Morgunblaðið - 22.11.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2016
Það er alltaf eitthvað nýtt að gerast í líffræðinni, þetta svið er áfleygiferð og það er það sem er svo skemmtilegt við þetta starf,“segir Sigurkarl Stefánsson, líffræðikennari og fagstjóri í líf-
fræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hann á 60 ára afmæli í dag og
hefur kennt við skólann í meira en 30 ár.
„Það eru t.d. alltaf nýjungar í erfðafræði og svo verða rannsóknar-
tækin nákvæmari og nákvæmari, eins og ýmis tölvutengd mælitæki.
Við kynnum nemendum þessar nýjungar og heimsækjum vísindamenn
við ýmsar stofnanir til að sjá hvernig þeir vinna. Svo er hægt að skoða
margt á netinu. Við reynum líka að fá unga fólkið til að horfa á náttúr-
una í kringum sig, skilja hana, njóta hennar og virða hana.“
Utan vinnu er Sigurkarl skógarbóndi á norðanverðu Snæfellsnesi,
nánar tiltekið á Setbergi í Litla-Langadal á Skógarströnd. „Fjölskyldan
mín á þessa jörð og við erum saman í þessu og ætlum ásamt nokkrum
nágrönnum að láta sveitina standa undir nafni. Foreldrar mínir byggðu
sumarbústað þarna og ég á ættir að rekja þangað, en langafi var bóndi
á Dröngum. Ég hef líka áhuga á tónlist og spila á píanó. Afmælisveislan
sem ég hélt um síðustu helgi var því mikil söngveisla.“
Sambýliskona Sigurkarls er Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Börn Sigurkarls úr fyrra sam-
bandi eru Stefán, f. 1982, læknir, Auður, f. 1989, háskólanemi, og Bragi,
f. 1991, tæknifræðingur.
Skógræktarbóndinn Sigurkarl að gróðursetja birkiplöntur.
Ræktar skóg á
Skógarströnd
Sigurkarl Stefánsson er sextugur í dag
Á
sdís Hlökk Theodórs-
dóttir fæddist 22.11.
1966 í Reykjavík og
ólst upp í Heima-
hverfinu.
Hlökk gekk í Langholtsskóla,
Menntaskólann við Sund, lauk
B.Sc.-námi í landfræði við Há-
skóla Íslands og M.Phil. í skipu-
lagsfræði frá Reading University
á Englandi og stundaði doktors-
námi í skipulagsfræði við Kung-
liga Tekniska Högskolan í
Stokkhólmi.
Starfsferillinn
Hlökk hóf starfsferil sinn í
skipulagsmálum hjá Borgar-
skipulagi Reykjavíkur í byrjun
10. áratugarins og starfaði síðan í
áratug á Skipulagi ríkisins/
Skipulagsstofnun, lengst af sem
aðstoðarskipulagsstjóri. „Ég kom
þar að mörgum spennandi og
stefnumarkandi málum á þeim
tíma, meðal annars mati á um-
hverfisáhrifum Kárahnjúka-
virkjunar.“
Hlökk vann að ráðgjafarverk-
efnum hjá ráðgjafarfyrirtækinu
Alta 2005-2009, þar á meðal
framsæknum verkefnum eins og
Rammaskipulagi Urriðaholts í
Garðabæ, Aðalskipulagi Fjarða-
byggðar og skipulagi miðbæjar-
ins á Akureyri. Árið 2007 stóð
hún að stofnun námsbrautar um
skipulag og samgöngur í Háskól-
anum í Reykjavík og stýrði henni
til ársins 2013. Þá tók hún við
embætti forstjóra Skipulags-
stofnunar.
„Í því starfi er komið víða við
en þar ber þó sennilega hæst á
liðnum árum að fá tækifæri til að
leiða mótun fyrstu lands-
skipulagsstefnunnar, sem var
samþykkt á Alþingi nú í vor.“
Hlökk hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum og flutt fyrir-
lestra um skipulagsmál og ritað
greinar, skýrslur og leiðbein-
ingarit á sviði skipulagsmála.
„Ég hef brennandi áhuga á fag-
inu mínu, sem er skipulag byggð-
ar, einnig ferðalögum um óbyggð-
ir Íslands og framandi slóðir,
lestri og gefandi samræðum um
þjóðmál og lífið og tilveruna.“
Um skipulag byggða
Hlökk hefur verið að vinna að
stóru verkefni undanfarið sem
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar – 50 ára
Í Mývatnssveit Hlökk og Bolli ásamt yngri syninum, Þórbergi, við Leirhnjúk.
Með brennandi áhuga
á skipulagi byggðar
Kópavogur Atli Viðar er
fæddur á Landspítalanum
þann 11. september 2015.
Hann vó 3,3 kg við fæðingu
og var 49 cm langur. For-
eldrar hans eru Anna Fríða
Stefánsdóttir og Ragnar
Jón Dennisson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
BARNAFATNAÐUR
fyrir veturinn
Retro Pom barnahúfa
Verð: 4.495,-
Edge
barnavetrarbuxur
Verð: 19.995,-
Marmot Freerider
barnaúlpa
Verð: 24.995,-
Minnum á vefverslun Fjallakofans www.fjallakofinn.is