Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.10.2016, Qupperneq 14
Áætluð staðsetning BioDome Reykjavík Árbæjarsafn Höfðabakkabrú í Elliðaárdal Elliðaá Hólahverfi Breiðholti BioDome Reykjavík Bergþóra Jónsdóttir bj@mbl.is Borgarráð Reykjavíkurborgar sam- þykkti á fimmtudag að veita vilyrði fyrir byggingu gróðurhvelfinga í jaðri Elliðaárdals norðan við Stekkjarbakka. Það er gert með fyr- irvara um samþykki deiliskipulags. Mannvirkið er um það bil 1.500 fer- metra bygging sem mun falla vel inn í þann þróunarreit sem fyrirhugaður er í Elliðaárdalnum að sögn Hjördís- ar Sigurðardóttur, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins Spors í sandinn ehf., sem er framkvæmdaraðili verk- efnisins Biodome Reykjavík. Þetta verður nýtt kennileiti á miðju höfuð- borgarsvæðinu í góðri tengingu við stærstu útivistarsvæði borgarinnar. Þetta svæði er upphaf hitaveitunnar í borginni, virkjunarmannvirki eru til staðar í dalnum og segir Hjördís því mörg tækifæri felast í staðsetning- unni. Samspil þess og tenging við náttúruna gefi möguleika á skemmti- legum útfærslum. Auk þess muni starfsemin hjálpa til sem leið í nú- tímalegri fasteignaþróun. Deiliskipu- lagsferli taki nú við og draumurinn er að hvelfingarnar muni rísa innan tveggja ára að sögn Hjördísar. Fólk upplifir annan heim „Hugsunin okkar er að fólk geti komið til okkar og upplifað stemmn- ingu sumarsins allt árið um kring. Þetta verður fjölvirkur staður þar sem fram fer ræktun og sala á græn- meti og skyldri vöru, afþreying og upplifun sem nærir bæði sál og lík- ama og með ýmsum hætti hægt að skynja náttúruna. Sem dæmi að stunda jóga undir tónlist sem plöntur framleiða, hvernig megi hlaða síma undir rótum plantna og ýmislegt áhugavert og frumlegt,“ segir Hjör- dís. Hugsunin sé ekki einungis að hafa þarna markaðstorg og ræktun heldur einnig að hafa ráðstefnusali og fundarrými af öllum stærðum í boði fyrir ýmis fyrirtæki og einstaklinga. Hann mun því henta bæði sem af- þreying og verslun fyrir gesti og gangandi en einnig sem vinnurými og aðstaða fyrir atvinnumarkaðinn. Markmiðið með staðnum sé að það skapist samfélag bæði þeirra sem standa að honum og þeirra sem sækja hann að sögn Hjördísar. „Við munum vera með sölutorg fyrir ís- lenska framleiðslu og munum leggja áherslu á lífræna ferska vöru og ræktun því við teljum mikla þörf á því að styðja við slíkt hér á landi,“ segir Hjördís. Glermannvirki rís í Elliðaárdalnum  Nýtt kennileiti á miðju höfuðborgarsvæðinu  Verður fjölvirkur staður 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Pizzastaður sem nýtur mjög mikillar velgengni og býður upp á fjölgun staða undir sama nafni. Kontakt telur að eigandi geti hugsað sér að gera það í samvinnu við meðfjárfesta. • Vinsælt hótel á einstökum stað í nálægð við höfuðborgarsvæðið. Velta eins og um hótel í höfuðborginni sé að ræða. • Kraum, einstök verslun með íslenska hönnun, fatnað og gjafavöru. • Bakarí með nokkra útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu. Gefur ýmsa möguleika til þróunar. • Vefverslun sem hefur starfað um nokkurra ára skeið. Mánaðarleg velta 4 til 5 mkr., hagkvæm lagerstærð og góð framlegð. Öll vara send með Íslandspósti. • Stöndug heildsöluverslun með sérhæfðar vörur fyrir byggingariðnaðinn í mjög góðu og stóru eigin húsnæði á besta stað í borginni. Velta 300 mkr. og afkoma góð. • Öflugt og vel tækjum búið fyrirtæki sem sér um ræstingu atvinnuhúsnæðis. • Bílaleiga með á annað hundrað bíla og fína aðstöðu. Sala mikil í gegn um eigin vefsíðu. Góð EBITDA. • Matvöruverslun á Austurlandi. Löng og góð rekstrarsaga. • Skemmtigarður fyrir barnaafmæli og veislur. Góð skemmtileg og fjölbreytt tæki fyrir krakka á öllum aldri. Löng rekstrarsaga. • Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika fyrir áhugasaman, nýjan eiganda. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is ÚR BÆJARLÍFINU Gunnlaugur Auðunn Árnason Stykkishólmur Hesteigendafélag Stykkishólms er að byggja 600 fermetra reið- skemmu úr límtré við hesthúsa- hverfið. Það styttist í að draumur hestamanna um að eignast bætta aðstöðu verði að veruleika. Með byggingunni batnar öll aðstaða fé- lagsmanna mikið. Hægt verður að stunda reglulega þjálfun hesta yfir vetrartímann og stórefla barna- og unglingastarf. Stykkishólmsbær styrkir bygginguna um 12 milljónir og hestaeigendur fjármagna mis- muninn. Þar reynir mjög á fé- lagsmennina sjálfa við húsbygg- inguna, en þeir eru 50 talsins. Nadine Walter, formaður félagsins, er stolt af sínum félögum og segir að sjálfboðaliðar mæti vel til starfa, sem eflir samstöðuna. Það er mikil tilhlökkun að geta komist í nýja og góða aðstöðu. Tvær samskonar reiðskemmur er verið að reisa á Snæfellsnesi, að Lýsuhóli og í Ólafs- vík.    Þjóðvegurinn um Skógar- ströndina versnar með hverju ári sem líður og hefur ekki verið verri en í sumar. Ástand hans er vaxandi slysagildra eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. Umferð hefur aukist vegna fjölgunar ferðamanna. Veg- urinn gegnir mikilvægu hlutverki að tengja saman Snæfellsnesið við Vestfirði og Norðurland. Vegurinn styttir vegalengdina um 90 kíló- metra í Búðardal og 60 km í Stað- arskála. Bifreiðar sem aka Skógar- ströndina eru oftast auðþekkjan- legar þegar í Hólminn er komið. Sú þjónusta sem ökumenn þeirra nota fyrst er þvottaplan Olís og dekkja- verkstæðið. Eigandi verkstæðisins segir að ástand vegarins skapi hon- um vaxandi tekjur og að hann þurfi að gefa út afkomuviðvörun ef farið verður í endurbætur á veginum.    Það er góður gangur í ferða- þjónustunni. Ferðamönnum hefur fjölgað mikið það sem af er árinu. Mest er fjölgun erlendra ferða- manna á allskyns bílaleigubílum. Gistirýmum hefur fjölgað í bænum, en ekki nóg til að anna eftirspurn. Áhrif ferðamannanna koma víða fram í bæjarfélaginu. Í sumar störf- uðu sjö veitingastaðir og verða flest- ir þeirra opnir í vetur. Aðsókn að söfnum, sundlauginni og tjaldstæði hefur verið góð. Í sumar komu til Stykkishólms 14 skemmtiferðaskip og hefur ferðum þeirra fjölgað á síð- ustu árum. Nú telst það ekki lengur til tíðinda þó sjáist farþegaskip við hafnarkantinn.    Rán ehf. í eigu Kristjáns Bernts- sonar og Eydísar Jónsdóttur hefur fengið leyfi til að reisa 8 smáhýsi við tjaldstæðið í Hólminum. Um er að ræða 35 fermetra hús með 2 her- bergjum og er undirbúningur að byggingu hafinn. Húsin verða til út- leigu fyrir ferðamenn. Tilraunaveiðar á hörpuskel eru hafnar þriðja árið í röð. Verið er að rannsaka betur ákveðin svæði og meta hvaða áhrif veiðarnar hafa á viðkvæman hörpudisksstofninn. Veiðum var sjálfhætt árið 2003 er skelstofninn hrundi vegna sýkingar. Heimilt er að veiða um 800 tonn á tímabilinu. Veiðar hafa gengið vel, falleg skel sem hentar vel til vinnslu. Einn bátur stundar í fyrstu veið- arnar og er aflinn um 8-9 tonn á dag. Skelin er unnin hjá Agustson ehf.    Miklar byggingarframkvæmdir eru í bænum og meiri en hefur verið um langt árabil. Mikið er að gera hjá iðnaðarmönnum og vantar fólk til starfa. Það er verið að byggja íbúð- arhús, leiguíbúðir og endurbyggja og viðhalda gömlum húsum. Til að fylgja eftir aukinni eftirspurn hefur bæjarstjórn opnað fyrir byggingar í nýju hverfi þar sem áður var bærinn Vík.    Hafin er stækkun við grunnskól- ann. Um er að ræða 500 fermetra menningarbyggingu sem mun hýsa starfsemi Amtsbókasafnsins, skóla- safns og ýmsa menningarviðburði. Skipavík ehf. tók að sér verkefnið í alútboði og skilar verkefninu eftir tæpt ár.    Í Stykkishólmi virðast vera bjartir tímar framundan. Það sem styrkir þá sýn er að íbúum hefur fjölgað um 3,7% frá áramótum og eru nú 1.147. Ný reiðskemma í Hólminum Morgunblaðið/Ómar Stykkishólmur Mikið líf er við höfnina alla daga og skipaumferð hefur aukist verulega undanfarin ár. SAMFOK, umboðsmaður barna og Heimili og skóli hafa látið gera myndbönd um skólaráð og nem- endafélög í grunnskólum. Miklar breytingar urðu í lýðræðisátt á að- komu nem- enda og for- eldra að skólastarfinu með nýjum grunn- skólalögum ár- ið 2008 og er myndböndunum ætlað að skerpa á helstu atriðum, segir í tilkynn- ingu. Þau eru hugsuð fyrir aðila skólasamfélagsins og alla aðra sem koma að starfi og rekstri grunnskólanna. Um er að ræða hreyfimyndir sem fræða áhorfand- ann um helsta hlutverk og ábyrgð þeirra sem sitja í skólaráði og stjórnum nemendafélaga. Fræðsl- an er sett fram á aðgengilegan og einfaldan máta með léttu ívafi. Stefnt er að því að gera sams kon- ar myndband fyrir foreldrafélög í grunnskólum á næsta ári. Myndböndin eru unnin í sam- vinnu við hreyfimyndagerðina FREYJU, með stuðningi Reykja- víkurborgar. Myndbönd fyrir skólasamfélagið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.