Morgunblaðið - 08.10.2016, Síða 52

Morgunblaðið - 08.10.2016, Síða 52
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 282. DAGUR ÁRSINS 2016 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Myndi ekki gerast í neinu … 2. Féllust í faðma í þinginu 3. „Ég er svolítið meyr í dag“ 4. Reif í treyju dómarans …  Þekktir listamenn frá Norður- heimskautssvæðinu kynna menningu sína og listir í Kaldalóni Hörpu annað kvöld kl. 20-22. Miðar eru seldir á harpa.is og við innganginn. Milli kl. 18 og 22 sama dag fer fram sýning á frumbyggjalist norðurslóða á 2. hæð Hörpu og þar er aðgangur ókeypis. Frumbyggjalist norð- urslóða í Kaldalóni  Óperan Évgení Onegin eftir Pjotr Tsjajkovskíj verð- ur kynnt í Hann- esarholti í kvöld kl. 18.00–19.30, en óperan verður frumsýnd í Eld- borg Hörpu 22. október. Nokkrir söngvarar uppfærsl- unnar flytja valin tónlistaratriði, en á píanóið leikur Bjarni Frímann Bjarna- son, sem er aðstoðarhljómsveit- arstjóri sýningarinnar. Óperukynning í Hannesarholti í kvöld  Falk útgáfa og tónleikahaldari stendur ásamt DJ hópnum Plútó fyrir teknótónum Perc á Palóma Bar. Perc er hliðarsjálf breska tónlistarmanns- ins Ali Wells sem hefur sl. áratug unnið sér virðingu sem stórt nafn sem plötusnúður í teknó-geiranum. Klúbbakvöldið hefst í kvöld kl. 23.30, en Perc mun þeyta skífum í tvær klukkustundir. Perc til halds og trausts verða Frank Ho- nest/ Nicholas O’Keefe, Tandri og Nærvera. Perc kemur fram á Palóma Bar í kvöld FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-15 m/s og dálitlar skúrir og rigning austast. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan. Á sunnudag Suðaustan 10-18 m/s og rigning, hvassast á annesjum, en úrkomulítið NA-lands. Snýst í sunnan 8-13 með skúrum SV-til síðdegis. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast fyr- ir norðan. Á mánudag og þriðjudag Sunnan og suðvestan 5-10 m/s og skúrir. Hiti 5 til 10 stig. Eftir sigurinn ótrúlega á Finnum eru Tyrkir næstu andstæðingar Íslands í undankeppni HM karla í knattspyrnu, annað kvöld í Laugardal. Lið Tyrkja er gjörbreytt frá því þegar Ísland vann 3:0-sigur á þeim fyrir tveimur árum. Hannes Þór Halldórsson og Jón Daði Böðvarsson ættu að geta spilað á ný eftir meiðsli, en hver fyllir skarð Ar- ons Einars Gunnarssonar? »1 og 2 Tyrkir vonandi næstu fórnarlömb í Laugardal Íslands- og bikarmeistarar KR í körfuknattleik karla byrjuðu með látum í Dom- inos-deildinni í gærkvöldi og unnu stórsigur á öflugu liði Tindastóls 98:78. Þó eru meistararnir án Jóns Arnórs og Pavels, auk þess sem bandaríski leikmaðurinn var ekki með. Nýliðar Þórs á Ak- ureyri lentu í framlengingu gegn Stjörnunni en Garðbæ- ingar höfðu betur. »2-3 Meistararnir byrja með látum ,,Mér finnst gaman þegar strákarnir koma til mín og leita ráða. Ég segi þeim hiklaust hvað mér býr í brjósti um það sem þeir þurfa að laga og þeir skilja það. Þeir hlusta á mig og ég er mjög ánægður með það,“ segir Ármann Smári Björnsson, besti leik- maður Íslandsmóts karla í knatt- spyrnu 2016, sem ætlar sér aftur inn á völlinn þrátt fyrir að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum undir lok móts- ins. »4 Segi þeim hiklaust hvað mér býr í brjósti Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Frásagnir af innrásinni á Normandí hafa alltaf verið nálægar mér. D- dagurinn markaði skil í gangi síðari heimsstyrjaldar og sagan hefur