Morgunblaðið - 22.11.2016, Síða 36

Morgunblaðið - 22.11.2016, Síða 36
Morgunblaðið/Árni Sæberg Í Hannesarholti Arnór, Ragnheiður, Þóra, Gísli Arnór og Svana Víkingsbörn. Þórhallur missti af samsöngnum. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Syngjandi fjölskyldur leynast víða, flestar syngja aðeins í heimahúsum, hjá ættingjum og vinum en sumar skyggnast upp á yfirborðið af og til. Víkingsbörnin Arnór, Ragnheiður, Þóra, Gísli Arnór, Svana og Þórhall- ur eru í þeim hópi, en þau stóðu fyrir samsöng með gestum í Hann- esarholti á dögunum, rétt eins og í fyrra, og gera það væntanlega í þriðja sinn að ári. Systkinin ólust upp í Hvassaleitinu í Reykjavík og segir Gísli Víkingsson að þar hafi tónlistin ráðið ríkjum og fjölskyldan sungið í öllum hornum. „Pabbi, Víkingur Heiðar Arnórsson, spilaði á píanó og við vorum öll „pínd“ í píanótíma á sínum tíma, byrjuðum um sjö ára gömul og flest voru hætt um tíu ára aldurinn, en Svana, sú elsta, er sú eina sem fór alla leið og varð píanóleikari og -kennari,“ segir hann um grunninn. Tónlistin hafi þannig borist frá kyn- slóð til kynslóðar og þess má geta að Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleik- ari er sonur Svönu. Síspilandi Þótt formlegt tónlistarnám yrði ekki langt hélt Gísli áfram að spila á píanó og harmóniku. „Þegar ég var unglingur fékk ég áhuga á popp- og rokkmúsík og fór að spila eftir eyr- anu,“ rifjar hann upp, en Gísli spilar af og til með „eldri manna bílskúrs- böndum“, eins og hann kallar það. Hann er líka í „Bandinu hans Budda“ með Þórhalli bróður sínum, sem kall- aður er Buddi, og kemur fram í fjöl- skylduveislum. Hann hefur líka spil- að með dúettinum Súkkat. „Þegar við Rúnar Marvinsson kokkur bætt- umst við fékk bandið nafnið Punt- stráin,“ segir hann. Á námsárunum í Kaupmannahöfn spilaði Gísli með hljómsveitinni Kamarorghestum og gaf bandið út plötuna „Bísar í bana- stuði“. Í sveitinni voru söngvararnir Lísa Pálsdóttir og Kristján Pétur Sigurðsson, Benóný Ægisson, Björg- úlfur Egilsson, Þorbjörn Erlingsson, Kristján Þór Sigurðsson og síðast en ekki síst Óli í Pops, Ólafur Sigurðs- son trommari. „Þetta var stórsveit sem kom einkum fram á Íslendinga- samkomum,“ segir Gísli. Að loknu námi erlendis tóku syst- kinin upp sameiginlegan söngþráð á ný með tilheyrandi hljóðfæraleik. Gísli áréttar að nú sé Svana helsta sprautan og allir söngþræðirnir liggi í Hvassaleitið. „Samsöngurinn á upp- runa sinn að rekja til gamlárskvölds í æsku,“ segir hann og bætir við að gamla árið hafi verið kvatt með söng og því nýja fagnað á sama hátt. „Á gamlárskvöld var alltaf mikið sungið í Hvassaleitinu og sérstaklega í kringum miðnættið.“ Systkinin halda sig að mestu við gömlu, góðu lögin með Elly Vil- hjálms, Hauki Morthens og Bítl- unum. „Þetta hefur mest verið á lágu nótunum, fyrst og fremst í fjöl- skylduveislum, en við komum fyrst saman opinberlega þegar við leidd- um söng í Hannesarholti í fyrra og svo aftur núna,“ segir Gísli. Syngjandi systkini frá æsku  Hafa tvisvar komið fram opinberlega Fjölskyldan Aftari röð frá vinstri: Gísli Arnór, Þóra og Svana. Fremri röð frá vinstri: Stefanía Gísladóttir, Ragnheiður, Arnór, Þórhallur og Víkingur Heiðar Arnórsson. ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 327. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Andlát: Guðmundur Stefánsson 2. Missti af 10 milljónum í HHÍ 3. Forskot Clinton eykst enn 4. Flytja ekki í Hvíta húsið »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur kemur fram á djasstónleikum á Kex Hosteli við Skúlagötu í kvöld og hefjast leikar kl. 20.30. Tríó Sunnu hefur verið öt- ult við útgáfu og tónleikahald, heima og erlendis, og mun nú leika valin lög af útgefnum geisladiskum þess. Tríó Sunnu leikur sparilög úr safninu  Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti Akureyr- arkirkju, kemur fram á Hádegis- tónleikum í Hafnarfjarðar- kirkju í dag kl. 12.15. Leikur hún orgelverk eftir Pál Halldórsson (1902-1988), sem var fyrsti organisti Hallgrímskirkju. Allir eru velkomnir á tónleikana, sem standa í hálfa klukkustund, og er boðið upp á kaffisopa á eftir. Flytur orgelverk eftir Pál Halldórsson  Myndlistarmaðurinn Gústav Geir Bollason heldur í dag kl. 17.40 fyrir- lestur í Listasafninu á Akureyri – Ketilhúsi. Í fyrirlestrinum, sem hann kallar „Myndlist í brjáluðu húsi“, fjallar Gústav um sögu, tilgang og markmið Verksmiðjunnar á Hjalt- eyri, sem er í dag með athyglisverðustu sýningarrýmum á landsbyggðinni og hlaut Eyrar- rósina í ár. Fjallar um myndlist í brjáluðu húsi Á miðvikudag Hæg breytileg átt, úrkomulítið og víða frost. Sunn- an 5-13 m/s og fer að snjóa síðdegis, fyrst vestanlands, en slydda eða rigning og hlýnar vestan til um kvöldið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 3-8 m/s og dálítil snjómugga eða slydda í dag, en þurrt á Norður- og Norðausturlandi. Frostlaust með suður- og vesturströndinni. VEÐUR „Þetta var mjög ljúft. Allir voru mjög glaðir eftir þennan leik enda náðum við að sýna okkar rétta andlit. Við spiluðum vel bæði í vörn og sókn og því var þetta frábær frammi- staða,“ sagði Thea Imani Sturludóttir, hin unga stór- skytta handboltaliðs Fylkis, sem átti einn af betri leikj- um sínum á leiktíðinni gegn ÍBV. Fylkisliðið hrós- aði sætum sigri. »2 Frábær frammi- staða skóp sigur „Auðvitað er markmiðið að komast í landsliðið en eins og ég byrjaði tíma- bilið átti ég ekki skilið að vera valinn. Ef það verður stígandi í leik mínum og ég verð stöðugri en ég hef verið vonast ég auðvitað eftir tækifæri,“ segir Adam Haukur Baumruk, handknattleiksmaður úr Hauk- um, sem hefur spilað mjög vel með Íslandsmeisturunum að undanförnu. »3 Vonast eftir tækifæri ef ég verð stöðugri Íslenska karlalandsliðið í körfubolta getur mætt þremur af þeim fimm lið- um sem það lék gegn í Berlín í fyrra þegar það tekur þátt í úrslitakeppni EM karla í körfubolta í Finnlandi næsta haust. Dregið verður í riðla í Istanbúl í dag og þá kemur í ljós hverjir mótherjarnir fimm verða í riðli Íslands, sem verður leikinn í Helsinki. »2-3 Gæti mætt þremur sömu liðum og í Berlín ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.