Morgunblaðið - 22.11.2016, Blaðsíða 30
úr hverfinu sem
þær ólust upp í
og nú er komið
að Elenu að fær-
ast upp á við í
samfélaginu.
Hún hefur lokið
háskólanámi og
giftir sig
menntamanni úr
þekktri og vel
tengdri fjölskyldu. Hjónabandið
reynist þó engin lautarferð; eig-
inmaðurinn er þumbaralegur og
áhugalítill um flest og hún finnur
sig ekki í móðurhlutverkinu. Við
það bætist pressa, einkum frá
henni sjálfri en líka utan að, því
eftir að hafa skrifað vinsæla bók
finnur hún sig knúna til að halda
áfram á þeirri braut, en það geng-
ur heldur brösuglega.
Sagan gerist á 7. áratug síðustu
aldar, upp úr 1968 eða svo, en á
þeim tíma voru gríðarlegar þjóð-
félagsbreytingar á Ítalíu, eins og
víðast hvar annars staðar í Evr-
ópu. Vinkonurnar fara ekki var-
hluta af því, þær gerast virkar í
Þeir sem fara og þeir semfara ekki er þriðja bókin ífjögurra bóka sagnabálkiElenu Ferrante um vin-
konurnar Lilu og Elenu frá Napólí
og vægast sagt flókna vináttu
þeirra og samskipti frá barnsaldri
fram á fullorðinsár. Sagan hefst
þar sem bók númer tvö, Saga af
nýju ættarnafni, lauk og það er
eiginlega ekki hægt að fjalla um
þessa þriðju bók án þess að sleppa
því að minnast á þær sem á undan
eru komnar, því þetta er hrein
framhaldssaga.
Þegar hér er komið sögu hafa
aðalpersónurnar báðar komist út
Skáldsaga
Þeir sem fara og þeir sem fara hvergi
bbbbn
Eftir Elenu Ferrante.
Bjartur 2016. Kilja, 425 blaðsíður.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Kraftmikil og
tilgerðarlaus
vinkvennasaga
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2016
Ferskt ítalskt pasta
Bleikteikning eftir Hergé, höfund
bókanna um ævintýri Tinna, af blað-
síðu 26 í bókinni Í myrkum mána-
fjöllum, var slegin kaupanda á upp-
boði í París fyrir metfé fyrir
frumteikningu af slíkri síðu, rúm-
lega 182 milljónir króna. Fyrir upp-
boðið hafði teikningin verið metin á
80 til 100 milljónir króna.
Síðuteikning Hergés er 50 x 35
cm, gerð með kínversku bleki, og
sýnir hvar Tinni, hundurinn Tobbi
og Kolbeinn kapteinn ganga í geim-
búningum á tunglinu og horfa til
jarðar. Bókin sem síðan er í, Í myrk-
um mánafjöllum, kom fyrst út árið
1954, er framhald sögunnar
Eldflaugastöðin, og telja sérfræð-
ingar hana vera eina að bestu sögum
þessa vinsælasta teiknimyndasögu-
höfundar liðinnar aldar.
Hæsta verð sem áður hafði verið
greitt fyrir síðuteikningu eftir
Hergé úr Tinnabókunum var 148
milljónir króna, sem árið 2012 voru
greiddar fyrir káputeikninguna af
Tinni í Ameríku. Hergé er einnig
höfundur dýrustu teikningar sem
tengist teiknimyndasögum af
nokkru tagi, en það var greitt fyrir
frumteikningu saurblaðanna sem
prýddu Tinnaútgáfur á árunum 1937
til 1958; fyrir hana greiddi safnari
300 milljónir króna fyrir tveimur ár-
um.
Verðmæt Teikning Hergé með kín-
versku bleki af síðu 26 í Tinnabók-
inni Í myrkum mánafjöllum.
Tinnamynd
kostaði 182
milljónir
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Tónlistarmaðurinn sem kallar sig
Umma, Unnsteinn Guðjónsson, hef-
ur sent frá sér sína þriðju breiðskífu
og kallar hana Of mikið af fersku
lofti. Á plötunni eru fjórtán frum-
samin lög. Fyrri plötur Umma,
Ummi og Stundum er minna meira
komu á markað
árin 2010 og
2013. Umma
þekkja margir
sem annan helm-
ing dúettsins Sól-
strandagæjanna.
Lögin hljóðritaði
hann í Kaupmannahöfn og í Vancou-
ver í Kanada en síðarnefndu borg-
inni hefur hann verið búsettur síð-
ustu ár. Hann segir að með útgáfu
plötunnar ljúki einu áhugaverðasta
verkefni sem hann hafi tekið sér fyr-
ir hendur í texta- og tónlist-
arsköpun.
„Nokkrum vikum eftir að síðasta
plata mín kom út flutti ég með fjöl-
skylduna vestur um haf til Vancou-
ver, eftir að hafa búið í 13 ár í Eng-
landi,“ segir Ummi.
„Á þeim tíma var ég þegar farinn
að undirbúa upptökur á uppsöfnuðu
efni og sá fyrir mér að halda áfram á
mjög svipaðan hátt við upptökur.
Það sem kom mér á óvart var að
eftir aðeins nokkrar vikur hér í Van-
couver var ég farinn að spila reglu-
lega með einstökum tónlistar-
mönnum sem ég hafði kynnst hér og
sennileg vegna þess að hugarfar
listamanna hérna megin er mjög
frábrugðið og miklu afslappara en
ég var vanur, og sennileg líka vegna
þess að það höfðu verið mikil um-
skipti við að flytja yfir hafið, þá fór
þessi hugmynd að brjótast um í mér
– að snúa öllu á haus í sambandi við
hvernig ég nálgaðist upptökur á
uppsöfnuðu efni en aðallega þó við
laga- og textasmíðar.“
Bölvun eða blessun?
„Ég hef gegnum tíðina lagt mikið
upp úr því í að reyna að skilja ná-
kvæmlega hvaðan sú árátta að
semja lög og texta kemur og með
tímanum náð mjög góðu valdi yfir
því, svo að þetta sé ekki að flækjast
fyrir mér í tíma og ótíma, ég hef í
raun og veru aldrei sæst á hvort
þessi árátta við lagasmíðar sé bölv-
un eða blessun. Þó að það sé mjög
gefandi ferli að semja eitthvað þá er
ég svo sannarlega ekki týpa sem
finnst það eitthvað merkilegt að
semja tónlist, þetta er bara hluti af
tilvistinni.
Ég hef haft það sem reglu að
reyna aldrei að semja lög og texta
því þetta kemur alltaf af sjálfu sér
en eftir flutninginn vestur um haf
fékk ég sem sagt þessa hugmynd, að
í staðinn fyrir að vinna lög sem
höfðu safnast upp í skúffuni hjá mér
þá ákvað ég að semja plötu um eitt-
hvað sem myndi koma mér fyrst til
hugar svo ég skrifaði fyrst niður
nöfn á 14 lögum og eina helgina sett-
ist ég niður og samdi lögin.“
Hvert sækirðu innblástur fyrir
lagasmíðina?
„Innblásturinn að textunum sæki
ég í lífið, í fólk og samræður, í sam-
skipti við annað fólk. Ef ég hef eitt-
hvað lögmál við að semja tónlist þá
er það að aldrei REYNA að semja
neitt, vegna þess að þetta verður
alltaf til reglulega. En eins og áður
sagði þá snéri ég þessu algerlega við
þegar ég samdi lögin fyrir þessa
plötu en engu að síður var innblást-
urinn í sama formi, munurinn var
bara að ég leitaði uppi eitthvað sem
passaði við nöfnin á lögunum.“
Að skilgreina tilvistina
Ummi leggur mikið upp úr hönn-
un og umbúðum platna sinna. Hann
hefur gefið fyrri plötur sínar út á
vínyl og segir ekki ólíklegt að ein-
hver eintök þeirrar nýju komi
seinna út á því formi. „En nýja plat-
an snýst aðeins um tónlistina, ekk-
ert annað, svo ég vildi hafa útgáfuna
einfalda.
Ég hef aldrei áður gert neitt í tón-
list eða útgáfu sem ég er svona
hundrað prósent ánægður með;
þetta er eina platan sem ég hef unn-
ið að sem ég hef hlustað á aftur eftir
útgáfudaginn …“
Hvaða stefnur og straumar í tón-
listinni hafa mest áhrif á þig og hef-
ur það áhrif á þína eigin tónlist?
„Ég hlusta á alla tónlist og fer í
gegnum tímabil það sem ég hlusta
meira á eina stefnu en aðra. Það
getur verið allt frá Woody Guthrie
til Mozart; Billy Holiday, Bob Dyl-
an, Bob Marley, the Clash, the Pixi-
es, Black Sabbath, the Kinks, The
Flaming Lips, svo einhverjir séu
nefndir. En Dylan er án efa sú per-
sóna sem hefur haft mest áhrif á
mig og mikið af mínum lagasmíðum
er undir áhrifum frá honum.“
Núna ertu búsettur í Vancouver,
notarðu textasmíði til að halda
tengslum við Ísland?
„Nei, ég held að ég noti texta-
smíðarnar til að vera í tengslum við
sjálfan mig. Fyrir mér eru laga- og
textasmíðar aðeins túlkun á vissum
straumum sem eru allt í kringum
okkur alla daga, ég helda að allar lif-
andi verur skynji þetta sama en
sumir þurfa að kryfja þetta til
mergjar og hripa það niður á blað til
að geta skilgreint tilvist sína og ann-
arra og ég sennileg einn af þeim.“
Ummi starfar við kvikmyndagerð
vestur í Kanada og segir skemmti-
leg verkefni framundan á því sviði.
„Hvað snýr að tónlistinni, þá er ég
er með nokkrar plötur tilbúnar til
upptöku sem mig langar að takast á
við á næstu misserum,“ segir hann.
Snéri öllu á haus
Tónlistarmaðurinn Ummi gefur út þriðju hljómplötuna Lagasmíðar „bara
hluti af tilvistinni“ Fluttur til Vancouver og fór nýjar leiðir við gerð plötunnar
Listamaðurinn „Innblásturinn að textunum sæki ég í lífið, í fólk og sam-
ræður, í samskipti við annað fólk,“ segir Ummi um textana við lögin á nýju
plötunni, en hann fór nýja leið við að semja þau, búsettur í nýju landi.