Morgunblaðið - 08.10.2016, Page 25

Morgunblaðið - 08.10.2016, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 VÖNDUÐ JEPPADEKK FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR DICK CEPEK dekkin eru amerísk gæðavara og þekkt fyrir frábæra endingu, auk þess að vera afar hljóðlát. DICK CEPEK dekkin fást í þremur mismunandi útfærslum í stærðum frá 29 til 44 tommu, og passa því undir flestar gerðir jeppa og jepplinga. NOKIAN er einn virtasti framleiðandi í heimi á vetrardekkjum. Arctic Trucks hefur átt gott samstarf við Nokian sem skilað hefur frábærum árangri, enda koma hér saman tveir sérfræðingar í vetrarakstri. AT315 35 tommu dekkið er afrakstur þessa samstarfs og í byrjun næsta árs er væntanlegt á markað nýtt 44 tommu dekk sem sérstaklega er hannað til aksturs við afar erfiðar aðstæður að vetri til. ÖLL ALMENN DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900 EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.comflóttafólk. „Þau hrópuðu hótanir eins „við drepum ykkur“. Þau voru drukkin. Við vorum svo hrædd,“ segir Sadia Azizi, hælisleitandi frá Afganistan. AFP Flúðu stríð Sýrlenskar konur, Lana og Farida, í Clausnitz í Saxlandi. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Juan Manuel Santos, forseti Kól- umbíu, hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár fyrir tilraunir sínar til að binda enda á meira en 50 ára átök í land- inu. Hann varð fyrir valinu þótt friðarsamningi hans við skæruliða- samtökin FARC hefði verið hafnað mjög naumlega í þjóðaratkvæða- greiðslu á sunnudaginn var. Santos hafði verið talinn líklegur til að hreppa friðarverðlaunin ásamt leiðtoga FARC, Rodrigo Lonono, þar til friðarsamningnum var hafnað og margir töldu að niðurstaða þjóðaratkvæðisins yrði til þess að þeir ættu ekki möguleika á verð- laununum. Ákvörðun nóbels- verðlaunanefndarinnar kom því flestum á óvart og nokkrir frétta- skýrendur undruðust að skæruliða- leiðtoginn skyldi ekki fá verðlaunin ásamt forsetanum. Kaci Kullmann Five, formaður nefndarinnar, sagði að Santos hefði verið valinn vegna staðfestu hans í baráttunni fyrir friði í Kólumbíu. Kullmann hvatti allar fylkingarnar í stríðinu í Kólumbíu til að framlengja vopnahléssamning sem fellur úr gildi í lok mánaðarins. „Það er raun- veruleg hætta á því að friðarumleit- anirnar stöðvist og borgarastríðið blossi upp að nýju,“ sagði hún. Mjög nálægt friði Santos sagði að Kólumbíumenn væru „mjög, mjög nálægt“ því að tryggja varanlegan frið í landinu og friðarverðlaunin væru „mikil hvatn- ing“ í þeirri baráttu. Hann kvaðst tileinka verðlaunin fórnarlömbum stríðsins. Að minnsta kosti 260.000 manns hafa látið lífið, auk þess sem 45.000 er saknað, og nær sjö millj- ónir manna hafa þurft að flýja heim- kynni sín vegna stríðsins frá því að það hófst fyrir rúmlega 50 árum. Santos er 65 ára, fæddist í Bógóta, og er af auðugri fjölskyldu sem hef- ur verið áhrifamikil í stjórnmálum og fjölmiðlum landsins. Hann nam hagfræði við London School of Economics og starfaði sem blaða- maður áður en hann haslaði sér völl í stjórnmálunum. Hann var varnar- málaráðherra á árunum 2006 til 2009 og stjórnaði þá mikilli sókn kólumb- íska hersins gegn skæruliðum FARC. Eftir að hann varð forseti ár- ið 2010 söðlaði hann um og hóf friðarviðræður sem stóðu í nær fjög- ur ár. Santos hlýtur Nóbelinn  Hvatt til friðar í Kólumbíu AFP Heiðraður Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, verður sæmdur friðarverðlaunum Nóbels í Ósló 10. desember. John Kerry, utanríkis- ráðherra Banda- ríkjanna, sagði í gær að hefja þyrfti alþjóðlega rannsókn á því hvort Rússar og sýrlensk stjórn- völd hefðu gerst sek um stríðs- glæpi með árás- um á óbreytta borgara í Sýrlandi. Hann sagði árásirnar gerðar af ásettu ráði til að valda skelfingu meðal íbúa á svæðum sem eru á valdi uppreisnarmanna. STRÍÐIÐ Í SÝRLANDI Vill rannsókn á stríðsglæpum John Kerry utan- ríkisráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.