Morgunblaðið - 22.11.2016, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2016
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Rétt eins og engin ein þjóð hefði
getað tryggt frið í Evrópu á tímum
kalda stríðsins getur engin ein
þjóð komið í veg fyrir hryðjuverk
eða tryggt stöðugleika innan
þeirra ríkja sem þurfa á slíku að
halda. Ég trúi því að framtíð
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
muni byggja á breiðri samvinnu,“
sagði Petr Pavel, hershöfðingi og
formaður hermálanefndar NATO, í
ávarpi sem hann flutti á hádegis-
fundi Varðbergs sem fram fór í
Norræna húsinu í gær.
Pavel hershöfðingi hóf feril sinn
innan tékkneska hersins árið 1983.
Hefur hann m.a. verið yfirmaður
herafla Tékklands, gegndi þeirri
stöðu frá júlí 2012 til maí 2015.
Hann tók við núverandi stöðu inn-
an NATO í júní 2015 og er það í
fyrsta skipti sem einstaklingur frá
fyrrverandi austantjaldsríki skipar
stöðu formanns hermálanefndar
bandalagsins.
„Styrkur okkar er ekki ein-
göngu kominn til vegna herafla
okkar, heldur tengsla milli banda-
manna, vina og þjóða sem hugsa
eins. Samvinna við tví- og marg-
hliða stofnanir er framtíð Atlants-
hafsbandalagsins. Með því að nýta
núverandi sambönd, auka tengsla-
netið og um leið samvinnu við
marghliða öryggisstofnanir getum
við tryggt sameiginlegan frið okk-
ar og hagsæld,“ sagði Pavel.
Skilja mikilvægi samvinnu
Hershöfðinginn vék einnig að
stöðu Íslands innan bandalagsins í
ávarpi sínu og sagði landið hafa
gegnt mikilvægu hlutverki í gegn-
um tíðina, m.a. með þátttöku sinni
í starfi alþjóðaliðsins í Afganistan
(ISAF) og með beinum fjárfram-
lögum til hinna ýmsu málaflokka.
„Þið skiljið hve mikilvæg sam-
vinna er. Í reynd er samvinna ykk-
ar og samband við þjóðir á borð
við Finnland og Svíþjóð öðrum
bandamönnum til eftirbreytni. Þið
og aðrar þjóðir Norðurskautsráðs-
ins hafið byggt samband ykkar
upp á samvinnu í stað átaka,“
sagði hann.
Petr Pavel hershöfðingi kom
einnig inn á málefni Rússlands í
ræðu sinni og sagði stefnu Rússa
hafa breyst nokkuð á undanförnu
frá því sem áður var.
„Það hefur komið í ljós á undan-
förnum árum að Rússar vilja ekki
eingöngu auka svæðisbundin áhrif
sín heldur reyna þeir nú að endur-
heimta stöðu sína sem heimsveldi,“
sagði Pavel og bætti við að Vladi-
mír Pútín Rússlandsforseti setti
hersveitir sínar í leiðandi hlutverk.
„Þetta hófst fyrst með Trans-
nistríu, síðan innan Georgíu og
loks á Krímskaga og í austur
Úkraínu. Þessi hegðun á sér einn-
ig stað á Atlantshafinu og norður-
heimskautinu.“
Ekkert kallar á varanlega
veru NATO hér á landi
Pavel var á fundinum spurður
hvort hann teldi nauðsynlegt að
auka veru Atlantshafsbandalagsins
hér á landi og hafa hersveitir stað-
settar hér varanlega. „Sem stend-
ur og þegar litið er til hættumats
eru engar raunverulegar ástæður
sem kalla á varanlega veru NATO
í þessu landi,“ sagði hann.
Þá kom loftrýmisgæsla Atlants-
hafsbandalagsins einnig til um-
ræðu á fundinum, en Tékkar eru í
hópi þeirra þjóða sem sent hafa
orrustuþotur hingað til eftirlits.
Aðspurður sagðist Pavel það hafa
reynst flugsveitunum og bandalag-
inu dýrmæt þjálfun.
„Þetta veitir ekki einungis Ís-
landi vernd heldur var þetta frá-
bær þjálfun fyrir tékkneska flug-
herinn. Að auki veitir þetta báðum
aðilum tækifæri til að efla vináttu
sína og samband. Og ég verð að
segja að félagar mínir í tékkneska
flughernum njóta mjög veru sinn-
ar á Íslandi og eru reiðubúnir að
koma aftur,“ sagði hann.
Breið samvinna er NATO framtíðar
Formaður hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins hélt í gær erindi á vegum Varðbergs Styrkur
NATO felst ekki einungis í herafla bandalagsins heldur tengslum milli bandamanna og vina, sagði hann
Morgunblaðið/Golli
Hershöfðingi Petr Pavel, formaður hermálanefndar NATO, flytur ávarp.
Málefni Tyrklands voru á meðal
þess sem bar á góma á hádegis-
fundi Varðbergs sem haldinn
var í gær, en Tyrkir hafa að
undanförnu verið gagnrýndir
innan alþjóðasamfélagsins og
m.a. sakaðir um að skorta hörku
í aðgerðum gegn vígasveitum.
Petr Pavel, hershöfðingi og
formaður hermálanefndar
Atlantshafsbandalagsins, sagði
stöðu Tyrkja hins vegar flókna.
„Þeir eru undir þrýstingi af
hendi Rússa en einnig frá víga-
mönnum. Þeir hafa margsinnis
orðið fyrir árás hryðjuverka-
manna,“ sagði hann og hélt
áfram:
„Þeir taka jafnframt þátt í
hernaðaraðgerðum gegn Ríki
íslams og leggja talsvert fram í
þeim efnum. Af og til heyrum
við ásakanir þess efnis að Tyrkir
séu ekki að leggja sig nægjan-
lega fram. [...] En þegar horft er
til þess hve flókin staðan er í
Mið-Austurlöndum og hags-
munirnir ólíkir er ég þeirrar
skoðunar að Tyrkir séu að taka
sanngjarnan þátt í baráttunni
gegn hryðjuverkum.“
Staða Tyrkja
sögð flókin
MIÐ-AUSTURLÖND
Vertu upplýstur!
blattafram.is
ÞÚ ERT LÍKLEGRI
TIL AÐ GRÍPA INNÍ
EF ÞÚ HEFUR ÞEKKINGU
Á ÓÆSKILEGRI HEGÐUN
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Flísfóðraðar dömubuxur
með teygju í mittið
Kr. 5.900
Str. 38-50/52
Pelsjakkar - Leðurjakkar
Loðskinnsvesti og loðskinnstreflar
Tryggvagötu 18 - Sími 552 0160 - Opið alla virka daga kl. 13.00-18.00
CURCUMIN
Gullkryddið
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og
starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún
hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í
yfir 25 ár eftir að hún lenti í slæmu bílslysi og er komin
með liðagigt.
„Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum
og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín
sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika
sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan
mánuð þegar égmissti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að
Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.”
LIÐIR – BÓLGUR – GIGT
Nánar á balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
—með morgunkaffinu