingi Már Grétarsson,
Sigurjón Hjaltason, Ingunn B. Sigurjónsdóttir,
Einar Hjaltason, Birna Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
LÁRA ÞÓRA MAGNÚSDÓTTIR
ANDERSSON,
lést í Svíþjóð þriðjudaginn 4. október.
Útförin mun fara fram í Svíþjóð.
.
Jón Þórður Jónsson, Sigrún Stella Guðmundsdóttir,
Ellen H.K. Andersson, Torfi Guðmundsson,
Karen Andersson,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUNNFRÍÐUR HREIÐARSDÓTTIR,
Víðilundi 20, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 3. október.
Útförin verður frá Akureyrarkirkju 14.
október klukkan 10.30.
.
Lára Hrafnsdóttir,
Eiður Örn Hrafnsson, Hrönn Sigurðardóttir,
Sólveig Hrafnsdóttir, Kristján Jósteinsson,
Heiðar Þór Hrafnsson, Tatjana Kantorovitch,
Björgvin Ingvi Hrafnsson, Ann Erry Hrafnsson,
Bjarki Ásgeir Hrafnsson, Elisabeth Kløvtveit,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar