Morgunblaðið - 22.11.2016, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2016
AF LEIKLIST
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Leikhúsið verður alltaf að vera
öruggur og einstakur staður,“ tísti
Donald J. Trump, nýkjörinn forseti
Bandaríkjanna um nýliðna helgi. Til-
efni ummælanna var það að leikhóp-
urinn sem sýnir verðlaunasöngleik-
inn Hamilton: An American Musical
eftir Lin-Manuel Miranda á Broad-
way í New York hafði vogað sér að
brjóta fjórða vegginn og ávarpa
Mike Pence, nýkjörinn varaforseta,
að sýningu lokinni.
Samkvæmt frétt The New York
Times púuðu áhorfendur þegar
Pence gekk í salinn. Það ætti ef til
vill ekki að koma á óvart að stjórn-
málamaður sem komist hefur til
æðstu valda í krafti hatursfullra um-
mæla í garð innflytjenda og minni-
hlutahópa mæti andstöðu leikhús-
gesta sem mættir eru á leiksýningu
sem fagnar fjölbreytileikanum.
Hamilton fjallar sem kunnugt er um
ævi Alexanders Hamilton, sem var
fyrsti fjármálaráðherra Bandaríkj-
anna á árunum 1789 til 1795 og einn
þeirra pólitísku leiðtoga sem skrif-
uðu undir sjálfstæðisyfirlýsingu
Bandaríkjanna 1776. Höfundur
verksins leggur mikla áherslu á að
leikhópurinn endurspegli ólíkan upp-
runa Bandaríkjamanna til að undir-
strika hversu mikil áhrif innflytj-
endur höfðu á mótunarárum
Bandaríkjanna, en ein lykilsetninga
verksins í miðju borgarastríðinu er:
„Innflytjendur koma hlutum í verk.“
Sökum þessa eru Hamilton, Burr,
George Washington og Thomas Jef-
ferson leiknir af hörundsdökkum
leikurum sem rekja ættir sínar ýmist
til Afríku eða Rómönsku-Ameríku.
Að framklappi loknu bað Brand-
on Victor Dixon, sem leikur Aaron
Burr, varaforsetann tilvonandi að
hinkra við og hlýða á yfirlýsingu leik-
hópsins sem var svohljóðandi:
„Pence, verðandi varaforseti, við
þökkum þér fyrir komuna. Við erum
hin fjölbreytta Ameríka. Við erum
hrædd og kvíðum því að nýja rík-
isstjórnin þín muni ekki vernda okk-
ur, jörðina okkar, börnin okkar, for-
eldra okkar eða verja okkur og
óafsalanleg réttindi okkar. Við von-
um að sýningin veiti þér innblástur
til að standa vörð um bandarísk gildi
og vinna í þágu okkar allra.“
Í samtali við Fox News Sunday
hrósaði Pence uppfærslunni og sagð-
ist eftirláta öðrum að meta hvort
ávarp leikhópsins hefði verið óviðeig-
andi, en tók fram að hann hefði ekki
móðgast yfir uppákomunni. Verð-
andi forseti Bandaríkjanna fór hins
vegar mikinn á Twitter og krafðist
þess að leikhópurinn bæðist afsök-
unar á því að hafa „ráðist“ á Pence
með „ruddalegum“ hætti, en Dixon
svaraði Trump um hæl að „samræð-
ur væru ekki árás“.
Krafan um leikhús sem öruggan
stað er áhugaverð, því hvað felst í ör-
ygginu? Vitaskuld vill enginn upplifa
sama öryggisleysi og Abraham
Er leikhúsið
öruggur staður?
Ljósmynd/ Hamilton, Twitter
Árás eða samtal? Brandon Victor Dixon ávarpaði nýkjörinn varaforseta
Bandaríkjanna að lokinni sýningu á Hamilton á Broadway í New York.
Lincoln upplifði í hinstu leikhúsferð
sinni 1865. Enda á enginn að þurfa
að sætta sig við ofbeldi hvort heldur
það á sér stað innan veggja leikhúss-
ins eða utan. Undirrituð gleymir
seint leikhúsferð sinni í Hackney-
hverfi Lundúna fyrir tólf árum þar
sem Blue Mountain-leikhópurinn
sýndi nýja leikgerð á Óþelló eftir
William Shakespeare. Allir leikara
sýningarinnar voru hörundsdökkir
nema þau sem fóru með hlutverk
Jagó og Desdemóna, sem og nær all-
ir áhorfendur því hvítir leikhúsgestir
voru teljandi á fingrum annarrar
handar. Þegar einn leikaranna
beindi byssu sinni að Jagó heyrðist
áhorfandi öskra hátt og snjallt:
„Skjóttu hvíta drenginn“ og í fram-
klappinu var púað á hvítu leikarana
tvo, augljóslega aðeins vegna húðlit-
ar þeirra en ekki frammistöðu. Sú
sem hér ritar reyndi að láta lítið fyrir
sér fara og prísaði sig sæla að kom-
ast heilu og höldnu heim að leiksýn-
ingu lokinni.
