Morgunblaðið - 08.10.2016, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í dag eru 22 dagar þangað til Íslend-
ingar ganga til alþingiskosninga.
Óvissa hefur verið um þinglok og
hefur hún sett mark sitt á störf Al-
þingis.
Síðast var þing rofið og boðað til
kosninga árið 2009. Þann 13. mars
það ár las Jóhanna Sigurðardóttir,
forsætisráðherra minnihlutastjórnar
Samfylkingar og Vinstri grænna,
forsetabréf um þingrof og að kosn-
ingar skuli fara fram 25. apríl það ár.
Reyndin varð sú Alþingi starfaði
fram til 17. apríl, þ.e. í meira en mán-
uð fram yfir útgáfu þingrofs-
boðskapar. Þingstörfum var því
frestað aðeins átta dögum fyrir kjör-
dag.
Heitt var í kolunum
Talað er um eldfima stöðu á Al-
þingi nú en hún er hátíð miðað við
það sem gekk á í þingsölum vorið
2009. „Þung orð féllu og ásakanir um
ósannindi, málþóf og tvöfeldni“ var
lýsing Morgunblaðsins á þingstörf-
unum síðasta daginn.
Þegar skoðaðar eru ræður sem
fluttar voru um frumvarp um frestun
á fundum Alþingis, sem fram fóru 17.
apríl, má sjá að heldur betur hefur
verið heitt í kolunum. Athugasemdir
ræðuritara eru feitletraðar.
Hér kemur fyrst bútur úr ræðu
Bjarna Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins:
„Virðulegi forseti. Senn líður að
lokum þessa þings og verður gengið
til kosninga. Vafalaust hafa margir
borið í brjósti miklar vonir um að sú
minnihlutastjórn sem nú skilar inn-
an skamms af sér völdum, skilar
þeim til baka, skilar af sér umboðinu,
mundi standa við stóru orðin, mundi
nýta þennan skamma tíma sem hún
hugðist starfa til að bæta ástandið
enda var lagt upp með það í upphafi
þessarar vegferðar að afar brýnt
væri að ganga ekki til kosninga fyrr
en undir vorið vegna þess að í milli-
tíðinni átti að grípa til aðgerða sem
brýnt væri að hrinda í framkvæmd.
Margir trúðu því að gripið yrði til
raunhæfra aðgerða til að takast á við
vanda heimila og fyrirtækja. Þær
vonir eru nú brostnar, væntingum
um að á starfstímanum mundi ríkis-
stjórnin laga ástandið hefur verið
mætt með veikari krónu, auknu at-
vinnuleysi og endurreisn bankanna
hefur tafist.“
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra svaraði Bjarna:
„Herra forseti. Þetta er alveg ótrú-
leg ræða hjá formanni Sjálfstæð-
isflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn
taldi í janúar að það væri ekki rétt að
kjósa fyrr en í fyrsta lagi í haust
vegna þess að það þyrfti svo um-
fangsmiklar og viðamiklar björg-
unaraðgerðir (Gripið fram í: Leið-
togastjórn.) hvers konar ríkisstjórn
sem hefði innt það af höndum. Svo
illa mat Sjálfstæðisflokkurinn í jan-
úar að búið væri að fara með íslenskt
efnahagslíf og íslenskan þjóðar-
búskap að það þyrfti upp undir ár til
að reyna að greiða þannig úr málum
að hægt væri að kjósa. (Gripið fram
í.) Síðan gefst sú ríkisstjórn upp og
ríkisstjórn er mynduð sem hefur inn-
an við (Gripið fram í: Það var Sam-
fylkingin sem gafst upp.)“
Næst svarar Bjarni Steingrími:
„Virðulegi forseti. Meginatriði máls-
ins er þetta: Ástandið í dag er verra
en það var þegar ríkisstjórnin tók
við. Það er alveg rétt hjá hæstv. fjár-
málaráðherra, það hefði verið betra
að nýta tímann til að bæta ástandið
fram að kosningum. Það er nákvæm-
lega það sem við sögðum í lok janúar
þegar ríkisstjórnin sprakk: Nú þarf
að grípa til aðgerða til að bæta
ástandið. Niðurstaðan af þessum
leiðangri minnihlutastjórnarinnar er
sú að ástandið hefur versnað þannig
að tímanum hefur verið illa varið og
það er meginatriði málsins. Tím-
anum í þinginu hefur m.a. verið varið
(LB: Í málþóf.) í að setja ný met.
[Háreysti í þingsal.] Virðulegi for-
seti. Það hafa verið sett met hérna,
hvert metið á fætur öðru. (Gripið
fram í: Í málþófi.) Sá sem á Íslands-
metið í málþófi (Gripið fram í.) situr
hér sem hæstv. forsætisráðherra.
Það met verður aldrei slegið. [Há-
reysti í þingsal.] Virðulegi forseti.
(Forseti hringir.) (Forseti (GuðbH):
Forseti biður hv. þingmenn að gefa
ræðumanni tækifæri til að flytja mál
sitt.)
Og Steingrímur svarar Bjarna:
„Þetta er alveg kostulegt. Hver hafði
þingrofsvald í lok janúarmánaðar
sl.? Formaður Sjálfstæðisflokksins.
Hann sagði af sér í stað þess að fara
til forsetans og óska eftir kosn-
ingum. Nú kemur arftaki hans og
segir að þetta hafi verið mistök, það
hefði átt að kjósa í janúar. Á þeim
tíma sagði Sjálfstæðisflokkurinn:
Það er þvílíkt verk að vinna að greiða
hér úr neyðarástandinu í samfélag-
inu eftir 18 ára valdatíma okkar að
við þurfum helst ár til þess. Hvað er
búið að gerast síðan 1. febrúar til og
með nú? Sjálfstæðisflokkurinn hefur
hér á þingi stutt líklega upp undir 30
frumvörp frá ríkisstjórninni (Gripið
fram í: Segðu svo að …) sem lúta að
því að búa um heimili og fyrirtæki í
landinu. Með öðrum orðum, þing-
menn Sjálfstæðisflokksins hafa talið
öll þau mál svo góð að þeir hafa
greitt þeim atkvæði. (Gripið fram í.)
Að koma svo hér og [Háreysti í þing-
sal.] segja að ekkert hafi verið gert.
Það rekur sig (Gripið fram í: Hvað
hefur stjórnarandstaðan gert …?)
hvað á annars horn hjá aumingja
Sjálfstæðisflokknum, það stendur
ekki steinn yfir steini í þessum mála-
tilbúnaði. Þetta er mesta ráðleysi
sem ég hef nokkurn tímann séð hjá
flokki viku fyrir kosningar svo mað-
ur tali ekki um birtingarmyndir
þingflokks Sjálfstæðisflokksins á Al-
þingi síðustu daga þar sem geð-
vonska virðist ráða för (Gripið fram
í: Nú?) (Gripið fram í: Ha?) fyrst og
fremst. [Háreysti í þingsal.] Flokk-
urinn byltist hér í þvílíkum stell-
ingum að ég (Gripið fram í.) [Hlátur
í þingsal.] já, ég skal gera það. Ég á
ekkert sérstaklega við hv. þm. Arn-
björgu Sveinsdóttur en ég hef haft
það á tilfinningunni að það hafi ekki
legið neitt sérstaklega vel á hv. þing-
mönnum Birni Bjarnasyni og Sturlu
Böðvarssyni. [Hlátur í þingsal.]
(Gripið fram í: Hvernig fær maður
vinstri kreppuna?)“
Þingi lauk með hvelli vorið 2009
Þingstörfum lauk aðeins átta dögum fyrir kosningar „Þung orð féllu og ásakanir um ósannindi,
málþóf og tvöfeldni“ var lýsing á síðasta þingdeginum Háreysti og bjöllusláttur í þingsalnum
Morgunblaðið/Golli
Þinglok 2009 Að venju var glatt á hjalla þegar forseti hafði slegið í bjölluna í síðasta sinn og þingmenn kvöddust
með virktum. Margir gamalreyndir þingmenn hurfu af þingi. Ekki var að sjá að mikið átakaþing væri að baki.
„Fremur fámennt hefur verið
við umræður á þingfundum Al-
þingis seinustu daga. Margir
þingmenn hafa verið uppteknir
við kosningabaráttuna, enda
stutt í kjördag. Látlausar þreif-
ingar áttu sér stað í allan gær-
dag, þar sem reynt var að ná
samkomulagi um lokaafgreiðslu
þingmála og þinglokin.“
Svona skifaði Morgunblaðið
17. apríl 2009 og minnir þetta
óneitanlega á stöðuna sem nú
er uppi á Alþingi.
Fram kom í fréttinni að þing-
menn hefðu skipt með sér verk-
um. Þeir þingmenn sem ekki
leituðu eftir endurkjöri báru hit-
ann og þingann af þingstörf-
unum þessa daga.
Fámennt í
þingsalnum
BARÁTTAN Á FULLU
Morgunblaðið/Ómar
Alþingi Margar sjóðheitar umræður fóru fram á þinginu 2009. Bjarni Bene-
diktsson og Steigrímur J. Sigfússon tóku marga snerruna í þingsalnum.
HelgiÓlafurMagnúsSigurður J. Helgi MárBergsveinn
TIL LEIGU
Skipholt 31 – 105 Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði
2. og 3. hæð hússins
Stærð samtals 1.200 fm.
Virðisaukaskattslaust.
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í
sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir
netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er
við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í
síma 824-6703. Laust strax.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Dómkirkjan efnir til slökkviliðsmessu sunnudaginn 9. október kl. 11.
Tilefnið er 220 ára afmæli kirkjunnar, en skrúðhús hennar var fyrsta
slökkvistöð Reykjavíkur og var þá nefnt Sacristie- og Spröjtehus. Þessu
hlutverki gegndi skrúðhúsið frá 1827-1886. Af þessu tilefni er boðið til sér-
stakrar guðsþjónustu. Fulltrúar slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
munu lesa texta við messuna. Karl Sigurbjörnsson predikar og þjónar fyrir
altari. Gamlir slökkvibílar og búnaður verða til sýnis við kirkjuna. Eftir
messu býður kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar til messukaffis í Safn-
aðarheimilinu að Lækjargötu 14. Allir eru velkomnir í messu og kaffi.
Slökkviliðsmessa í Dómkirkjunni