Morgunblaðið - 22.11.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2016
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Kuldaskór í úrvali
Kvenkuldaskór
Verð 9.995
Stærðir 37-42
2 rennilásar
Verð 7.995
Stærðir 40-45
Rennilás að
innanverðu
Herraku skórlda
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Nú þegar vetur er genginn í garð
eru framkvæmdir við opnun braut-
arinnar ekki í sjónmáli og er því
runninn upp sá tími að ekki er
hægt að lenda flugvél á suðvest-
urhorni landsins í stífri suðvestan-
átt. Með tilliti til sjúkraflugs er það
grafalvarleg staða. Hvað þetta til-
tekna flugöryggismál varðar, hafa
yfirvöld brugðist.“
Þetta segir Ingvar Tryggvason,
flugstjóri og formaður öryggis-
nefndar Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, í grein í nýju frétta-
bréfi FÍA. Hér vísar Ingvar til
flugbrautar 07/25 á Keflavík-
urflugvelli en sú braut liggur í
sömu stefnu og neyðarbrautin á
Reykjavíkurflugvelli sem lokað var
í sumar. Flugbrautin hefur ekki
verið í notkun síðan árið 1994.
Braut 07/25 gæti nýst fyrir sjúkra-
flugvélar ef þær geta ekki lent í
Reykjavík vegna veðurs.
Skrúfuþotustærð dugar ekki
Í byrjun október flutti Morgun-
blaðið af því fréttir að innanríkis-
ráðherra hefði kallað eftir kostn-
aðaráætlun frá Isavia varðandi
opnun brautar 07/25 á Keflavík-
urflugvelli. Isavia áætlar að það
kosti að lágmarki 280 milljónir að
opna brautina í einskonar skrúfu-
þotustærð, segir Ingvar í grein
sinni.
„Slík útfærsla hefur raunar aldr-
ei verið til umræðu enda órökrétt
að litlar skrúfuþotur geti lent á
brautinni á sama tíma og farþega-
þotum þurfi að lenda við ýtrustu
mörk hálku og hliðarvinds,“ segir
Ingvar. Úr því sem komið er telur
hann rökrétt að opna brautina frá
E-akbraut í a.m.k. 2.000 metra
lengd.
Í grein sinni vitnar Ingvar í bréf
sem Þorgeir Pálsson, þáverandi
flugmálsstjóri, skrifaði FÍA í sept-
ember 2005. Þá stóð fyrir dyrum
lokun brautar 06/24 (neyð-
arbrautin) í Reykjavík, en ekkert
varð af lokun brautarinnar fyrr en
rúmum 10 árum síðar.
Í bréfi flugmálastjóra stóð: „Í
deiliskipulagi Reykjavíkurflug-
vallar, sem samþykkt var 15. júní
1999, áður en endurbygging flug-
vallarins hófst, er tekið fram að
flugbraut 07/25 (nú 06-24) skuli lok-
að 5-7 árum eftir að framkvæmdum
lýkur, enda hafi þá fundist önnur
leið til að veita það öryggi, sem
þessi flugbraut tryggir nú. Öllum
aðilum var ljóst að leiðin til þess að
þetta gengi eftir væri að flugbraut
07-25 á Keflavíkurflugvelli yrði
opnuð á ný.“
Þess var ekki lengi að bíða að
Reykjavíkurflugvöllur lokaðist eftir
að braut 06/24 var lokað, segir í
sérstakri frétt í fréttabréfi FÍA.
„Ófært varð um völlinn hinn 15.
nóvember sl. þegar haustlægð gekk
yfir með stífri suðvestanátt og élja-
gangi. Þetta var ekta útsynningur
og vindurinn stóð beint á braut 06/
24 sem ekki er lengur til taks.
Mögulega hefði verið hægt að nota
völlinn ef sú braut hefði enn verið
opin. Í öllu falli er mjög óheppilegt
að hvergi á suðvesturhorni landsins
skuli vera flugbraut í þessari
stefnu, sem gæti haft úrslitaáhrif
þegar svona veður geisar,“ sagði í
fréttinni.
Í Morgunblaðinu í gær birtist
viðtal við Þorkel Á. Jóhannsson,
flugstjóra hjá Mýflugi, sem lenti
með sjúkling á Reykjavíkurflugvelli
að morgni umrædds dags, 15. nóv-
ember. Lenti vélin í þeim mesta
hámarksvindi sem heimilt er. Sagði
Þorkell að litlu hefði mátt muna að
hann hefði þurft að snúa frá með
sjúklinginn.
Yfirvöld brugðust
Formaður öryggisnefndar FÍA gagnrýnir að neyðar-
braut hafi verið lokað án þess að opna samsvarandi braut
Morgunblaðið/RAX
Reykjavíkurflugvöllur Sjúkraflugvél Mýflugs lendir á neyðarbrautinni í
sterkri suðvestanátt í fyrra. Nú er búið að loka þessari flugbraut.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Loksins loksins – það er að koma
vetur aftur.“ Þannig hefst frétt sem
birtist á heimasíðu Skíðasvæða höfuð-
borgarinnar fyrir helgi, sú fyrsta sem
birtist á heimasíðunni síðan í vor.
„Það er byrjað að snjóa og fjöllin
orðin hvít og falleg – en það vantar
samt talsvert upp á ennþá,“ segir
jafnframt í fréttinni.
„Það hefur verið lítill snjór til þessa
en við höfum haft góðan tíma til að
undirbúa opnun,“ segir Magnús
Árnason, framkvæmdastjóri Skíða-
svæðanna. „Nú er kuldatíð í kortun-
um og vonandi getum við opnað á
okkar venjulega tíma í desember,“
segir Magnús.
Unnið að endurbótum í sumar
Opnað var í Bláfjöllum rétt fyrir
miðjan desember í fyrra og var opið
fram í maí. Gestir skíðasvæðanna
urðu samtals um 90 þúsund og hafa
aldrei verið fleiri enda var veðrið sér-
staklega hagstætt til skíðaiðkunar
síðasta vetur.
Að sögn Magnúsar var ekki mikið
um nýframkvæmdir í sumar því mikl-
ir fjármunir voru settir í kaup á nýj-
um snjótroðara í byrjun árs. Hins
vegar var unnið á viðhaldi á snjógirð-
ingum og fleiru.
„En veturinn er svo sannarlega
byrjaður að minna á sig og við treyst-
um á að þetta sé bara byrjunin, við er-
um að fá dúndurgóðan vetur með fullt
af snjó og endalausa gleði,“ segir í
fréttinni á heimasíðu Skíðasvæðanna.
Þar kemur jafnframt fram að sala
vetrarkorta hefjist 5. desember – „en
auðvitað byrjar hún fyrr ef gefur á
snjóinn,“ segir í fréttinni.
Bláfjöll eru tilbúin
ef snjóar meira
Fjöllin hvít og fal-
leg en vantar talsvert
meira af snjó enn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bláfjöll Metaðsókn var í skíðasvæði
höfuðborgarsvæðisins síðasta vetur.
Félag sem Pétur Guðmundsson,
eigandi byggingafyrirtækisins
Eyktar, er í forsvari fyrir hefur
gert samning um kaup á Loftorku,
sem rekur meðal annars húsein-
ingaverksmiðju í Borgarnesi. Loft-
orka hefur síðustu áratugi verið
meðal stærri vinnuveitenda í Borg-
arnesi. Seljendur eru feðgarnir Óli
Jón Gunnarsson og Bergþór Óla-
son.
„Við vorum ekki í sérstökum
söluhugleiðingum. Menn nálguðust
okkur á forsendum sem við töldum
áhugaverðar og við náðum saman,“
segir Bergþór um söluna. Viðskipt-
in eru háð ýmsum fyrirvörum, með-
al annars um að Samkeppniseftir-
litið geri ekki athugasemdir.
Loftorka lenti í erfiðleikum í
hruninu. Markaður fyrir vörur
fyrirtækisins hrundi. Keyptu Óli
Jón og Bergþór fyrirtækið í kjölfar-
ið ásamt fleirum og eignuðust þeir
það að fullu á árinu 2012.
Bergþór segir að markaðurinn
hafi verið botnfrosinn eftir hrun og
snúið að reka fyrirtækið. Loftorka
sé aðeins í nýframkvæmdum og hafi
því ekki notið góðs af viðhaldsbylgj-
unni sem gekk yfir eftir bankahrun.
„Á síðustu misserum hefur verk-
efnastaðan og allt rekstrarumhverf-
ið batnað mikið. Við erum með góð
verkefni og mjög bjart fram und-
an,“ segir Bergþór. Hann getur
þess að enn sé mikil ónýtt afkasta-
geta í fyrirtækinu sem hægt væri
að virkja til aukinnar framleiðslu.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Loftorka Unnið að steypueiningaframleiðslu í Borgarnesi.
Nýir eigendur
að Loftorku
Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur sett reglugerð um greiðslu des-
emberuppbótar til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysis-
tryggingakerfisins. Óskert desemberuppbót er 60.616 kr. Nýmæli er að at-
vinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka uppbót sem
nemur 4% af óskertri desemberuppbót, eða rúmum 2.400 kr. fyrir hvert
barn yngra en 18 ára.
Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem hafa verið
skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á
árinu 2016 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. des-
ember. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt
reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda
mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur.
Desemberuppbót til atvinnulausra