sótt á mig af skiljanlegum ástæðum. Mig hafði alltaf langað til Normandí og að komast á Omaha-ströndina. Loks- ins gafst svo tækifærið og þessi leið- angur verður eftirminnilegur,“ segir Ólafur Jóhannsson, framkvæmda- stjóri í Garðabæ. Hann er fæddur 6. júní 1944 – 060644 – það er daginn sem herlið Breta og bandamanna sigldu yfir Ermarsundið til innrásar á norðurströnd Frakklands, það er til hernaðaraðgerða sem urðu vendi- punktur í gangi seinni heimsstyrj- aldarinnar og réðu sjálfsagt úrslitum um að Bretum og bandamönnum tókst að brjóta Þjóðverja, Hitler og nasismann á bak aftur. Ertu fæddur á D-daginn? Á dögunum var hópur Íslendinga í leiðangri með Bændaferðum um norðurhéruð Frakklands og kom þá meðal annars við á svæðinu þar sem innrásin sögulega var gerð. Ólafur Jóhannsson segist sem barn oft hafa, beint og óbeint, greint að fæðing- ardagur hans hefði sérstöðu. „Já, ertu fæddur á D-daginn? Þetta var oft sagt við mig þegar ég var strákur og eðlilega vakti það með mér sögulegan áhuga. Á tíu ára af- mælisdeginum, þegar áratugur var frá innrásinni, var dagskrá í útvarp- inu um þetta. Þar sagði þulurinn frá hermönnunum sem fóru upp í fjör- una með landgönguprömmum. Hershöfðingjar áætluðu að þessir menn myndu falla eftir 20 mínútur og sú var líka oft raunin. Mótspyrna Þjóðverja var afar hörð,“ segir Ólaf- ur. Samkvæmt heimildum voru alls 500 herskip, 3.000 landgöngu- prammar og 2.500 aðstoðarskip í þessum stærsta innrásarflota sög- unnar. Talið er að alls 160 þúsund hermenn hafi fallið í aðgerðum í Normandí, ámóta úr annars vegar liði Þjóðverja og hins vegar banda- manna; það er Bandaríkjamanna, Kanadamanna og Breta. Má í því sambandi nefna að margir hermenn sem verið höfðu í breska setuliðinu á Íslandi voru sendir til Normandí og áttu ekki afturkvæmt þaðan. Eftirleikur þessara atburða varð svo sá að innrásarherinn hafði nokkrum mánuðum síðar náð Frakk- landi öllu og síðar Þýskalandi undir sig. Framhald sögunnar þekkja svo allir og 10. maí árið eftir lauk stríð- inu. Sléttur sjór var táknrænn „Þótt færa hafi þurft miklar fórnir með innrásinni hefur aðgerðin sem slík aldrei verið umdeild. Að mati flestra var hún óumflýjanleg, enda var hún lengi í undirbúningi og þaul- skipulögð. Mér fannst líka á sinn hátt táknrænt að þegar ég stóð á ströndinni sem kennd er við Omaha var þar spegilsléttur sjór sem aftur minnti á að ekki hefur komið til ófriðar eða hernaðarátaka í Vestur- Evrópu í rúmlega sjötíu ár,“ segir Ólafur. Í því efni segir hann að mikilvægt sé að halda sögunni til haga. Þjóð- verjar hafi eftir megni gert upp sína fortíð í sambandi við stríðið og í Normandí séu minjar frá innrásinni sýningargripir. Á nokkrum stöðum megi til dæmis sjá gamla skriðdreka, fallbyssur, landgöngupramma og fleiri slík tæki. Þá sé áhrifaríkt að koma í bandaríska kirkjugarðinn sem þarna er – en þar eru jarðsettar þúsundir hermanna sem féllu í átök- unum fyrir 72 árum. Vel sé um garð- inn gengið og að því marki sé virð- ingu þeirra sem féllu fullur sómi sýndur. Fór á slóðir fæðingardagsins  Til Normandí  060644  Áhrifa- ríkt ferðalag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hernaður Ólafur Jóhannsson við stríðssafn í Normandí með skriðdreka og ógnvekjandi byssukjaftinn í baksýn. Krossar Þúsundir bandarískra her- manna hvíla í þessum kirkjugarði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.