Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Page 29
Vikublað 3.–5. mars 2015 Lífsstíll 29
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin f
PLANKAPARKET
840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Ljúffengur laxaborgari
með spennandi rækjusalati
A
ð þessu sinni kynnum við til
sögunnar uppskrift að ljúf-
um laxaborgara. Grunnur-
inn er auðveldur en svo er
um að gera að bragðbæta
með uppáhaldsfiskikryddinu, breyta
um lauktegund eða bæta við fersk-
um kryddjurtum eins og sólselju
(dilli).
Kremkennt rækjusalat
Það skiptir litlu hvers konar krem-
kennt salat er sett ofan á borgarann.
Hægt er að nota uppáhaldstúnfisk-
salatið eða gamla góða majónes-
rækjusalatið sem aldrei klikkar. Hér
er nýstárlegt og vel kryddað rækju-
salat í boði. Það er kryddað með
pipar rót sem hefur milt en um leið
með ákveðið piparbragð. Magnið er
algjört smekksatriði, en 1–2 tsk. eru
lágmark svo að bragðið komi í ljós.
Ferskt dill og hrogn gefa bæði fal-
legan lit og bragð í salatið, og ekki
gleyma að saxa rækjurnar áður en
þær eru settar út í majónesblönduna.
Áferðin verður ógleymanleg.
Hveiti eða fiberhusk
Fiberhusk-trefjar eru kolvetnaminni
en hvítt hveiti og virka alveg jafn vel
til að þétta fiskdeigið þannig að hægt
sé að móta úr því borgara eða bollur.
Ef þið viljið frekar nota hveiti er það
alveg leyfilegt – magnið þarf þá bara
að vera aðeins meira eða um það bil
fjórðungur af hakkinu. Langamma
kenndi mér að gera kross í hakkið í
skálinni. Taka upp fjórðung og fylla
gatið með hveiti áður en fjórðungur-
inn er látinn aftur saman við. Það er
víst hið fullkomna hlutfall fisks og
hveitis.
Magnkaup
Notið gjarnan tækifærið til að fylla
frystinn með hollum „skyndibita“.
Tvöfaldið eða þrefaldið uppskriftina,
án mikillar aukavinnu, og steikið enn
fleiri borgara aukalega til að skella í
frystinn. Það má líka alveg eins móta
bollur úr laxfarsinu og taka fram eftir
þörfum. Það kann að hljóma undar-
lega en krakkar eru oftast viljugri til
að borða flest allt sem er kúlulaga! n
Einfaldur grunnur sem hægt er að bragðbæta með mismunandi kryddum
4 borgarar
n 700 g lax
n 3–4 salatlaukar eða
lítill laukur
n 1 egg
n 2 msk. fiberhusk–trefjar/
psyllium husk–duft
n 1 tsk. salt og pipar eða
tilbúið blandað fiskikrydd
að eigin vali
n Smjör til steikingar
Laxinn er malaður í kjöt-/
fiskikvörninni á hrærivélinni,
eða settur í minni skömmtum
í matvinnsluvél þar til hann
verður að mjúku og meðfæri-
legu fiskhakki.
Ef vélar eru ekki til staðar er
hægt að nota beittan hníf til
að hakka fiskinn í smátt.
Laukurinn er skorinn smátt
og bætt við fiskhakkið. Svo
er kryddi, eggi og husk-dufti
bætt við og hrært vandlega.
Leyfið blöndunni að standa
stundarkorn svo að husk-
duftið dragi í sig vökvann
úr fiskinum og þétti deigið
– þannig verður auðvelt að
búa til borgarana og þeir
halda laginu á pönnunni við
steikingu.
Fjórir borgarar eru mótaðir
og smjör brætt á frekar heitri
pönnu. Borgararnir eru steiktir
á báðum hliðum þar til þeir
eru orðnir fallega steikarbrún-
ir – um 5 mínútur á hvorri hlið.
n 1 dl majónes, til helminga sýrður rjómi
n 1 msk. söxuð sólselja (dill)
n 1 msk. piparrót eða meira eftir smekk
n 1 msk. grásleppuhrogn (rauð eða svört)
n 170 g rækjur, saxaðar smátt
n salt og pipar eftir smekk
Byrjið á að blanda saman majónesi og
öllu kryddi. Söxuðum rækjum og hrognum
er svo bætt við og blandað saman. Látið
standa í ísskáp þar til laxaborgararnir eru
tilbúnir.
Hér eru herlegheitin borin fram á fersku
blönduðu salati með bláberjum: laxa-
borgarinn og rækjusalat þar ofan á, og
kórónan á verkinu er sítrónusneið. Það er
ómissandi að kreista ferskan sítrónusafa
yfir þessa frísklegu máltíð!
Begga og hrærivélin Begga er ritstjóri Sælkerapressunnar – pressan.is/saelkerapressan
Vel kryddað rækjusalat
Ljúffengur Laxa-
borgarinn umkringdur
bláberjum á grænu
beði. Mynd Sigtryggur Ari