Morgunblaðið - 22.11.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2016
Poulsen ehf. | Skeifan 2 | IS-108 Reykjavík | 530 5900 | poulsen.is
BREMSUHLUTIR
MINTEX
Donald Trump kallaði HenryKissinger í gyllta turninn til
skrafs og ráðagerða.
Sagt er að síðan1968 hafi ekk-
ert forsetaefni lokið
undirbúningi fyrir
embættistöku án
viðræðna við Kiss-
inger um utanríkis-
og öryggismál.
Kissinger, semverður 94 ára
á næsta ári, er með
allt á hreinu.
Eftir samtalið viðTrump í Turn-
inum fór Kissinger í viðtal hjá
Fareed Zakaria á CNN og sagði
honum að enginn forseti hefði haft
þá stöðu Trumps að komast í Hvíta
húsið algjörlega pinklalaus.
Trump væri fyrsti forsetinn semætti engum skuld að gjalda.
Kissinger viðurkenndi að Trumphefði viðrað margvísleg sjón-
armið í kosningabaráttunni. Það
væri þó óþarft að negla þau öll við
hann núna. Ef Trump ítrekaði hins
vegar afstöðu sína til einstakra at-
riða, nú þegar í alvöruna væri kom-
ið, gæti það valdið honum vandræð-
um að standa ekki við þau.
Það er ekki orðum aukið að Kiss-inger sé kaldur raunsæismað-
ur. Fullyrt er að hann hafi sagt sem
aðalráðgjafi Nixons forseta að
„ákvarðanir sem kunna að fela í sér
lögbrot framkvæma menn hratt og
örugglega. Brot á stjórnarskrá
krefjast vandaðri undirbúnings“.
Ekki skal þó fullyrt að hér sérétt haft eftir frægðarmenn-
inu.
Donald Trump
Kissinger mætti
STAKSTEINAR
Henry
Kissinger
Veður víða um heim 21.11., kl. 18.00
Reykjavík -4 heiðskírt
Bolungarvík -2 skýjað
Akureyri -2 alskýjað
Nuuk 0 alskýjað
Þórshöfn 3 rigning
Ósló 0 léttskýjað
Kaupmannahöfn 8 heiðskírt
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 7 skýjað
Lúxemborg 11 heiðskírt
Brussel 13 rigning
Dublin 4 skýjað
Glasgow 0 þoka
London 10 skúrir
París 12 rigning
Amsterdam 13 skúrir
Hamborg 11 heiðskírt
Berlín 8 heiðskírt
Vín 12 heiðskírt
Moskva -3 heiðskírt
Algarve 18 léttskýjað
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 18 þoka
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 18 heiðskírt
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -3 skýjað
Montreal -1 snjókoma
New York 2 snjókoma
Chicago 3 léttskýjað
Orlando 16 þoka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:21 16:08
ÍSAFJÖRÐUR 10:50 15:49
SIGLUFJÖRÐUR 10:34 15:31
DJÚPIVOGUR 9:56 15:32
Útganga Breta úr Evrópusamband-
inu er eitt mikilvægasta utanríkis-
málið sem Ísland stendur frammi
fyrir næstu misserin enda Bretland
okkar stærsta viðskiptaland, segir
Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráð-
herra. Hún er stödd á ráðherrafundi
EFTA-ríkjanna í Genf þar sem
Brexit var helsta umræðuefnið.
Fjögur ríki eru innan EFTA: Ís-
land, Sviss, Noregur og Liechten-
stein. Að sögn Lilju ákváðu ráðherr-
arnir að vinna náið saman til þess að
tryggja hagsmuna ríkjanna við út-
göngu Breta úr ESB.
Lilja stýrði fundinum, en Ísland
leiðir starf EFTA um þessar mundir.
„Við Íslendingar munum núna
hafa frumkvæði að því að boða til
fundar á næstu vikum þar sem við-
brögð EFTA-ríkjanna við Brexit
verða undirbúin enn frekar.“
Tryggja hagsmuni
vegna Brexit
Ljósmynd/EFTA
EFTA Kristinn Árnason, Monica Mæland, Noregi, Aurelia Frick, Liechten-
stein, Lilja Alfreðsdóttir og Johann N. Schneider-Ammann frá Sviss.
Hátt í 30% þeirra
sem kusu í nýaf-
stöðnum alþing-
iskosningum
tóku ekki ákvörð-
un fyrr en sam-
dægurs og þar af
ákváðu nær 17%
sig ekki fyrr en í
kjörklefanum eða
á kjörstað. Þetta kemur fram í Þjóð-
arpúlsi Gallup.
Einnig var spurt hvaða flokk fólk
vildi sjá mynda nýja ríkisstjórn.
Vinstri grænir og Björt framtíð voru
flokkarnir sem oftast var minnst á.
Ríflega 67% nefndu Vinstri græn og
tæplega 66% Bjarta framtíð. Nær
59% nefndu Viðreisn og rúmlega
57% Sjálfstæðisflokkinn. Rúm 34%
nefndu Píarata, tæplega 24% Fram-
sóknarflokkinn og rétt yfir 20%
Samfylkinguna.
Netkönnun var framkvæmd dag-
ana 3. til 14. nóvember sl. Heildar-
úrtakið voru 1.424 og svarhlutfall
var 59,1%.
Innan við þriðjungur þeirra sem
kusu hafði tekið ákvörðun um hvað
hann ætlaði að kjósa mánuði fyrir
kosningar, eða tæp 31%. Ríflega 5%
tóku ákvörðun 3-4 vikum fyrir kosn-
ingar, rúmlega 14% tóku ákvörðun
1-2 vikum fyrir kosningar og nær
20% ákváðu sig í vikunni sem kosið
var. johann@mbl.is
17% ákváðu
sig í kjör-
klefanum