Morgunblaðið - 22.11.2016, Síða 23

Morgunblaðið - 22.11.2016, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2016 ✝ Sigurjón ÓskarSigurðsson fæddist á Háfshól í Ásahreppi 8. maí 1927. Hann lést 11. nóvember 2016. Foreldrar hans voru Sigurður Sig- urðsson, f. 14.5. 1887, d. 8.6. 1954, og Anna María Jóa- kimsdóttir, f. 7.9. 1882, d. 9.1. 1972. Sigurjón var annað tveggja systkina sem upp komust. Systir hans var Kristrún Gréta Sigurð- ardóttir, f. 19.4. 1925, d. 19.6. 1999. Uppeldissystir hans var Dagmar Hlíf, f. 10.8. 1933, d. 12.6. 1989. Eftirlifandi eiginkona Sig- urjóns er Anna Guðný Hildi- þórsdóttir, f. 20.1. 1934. For- eldrar hennar voru Aðalheiður Guðrún Guðnadóttir Andr- easen, f. 9.3. 1914, d. 22.8. 1997, og Hildiþór Loftsson, f. 17.8. 1905, d. 3.7. 1995. Sigurjón og Anna eignuðust fimm börn: 1) Sigurður Ármann, f. 26.6. 1952, sambýliskona Lek Kaew- phanna, f. 5.4. 1966. Fóst- urdætur: a) Prisana, f. 11.8. Sumarliðason, f. 31.3. 1954. Sonur þeirra er Sigurjón Sum- arliði, f. 26.10. 1989, sambýlis- kona hans er Erna Lína Bald- vinsdóttir, f. 7.7. 1998. 5) Aðalheiður Guðrún, f. 10.5. 1965, eiginmaður Daníel Heiðar Guðjónsson, f. 29.8. 1958. Dætur þeirra eru Anna Lovísa, f. 15.3. 1996, og Katrín Hörn, f. 20.2. 2004. Sigurjón fluttist ásamt for- eldrum sínum að Borgartúni í Þykkvabæ þegar hann var sjö ára. Hann var í barnaskóla í Þykkvabænum. Hann stundaði nám við Verzlunarskóla Íslands árin 1945-1949. Eftir nám í Verzlunarskól- anum hóf hann störf hjá Kaup- félagi Árnesinga á Selfossi og síðar í Þorlákshöfn. Árið 1953 fluttust Sigurjón og Anna til Reykjavíkur. Þau bjuggu fyrstu átta árin í Drápuhlíð en fluttu síðan í Hvassaleiti 16 þar sem þau bjuggu síðan. Fyrstu árin starfaði hann í bókhaldi hjá Áburðarverksmiðju ríkisins. Ár- ið 1956 keypti hann hlut í heild- versluninni K. Þorsteinsson og co. og starfaði þar í yfir þrjátíu ár. Hann keyrði út hljóðbækur og annað efni fyrir Blindra- bókasafnið fram yfir áttrætt og hafði þá gert það í átján ár. Útför Sigurjóns fer fram frá Grensáskirkju í dag, 22. nóv- ember 2016, og hefst athöfnin kl. 15. 1986, b) Walnipha Bo, f. 14.9. 1989, sambýlismaður Guðmundur Wut- hitha, f. 22.11. 1984, synir þeirra Patrick, f. 19.3. 2012, og Richard, f. 6.8. 2015 2) Kristín Júlía, f. 25.8. 1953. 3) Aðalsteinn Þor- mar, f. 30.8. 1955, eiginkona Kristín Guðný Sigurðardóttir, f. 19.9. 1958. a) Guðmundur Óskar, f. 16.4. 1978, hann á þrjá syni með Magneu Magnúsdóttur, þau slitu samvistum. Synir þeirra heita Veigar Tjörvi, f. 15.9. 2003, Kormákur Hrafn, f. 3.7. 2010, og Fróði, f. 27.10. 2011. b) Anna Margrét, f. 25.8. 1981, sambýlismaður Ellert Geir Ingvason, f. 13.2. 1980, börn þeirra eru Axel Edílon, f. 18.1. 1998, Sólon Breki, f. 16.9. 2005, og Elín Kristín, f. 28.3. 2007. c) Ágústa Sif, f. 4.4. 1991, sam- býlismaður Adam Ward, f. 21.1. 1986, sonur þeirra er Jökull Owen, f. 16.3. 2012. 4) Anna María, f. 27.9. 1957, d. 2.7. 