Morgunblaðið - 08.10.2016, Side 49
49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016
» Tvær sýningar voru opnaðar í ListasafniReykjavíkur, Hafnarhúsi, í gærkvöldi, þ.e.
Yoko Ono: Ein saga enn... og Erró: Stríð og frið-
ur. Við það sama tækifæri veitti Ólöf Kristín Sig-
urðardóttir safnstjóri Hildigunni Birgisdóttur
viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Krist-
insdóttur, fyrir framlag hennar á sviði mynd-
listar. Erró stofnaði sjóðinn til minningar um
móðursystur sína, Guðmundu. Þetta var í 17.
skipti sem styrkur er veittur úr sjóðnum en
framlagið rennur til listakonu sem þykir skara
fram úr. Markmiðið er að styrkja listakonur með
því að veita framlag til viðurkenningar og efl-
ingar listsköpun þeirra.
Yoko Ono og Erró sýna verk sín í Hafnarhúsi
Listamenn Yoko Ono og Sean, sonur hennar, í Listasafninu í gær. List Yoko Ono lagði sig fram með pensil og liti.
Verðlaun Hildigunnur Birgisdóttir fékk viðurkenningu úr Listasjóði
Guðmundu S. Kristinsdóttur fyrir framlag á sviði myndlistar.
Morgunblaðið/Ófeigur
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK | 2016
Heimur Giuliu er lokaður ogeinangraður. Fjölskyldahennar tilheyrir vottumJehóva og í þeim heimi
lifir hún og hrærist. Skólinn er önnur
veröld, sem segja má að hún heim-
sæki án þess að tilheyra. Giulia geng-
ur í hús ásamt vinkonu sinni að boða
fagnaðarerindið og hjálpar til í fyr-
irtæki fjölskyldunnar. Í skólanum
heldur hún aftur af sér og sýnir still-
ingu þegar henni er strítt. Hún er af-
burðanemandi og brillerar í stærð-
fræði. Háskólanám ætti að blasa við,
en fjölskyldan leggst gegn því. Það er
hinn veraldlegi heimur og hann er
forboðinn.
Viðhorf votta Jehóva til kristni eru
í mörgu óhefðbundin. Þeir halda
hvorki jól, páska, né aðra hátíðisdaga
og fagna ekki afmælum og segja það
heiðna siði, sem samrýmist ekki
kristni. Þeir hafna heilagri þrenn-
ingu, neita að gegna herþjónustu og
þiggja ekki blóðgjafir, svo eitthvað sé
nefnt.
Söfnuðurinn gerir miklar kröfur til
þeirra sem í honum eru. Þeir sem
misstíga sig í þeim efnum hætta að
vera til. Ein af reglunum er að efna
ekki til sambanda út fyrir söfnuðinn,
við hina veraldlegu. Það getur þýtt
útskúfun. Vottar Jehóva mega ekki
einu sinni heilsa þeim sem hafa verið
útskúfaðir, ef þeir hitta þá á götu.
Í einni af biblíuheimsóknum sínum
til nágrannakonu hittir Giulia smá-
glæpamanninn Libero. Hann er ný-
kominn úr fangelsi og er hjá móður
sinni. Hann fyllist tortryggni þegar
hann sér að hún er komin með vott
Jehóva inn á gafl og hundskammar
hana. Giulia fær hins vegar samúð
með hinum unga manni og þegar
móðir hans segir að hann vilji snúa
baki við lífi glæpa ákveður hún að
hjálpa honum.
Faðir Giuliu fellst á að ráða hann til
vinnu á verkstæði sínu. Í upphafi
gengur allt vel. Libero er duglegur og
vinnur vel. Hann fer líka að laðast að
Giuliu og hún að honum. Á verkstæð-
inu fer hins vegar að kastast í kekki.
Vinnufélagar hans eru vottar og
treysta ekki hinum veraldlega nýliða.
Hann þolir hins vegar tortryggnina í
sinn garð illa.
Veraldarvana stúlkan – veraldlega
hefði verið betri þýðing því að Giulia
er allt annað en veraldarvön þótt klár
sé – lýsir því vel hvernig þrengir að
henni í hinum lokaða heimi votta Je-
hóva.
Þegar Giulia vekur máls á því að
fara í háskóla bregðast foreldrar
hennar öndverðir við og faðir hennar
segir að með slíkum hugmyndum
setji hún sjálfa sig í fyrsta sæti, ekki
trúna.
Samband sitt við Libero þorir hún
hins vegar hvergi að nefna. Þau skjót-
ast frá í vinnunni út í bílinn hans til að
kyssast á laun.
Í návist Giuliu verður húðflúraða
hörkutólið Libero mjúkur og meyr.
Hann skilur ekki hvað hún er hikandi,
en virðir hennar óskir engu að síður.
Laumuspilið gengur vitaskuld ekki
til lengdar og þegar upp um sam-
bandið kemst er Giulia kölluð fyrir
öldungaráð safnaðarins. Þar upphefst
magnaðasta atriði myndarinnar þeg-
ar forustumaður safnaðarins byrjar
að spyrja hana nærgöngulla spurn-
inga um hversu langt þau hafi gengið
í ástaratlotum sínum. Ágengni hans
er svo klúr og virðingarleysið fyrir
friðheldi einkalífsins svo algert að
vekur klígju.
Einn helsti styrkleiki myndarinnar
er í því fólginn að vottum Jehóva er
ekki lýst sem óargadýrum. Hann
verður jafnvel eins og vin í spilltum
og syndugum heimi í atriði þar sem
sýnd er skírn og gleðin skín úr andlit-
um viðstaddra.