En felst einhvers konar ofbeldi í
því að rjúfa fjórða vegginn, ávarpa
leikhúsgesti og bjóða þeim upp á
samtal? Í vor sem leið varð und-
irrituð vitni að því þegar leikhóp-
urinn í Schaubühne-leikhúsinu í
Berlín undir stjórn Thomasar Oster-
meier gerði tilraun til að virkja
áhorfendur með því að breyta okkur
í fundargesti fjórða þáttar
Þjóðníðings eftir Henrik Ibsen. Þar
bauðst áhorfendum að eiga rökræð-
ur við persónur leiksins um efni
verksins. Slíkar tilraunir geta verið
misheppnaðar, pirrandi eða óskiljan-
legar en þjóna samt ávallt því hlut-
verki að ná sterkara sambandi við
áhorfendur. Leikhús sem á ekki er-
indi við samtíma sinn er andvana
fætt. Leikhúsinu ber að takast á við
heimspekilegar, siðferðislegar, póli-
tískar og samfélagslegar spurningar
og í þeim skilningi vera allt annað en
öruggur staður – því það getur auð-
vitað reynst afar hættulegt að skoða
hlutina með opinn hug, maður gæti
óvart skipt um skoðun og neyðst til
að endurskoða gildismat sitt.
»Leikhúsinu ber aðtakast á við heim-
spekilegar, siðferðislegar
og samfélagslegar
spurningar og í þeim
skilningi vera allt annað
en öruggur staður.
Stopp Mike Pence mun hafa hinkr-
að við útganginn og lagt við hlustir.
Ævintýri Newt Scamander í leynilegu samfélagi
norna og galdramanna í New York, sjötíu árum
áður en Harry Potter les bók hans í skólanum.
Bönnuð yngri en 9 ára.
Metacritic 65/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 18.00, 21.00
Sambíóin Álfabakka 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 22.45
Sambíóin Egilshöll 17.10, 19.00, 20.00, 22.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 17.00, 18.00, 20.00, 21.00,
22.45
Sambíóin Akureyri 17.15, 20.00, 22.45
Sambíóin Keflavík 17.15, 20.00, 22.45
Fantastic Beasts and
Where to Find Them
Doctor Strange 12
Dr. Stephen Vincent Strange slasast illa á höndum. Til að leita
sér lækninga heldur hann út í heim og hittir að lokum „hinn
forna“.
Metacritic 74/100
IMDb 8,2/10
Sambíóin Álfabakka
17.30, 20.00, 22.45
Sambíóin Egilshöll
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri
17.30
Sambíóin Keflavík
17.30
The Accountant 16
Christian Wolff er stærð-
fræðingur sem hefur
meiri áhuga á tölum en
fólki.
Metacritic 51/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka
20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 22.45
Sambíóin Keflavík 22.45
The Light Between
Oceans
Vitavörður og eiginkona
hans búa við ströndina í
Vestur-Ástralíu, og ala upp
skipreka barn sem þau finna
í árabát
Metacritic 60/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Egilshöll 17.10
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Shut In
Þegar stórhættulegt fárviðri
skellur á þarf Mary að bjarga
ungum dreng áður en hann
hverfur að eilífu.
Metacritic 22/100
IMDb 4,9/10
Smárabíó 19.50, 22.35
Borgarbíó Akureyri 22.20
Arrival 12
Metacritic 80/100
IMDb 8,5/10
Smárabíó 16.50, 17.10,
19.30, 20.00, 22.10
Háskólabíó 18.10, 20.50
Borgarbíó Akureyri 22.30
Jack Reacher:
Never Go Back 12
Jack Reacher þarf að fletta
ofan af stóru samsæri til
þess að sanna sakleysi sitt
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 22.45
Grimmd 12
Morgunblaðið bbbnn
IMDb 5,8/10
Smárabíó 20.00
Háskólabíó 20.40
Hacksaw Ridge 16
Metacritic 66/100
IMDb 8,7/10
Laugarásbíó 20.00, 22.45
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Flöskuskeyti frá P 16
Metacritic 66/100
IMDb 7/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.50,
20.00
Eiðurinn 12
Morgunblaðið bbbbb
IMDb 7,7/10
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 22.30
Bridget Jones’s
Baby 12
Metacritic 59/100
IMDb 7,4/10
Laugarásbíó 17.30
The Girl on
the Train 16
Metacritic 47/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Inferno 12
Smárabíó 22.20
Eight Days a Week -
The Touring Years
Háskólabíó 18.00
Max Steel 12
Metacritic 22/100
IMDb 4,9/10
Smárabíó 15.30, 17.50
Masterminds
Metacritic 47/100
IMDb 5,8/10
Smárabíó 20.10, 22.20
Sjöundi dvergurinn Hin illa norn Dellamorta
lagði bölvun á Rose prins-
essu nema hún verði kysst
af manni sem elskar hana af
heilum hug.
Sambíóin Álfabakka 18.00
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.30, 17.45
Borgarbíó Akureyri 17.50
Storkar Núna afhenda storkar pakka
fyrir alþjóðlega netfirsann
Cornerstone.com.
Metacritic 55/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.00
Middle School Metacritic 51/100
IMDb 5,8/100
Smárabíó 15.30, 17.45
Innsæi
Bíó Paradís 18.00
Child Eater
Helen grunar ekki hversu
hryllilegt kvöld hún á í vænd-
um
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 22.30
Slack Bay
Bíó Paradís 17.30, 22.00
Baskavígin
Bíó Paradís 20.00
Gimme Danger
Bíó Paradís 17.45
The girl with all
the gifts
Metacritic 73/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 20.00
Captain Fantastic
Metacritic 72/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 20.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna