Morgunblaðið - 22.11.2016, Page 15

Morgunblaðið - 22.11.2016, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2016 OPINN FUNDUR Í IÐNÓ UM MIÐBORGARMÁL, ÞRIÐJUDAGINN 22. NÓVEMBER KL. 20:00 Líflegri og betri miðborg · Sérstakur gestur fundarins er Björn Blöndal, formaður borgarráðs. Fer hann yfir helstu atriði nýrrar miðborgarstefnu, situr fyrir svörum og tekur þátt í almennum umræðum. · Fjallað verður um niðurstöður nýrrar könnunar um miðborgarmál. · Þá verður rætt um jólahaldið, skautasvellið, jólamarkaðinn og fleira sem framundan er í miðborginni. · Elín Ey flytur nýja, frumsamda tónlist og boðið verður upp á léttar veitingar. · Fjölmennum og leggjum okkar af mörkum til líflegri, öflugri og betri miðborgar! Stjórn Miðborgarinnar okkar Bergstaðir Kolaport Ráðhúsið Stjörnuport Traðarkot Vesturgata Vitatorg Gat kom á brúsa sem innihélt saltsýru með þeim afleiðingum að sýran lak niður á Hverfisgötu í gærmorgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á svæðið og lauk fljótlega við það að hreinsa upp eiturefnið. Lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu girti svæðið af á meðan slökkvi- liðið hreinsaði það. Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík var saltsýran geymd á hjólaverk- stæði á Hverfisgötunni. Gat kom á brúsann og sýran lak út. Eig- andi saltsýrunnar hringdi á slökkviliðið. Ekki liggur fyrir hve mikið lak úr brúsanum en ekki var talin mikil almannahætta á ferð. Eitrið var hreinsað upp með ísogsefni sem síðan var sent til eyðingar. Gatan var hreinsuð með vatni í kjölfarið. Saltsýra lak úr brúsa á Hverfisgötu Viðbúnaður Slökkviliðið hreinsaði saltsýruna fljótt og örugglega. Morgunblaðið/Ófeigur Bergþóra Jónsdóttir bj@mbl.is Velferðarráðuneytið hefur gefið út skýrslu um lyfjaútgjöld og lyfja- notkun fyrir árið 2015. Kostnaður vegna almennra lyfja hækkaði um 168 milljónir króna, um 2% frá fyrra ári, og kostnaður vegna S- merktra lyfja (sjúkrahúslyfja) um 134 miljónir, eða 2,1% frá fyrra ári. Samkvæmt skýrslunni telst þessi hækkun ekki mikil og má rekja hana til hagstæðrar gengisþróun- ar. Lyfjakostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna almennra lyfja, þ.e. lyfja sem ekki eru S-merkt, nam 8.557 milljónum króna árið 2015 og lyfjakostnaður sjúkratrygginga vegna S-merktra lyfja nam 6.565 milljónum króna sama ár. Lyfjanotkun að aukast Segir í skýrslunni að lyfjanotkun hafi aukist talsvert undanfarin ár. Að jafnaði virðist lyfjanotkun aukast um að minnsta kosti 3-4% á ári en þar af megi rekja 2% notk- unarinnar beint til fólksfjölgunar og breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar. Eins og undanfarin ár er kostn- aður mestur vegna lyfja við ADHD (ofvirkni og athyglisbresti), en notkun þessara lyfja hefur aukist undanfarinn áratug, ekki síst með- al fullorðinna, segir í skýrslunni. Kostnaður vegna lyfja við ADHD nam 765 milljónum króna árið 2015 og stóð nokkurn veginn í stað frá fyrra ári. Á einum áratug hefur kostnaðurinn farið úr nánast engu upp í að vera u.þ.b. 1/10 hluti kostnaðarins. Metýlfenídat er kostnaðarsamasta lyfið í þessum flokki og jafnframt kostnaðarsam- asta lyf sjúkratrygginga. Kemur fram í skýrslunni að kostnaður vegna S-merktra lyfja (sjúkrahúslyfja) hafi aukist mjög undanfarin ár. Það skýrist fyrst og fremst af nýjum og sérhæfðum lyfjum sem séu mjög dýr. Sem dæmi er nefnt að kostnaður vegna gigtarlyfja og dýrustu MS-lyfjanna hafi farið vaxandi. En það skýrist meðal annars af því að kostnaður vegna nýrra lyfja fari almennt vax- andi í flestum vestrænum löndum, bæði vegna hækkandi meðalaldurs sem leiðir til aukins fjölda notenda en líka vegna þess að nýju lyfin eru oft dýrari en eldri lyfin. Morgunblaðið/Sverrir Lyfjakostnaður er mestur vegna ADHD  Velferðarráðuneytið með skýrslu um lyfjaútgjöld og -notkun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.