Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.10.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 VIÐTAL Guðni Einarsson gudni@mbl.is Veitingahúsið Perlan, sem rekið hef- ur hágæða veitingahús og bar á efstu hæð Perlunnar auk kaffiteríu á 4. hæð, í rúmlega aldarfjórðung, hættir starfsemi í byrjun nýs árs. Í staðinn koma verslanir með útivistarfatnað og minjagripi og kaffihús. Bjarni Ingvar Árnason, veitinga- maður og einn eigenda veitingahúss- ins Perlunnar, oft kallaður Bjarni í Brauðbæ, segir að þau langi að fá að sjá sem flesta gamla viðskiptavini sína koma þá mánuði sem veitinga- húsið Perlan verður opið. „Þetta verða síðustu jólin okkar í Perlunni og síðustu villibráðarhlað- borðin, síðasta skötuhlaðborðið á Þorláksmessu og síðasta gamlárs- kvöldsveislan. Það er uppselt á gaml- árskvöld,“ sagði Bjarni. „Við erum með sama verð og í fyrra og bjóðum gestum okkar að gjöra svo vel og koma! Maturinn í Perlunni hefur aldrei verið betri en nú.“ Meira en hálfa öld í bransanum Bjarni segir það vera í sjálfu sér ótrúlegt að jafn vinsælt veitingahús og Perlan er þurfi að loka dyrum sín- um fyrir gestum. „En borgin þarf hærri leigu og við skiljum það, allir þurfa sitt. Okkur er gert að rýma húsið fyrir 10. janúar 2017,“ sagði Bjarni. Hann sagði að allar innrétt- ingar og búnaður sem tilheyra veit- ingarekstrinum yrði fjarlægt. Perlan var tekin formlega í notkun 21. júní 1991. Bjarni var þá búinn að vera í veitingarekstri frá árinu 1964 þegar hann var 22 ára gamall. Ferill hans sem veitingamanns spannar því meira en hálfa öld. Bjarni byrjaði veitingarekstur á Þórsgötu 1 þar sem hafði verið kaffi- stofa sem var kölluð „Kommakaffi“. Hann nefndi veitingastaðinn Brauð- bæ og bauð upp á smurbrauð og kaffi og síðar einnig heitan mat. Svo hóf hann að framleiða samlokur sem urðu svo vinsælar að þjóðin hesthús- aði 1,5 milljónir Brauðbæjarsamloka á ári. Hótel Óðinsvé fylgdi svo í kjölfar- ið. Bjarni rak einnig kaffihúsið Prik- ið og fleiri veitingastaði. Þá sá hann um veitingarekstur í Viðeyjarstofu og útvegaði veitingar fyrir veislur í Höfða. Reykjavíkurborg þekkti því vel til Bjarna í Brauðbæ þegar leitað var að veitingamanni til að hefja rekstur í Perlunni. „Jóhannes Zoega hitaveitustjóri hafði minnst á það við mig hvort ég hefði áhuga á að reka veitingastarf- semi sem hér yrði til húsa,“ sagði Bjarni. Húsinu var síðan ráðstafað til annarra, en það gekk ekki upp. „Hjörleifur Kvaran borgarlög- maður hringdi svo til mín haustið 1990 og spurði hvort Hótel Óðinsvé væri tilbúið að taka við keflinu. Við sömdum um það á einum eftirmið- degi og mér vitanlega hafa aldrei komið upp nein vandræði á milli að- ila síðan,“ sagði Bjarni. Undirbún- ingur að opnun Perlunnar hófst strax þá um haustið fyrir rúmum 26 árum. Musterið á Öskjuhlíð Bjarni rifjaði upp að bygging Perl- unnar olli miklu pólitísku fjaðrafoki á sínum tíma. Hugmyndin að glerhúsi ofan á hitaveitutönkunum var þó alls ekki ný af nálinni. Sigurður Guðmundsson, sem var annar Íslendingurinn sem lærði byggingarlist á háskólastigi, varpaði fram hugmynd um útsýnisturn og hringlaga veitingahús ofan á hita- veitutönkunum á Öskjuhlíð snemma á millistríðsárunum. Jóhannes S. Kjarval, listmálari og lífsknúnstner, setti einnig fram hugmynd að höll eða musteri á Öskjuhlíð í bók sinni „Grjót“ sem kom út 1980. Hann vildi þekja musterishliðarnar spegilhell- um svo norðurljósin gætu nálgast fætur mannanna. Þá vildi hann skreyta þakið marglitum kristöllum og uppi á mæninum átti að vera ljós- kastari sem lýsti út um alla geima. „Þessir stórkostlegu listamenn sáu báðir hve mikilvægt það var að reisa glæsihús ofan á hitaveitutönk- unum,“ sagði Bjarni. „Það var svo Davíð Oddsson, þáverandi borg- arstjóri, sem lét draumana rætast. Húsið reis með þeim ógnarhraða, sem Davíð einum er líkt, og enn einu sinni lofa verkin meistara sinn. Fyrir þessar gjörðir fékk þó Davíð frekar skammir en þakkir – slík eru laun heimsins.“ Samhentir félagar og vinir Bjarni fékk til liðs við sig sam- starfsmenn sína frá Hóteli Óðins- véum, þá Gísla Thoroddsen mat- reiðslumeistara, sem bar ábyrgð á matreiðslu og þjónustu, og Stefán Sigurðsson sem varð fram- kvæmdastjóri Perlunnar. Gísli lést 2. september 2015, 65 ára, og Stefán lést 13. ágúst 2016, 60 ára. „Þessara góðu félaga minna og samstarfsmanna er sárt saknað,“ sagði Bjarni. „Við lögðum mikið á okkur til að geta opnað veitingahúsið á tilsettum tíma. Ég man alltaf hvað tíminn leið hratt frá því að okkur var falið húsið og þar til Perlan var opn- uð.“ Mikið var vandað til alls búnaðar og hann hefur enst vel. Það þótti merkileg nýjung að gólfið í veitinga- salnum snerist í hring. Þeir fé- lagarnir fundu 14 veitingahús með slíkum búnaði víða um heim. Sum þeirra voru heimsótt. Svo vel tókst til í Perlunni að hún fékk viðurkenn- ingu sem besta veitingahús heimsins með snúningsgólfi. Bjarni segir að snúningsgólfið valdi því að þjónarnir þurfi að ganga lengra en ella. Settur var skrefamælir á einn þjóninn og gekk hann litla 15 km á vaktinni! Snúningsgólfið hefur líka orðið til þess að sumir gestir hafa villst og átt bágt með að finna borðið sitt aftur. „Það var mikið verk að fjámagna þetta allt saman, við þurftum að láta sérsmíða mikið af innréttingum vegna lögunar hússins og svo skall á okkur langvinnt verkfall hjá flutn- ingafyrirtækjum. En kraftaverkið gerðist – við opnuðum Perluna 21. júní 1991,“ sagði Bjarni. Í veitingahúsinu Perlunni hafa starfað að jafnaði um 100 manns í 60- 70 stöðugildum. Í september síðast- liðnum var sagt upp 35 starfsmönn- um sem voru með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Öðru starfsfólki verður sagt upp eftir því sem á líður og uppsagnarfrestir krefjast. Erfitt að sundra fjölskyldunni Bjarni sagði það vera mjög erfitt að þurfa að sundra þeirri samhentu fjölskyldu sem starfað hefur í Perl- unni sem ein órofa heild. Í Perlunni hafa starfað að jafnaði 6-8 faglærðir matreiðslumenn og 6-8 faglærðir framleiðslumenn. Þeir hafa kennt fjölda nema á þeim 25 árum sem liðin eru. Perlan hefur því verið á sinn hátt verkmenntaskóli, að sögn Bjarna. „Aðstæðurnar til kennslu eru mjög góðar hér. Nemarnir sem meistarar Perlunnar hafa útskrifað hafa ávallt verið sómi stéttarinnar og fengið mjög fjölbreytta starfs- reynslu.“ Perlan rekur eigið bakarí, condi- tori og ísgerð. Öll brauð og kökur eru því bökuð á staðnum. Í kaffiteríunni, eða veitingabúðinni, starfa að jafnaði 8-10 manns og við uppþvott, í þvotta- húsi og við þrif, í bakaríinu og muna- búðinni eru um 20 störf. Stefán Elí Stefánsson matreiðslu- meistari stýrir eldhúsi Perlunnar. Hann er sonur Stefáns heitins Sig- urðssonar sem var framkvæmda- stjóri Perlunnar. Sigurður B. Odds- son, mágur Bjarna, er fjármálastjóri og hefur haldið traustum höndum um reksturinn. „Sumum finnst það kannski vera afgangsstærð hvernig haldið er utan um reksturinn á svona stað, en það er ekki reynsla okkar. Okkur finnst reglusemi í fjárreiðum vera eitt af aðalsmerkjum Perlunnar. Það er undirstaða rekstursins til framtíðar litið,“ sagði Bjarni. Hann kvaðst vera stoltur af því að Perlan skuli hafa verið valin „Fyrirmyndarfyrirtæki 2016“. Eiginkonur þeirra Gísla Thor- oddsen og Stefáns Sigurðssonar hafa báðar unnið á skrifstofu Perlunnar. Bryndís Þ. Hannah, ekkja Gísla, er nýlega hætt störfum en Elín Frið- bertsdóttir, ekkja Stefáns, vinnur við bókanir, bókhald o.fl. Að eiga fyrir útförinni „Það hefur löngum verið mikil- vægt fyrir eldri kynslóðina að eiga fyrir útförinni. Það má segja að við eigum fyrir okkar útför úr Perlunni,“ sagði Bjarni. „Þegar við lítum yfir farinn veg er samviskan hrein og okkur líður bara þolanlega. Sárast verður að kveðja samstarfsfólkið sem á stærstan þátt í því hvað okkur hefur gengið vel.“ Hann sagði að það að reka Perl- una í rúm 25 ár hafi ekki alltaf verið dans á rósum. „Það tók okkur sjö mögur ár að finna fjölina okkar. Að finna hana var ekkert væskilsverk. Það kostaði blóð, svita og tár. Sýna þurfti aðhaldssemi á öllum sviðum, en þetta hafðist.“ Bjarni sagði að þau í veitingahús- inu Perlunni óski þeim sem taka munu við rekstri í húsinu velfarn- aðar. Hann sagði að vissulega væri áhugi hjá þeim í Perlunni á að halda áfram starfsemi með þeirri góðu og samhentu áhöfn sem unnið hefur í Perlunni. En til að af því geti orðið þarf aftur að hefja leit að fjölinni góðu. Spurningin er hvort hún finnst og þá hvar það verður. Ævintýrinu lýkur um áramótin  Veitingahúsið Perlan var opnað 21. júní 1991 með pompi og prakt  Þar hafa verið rekin hágæða veitingastaður og veitingabúð síðan  Núverandi leigjendur þurfa að rýma húsnæðið fyrir 10. janúar Morgunblaðið/Golli Perlan Styrmir Örn Arnarsson yfirþjónn (t.v.) og Bjarni Ingvar Árnason veitingamaður búa sig undir að hætta veitingarekstri í Perlunni um næstu áramót. Bjarni er gjarnan kenndur við Brauðbæ. Hann hefur verið veitingamaður í meira en hálfa öld. Í Perlunni starfa um 100 manns í 60-70 stöðugildum. Upphaf ævintýrisins Bjarni Ingvar Árnason framan við Perluna í maí 1991. Undirbúningur stóð sem hæst og var veitingahúsið opnað 21. júní það ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.