Forustumenn safnaðarins eru allt-
af rólegir og yfirvegaðir. Undirniðri
býr þó alltaf hótunin um að feilspor
geti kostað útskúfun. Það er ekki auð-
velt að stíga skref sem getur kostað
alger slit við fjölskyldu og vini það
sem eftir er. Faðir hennar er mildur
og ljúfur. Hann skammast ekki og
rífst, heldur reynir að tala um fyrir
dóttur sinni. Að vissu leyti er hægt að
skilja að hann vilji vernda dóttur sína
fyrir heimi Liberos. Faðmlag hans er
hins vegar kæfandi og þegar á reynir
er hann svo handgenginn söfn-
uðinum, að hann megnar ekki að
standa með dóttur sinni.
Veraldarvana stúlkan ber þess ekki
merki að vera fyrsta mynd Marcos
Danielis í fullri lengd. Honum tekst
vel að sýna togstreituna milli hinna
ólíku heima, sem eru hver ofan í öðr-
um, þótt heimsálfur virðist á milli.
Sara Serraiocco nær vel sálarvíli
stúlkunnar, sem vill brjótast út úr
prísund sinni, en veit að það getur
kostað hana fjölskyldu hennar og það
líf, sem hún þekkir.
Michele Riondino er afbragðsgóður
í hlutverki hins hvatvísa Liberos.
Nafn hans er kannski full táknrænt.
Um leið og nafnið heyrist er ljóst að
hann mun verða örlagavaldur, frels-
inginn í lífi Giuliu.
Pippo Delbono finnur sig sérlega
vel í hlutverki leiðtoga safnaðarins,
sorgmæddur á svip með slapandi
kinnar. Í áðurnefndu atriði þar sem
Giulia er yfirheyrð sýnir hann að það
þarf ekki alltaf yggla brún og hvæsa
til að manni renni kalt vatn milli skins
og hörunds.
Það verða alltaf einhverjir, sem
reyna að stjórna lífi annarra, hvort
sem það er í nafni trúarbragða eða
hugmyndafræði. Þegar upp er staðið
fjallar Veraldarvana stúlkan um hið
kæfandi faðmlag forræðishyggj-
unnar.
Forboðin ást Sara Serraiocco og Michele Riondino í hlutverkum sínum í kvikmyndinni Veraldarvönu stúlkunni.
Hið kæfandi faðmlag
Riff
Veraldarvana stúlkan bbbmn
Leikstjóri: Marco Danieli. Ítalska. Leik-
arar: Sara Serraiocco, Michele Riond-
ino, Eugenio Banella, Pippo Delbono,
Marco Leonardi og Stefania Montorsi.
Ítalía, Frakkland, 2016. 101 mín.
Flokkur: Vitranir.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Bíó Paradís: Lau. 8. okt. kl. 15.45
Verðlaunaafhending Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík
(RIFF) fer fram í kvöld og verða
veitt sex verðlaun í ár. Í flokknum
Vitranir tefla ellefu nýir leikstjórar
fram sinni fyrstu eða annarri mynd
í fullri lengd og keppa um aðal-
verðlaun RIFF, Gullna lundann. Í
dómnefnd sitja Jonas Holmberg,
listrænn stjórnandi kvikmyndahá-
tíðarinnar í Gautaborg, Grímur Há-
konarson leikstjóri og Yrsa Sigurð-
ardóttir rithöfundur. Þá verða
umhverfis- og mannréttinda-
verðlaun RIFF veitt fyrir bestu
myndina í flokknum Önnur framtíð
og sitja Brian D. Johnson, formaður
samtaka kvikmyndagagnrýnenda í
Toronto, Lilja Snorradóttir fram-
leiðandi og Þóra Tómasdóttir rit-
stjóri í dómnefnd. Þrenn stutt-
myndaverðlaun verða veitt, fyrir
bestu íslensku stuttmyndina, bestu
erlendu stuttmyndina og Gullna
eggið kemur í hlut bestu mynd-
arinnar á Talent Lab. Í dómnefnd
sitja Þóranna Sigurðardóttir kvik-
myndagerðarmaður, Kate Hide hjá
Hanway Films í London og Ragnar
Hansson leikstjóri. Þá verða áhorf-
endaverðlaun RIFF og mbl.is veitt
fyrir bestu myndina í flokki heim-
ildarmynda og flokknum Fyrir
opnu hafi.
„Athygli vekur að í flokknum
Vitranir í ár eru sex leikstjórar af
ellefu kvenkyns. RIFF lagði í fyrra
sérstaka áherslu á verk kvenna og
um konur, og hlutföllin eru því sér-
staklega ánægjuleg. Myndirnar í
flokkunum hafa þegar hlotið ýmis
verðlaun víða um heim. Sér-
staklega má nefna Risann í leik-
stjórn Johannes Nyholm og Garð í
leikstjórn Sofia Exarchou en báðar
myndirnar unnu nýverið til verð-
launa á kvikmyndahátíðinni í San
Sebastian. Garður hlaut þar New
Directors-verðlaunin, sem íslenska
kvikmyndin Hross í oss hlaut árið
2013,“ segir í tilkynningu frá RIFF.
Risinn Stilla úr Risanum (The Giant) í
leikstjórn Johannesar Nyholm.
Verðlaunaafhend-
ing RIFF í dag
MIDDLE SCHOOL 2, 4, 6
MAGNIFICENT 7 9, 10:30
FRÖKEN PEREGRINE 2, 5, 8
BRIDGET JONES’S BABY 6, 8
EIÐURINN 10:35
STORKAR 2D ÍSL.TAL 2, 4
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2