2002, eiginmaður Guðmundur Ingi Sigurjón afi okkar í Hvassa- leitinu var áhugasamur um hversdaginn okkar, hvetjandi og góður. Afi hafði svo mikinn áhuga á skólanum, hvað við værum að fást við þar hverju sinni og hvernig okkur gengi. Sat í stóln- um við gluggann og fór með ljóð eins og Hávamál, Gunnarshólma og fleira. Fornsögurnar kunni hann og þekkti vel persónurnar. Þetta voru eins og ættingjar hans eða fólk sem hann þekkti. Hann var mikill tungumálamaður og lagði mikla rækt við móðurmálið okkar íslenskuna, en svo var hann líka góður í dönsku og þýsku. Þetta hafði hann lært allt saman í Verslunarskólanum og ræktað æ síðan. Stundum feng- um við að heyra ljóð á þýsku. Afi hafði svo mikinn áhuga á dýrum eins og kisunni okkar og auðvitað honum Dökkálfi. Það ríkti mikil eftirvænting ef það fréttist að Dökkálfur væri að koma í borgina. Það varð að vera til lifrarpylsa handa honum og hún varð að vera frá SS. Hund- urinn vildi víst ekki lifrarpylsu frá öðrum framleiðanda. Afi hafði líka mjög gaman af að komast eitthvað með okkur í bílnum og pylsuvagninn á Selfossi var í miklu uppáhaldi. Afi hafði mikinn áhuga á sím- unum okkar en skildi ekki alveg hvað internetið er. Hann kallaði símana okkar apparatið og hafði mikinn áhuga á því þegar við flettum upp fyrir hann í Íslend- ingabók. Oftast áttum við að leita uppi fólk úr sveitinni eða forfeður og formæður langt aftur í tím- ann. Stundum var hann svolítið hissa á niðurstöðunni. Sérstak- lega fannst honum fólk fjarskyld- ara sér en hann hafði búist við. Afi var mjög jákvæður á það sem við gerðum og alltaf til í að prófa eitthvað sniðugt hvort sem það var nýbökuð kaka eða glæný ístegund á markaðnum. Honum fannst óendanlega mikilvægt að vita hvað var að gerast í frétt- unum, innanlands og utan. Hlust- aði mikið á útvarpið og flakkaði á milli Rásar 1 og útvarps Sögu. Með þakklæti í huga kveðjum við Sigurjón afa okkar. Trausta, hlýja og fróða afa okkar. Það hef- ur verið gott og gaman að eiga hann að. Elsku amma, Guð veri með þér á þessum erfiðu tímum. Anna Lovísa og Katrín Hörn Daníelsdætur. Nú situr þú ekki lengur í slitn- um stólnum. Þú sveiflar ekki lengur stafnum orðum þínum til áherslu eða til að upplifa taktinn í eigin hugsunum. Ljóðin heyrast ekki lengur af vörum þínum. Af vörum sem oft báru fram eitt- hvað nýtt og óvænt úr djúpu minninu eða frá gömlum tíma. Röddin er farin, rödd sem var full af óvæntum orðum og orðatil- tækjum. Rödd sem óf sögur og óf sögur inn í sögur. Þú ert farinn eins og þú hafðir í raun beðið eftir svo lengi en jafnframt kviðið. Það mátti búast við þessu Fyrir nokkru spurði ég Sigur- jón hvað væri gott líf. Það stóð ekki á svarinu eins og alltaf. Gott líf er að eiga húsnæði og hafa vinnu sér til lífsviðurværis og að eiga bíl. Það felst svo mikið frelsi í því að eiga bíl. Þetta grundvall- ast þó á því að hafa góða heilsu og lifa í sátt. Húsnæði átti hann í Hvassaleitinu, bestu íbúð í bæn- um að hans mati, enda hafði hann byggt hana og stigaganginn sjálf- ur í samvinnu við aðra góða menn. Þar vildi hann vera á þriðju hæðinni og hvergi annars staðar. Hann var vinnusamur alla tíð og gekk í mörg störf. Þegar ég kynntist honum fyrir tæpum ald- arfjórðungi stóð hann fyrir hús- byggingu í Grafarvogi, var til taks og stuðnings í verslun Önnu konu sinnar í Ármúlanum og keyrði út bækur fyrir Blindra- bókasafnið. Þar var hann í essinu sínu, þar sameinuðust vinna og áhugamál. Frelsið að vera úti að keyra en vera jafnframt í vinnu þegar aðrir voru komnir á eftir- laun og hitta fólk sem var þakk- látt fyrir þjónustuna. Hann sinnti þessu vel fram yfir áttrætt en hætti þegar hann sjálfur var far- inn að missa sjónina. Sigurjón var jafnlyndur fjöl- skyldumaður sem kom vel fram við menn og málleysingja en gat verið kenjóttur á köflum. Þannig má nefna að símann notaði hann helst ekki og lét Önnu um öll símamál. Útlit hluta skipti hann ekki öllu máli en þeir þurftu helst að virka. Ef ekki þá gat hann gripið til ýmissa bráðabirgðaúr- ræða sem oft urðu úrræði til lengri tíma. Það var ekkert mál að líma gleraugun saman með límbandi eða finna sér snæri ef beltið var orðið ónothæft. Einu sinni bilaði miðstöðin í bílnum og þá var að klæða sig vel, hafa góða tusku til taks og kynda með prím- usnum. Sigurjón var sælkeri. Hann naut þess að borða góðan mat með fjölskyldu og vinum. Hann var gestrisinn og vildi að allir fengju nóg. Hann var samt hóf- stilltur og nægjusamur. Einn frammi í eldhúsi naut hann þess að sitja með kjötbita í höndum og gera honum skil. Tálga bitann inn að beini með vasahníf og drekka mjólk með. Fá sér svo kaffi og sykurmola sem bráðnuðu í munni. Nú ert þú mætur og fágætur farinn yfir móðuna miklu. Missir Önnu þinnar er mikill er hún kveður í dag lífsförunaut frá ung- um aldri og sinn besta vin. Minn- ing þín lifir áfram meðal okkar sem eftir lifum og í sjálfu lífs- trénu. Hafðu þakkir fyrir allt. Daníel Heiðar Guðjónsson. Fyrrverandi nágranni minn og fjölskylduvinur, Sigurjón Óskar Sigurðsson, lést hinn 11. nóvem- ber sl. Sigurjón var pabbi bestu vinkonu minnar, Aðalheiðar Guð- rúnar Sigurjónsdóttur, Heiðu. Foreldrar hennar, Sigurjón og Anna Guðný Hildiþórsdóttir kynntust ung að árum og hafa fylgst að alla tíð síðan. Eins og oft vill vera með fólk sem hefur verið mjög lengi saman þá er erfitt að ræða um annað þeirra án þess að hitt sé ekki líka hluti af myndinni. Mér finnst því ómögulegt annað en að tala um þau bæði í þessari stuttu minningargrein. Það er margs að minnast en mig langar til þess að rifja upp það einstaka samband sem ég átti við þau Önnu og Sigurjón sem barn. Það má segja að ég hafi átt tvö heimili þegar ég var að vaxa úr grasi; heima hjá mér og heima hjá Heiðu. Við Heiða vorum saman flestum stundum utan skólatíma. Þegar ég fædd- ist, höfðu foreldrar mínir nýverið flutt í nýja blokk að Hvassaleiti 16 í Reykjavík. Ég var svo heppin að fjölskylda Heiðu flutti á sama tíma í íbúðina beint fyrir neðan okkur. Þar með hófst einstök vin- átta með fjölskyldum okkar og við Heiða höfum verið bestu vin- konur alla tíð síðan. Fjölskyld- urnar í stigaganginum okkar komu víða að en þessa tvo áratugi sem ég bjó í Hvassaleitinu bjuggu þó nánast sömu fjölskyld- urnar þar. Góður samgangur var á milli íbúanna og fjölskyldurnar tóku þátt í gleði og sorgum hver annarrar. Heiða var ári yngri en ég en systkini hennar voru talsvert eldri. Mínar fyrstu minningar eru frá þeim tíma þegar ég sat alla virka daga á stigapallinum snemma morguns og beið eftir því að Sigurjón færi í vinnuna. Mamma og pabbi voru farin í vinnuna og ég beið eftir því að Sigurjón færi í vinnuna. Ekki að mér leiddist Sigurjón, heldur þvert á móti, hann var alltaf svo hlýr og skemmtilegur. Ég var einfaldlega mjög feimin sem barn. Strax og Sigurjón var horf- inn úr augsýn bankaði ég upp á hjá Önnu sem tók alltaf hlýlega á móti mér. Hún ræddi mig um lifið og tilveruna, pólitík dagsins, hvað við ættum að hafa í matinn. Anna og Sigurjón töluðu reyndar alltaf við mig eins og fullmótaðan þjóð- félagsþegn. Þegar Heiða var komin fætur vorum við mamma hennar yfirleitt búnar að lista upp matarinnkaup dagsins og við Heiða röltum saman í Austurver og keyptum í matinn. Þetta voru góðir dagar. Sigurjón var vel gefinn maður, hlýr, rausnarlegur, með létta lund og hjartað á réttum stað. Hann var mikill fjölskyldumaður og vinur vina sinna. Nýverið frétti ég síðasta verk Sigurjóns áður en hann fór til vinnu á morgnana var að taka lásinn af hurðinni fyrir Ellý. Auðvitað vissi hann allan tímann að feimna stelpan á 4. hæðinni fylgdist grannt með honum! Við fjölskyldan þökkum Sigur- jóni fyrir góðar stundir og vott- um Önnu og fjölskyldunni allri einlæga samúð okkar. Minningin um heiðursmanninn Sigurjón Óskar Sigurðsson lifir áfram í hjarta okkar og hugum þeirra sem til hans þekktu. Ellý Katrín Guðmundsdóttir og fjölskylda. Sigurjón Óskar Sigurðsson ✝ Egill Frið-björnsson fæddist í Vík við Fá- skrúðsfjörð 13. ágúst 1932. Hann lést á Vífilsstöðum 14. nóvember 2016. Foreldrar hans voru Guðný Guð- jónsdóttir, f. í Kambsnesi í Stöðv- arfirði 7. desember 1891, d. 26. desem- ber 1973, og Friðbjörn Þor- steinsson, f. á Flögu í Breiðdal 8. ágúst 1891, d. 8. febrúar 1977. Guðný og Friðbjörn voru ábú- endur á Vík við Fáskrúðsfjörð. Systkini Egils eru Áslaug, f. 1. október 1913, d. 23. desember 1991, gift Guðmundi Ó. Magn- ússyni, f. 1908, d. 1999, þau eign- uðust þrjár dætur, Aðalsteinn, f. 5. október 1915, d. 19. febrúar 1987, kvæntur Klöru Ó. Jóns- dóttur, f. 1918, d. 1971, þau eign- uðust einn son, Geir, f. 31. mars 1917, d. 13. nóvember 1981, Sig- urpáll, f. 19. júlí 1918, d. 9. októ- ber 1989, kvæntur Jónu Morten- sen, f. 1925, d. 2015, þau eignuð- ust tvo syni, Jón, f. 5. mars 1922, d. 2. júlí 1995, kvæntur Sveinu P. Lárusdóttur, f. 1918, d. 1995, þau eignuðust einn son, Þórhall- ur, f. 5. ágúst 1925. Egill kvæntist 1. janúar 1960 Guðlaugu Þórðardóttur frá Austur-Landeyjum, f. 25. sept- ember 1936. Foreldrar hennar voru Þórður Þor- steinsson, f. 7. ágúst 1883, d. 26. apríl 1970, og Ólöf Guðmundsdóttir, f. 7. október 1891, d. 17. mars 1976. Egill og Guðlaug eiga fjögur börn. 1) Ólöf, f. 4. nóvember 1959, gift Kåre f. 1955, búsett í Nor- egi. Þau eiga Írisi, f. 1983, gift Per Ake, f. 1973, þau eiga Knut, f. 2007, og Önnu, f. 2009, búsett í Noregi. Knut Egil, f. 1985, kvæntur Marit, f. 1984, þau eiga tvíburana Mart- ine og Marcus, f. 2016, búsett í Noregi. 2) Björn Þór, f. 2. febr- úar 1961, kvæntur Fríðu, f. 1953. Þau eiga Jennýju Rut, f. 1972, gift Stein, f. 1972, þau eiga eiga tvíburana Ísak og Viljar, f. 2005. Geir Atli, f. 1987, kvæntur Nínu, f. 1986. Þau eiga Axel, f. 2016, búsett í Danmörku. Birna Guðlaug, f. 1989. 3) Magnús, f. 24. júlí 1964, í sambúð með Berglindi, f. 1966. Dóttir Magn- úsar er Guðný Íris, f. 1990, í sambúð með Guy, þeirra barn Elín Christina, f. 2014, búsett í Sviss. 4) Guðný, f. 28. febrúar 1972, gift Árna Þór, f. 1966. Þau eiga Birni Þór, f. 2000, og Egil Þór Yang, f. 2010. Útför Egils fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 22. nóvember 2016, kl. 11. Kveðja frá eiginkonu, börn- um, tengdabörnum, barna- og barnabarnabörnum: Svo óvænt hér á jörðu, nú okkar leiðir skilja, en ástkær minning lifir, svo göfug, hrein og blíð. Og liðnar gleðistundir, þær okkar hjörtum ylja, því ástúð sú ei gleymist, er veittir fyrr og síð. Frá björtu lífsins vori, minn elskaður eiginmaður, þín samfylgd blessun veitti, í gleði og hverri raun. Og aðalsmerki hetjunnar áttir þú með sanni, sem öllu vildir fórna, en spurðir ekki um laun. Og þú varst góður faðir, er gafst af hjartans mildi, hið góða í orði og verki, sem gulli dýrra er. Þín ást var leiðarstjarna, er okkar þarfir skildi, svo ævisporin mættu til gæfu liggja hér. Og okkur, afabörnunum, þú elsku vafð- ir þinni, við yl og birtu fundum frá þinni hreinu sál. Þín gæði voru perlur, sem geymum við í minni, en göfugt hjarta stjórnaði þinni traustu hönd. Og tengdabörnin munum, frá fyrstu, fögur kynni, við færum öll af hjarta, þér dýpstu þakkir nú. Og biðjum Guð að launa þér allt, af elsku sinni, svo ertu kvaddur á jörðu í kærleik, von og trú. Guðný Egilsdóttir. Egill Friðbjörnsson Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTBJÖRG M. O. JÓNSDÓTTIR hárgreiðslumeistari, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu Reykjavík 12. nóvember síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju 24. nóvember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á KFUM sumarbúðir í Vatnaskógi. . Gunnar B. Pálsson, Sigrún H. Jónsdóttir, Kristbjörg Lára, Helga Rún og Freyr, Hlynur og Sóley. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, SIGRÍÐUR HERMANNSDÓTTIR líffræðingur, Kúrlandi 16, Reykjavík, lést þriðjudaginn 15. nóvember. Útför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 13. . Bjarni Guðmundsson, Sigrún Henrietta Kristjánsdóttir, Arndís Bjarnadóttir, Guðmundur Hermann Bjarnason. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK ÁSMUNDSSON, Höfðavegi 1, Vestmannaeyjum, lést 19. nóvember. Útför hans verður gerð frá Landakirkju laugardaginn 26. nóvember klukkan 13. . Ásmundur Friðriksson, Óskar Pétur Friðriksson, Elías Jörundur Friðriksson og fjölskyldur. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELSE MIA EINARSDÓTTIR bókasafnsfræðingur og menningarmálastjóri, lést í Ósló 17. nóvember. Minningarathöfn verður haldin í Reykjavík í ársbyrjun 2017 og verður auglýst nánar síðar. . Hjördís Figenschou, Berit Nyman, Einar Hjörleifsson, Kristiina Björklund, Snorri B. Einarsson, Silja B. Einarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.